Dagur - 10.10.1956, Page 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1168.
Dagur
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 17. október.
XXXIX. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 10. október 1956
53. tbl.
Kunningjar hittast í fyrstu göngum
Nýjar greinar á rafveitusvæði Laxár
virkjynar - Einisskortur tefur
framkvæmdir
Gömlu rafstöðvarnar eini lúxusinn
Forystusauðurinn frá Baldurshcimi í Arnarneshreppi kann vel við
sig í þessum félagsskap, en lítur hvasst á ljósmyndarann.
Þeir meðalgreindu eru beztu
Frá happdrætti
húshyggingasjóðs
F ramsóknarf lokksins
Hinn 1. nóv. n.k. verður
dregið í hinu glæsilega happ-
drætti húsbyggingasjóðs Fram-
sóknarflokksins. Vinningurinn
er fullgerð þriggja herbergja
íbúð við Bogahlíð í Reykjavík.
Þeir umboðsmenn í Eyjafirði
og á Akureyri, sem fengu
senda miða, eru minntir á að
hraða sölunni og gera skil hið
fyrsta og helzt ekki síðar en
15. þ. m. — Skil liafa borzt frá
eftirtöldum stöðum með 100%
sölu: Oxnadalshreppi, umboðs-
menn: Brynjólfur Sveinsson,
Efstalandskoti, Þór Þorsteins-
son, Bakka, og Ármann Þor-
steinsson, Þverá. Ilrísey, um-
boðsmaður Kristinn Þorvaldss-
son, og Dah'ík, umboðsmaður
Björn Stefánsson. — Aðalum-
boðsmaður á Akureyri er
Björn Hermannsson, sími 1443.
Fólk sem er 48 ára, hefur lægsta slysatölu
Fyrir skömmu var formaður
enska ökukennarasambandsins á
ferð í Danmörku til þess að
kynna sér umferðarmál, og hafði
hann áður verð í Noregi, Svíþjóð
og Finnlandi. Átti hann viðtal við
blöðin í Höfn, og bar ýmislegt á
góma.
„Sá, sem getur ekið slysalaust
um Kaupmannahöfn, hlýtur að
geta það alls staðar í heimin-
um,“ sagði hann meðal annars.
Englendingurinn gat þess, að í
sambandi við háskólann í Hel-
sinki væri stofnun, sem rannsak-
aði ýmisleg umferðamál. Hefði
rannsóknin meðal annars leitt í
Akureyringar í róðrar-
kepp
m
Á laugardaginn var íslandsmót
í kappróðri. Fór það fram í
Reykjavík og sendi Róðrarklúbb
ur Æskulýðsfélags Akureyrar-
kirkju eina sveit til keppninnar.
í sveitinni eru: Gísli Kristinn
Lórenzson (stýrimaður), Knútur
Valmundsson (1. ræðari), Stefán
Árnason, Róbert Árnason og
Eggert Eggertsson.
Kepptu drengirnir við Þýzka-
landsfarana á þúsund metra vega
lengd. Var aðeins sjónarmunur á
bátunum, er þeir komu að marki,
en tími mældist hinn sami. —
Verður það að teljast mjög góður
árangur hjá drengjunum okkar.
ljós, að mesti umferðaslysaaldur-
inn er 26 ár, svo fara slysin
minnkandi hjá fólki upp í 48 ára
aldur, en eftir það færi slysa-
talan hækkandi.
Um leið kom í ljós, að þeir gáf-
uðustu voru alls ekki beztu bíl-
stjórarnir, heldur þeir meðal-
greindu.
fslendingar keppa í
Melbourne
Stjórn Frjálsíþróttasambandsins
hefur valið þá Vilhjálm Einars-
son og Hilmar Þorbjörnsson til
farar á Olympíuleikana í Mel-
bourne í Átsralíu. Olafur Sveins-
son verður fararstjóri.
Áveitusvæði Laxár teygir sig nú út um byggðir landsins, lengra
og lengra með ári hverju. Þó mun þeim er bíða fimiast biðin löng.
Frá hinum ðlmennu kirkjuíundum
Eins og áður hefur verið aug-
lýst af undirbúningsnefnd kirkju
fundanna verður almennur
kirkjufundur fyrir land allt
haldinn í Reykjavík í haust, dag-
ana 20.—22. október, að báðum
dögum meðtöldum, og verður
fyrirkomulag með líkum hætti og
verið hefur. Fundarsetu- og full-
trúarétt hafa allir starfsmenn ís-
lenzku kirkjunnar, lærðir og
leikir, úr öllum söfnuðum lands-
ins, sem áríðandi er að annist um,
að sem allra flestir sæki kirkju-
fundinn, enda verða þar hin
merkustu mál til umræðu og
meðferðar. — Allt starf við þessa
fundi er unnið kauplaust.
Dagskrá kirkjufundarins verð-
í höfuðdráttum þannig, sam-
kvæmt ákvörðun stjórnarnefnd-
ar:
I. Laugardaginn 20. október:
Kl. 2 e. h. Fundurinn settur af
formanni stjórnarnefndar, Gísla
Sveinssyni, í húsi K. F .U. M.
(Framhald á 2. síðu.)
Öngulsstaða- og Hrafnagils-
hreppur.
Stauralína fyrir rafmagnið er
nú komin að Fellshlíð í Onguls-
staðahreppi. Hefur verið unnið
að uppsetningu hennar í sumar.
Næstu daga mun verða byrjað á
því að setja upp staura fyrir raf-
magnið í Hrafnagilshreppi, frá
Hrafnagili að Grund og jafnlangt
suður á efri bæjunum þar.
Efnisvöntun tefur framkvæmd.
Þessar framkvæmdir voru á
áætlun rafvæðingarinnar í ár,
framan Akureyrar. Það mun þó
dragast enn um skeið að sveita-
bæir á þessum svæðum fái raf-
magn, því að enn eru ekki komn-
ir til landsins einangrarar þeir,
er línurnar eru strengdar á. Þeir
eru amerískir og vantar tilfinn-
anlega bæði hér og annars staðar.
Þegar úr þessu rætist verður
framkvæmdum vonandi hraðað
eftir föngum og getur vinna
haldið áfram, þótt vetur ver ði|
kominn og vetrarhrríð, eftir að
staurarnir eru komnir á sinn
stað.
Grýtubakkahreppur.
Grýtubakkahreppur fékk raf-
magn 15. ágúst í sumar, en
Grenivík er eftir. Þar verður þó
straumnum væntanlega hleypt á
síðar í þessum mánuði.
Sæstrengur til Hrísevjar.
Á Árskógsströnd er verið
að
Miðbær fluttur um set
leggja stauralínu að Naustavík.
Sú lína á að tengja Hrísey við
rafvæðingarkerfið. í eynni hefur
verið unnið mikið í sumar að
endurbyggingu rafkerfisins, og er
því verki að mestu lokið. Raf-
strengurinn, sem settur verður
milli lands og eyjar, kemur hing-
að seint í þessum mánuði, og má
þá búast við að stutt verði þang-
að til Hríseyingar fái Laxárraf-
magn, sennilega fyrir jól.
Rafmagn í Kinn.
Ennfremur er í undirbúningi
nokkur útfærsla á rafkerfi í Þing
eyjarsýslu. Búið er að leggja raf-
staura frá Rauðuskriðu í Aðaldal,
þvert vestur yfir láglendið.Enþar
skiptist línan nálægt Ófeigsstöð-
um. Liggur önnur norður Kinn
að Þóroddsstað, en hin suður að
Gvendarstöðum.
Gömlu rafstöðvarnar.
Þessar framkvæmdir eru
gleðiefni, þótt mörgum verði
biðin leið og löng, síðan eygt var
hið lengi þráða mark að rafvæða
sveitir landsins.
Víða á orkusvæði Laxár eru
eldri heimilisrafstöðvar, sumar
gamlar. Mjög orkar það tvímæl-
is, hvort rétt er að leggja þær
stöðvar niður, þótt hinn nýi afl-
gjafi komi til sögunnar.
Virðist réttmætt að benda á
það, að heimilisrafstöðvar, sem
sæmilega eru settar með vatn,
eru ómetanlegar og eiginlega
hreinasti „lúxus“, ef rafmagn
getur á annað borð verið það. En
viðhaldi slíkra stöðva er æði víða
ábótavant og gæti verið hag-
kvæmara að leggja nokkurt fjár-
magn til endurbóta á þeim, en
hverfa inn á hið almenna raf-
kerfi, þar sem slíkt getur nægt
heimilisþöx-fum.
Um helgina fluttu Hríseyingar Miðbæ, íbúðarhús Jóhanns Sigur-
björnssonar, á stórum vagni um 3ja km. veg suður í þorpið. Stærð
þess er 7x9 m. og gekk flutningurinn vel undir stjórn Júlíusar
Stefánssonar.
Afrek Vilhjálms
Einarssonar
Vilhjálmur Einarsson, ÍR,
vann það glæsilega íþróttaaf-
rek í Karlstad í Svíþjóð síðastl.
laugardag að stökkva 15.83 m.
í þrístökki. Er það íslandsmet
og Norðurlandamet. Hafa að-
eins 5 menn náð betri árangri
í lieiminum í ár.