Dagur - 06.10.1956, Qupperneq 6
6
D A G U R
Laugardaginn 6. október 1956
Sundmót á Akureyri
í júli 1956
100 m. bringusund karla:
1. Árni Jónsson, Þing., 1.26.4
2. Áskell Egilsson, Þing., 1.30.5
3. —4. Þorst. Áskelsson, Þing.,
1.32.8.
50 m. skriðsund karla:
1. Kristj. Valdimarss., K. A., 33.3
2. Þorst. Áskelsson, Þing., 34.4
3. Vernh. Jónsson, K. A., 34.6
50 m .bringusund telpna:
1. Margrét Guðm.d. 50.7
2. Jónína Pálsdóttir 51.0
3. Rósa Pálsdóttir 51.2
50 m. bringusund karla:
1. Árni Jónsson, Þing., 38.9
2. Áskell Egilss., Þing., 41.8
3. Þorst. Áskelss., Þing., 42.0
50 m .sund drengja:
1. Svanur Eiríksson 49.6
2. Sveinbj. Vigfússon 50.1
4x35 m. boðsund:
1. Karlar, Akureyri 1.33.7. (Kári,
Jónas, Vernharður, Kr. V.).
2. Þingeyingar 1.35.5
50 m. bringusund stúlkur:
1. Sólveig Guðbj.d. 48.7
1,—2. Kristín Halld.d., Þing., 48.7
3. Aðalh. Jónsdóttir, Þing., 59.2
25 m. skriðsund stúlkur:
1. Sólveig Guðbj.d. 18.9
2. Kristín Halld.d. 19.5
25. m. skriðsund drengja:
1. Björn Arason 18.7
2. Sveinbj. Vigfússon 19.3
3. Svanur Eiríksson 20.4
25 m .skriðsund telpna:
1. Rósa Pálsdóttir 19.4
2. Guðný Bergsdóttir 21.6
í móti þessu kom fram margt
efnilegra sundmanna og kvenna,
sérstaklega vöktu athygli Rósa
Pálsdóttir (Línberg) og Svanur
Eiríksson (Guðmundssonar) og
voru þau stighæst yngri kepp-
endanna. Mótsstjóri var ísak
Guðmann, form. Sundráðs Ak.,
og var hann einnig forgöngumað-
ur þess, að Jónas Halldórssoon
sundkappi var ráðinn sundþjálf-
ari hingað norður í nokkrar vik-
ur og að stofnað var til móts
þessa. Væntanlega verður sund-
mót fastur liður í mótaskrá ÍBA
hér eftir. Þá var einnig ánægju-
legt að sjá hina gömlu meistara
Kára Sigurjónsson og Jónas Ein-
ársson meðal þátttakenda í boð-
sundinu. og eru þeir meðal beztu
sundmanna bæjarins, þótt senn
sé aldarfjórðungur síðan þeir
hófu þátttöku í sundmótum.
Har.
Starfandi verzlun
til sölu. — Þeir, sem hafa
áhuga fyrir þessu leggi nöfn
sín inn á afgreiðslu Dags í
lokuðu umslagi, merkt:
„Verzlun".
Þagmælsku heitið.
Vetrarmann vantar
á sveitaheimili til skepnu-
hirðingar. Mætti vera eldri
maðiir.
A fgr. vísar á.
KVENHATTAR
Hefi fengið nýja sendingu
af kvenhöttum. Einnig hvít-
ar og mislitar „STÆL-
HÚFUR“. - Til sýnis kl.
5—7 í Byggðavegi 94. —
Sími 2297.
Lítið skrifborð óskast
Mig vantar lítið skrifborð,
helzt í skiptum fyrir stærra.
JÓN SVEINSSON.
Vil farga tveim RÖKTUM
forustukindiim
fyrir fóður eða hey.
JÓN SVEINSSON.
Húsnæði
Mig vantar íbúð nú þegar,
eða sem fyrst. Upplýsingar
í síma 1879.
Kristinn S. Kristjánsson
(símvirki)
Rðfmagns-
Málningasprautur
Nýkomnar.
Véla- og búsáhaldadeild
Sjálfblekungur tapaðist
Rauðbrúnn, ómerktur sjálf-
blekungur tapaðist í Odd-
eyrargötu í síðustu viku. —
Vinsamlegast skilist geg n
fundarlaununt í Oddeyrar-
götu 10 (syðri dyr).
Framboðslisfum
til fulltrúakjörs Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar
á 25. þing Alþýðusambands íslands skal skilað til for-
manns kjörstjórnar félagsins, Jóhannesar Jósefssonar,
Rauðumýri 4, fyrir kl. 18 sunnudaginn 7. okt. 1956.
A listunum skulu vera nöfn fimm aðalfulltrúa og
fimm varafulltrúa, svo og meðmæli minnst 45 fullgildra
félagsmanna.
Kjörstjórn Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar