Dagur - 05.12.1956, Blaðsíða 1
Fylgist með því, sem g> rist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út laugardag-
inn 8. desember.
XXXIX. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 5. desember 1956
63. tbl.
v
Ungur maður opnar málverka-
sýningu að Hóte! KEA
Ungur málari, Kristinn Jó-
hannesson, opnar málverkasýn-
ingu að Hótel KEA (Rotarysal),
laugardaginn 8. desember. Stend-
ur hún fram að jólum. Þar eru
sýndar 50 vatnslitamyndir, allar
nýjar og nokkur olíumálverk,
eftir því sem húsrúm leyfir.
Kristinn hélt málverkasýningu
hér á Akureyri 1954 og vakti hún
athygli og seldust þá 40 myndir.
Hinn ungi málari er Svarfdæl-
ingur að ætt, varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri í
vor, en stundar nú nám í Mynd-
listaskólanum og hefur auk þess
kynnt sér leiktjaldamálningu. —
Mun hann ,eins og í fyrra, mála
leiktjöld fyrir Menntaskólanem-
endur, er þeir hefja sýningar á
skólaleik sínum.
Margir munu hafa áhuga á að
kynnast þroska og framför mál-
arans, sem þegar er spáð frama á
listamannsbrautinni.
Kristinn G. Jóhannsson.
Kommúnistai í Húsavík djarf-
mæltir um IJngverjalandsmálin
J síðustu viku hélt Sósialistafélag
Húsavíkur fund, þar sem Ungverja-
landshiál voru m. á': rædd. Köm
þar fram svo megn andstaða við
stefnu I>jóðviljan$ og flokkstjórnar
Sósíalistaflokksins, að hótað var að
segja sig úr lögum við flokkinn, ef
ný stefna yrði ekki upp tekin hjá
blaði og ílokksstjórn.
Fundarmenn lýstu sig fylgjandi
sósíalisma en fordæmdu Moskva-
kommúnisma og innrásina í Ung-
verjaland.
Þingeyingar taka hér forystuna í
því afturhvarfi hcr á landi, sent í
öllum nágrannalöndunum lýsir sér
í stórfelldu fylgishruni línukomm-
únista og aukinni fyrirlitningu á
þeim meðal almennings.
Olga og mikil átök eru nú innan
kommúnistaflokksins liér á landi,
er til stærri tíðinda kunna að draga
á næstunni. Margir stuðningsmenn
flokksins hafa þegar opinberlega
snúið við honum bakinu eftir hina
síðustu, ógnþrungnu atburði í Ung-
verjalandi. — Eða skyld.i þurfa að
Peningar og skoðanir hamla mest and
legu frelsi á Islandi
Akureyringar bregðast
vel við
Eftirfarandi barst blaðinu í gær
frá sr. Ingimar Ingimarssyni, Sauða-
nesi, N.-Þing.:
„Eins og skemmst er að minnast,
varð hörmulegt slys lijá Heiðarfjalli
í N.-Þing., þar sem ungur maður að
nafni Sigmar Maríusson frá Asseli,
varð fyrir bifreið.
Leiðinlegar missagnir hafa komið
fram um atburð þennan í blaða-
fregnum. Er þar greint klaufalega
og skakkt frá og jafnvel gefið í skyn,
að um yfirlagðan verknað hafi ver-
ið að ræða. Þetta er á miklum mis-
skilningi byggt og kemur öllum á
óvart, er til þekkja. Að gefnu tilefni
leyfir undirritaður sér að víta þenn-
an fréttaflutning harðlega. Hann á
sér enga stoð, m. a. eftir umsögn
Sigmars sjálfs.
Eins og flestum er nú kunnugt
orðið, var hér um óvenjulega svip-
legt slys að ræða. Hefur blaðið áður
greint frá því og átt drjúgan þátt í
öflun samskota til styrktar hinum
unga manni. lier að þakka Guð-
rúnu Brunborg fórnfýsi og ágætt
fordæmi, og eru menn hvattir til
frekara framlags. Munið, að margt
smátt gerir eitt stórt, og góðvilji, er
rniðar til hjálpar bágstiiddum og fá-
brytja niður fleiri þjóðir og kúga á , tækum, verft'ur alltaf goldinn."
svívirðilésran hátt', til að opna'auffu i , , , .
1 ® Blaoinu hata pcgar borizt gooar
íslenzkra kommúnista fyrir sælunni gjafir> og verðlir framvegis tekið á
autsan járntjakls? móti þeim á afgreiðslu þess.
Kynningarkvöld Náttúrulækninga-
agsins á
Glæðir áhuga manna á hollu mataræði
Síðastliðið miðvikudagskvöld
hélt Náttúrulækingafélagið á
Akureyri kynningar- og út-
breiðslukvöld að Hótel KEA. —
Bauð það allmörgum gestum, og
m. a. blaða- og fréttamönnum. —
Var setið að góðri veizlu fram
eftir kveldi.
j Formaður Náttúrulækningafé-
Við ríkulegt veizluborf Náttúrulækniugafélagsins að Hótel KEA.
(Ljósmynd: G. P. K.).
lagsins, Jón Kristjánsson, bauð
gesti velkomna með ræðu. Rakti
hann síðan í stórum dráttum
sögu Náttúrulækningafélags ís-
lands og deildarinnar á Akureyri.
Upphafsmaður þessara félags-
samtaka var, eins og kunnugt er,
Jónas Kristjánsson læknir.
Kynnti hann sér þessi mál er-
lendis, en stofnaði síðan fyrsta
félagið hér á landi af sínum al-
kunna dugnaði árið 1937.
Fyrstu árin var starfsemin að-
allega fólgin í fundahöldum og
útbreiðslustarfsemi. En árið 1944
setti félagið á stofn matstofu í
Reykjavík, sem var rekin í nokk-
ur ár. Síðan færði félagið út
starfssvið sitt og stofnsetti hress-
ingarhæli í Hveragerði og árið
1955 opnaði félagið Heilsuhæli
Náttúrulækningafél. í Hvera-
gerði, með matstofu fyrir 100
manns og 25 íbúðarherbergjum.
Tímaritið Heilsuvernd hefur
félagið gefið út í mörg ár. Deildir
hafa verið stofnaðar víða á land-
inu, og hér á Akureyri árið 1944,
og var fyrsti formaður þess Sig-
(Framhald á 4. síðu.)
Síðari hluti hinnar stórmerku ræðu Þórarins
Björnssonar, skólameistara, fluttri í
útvarpssal 1. desember sl.
Ég ætla, að það þé einkum tvennt, sem nú hamlar mest
andlegu lrelsi á íslandi og varnar mönnum að sjá rétt og líka
að gera rétt. Þetta tvennt eru peningar og skoðanir. Of margir
eru þrælar peninga og ol' margir þrælar skoðana. Og jafnframt
liöfum vér ekkert til að þjóna. Aður var talað um guð og föð-
urland. Nú höfum vér of margir tapað sambandinu við hina
æðstu veru, kjarna tilverunnar. Og í staðinn fyrir föðurland
er komið ríki. F.n sá er munur á ríki og föðurlandi, að föður-
landi þjóntiðu menn, en af ríki heimta menn. Og þau skipti
eru ekki góð fyrir sálina og þroskann.
DRF.NOSKAPUR MINNA
VIRÐI F.N KRÓNAN
En víkjum nánar að peningun-
um. Þjóðfelagið er peningasýki,
sjúkt af eftirsókn eftir vcrakllegum
gæðum. Oss er að vísu nokkur vor-
kunn eftir það aldahungur, sem vér
höfum orðið að j>ola í jjessum eín-
Þórarinn Björnss., skólameistari.
um. En vér höfuð farið of geyst.
Allt ol ntargir íslendingar eru apar
af aurum, og jiað, sem verra er,
orðnir óvandaðir menn. Þeir virðast
ekki skirrast við að fara kringum
lög og sannleika til þess að verja
pyngju sína. Svo er að heyra, sem
llestir tali um jjað sem sjálfsagðan
hlut að skjóta undan skatti, ef jjess
er kostur, og fastlaunamenn, sem
eiga hér óhægra um vik en aðrir,
eru jafnvel aumkaðir fyrir aðstöðu
sina. Menn gera sig að ómerkileg-
um ósannindamönnum fyrir pen-
inga, og jafnvel drengskapurinn er
orðinn minna virði en krónan, svo
aum sem hún er. Á meðan slík
hausavíxl eru höfð á verðmætum,
er þjóðin og sjálfstæði í hættu.
UPPF.LDISSTÖÐVAR
F.IGINGIRN IN NAR
Eitt auðkenni nútímans eru hin
margvíslegu hagsmunafélög, sem
hvarvetna sprctta upp. Háir og lág-
ir, bændur og verkamenn, skrifstofu
menn og kaupsýslumenn, atvinnu-
rekendur, embættismenn, allir eiga
sín hagsmunafélög. Eg viðurkenni
fyllilega rétt slíkra félaga og veit,
að j>au hafa mörgu góðu til vegar
komið. Jafnframt óttast ég þó, að
starfsemi þeirra sé hættulega ein-
liliða, þau hugsi of mikið um [jað
eitt að vernda og tryggja eigin hag.
Þau eru að verða uppeldisstöðvar
eigingirni og sérgæzku. Sífellt eru
gerðar samþykktir um bætt kjör, og
látum það vera, svo langt sem það
nær. En hvenær eru gerðar sam-
þykktir um að vinna betur, að bæta
þjónustuna? Væri ekki gott að Jjær
lylgdu með? — Eorystumcnnirnir
mega ekki alltaf velja auðveldara
lilutverkið, að tala eins og iélagarn-
ir vilja heyra.
ILLzV UNN-IN VF.RK F.RU
SVIK VID FÖÐURLANDIÐ
Þeir verða einnig að kunna að
yanda um. Þeir mega vita, að kjör-
in verða aldrei bætt til lcngdar, ef
ekki næst að skapa vinnusiðgæði.
í hverju íélagi ætti að vera nefnd,
sem ynni að því að skapa slíkt sið-
gæði og annaðist urn leiff sóma stétt-
arinnar. Það er raunalegt og meira
en jjað, jjcgar heilir hópar og jafn-
vel stéttir fá á sig óorð fyrir svik-
semi og léleg vinnubrögð, og gildir
jafnt, Iivort jjað eru forstjórar, fag-
lærðir menn cða óbreyttir verka-
menn. Mönnum verður að skiljast,
að illa unnið verk eru svik við föð-
urlandið. Hér er mikið uppeldis-
starf að vinna, ef lil vill [jað merk-
asta í jjjóðfélaginu. Og þessa er
miklu meiri Jjörf en áður, af því að
jjeim fjölgar stöðugt í verkskiptu
þjóðfélagi, sem vinna fyrir aðra.
Það verður að efla vinnusiðgæði, og
engir eru betur settir til þess en
einmitt samtök mannanna sjálfra,
sem vinna. Þar við liggur sæmd
jjeirra og gæfa þjóðarinnar, svo að
ekki er lítið í húfi. Menn verða að
losna undan helsi peninga og þjóna
hugsjón héiðarleika.
KROSSBFRAR KENN-
INGANNA
I>á kem ég að skoðununum.
Margir gangast þegar á unga aldri
undir ok skoðunar og sitja Jjar til
æviloka, ófrjálsir í hugsun og blind-
ir á veruleika. Hér á íslandi virðist
jafnvel tiltölulega meira um slíkt
en í mörgum öðrum lýðræðisríkjum,
og keinur jjað eitikennilega fyrir við
fyrstu sýn. Vera niá þó, að hér sé
að verki eins konar minnimáttar-
kennd frá liðnum kúgunartímum.
jafnframt er jjað andlegur sjálf-
birgingsháttur. Islendingar ganga
með gáfnatrú, og [jeir halda, að það
sé gáfumerki að eiga sína kenningu,
(Framhald á 8. síðu.)