Dagur - 06.10.1956, Side 8

Dagur - 06.10.1956, Side 8
8 Daguk Laugardaginn 6. október 1956 Fyrstu snjóar á Norðurlandi Ymis tíðindi úr nág rannaby ggðum Norðangarðurinn kom mönnum á óvart þrátt fyrir ljóta veðurspá - Veðurofsi og foráttubrim Aðfaranótt miðvikudagsins 3. október síðastliðinn brast á norð- vestan stórhríð með ofsaveðri og fádæma snjókomu. Þrátt fyrir undangengnar, vondar veðurspár voru bændur yfirleitt ekki undir jietta veður búnir og var féð alls staðar úti, en víðast í heimahög- um. Vegir tepptust sums staðar óg trufluðu fjárflutninga til sláturhúsanna. Báta rak á land og fé hrakti í ár og læki. Blaðið leitaði frétta frá nokkr- um nærliggjandi stöðum og eru þær í stuttu máli þessar: Húsavík. Þrír fullhlaðnir vöruflutninga- bílar lögðu af stað kl. 12 á þriðjudagskvöldið áleiðis til Ak- ureyrar með kindakjöt, er átti að fara í skip þar. Bílarnir komust ekki nema í Ljósavatnsskarð vegna óveðurs og skafla.Áætlun- arbíllinn sneri einnig við. Jarðýta hjálpaði síðar flutningabílunum á áfangastað. Á sláturhúsinu var stöðvun yf- irvofandi vegna þrengsla í kjöt- geymslum. Mývetningar fluttu 500 fjár á miðvikudaginn til Húsavík«r, þótt veður væri hið versta og færð orðin ill á vegum í lágsveitum. — Víða á bæjum er enn margt sláturfé heima. Skapar það hin mestu vandræði vegna skorts á húsnæði og lömb- in kunna fæst átið. Viðast var féð úti þegar hríðin skall á. Veðurhæð var mikil í Húsavík og dyngdi niður snjó. Stórsjór var, en ekki urðu skemmdir við höfnina. Dalvík. Veðurhæðin var minni en víða annars staðar, vegna þess hve vestanstæður hann var, en stór- sjór. f þessum fyrsta snjó teppt- ust bílar milli Akureyrar og Dal- víkur. Stóri áætlunarbíllinn komst þó til Akureyrar á mið- vikudagsmorgun, en var 4 klst . á Berklavarnadaguriim er á morgim Eins og að undanförnu stend- ur félagið Berklavörn á Akureyri fyrir skemmtunum á Berkla- varnadaginn. Á laugardagskvöldið verður skemmtikvöld að Hótel KEA, þar sem Gestur Þorgrímsson leikari mun skemmta með aðstoð Árna Ingimundarsonar. Dansað verður til kl. 2. Á sunnudaginn verða bíósýn- ingar. í Nýja-Bíó verður myndin Draumadísir í París sýnd kl. 3, 5 og 9, og myndin Þúsund punda seðillinn verður sýnd kl. 9 í Borg arbíó. Um kvöldið kemur svo Gestur Þorgrímsson aftur fram á Hótel KEA og einnig verður dansað á eftir. Blöð og merki dagsins verða seld á götum bæjarins. leiðinni. Hann fór ekki til baka. Mjólkurbílarnir lögðu heimleiðis en komust ekki hjálparlaust. Strandaði annar hjá Reistará en hinn hjá Fagraskógi. Á miðvikudaginn var nokkru af fé slátrað frá Árskógsströnd, en truflun varð á störfum í slát- rrhúsinu vegna rafmagnsskorts og einnig vatnsskorts um tíma. Til vandræða horfir með slátur- féð, sem enn er nokkuð margt eftir og óvíða er húsrrim fyrir á bæjum. Mun það sums staðar vera í hálfgerðri sveltu. Árskógsströnd. Veðurhæðin var afskapleg á miðvikudagsmorgun, svo að telja mátti nær óstætt. Hrakti fé víða í læki og skurði og strax þann dag var fé bjargað úr snjó. — Hélzt hörkustórhríð allan daginn og stytti aldrei upp. Fannkoma var feikna mikil. Mótorbáturinn Pálmi á Litla- Árskógssandi slitnaði upp á leg- unni og rak á land litlu sunnan við Þorvaldsdalsána. Er þar mjúkur sandur. Ekki var bátur- inn talinn mikið brotinn, en þó ekki fullrannsakað. — Eigendur Pálma eru Vigfús Kristjánsson og Guðlaugur Sigurðsson, bænd- ur á Árskógsströnd. Hrísey. Um hádegi á miðvikudag fannst Jóhann Einarsson í Hrísey ör- endur í fjörunni. Hann hafði far- ið út snemma morguns til að hyggja að fé. Jóhann var ættaður frá Haga á Árskógsströnd, hinn mesti vaskleikamaður. Einn trillubátur slitnaði upp við eyna og rak á land. ‘ ■ í i !■ 1 ■ ■ . , | , i ■ ! e i Siglufirði. Mikið brim var á Siglufirði, en ekki mjög hvasst. — Skemmdir urðu engar. Siglufjarðarskarð var nýlega búið að skafa. Var umferð mikil um skarðið þar til kl. 10 á miðvikudag þegar það lokaðist á ný. Fræg dansmær Þetta er inynd af Maríu Tallchief, sem dansaði nýlega aðalhlut- verkið í danssýningu í New York við hljómlist eftir Tchaikovsky. Sími í Skíðadal Svarfaðardal í gær. ' Veður var gott um miðjan dal- inn, en mikil snjóburður, en fram á fremstu bæjum var hörkuveður. Ottast er um að fé hafi e. t. v. fennt, en ekki er það þó vitað. Mikil ófærð er komin, en vetrarbílarnir ruddu slóðina með mjólkina. Innan skamms komast Skíð- dælingar í símasamband. Er ver- ið að leggja síma á alla bæi í dalnum. Búið mun vera að setja staurana upp. Meðalvigt dilka 14.4 kg Ólafsfirð í gær. Slátrun er lokið. Rúmlega 1500 fjár var lógað á sláturhúsinu, auk þess var slátrað nokkuð fyrir kaupstaðabúa. Meðalvigt var 14.4 kg., en var í fyrra 15.38 kg. Beztu meðalvigt fékk Hartmann Guðmundsson, Stíflu í Fljótum. Lagði hann inn 102 lömb og vógu þau 16.04 kg. Magnús Guðmundsson bóndi að Samvmniiskólinn settur Samvinnuskólinn var settur að Bifröst á þriðjudaginn var. Er þetta annað starfsár hans. Nem- endur eru 64 og kennarar 5. Guðmundur Gíslason skóla- stjóri setti skólann mað ræðu. — Nemendur til fyrsta bekkjar gengu undir próf, sem haldið var í Reykjavík. Þreyttu 60 prófið, en 35 af þeim setjast í fyrsta bekk í í vetur. Margar nýjungar verða teknar upp í vetur. Meðal annarra kennsla í æfingarbúð. Þverá átti þyngsta dilkinn. Vóg hann 25 kg. Beztu meðalvigt í Ólafsfirði átti Steinn Jónasson, bóndi, Bakka, 15.7 kg. Norðanveðrið var ekki mjög hart í Ólafsfirði, en snjór er orð- inn mikill og mjólkurbílar teppt- ust. Lítill snjór í Bárðardal Fosshóli í gær. Snjór er lítill hér, en í Kinn norðanverðri og Aðaldal er mik- ill snjór og fennti fé, jafnvel heima á túnum, er náðist lifandi. Talin er hætta á að eitthvað fé sé enn í snjó. Sums staðar eru 2ja metra skaflar. Fljótsheiði er fær öllum bifreiðum og nær snjólaust í Bárðardal nema á fremstu bæj- um. Slátrun er að ljúka. Fé bjargað úr fönn Sauðárkrókur í gær. Áhlaupaveður gerði hér í miðri vikunni, með mikilli fannkomu, og er kominn töluverður snjór og tepptust bílaleiðir, en eru nú færar aftur. Féð var víðast úti og enn mun vanta margt fé, og er álitið að eitthvað af því sé í snjó. Hefur nokkru þegar verið bjargað úr fönn. Stórbrim var hér, en engir skaðar af þess völdum, sem um er vitað. Hríseyingar fá Laxár- rafmagn Hrísey í gær. í þessum mánuði kemur raf- strengur sá, er lagður verður frá Árskógsströnd til Hríseyjar og tengir rafkerfi eyjarinnar við Laxárvirkjunarkerfið. Unnið er að undirbúningi að þessari teng- ingu, og búizt er við i'afmagninu áður en langt líður. Múlaveginum þokar áleiðis Ólafsfirði í gær. Veginum fyrir Ólafsfjarðar- múla miðar fremur hægt. Hefur honum þó miðað áleiðis og lengst í sumar um 4—500 metra. í sum- ar var unnið á kaflanum fyrir Ytra-Drangsgil og eru þá 300 metrar eftir að Ófærugjá, sem talin er erfiðust til vegalagningar. Hefur vöntun á verkfærum tafið framkvæmdir. Fiskverðið hækkað Ríkisstjórnin hefur ákveðið að greiða 15 aura hærra verð fyrir hvert kg. af þorsk og karfa, sem lagt er í frystihús til vinnslu. — Uppbót þessi greiðist úr Fram- leiðslusjóði og gildir þessi tilhög- un til næstu áramóta. Þessi ráð- stöfun er gerð vegna þess hve mjög hefur dregið úr því fisk- magni, sem frystihúsin hafa feng ið að undanförnu. Með þessu á að tryggja næg hráefn til fiskiðju- veranna og auka þannig atvinnu í landi og verðmæti aflans. Það skilyrði fylgir, að Félag íslenzkra botnvörpunga sjái til þess að 2/3 hlutar togaraflotans leggi upp aflann hér í stað þess að sigla með hann á erlendan markað. — Hefur þessar ráðstöfun verið vel tekið af þeim. Kjarnorkiisprengingar austan tjalds Á öllum „friðar“ráðstefnum kommúnista hefur ætið verið heimtað mjög eindregið, að „heimsveldis- sinnar“ og „auðvaldsríki“ hætti öllum kjarnorkusprengingum, en þeim tilmælum hefur ekki verið vísáð austui-. — til alþýðuríkisins mikla og góða. —4 mynd þessari sjást kjarnorkusprenkingar Rússa í Síberíu allt fram á þetta ár.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.