Dagur


Dagur - 06.10.1956, Qupperneq 2

Dagur - 06.10.1956, Qupperneq 2
2 D A G U R Laugardaginn 6. október 195$ Er Filippus drottningarmaður aS glala lýShylli sinni Hertoginn af Edinborg var glæsilegur fulltrúi þjóðar sinnar á brezku sýningunni í Kaup- mcnnahöfn í fyrrahaust, og hon- um var fagnað ákaflega af öllum. En hann virtist ekkert hrifinn af fagnaðarlátunum. Þau virtust jafnvel fara í taugarnar á honum. Þetta kom í Ijós m. a., er Filippus heimsótti stórt svínabú úti á Sjálandi. Hann gekk gegnum svínahúsið, og allt í kring voru rýtandi svín, kjaftandi ráðu- nautar og æðandi blaðaljós- myndaraar. Það var mjög erfitt að taka myndir þarna, og Ijós- myndararnir urðu oft og einatt að klifra inn til svínanna til þess að komast í „skotfæri". Hertog- inn fór hratt yfir, og myndatöku- mennirnir voru hálfóánægðir, en þó „skutu“ þeir án afláts til þess að ná í einhverja nothæfa mynd. En allt í einu sneri prinsinn sér að þeim og spurði hvatskeytlega: „Hví í ósköpunum takið þið ekki fleiri myndir af svínunum?“ Að svo mæltu skálmaði hann út. Brezkur fylgdarmaður vildi gera gott úr þessu og skýrði frá því, að hertoginn væri slæmur í augunum, og því þyldi hann illa hina skæru blossa myndavél- anna. En þetta er þó vafasöm skýring. Sá, er hefur fylgzt með þvi, sem brezku blöðin hafa skrifað undanfarna mánuði, hef- ur tekið eftir mikilli stefnubreyt- :ingu gagnvart Filippusi. Fer stjarna hans lækkandi? — Margt bendir til þess, að lýðhyll- :in sé að minnka. Um það leyti :sem krýningarhátíðin fór fram, var Filippus hertogi hylltur ákaft af lýðnum — og það ekki síður en aðrir meðlimir kon- ungsfjölskyldunnar, hann var allra eftirlæti þá, en nú ber brezkur almenningur ekki sama hug til hans og áður. í þeim blöð- um, sem almenningur les mest, Daily Mirror og Sunday Express, en þau koma út í milljónaupp- lögum, hafa komið alls konar sneiðar til Filippusar. Honum hefur einkum verið borin á brýn ákurteisi — og svo óhófseyðsla, og dálkar þessara blaða hafa ver- ið galopnir fyrir þeim bréfum lesenda, sem gagnrýnt hafa ensku konungsfjölskylduna á ýmsan hátt, og þessi opinbera gagnrýni hefur óhjákvæmilega haft áhrif á almenningsálitið. Einn af þekktustu blaðamönn- um í Englandi, John Gordon hjá Sunday Express, en hann er óhh'finn og napuryrtur, skrifar nýlega grein, sem mikla athygli vakti, og bendir þar á kæruleysi Filippusar í peningamálum. Gor- don segir, að áður fyrr hafi hann orðið að spara mjög, hann hafi t. d. ekki átt nema einn borgara- legan klæðnað, en síðan hann giftist drottningunni liafi hann úðað út þúsundpundaseðlum og ekkert spurt, hve hlutirnir kost- ■uðu mikla peninga, en þá verði brezkir gjaldþegnar að leggja til. í Brellandi? Hinir þrautpíndu skattgreiðend- ur Hennar hátignar hafa látið sér detta ýmislegt í hug, er þeir fréttu, að útgjöldin við matar- vagninn í hinni konunglegu lúx- uslest myndu stíga yfir 2 millj. króna, og það er ekkert leyndar- mál, að Filippus prins hefur eggjað drottninguna til þessara framkvæmda, en þarna er m. a. sérstakt kælikerfi og svo eldhús, sem tekur öllum eldhúsum fram. Gordon álítur, að hinir kæru þegnar hafi rétt á því að spyrja, hvað allur þessi lúxus eigi að þýða. Og ekki gleymir heldur blaðamaðurinn að benda á, að það er tiltölulega sjaldan, sem vagn þessi verður notaður. EYDSLA A ALMANNAFÉ. En hinn miður góðviljaði Gor- don lætur sér þetta ekki nægja. Það kostaði á aðra milljón að innrétta konunglega salinn í flughöfninni í London. Drottn- ingin notar sal þennan í hæsta lagi þrem sinnum á ári, svo að innréttingin sýnist þess vegna engu ódýrari en tölurnar segja til um. Og svo er það konunglega snekkjan, Brittania, hún kostaði líka talsvert. Eftir því sem Gor- don segir, og hann virðist ekki vera í neinum vandræðum með að nefna tölur, þá kostaði Britt- annia á annað hundrað milljónir! króna. Fyrir skömmu var ger.t við skipið fyrir nær 5 milljónir, og það kostar skattgreiðendurna á annað hundrað þúsund krónur á dag, hvort sem drottningin er um borð eða ekki. Við þetta má svo bæta, að Elísabet drottning á flestar og dýrustu einkaflugvélar í heimi, en nú hafa, að áeggjan Filippusar, að haldið er, verið pantaðar 2 vélar í viðbót fyrir meira en 100 milljónir. Von er, að Bretum þyki þetta óþarft, því að þó sjaldan að drottningin flýgur, fer hún með vél frá einhverju hinna brezku flugfélaga. „EG LEIK MÉR AÐ PUTUNUM A MÉR.“ Þegar svo víðlesið blað sem Sunday Express skrifar með stórum fyrirsögnum um eyðslu- semi konungsfjölskyldunnar, þá kemst þetta auðvitað á varir al- mennings, og umtalið vex og margfaldast. Daily Mirror, sem hefur 5 milljóna upplag, hefur líka i’áðizt óvægilega á eyðslusem ina við húshaldið í Buckingham- höll, og var meira að segja fyrr á ferðinni en Sunday Express. — Daily Mirror réðst á ýmsa með- limi konungsfjölskyldunnar fyrir óhófseyðslu á því fé, sem þeir fengju frá skattgreiðendum. Það var bent á það, að ekki þyrfti all- an þennan fjölda til þess að koma fram opinberlega, það starf gætu 2—3 manneskjur innt af höndum í stað 8 eða 9, sem nú fengjust við slíkt. Eftir þessari ábendingu var tekið í Buckinghamhöll, og áreiðanlega hefur Filippus tekið þetta til sín, það kom greinilega í ljós skömmu seinna, er hann var í opinberri heimsókn í Dun- lopverksmiðjunum. Þá skrapp upp úr honum: „Annars vitið þér vel, að eg geri ekkert annað en að leika mér að putunum á mér.“ RUSTALEGUR VIÐ ÞJÓNANA. Þessi orð eru eftirtektarverðai’i en þau sýnast fyrst. Þetta var í fyrsta sinn í Bretlandi, að kon- ungleg persóna svaraði fyrir sig gagnvart aðdróttunum í blaði, og þessi orð lægðu ekki öldurnar, því að prinsinn viðurkenndi með þeim, að hann hefði orðið fyrir höggi. Blöðin þögðu ekki við heldur færðust öll í aukana. Það er mjög erfitt að dæma um sann- leiksgildi þess, sem skrifað er, en eitt er bara víst, að það er mikið skrifað ..um þessi mál. Það er ekki einungis, að Filippusi sé kennt um eyðslu, heldur er líka fundið að framkomu hans, eink- um er sagt að hann komi rusta- lega fram við hirðþjónana. Hann er gamall sjómaður og bölvar gjarnan og mikið, og hann brýtur oft hina ströngustu hirðsiði, en brot á gömlum siðum taka Bret- ar illa upp. Eitt sinn var Filippus að flýta sér gegnum Bucking- hamhöll, og þjónn opnaði kur- teislega fyrir hann dyrnar. Filippus stanzaði, hvessti augun á þjóninn og sagði: „Þetta er ekki nauðsynlegt. Eg hef handleggi sj;áífur,“ Það er líka oft vitnað í önnur orð. Eitt sinn ræddi Filippus við konu, sem sífellt ávarpaði hann með „yðar konunglega hátign.“ Að lokum varð hann óþolinmóð- ur, hnyklaði brýrnar og sagði: „Eg vil ekki láta kalla mig konunglega hátign: Kallið mig Sir. Við erum ekki við hirð Art- húrs konungs.“ Þessi dæmi hneyksla okkur ekki, þau vekja frekar samúð okkar, sem lítum lýðræðislegar á hið konunglega en Bretinn, en okkur lízt ekki eins vel á það næsta. Listamaður hafði selt hinni konunglegu fjölskyldu málverk, og er hann þakkaði fyrir heiður- inn, svargði Filippus prins: „Ekkert að þakka. Það var bara blettur á veggnum hjá okk- ur, sem við urðum að láta hverfa.“ Málarinn kunni víst ekki að meta þennan furstalega húmor, og ekki heldur vísindamaðurinn, sem lengi hafði skýrt vísindi sín fyrir Filippusi, sem sagði þurrlega: „Jú, þetta hljómar allt senni- lega. En hvernig stendur á því, að niðurfallsrörið hrýtur, þegar eg tæmi baðkerið mitt?“ John Dean, hinn gamli þjónn prinsins, sem nú er kominn á eft- irlaun, segir frá því í endurminn- ingum sínum, að drottningin hafi oft orðið að stilla æst skap manns síns. Einu sinni varð hann bál- vondur vegna þess, að gömul þjónustukona við hirðina fór að kalla sig hertogaynju af Edin- (Framhald á 7. síðu). Guðný Björnsdóftir Guðný mín Björnsdóttir látin og borin til moldar á Akureyri 2. október. Mörgum Akureyringum er Guðný vel kunn, bæði af því að hún átti þátt í mörgum félags- málum hér í bæ, og þá ekki síður af því, að hún var elskuleg kona, skemmtileg og gáfuð, fróð og áhugasöm um öll góð málefni. Guðný Bjömsdóttir. Guðný átti sér aðeins einn son, Björn Halldórsson, lögfræðing, einkasonurinn var hennar ást og athvarf. Guðadótturina, Guðbjörgu, missti hún ungfullorðna 1928 og bar hún varla bar sitt eftir þann missi. — En Guðný bar harm sinn í hljóði, hún var dul í skapi, en þó ætíð glöð og hress í anda, skemmtileg í samræðum. Trygg- lynd svo að af bar. Kynning okkar og v.inátta hófst er við vorum báðar ungar stúlk- ur: Hún nemandi við Kvenna- skólann í Reykjavík og eg kenn- ari við þann skóla aldamótaárið. Ekki var að tvíla það, að Guð- ný kynni þær námsgreinar, sem eg veitti tilsögn í. — Minnið og gáfurnar var frábært. Svo hittumst við aftur hér á Akureyri, og tókum upp vináttu að nyju. — Þá kynntist eg einnig hinum ágæta manni hennar, Halldóri Einarssyni, ferjumanns, frá Skógum (af Fellsselsætt). Guðný sagði til börnum alla ævi, var það sérstaklega lagið. — Hún laðaði öll börn að sér. Hún veitti oft tilsögn börnum, sem áttu bágt með að læra. Veitti okkur stuðning með því þau ár, sem eg var skólastjóri á Akur- eyri. Svo var Guðný um tíma for- maður Sambands norðlenzkra kvenna og fórst það vel sem önn- ur störf. — Einnig starfaði hún árum saman í Sysavarnafélagi Akureyrar — einnig í „Hlíf“ og „Einingu". Öll félagsstörf vann hún með gleði og af áhuga. Við hörmum öll fráfall Guð- nýjar, þó hún væri aldin að ár- um, var hún jafnan glöð og hreif og ráðagóð. — En þungbærast verður fráfall hennar heimili einkasonarins. Þar reyndist Guð- ný sem fyrr ágætiskona. — Hún tók tengdadóttur sinni, þeirri góðu konu, sem kom úr framandi landi, þótt af íslenzkum stofni væri runnin, tveim höndum og reyndist henni sem bezta móðir og barnabörnunum var hún sannur engill. Guðný Björnsdóttir var fædd 4. des. 1879 á Breiðabólsstað £ Vesturhópi. Foreldrar hennar voru þar um það leyti hjá séra Jóni Kristjánssyni, föðurafa Guðnýjar. En á Syðri-Þverá bjuggu þau hjón síðar, og þar ólst Guðný upp. Guðný var Þingeyingur í föð- urætt: Af öndvegisætt: Illuga- staðaætt, svonefndri. — Móður- ættin var sunnlenzk og er hún mér ókunnug. Halldóra Bjarnadóttir. Aððlfundur Kennarasambands Ausfurlands Dagana 15. og 16. sept. Sl. var 12. aðalfundur Kennarasambands Austurlands haldinn í barna- skólahúsinu í Neskaupstað. . — Gunnar, Olafsson, form. samb., setti fundinn. Fundarstjórar voru þeir Steinn Stefánsson og Oddur A. Sigurjónsson, en fund- arritarar Davíð Áskelsson og Valgeir Sigurðsson. Á fundinum voru mættir kennarar af sam- bandssvæðinu ásamt nokkrum gestum, samtals 31 maður. Á fundinum flutti Skúli Þor- steinsson, skólastjóri, frássögn um utanför, en hann hafði heim- sótt allmarga skóla á síðasta ári, og Jóhannes Óli Sæmundsson, flutti erindi um vetrarstarfið. — Auk þess ræddi Aðalsteinn Ei- ríksson, námsstjóri, sem mætti á fundinum, ýmis viðhorf í skóla- málum. Urðu allfjörugar umræð- ur um þessi erindi, og kom það meðal annars fram, að kennarar eru mjög andvígir styttingu skólaskyldunnar, a. m. k. ef eng- in önnur úrræði koma þar í móti til hjálpar unglingum. Eftirfarandi tillögur voru sam- þykktar á fundinum: 1. Tólfti aðalfundur K. S. A. beinir þeirri eindregnu áskorun til fræðslumálastjórnar, að hún láti þegar á næsta ári gefa út handbók, þar sem í heild sé að finna öll lög og reglugerðir um skólahald, svo og um skyldur og réttindi kennara. 2. Tólfti aðalfundur K. S. A. beinir því til Ríkisútgáfu náms- bóka, að hún láti sitja fyrir að gefa nú þegar út litprentaða landakortabók og einnig hand- hæga stafsetningaorðabók. 3. Fundurinn felur væntanlegri sambandsstjórn að koma á sýn- ingu barna- og unglingabóka á næst aaðalfundi. Fundurinn tel- ur mjög æskilegt, að safni slíkra (Framhald á 7. síðu.)

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.