Dagur - 05.12.1956, Side 4

Dagur - 05.12.1956, Side 4
4 D A G U R Miðvikudaginn 5. desember 1956 D A G U R Ritstjóri: ERLINGUR DAYÍÐSSON. Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Þoikell Bjömsson. Skrifstofa í Hafnarstraeti 90. — Sími 1166. Argangurinn kostar kr. 75.00. — Gjalddagi er 1. júlú Prentverk Odds Björnssonar h.f. Stúdenfar í fremstu víglínu ^JEftirminnilegustu atburðir síð- ustu viku voru eflaust hátíðahöld háskólastúdenta í tilefni full- veldisdagsins. Stúdentar hafa jafnan staðið í fremstu víglínu í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar, og fer því vel á því, að þeim skuli hafa verið falið að annast hátíða- höld á fullveldisdaginn, þegar hann nú hefur vikið fyrir öðrum degi, sem hátíðisdagur þjóðarinn- ar allrar. Þegar athugaður er þáttur stúdenta í sjálfstæðisbar- áttu þjóðarinnar kemur í ljós, að það voru einkum háskólastúdent- ar, sem fremstir stóðu, ungir menn, sem stunduðu nám við Kaupmannahafnarháskóla. Hinir eldri voru gjarnan íhaldssamari og vildu fara hægar í sakir. Og enn er hlutur háskólastúdentanna veglegri en hinna eldri. Það vakti sérstaka athygli, að í útvarpsdag- skrá eldri stúdenta að þessu sinni komu eingöngu fram málsvarar eins stjórnmálaflokks og töluðu gjarnan sem slíkir. Er það af- leiðing af skipulegri innrás íhaldsins í öll menningarfélög landsins. Samkvæmt áætlun þess, eiga þau helzt öll að verða eins konar útibú frá Sjálfstæðis- flokknum. Hér á landi hefur lengst af borið lítið á viðleitni í þá átt ,að spilla einingu menning- arfélaga með því að draga þar inn flokkspólitísk deilumál. En öfga- flokkarnir báðir, kommúnistar og Sjálfstæðismenn, hafa nú á seinni árum gert tilraunir til að misnota þau sér til pólitísks framdráttar, og unnið þeim með því hið mesta ógagn. Það mun aldrei verða Stúdentafélagi Reykjavíkur til gagns eða sóma, að það skuli nú rígbundið á flokksklafa eins st j órnmálaflokks. Ekki ber því að neita, að há- skólastúdentar eru vel pólitískir, enda eru kosningar til stúdenta- ráðs algjörlega pólitískar. En þeir hafa oftast sýnt það, að þeir eru óbundnir stjórnmálaflokkunum og fara þess vegna sínar eigin leiðir. Vonandi endist þeim manndómur til þess á komandi árum. Útvarpsdagskrá þeirra öll bar því og vitni, þó að aðalræða dagsins, flutt af Þórarni Björns- syni skólameistara, bæri af öllu, sem þar var vel sagt. Hún var í senn snjöll og tímabær hugvekja til þjóðarinnar allrar. I hinni merku ræðu sinni drap skóla- meistari á það ,að eitt hið allra nauðsynlegasta til þess að sjálf- stæði gæti þrifist hér til lang- frama væri það ,að menn væru andlega frálsir í víðasta skilningi. En einkum væri það tvennt, sem mest hamlaði andlegu frelsi og varnaði mönnum að sjá rétt og gera rétt, en þetta tvennt væri peningar og skoðanir. Of margir væru þrælar peninga og of marg- ir þrælar skoðana. En þar sem sá kafli ræðunnar, sem um þessi atriði fjalla, er birtur á öðrum stað í blaðinnu, þykir ekki ástæða til að rekja þau nánar hér. .En hér drap skólameistari vissulega á athyglisverðar staðreyndir, sem vel er þess vert að nánar sé gaumur gefinn. Það er nú einu sinni svo, að margir eru ekki þroskaðri en það, að fjármagnið er orðinn herra þeirra í stað þess að vera þjónn. Og síðustu dagana höfum við séð átakanleg dæmi þess, hversu rígbundnir menn eru við sínar fyrri skoðanir og fi'æðisetningar, þó að þær stang- ist gegn öllum staðreyndum og heilbrigðri skynsemi. Margir hafa að vísu sýnt þann manndóm að viðurkenna mistök sín og snúa frá villu sinni, en þeir eru olltof fáir. Og margir berja höfðinu við steininn og látast hvorki heyra né sjá það sem gerzt hefur í lepp- ríkjum kommúnismans. Það kann að vera, að það yrði mörgum þung spor að ganga fram og við- urkenna mistökin ,én samt er það þó eina færa leiðin. Enginn þax-f að fyrirverða sig fyrir það að hafa yfirsézt, en hitt er lítil- pignpska að þora ekki að kannast við það. Svo mikla trú vex’ður maður enn að bei'a til mannsins og þroska hans, að heilbrigð skynsemi verði látin ráða um síðir. - Kynningakvöld „ Náttúrulækningafél. (Framhald af 1. síðu). ui-ður L. Pálsson menntaskóla- kennai’i. Tilgangur Náttúrulækningafé- laganna er að vinna að auknum skilningi fólks á hollum lífsvenj- um, einkum hvað fæðu snertir. í samræmi við það höfðu fram- takssamar konur í félaginu hér framreitt fagui't kaffiborð með hinum glæsilegustu réttum. Var hver rétturinn öðrum ljúffengai’i og var ekkert hvítt hveiti notað eða hvítur sykur. Brauðið, sem var mjög fjöl- breytt, var allt bakað úr nýmöl- uðu korni og hefur félagið sjálft annast mölun á korni fyrir fé- lagsmenn sína. — Félagið mun, ef þátttaka fæst, halda mat- reiðslunámskeið. Kvöldið leið mjög fljótt við þennan góða kost, skuggamyndir, ræðuhöld og upplestur. Næsfi Bændaklúbbsfundur verður mánudaginn 10. des. n. k. á vcnjulegum stað og tíma. Ólafur Stefánsson ráðmiautur Búnaðarfélags íslands mun mæta á þessiun fundi og talar hann um nautgriparæktina! — Athygli skal vakin á, að þetta mun verða siðasti fundur Bændaklúbbsins á þessu ári. — Ávarp fil bifreiðasfjóra Vegna hinna tíðu bifreiðaslysa, sem valdið hafa dauða margra manna á þessu ári, og vegna þess að nýlega lá við dauðaslysi hér á Sauðárkróki, sakir ógætilegs aksturs, beinir stjórn Félags áfengisvarnanefnda í Skagafirði því til allra bifreiðastjóra héraðs- ins (í sýslu og bæ) að gæta fyllstu varúðar í starfi sínu. Ennfrmeur væntir stjórnin þess, að bifreiðastjórar stofni sem fyrst bindindisfélag ökumanna í Skaga firði. Geta menn í því efni snúið sér til einhvers hinna undirrituðu um upplýsingar viðvíkjandi þess- ari nýju og næsta nauðsynlegu félagsstofnun í landi hér. Sauðárkróki 28. nóv. 1956. Bjarni Halldórsson, Uppsölum. Jón Þ. Björnsson, Sauðárkróki. Pétur Jóhannsson, Glæsibæ. Jólaskraufkerfi útlend og innlend. SPIL \ýi Söiutucrtirinty . mfn/iAstræti ioo sím! mo. Kaupið JÓLÁKORTIN meðan úrvalið er mest. IJB ckaverþluji | Cj imnlaugi Jryggva RA9HI/ST0HO I SÍMI 1100 ILMVÖTN STESNKVÖTN Allar fáanlegar teg. Jólabækurnar berast til okkar daglega. w/ -BcktweQlttn ; & Sufudaugá Jryggva RAPHusrono! UAto tffHiT'r- Nýkomið! Kvenbomsur, gúmmí Verð kr. 89.00. Telpubomsur, rauðar Verð frá kr. 52.50. Karlmannabomsur gúmmí, háar. — Verð kr. 95.00 Hvannbergsbræður Nylonteygju SLANKBELTIN margef t irsp u rð u, eru komin. Jörð til sölu Jörðin YTRI-REISTARÁ í Arnarneshreppi, Eyjafjarð- arsýslu, er til sölu og laus til ábúðar í næstk. fardögum. A jörðinni er vandað, nýlega byggt íbúðarhús með rafmagni til ljósa og suðti. Sími er á staðnum. Einnig nýlega byggt 16 kúa fjós, með þvaggryfju og haughúsi. Mikið þurrkað land til ræktunar. Grasgefið tún, vél- tækt. Sernja ber við eiganda jarðarinnar, JÓHANN SIGVALDASON, Norðurgötu 3, Ak. Sími 1067. Einnig gefur upplýsingar um jörðina ÞÓRODDUR JÓEIANNSSON, mjólkurbílstjóri, Fagraskógi. CÍTRÓNUBELGIRNSR eru komnir aftur. Kr. 5.25 stykkið. - Ekta Cítrónusafi. - KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA Nýlenduvörudeildin og útibu. Einnig mikið úrval af BRJÓSTAHÖLDUM og UNDIRFATNAÐI Anna & Freyja Nýkomið: Brjóstahöld 11 tegundir. Sokkabandabelti 11 tegundir. Slankbelti 2 tegundir. Millipils og skjört í miklu úrvali. Verzl. Ásbyrgi li.f. Skipag. 2. — Sími 1555. Kvenföskur Ný sending af enskum töskum. Samkvæmistöskur Verzl. Ásbyrgi h.f. Sliipag. 2 — Sími 1555 HjtKHKBÍÚÍBWBWKBÍtKBKHWKHStt

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.