Dagur - 27.02.1957, Side 2
2
■ —-i
D A G U R
Miðvikudaginn 27. febrúar 1957
Til sölu
er amerískur hermanna-
skáli, innréttaður sem sum-
arbústaður. Skálinn stend-
ur í Neslandi i Fnjóskadal.
Upplýsingar í símum 2048
og 2052.
HERBERGI óskast
Stúlka óskar eftir herbergi
helzt á Eyrinni.
Uppl. i Lundargötu 1,
eftir kl. 5 e. h.
Gúmmí-
pakkningar
í þýzka mjólkurbrúsa,
10,20,30 og 40 lítra.
Véla- og búsáhaldadeild.
Skemmtiklíibbiir IÐJU
félags verksmiðjufólks,
heldur spilakvöld n. k. föstu-
dag kl. 8.30 e. h. í Alþýðuhús-
inil.
Spiluð verður félagsvist,
Góð verðlaun.
Dans á eftir.
Ungfrú Laufey Pálmadótlir
syngur með hljómsveitinni.
Aðgangskort fást á vinnustöð-
unt Iðju og á skrifstofu verka-
lýðsfélaganna. — Verð kr. 50
gilda fyrir 3 kvöld.
STJÓRNIN.
DANSLEIKUR
verður haldinn að Hrafnagili
iatigardaginn 2. marz kl. 10
e. h. — Veitingar.
Söngvari með hljómsveitinni.
Kvenfélagið IÐUNN.
Fermingarföt!
Höfum tilbúiu ferming-
arföt dökk og mislit,
tvær stærðir.
F e rmingarskyrtur
og Rindi.
Klæðaverzlun
Sig. Guðmundssonar li.f.
Hafnarstr. 96 — Sími 1423
Vekjaraklukkur
Eldftúsklukkur
járn- og glervörudeild
- Nemendur lýsa Ákureyrarferð
(Framhald af 7. síðu.)
langt að bíða, að Bragakaffi verði
eftirsóttasta kaffi landsins. Fyrir-
tækið sem örast hefur þroskast,
er sauma- og prjónastofan Hekla.
Hún hefur vaxið á ótrúlega
stuttum tíma. Fyrirtækið hefur
tollað í tízkunni ef svo mætti að
orði komast, en þó er annað
áhrifameira og táknrænna, hin
frábæra vöruvöndun, sem á varla
sinn líka hér á landi. Framleiðsl-
an er seld langt fram í tímann og
sýnir það bezt, hve eftirspurnin
er óhemju mikil.
Frá 1906 hefur Kaupfélag Ey-
firðinga verið forysta og fyrir-
mynd allra kaupfélaga'á íslandi.
Það ár kom ungur Eyfirðingur
heim frá Danmörku, efti rað hafa
kynnt sér rekstur og skipulag
samvinnufélaga. Þessi ungi Ey-
firðingur var Hallgrímur Krist-
insson, og kom hann enska skipu-
laginu á hér. Enginn vafi er á
því, að Hallgrímur er sá maður,
sem átt hefur ríkastan þátt í að
skapa og móta íslenzka sam-
vinnuhreyíingu. Eyfirðingar hafa
verið heppnir með val kaupfé-
lagsstjóra. Frá 1906 hafa þeir
haft fjóra, fyrst Hallgrím, því
næst Sigurð bróðir hans, þá Vil-
hjálm Þór og síðast Jakob Fri-
mannsson, sem nú veitir kaupfé-
laginu forstöðu. Allir hafa þeir
verið fráhærir fjármálamenn. —
Undir stjórn þeirra hefur félagið
vaxið og dafnað jafnt og þétt. Enn
í dag fer KEA eigin leiðir og tek-
ur þau fyrirtæki til fyrirmyndar,
sem því finnst að hezt henti hag
félagsmanna sinna. Áður en KEA
var stofnað, var staðsett á Akur-
eyri verzlunarfélaga bænda,
Gránufélagið. — Forstöðumaður
þess var Tryggvi Gunnarsson. —
Má til sanns vegar færa, að það
hafi verið lífæð sjálfstæðrar
verzlunar á íslandi. En eigi að
síður var það Hallgrímur Krist-
insson, sem hrinti af stað þeirri
samv'innuöldu, sem barst svo óð-
fluga út.
Kvöldið áður en við héldum
heim bauð KEA okkur til kvöld-
verðar á hóteli sínu. Þar talaði
meðal annarra fulltrúi kaupfé-
lagsstjóra Ingimundur Árnason,
og það, sem mest einkenndi mál
hans var brennandi fjör, áhugi og
kraftur,en hann hafði unnið með
Hallgrími á fyrstu starfsárum
hans. Er Ingimundur táknrænt
dæmi um þann eldmóð, sein sam-
vinnuhugsjónin vakti í hugum
æskunnar á fyrstu starfsárum
sínum hérlendis. Seinni daginn,
sem við vorum á Akureyri, ókum
við inn Eyjafjörð og vúrtum hann
fyrir okkur. Ekki varð hjá því
komizt að taka eftir því, að þró-
un landbúnaðarins hefur verið
þar mjög ör. Bændur við Eyja-
fjörð virðast fyllilega standa jafn-
fætis stéttarbræðrum sínum sunn
anlands í flestu, sem búskap við
kemur, ræktunarmenning er
mikil, vélvæðing víðtæk, húsa-
kostur jafn og góður. Að sjálf-
sögðu hefur vöxtur Akureyrar og
kauptúnanna við Eyjafjörð skap-
að mjög góð vaxtarskilyrði fyrir
landbúnaðinn. Svæðið milli
Borgarfjarðar og Eyjafjarðar hef-
ur orðið á eftir í hinum stórstígu
framförum, sem átt hafa sér stað
beggja vegna þess. Ástæðan
virðist augljós. Svæðið er stórt,
en kauptúnin lítil og fá. Hafnar-
skilyrði eru mjög erfið og það
gerir það að verkum, að kaup-
túnin vaxa ekki, þar sem ekki er
um að ræða iðnað eða fiskverkun.
Búskapur er mjög einhliða og
hlutfallið milli neyzlu og fram-
boðs óhagstætt.
Að morgni 3 .nóvember kvödd-
um við Eyjafjörð, mildan og
blíðan og nutum að nokkru hins
fagra útsýnis. — Norðlendingar
virðast vera kjarkmiklir sjálf-
glaðir menntamenn og einmitt
sjálfgleðin er undirstaða bjart-
sýni þeirra dugnaðar og fram-
sýni.
Grétar Ingimundarson
frá Borgarnesi.
Fréttabréf úr Höfðakaupsfað
Engar áfeiigisveitiiifiiar
C o o
Frétt frá Washington, sem ný-
lega birtist í norska blaðinu
„Folket“, segir frá því, að Eisen-
hower forseti hafi ákveðið, að
eftirleiðis skuli allaF samkomur,
móttökuathafnir og veizluhöld,
sem fram fara í Hvíta húsinu,
vera áfengislaus, þ. e. gestunum
verður ekki boðið áfengi til
neyzlu í neinni mynd.
Það fylgir sögunni, að fregn
þessi hafi vakið mikla athygli, og
leikur það ekki á tveim tungum,
að fordæmi forsetans mun hafa
hin víðtækustu áhrif.. ‘ i’. 4 ' ,
Það, sem þykir hæfa í Hvíta
húsinu verður brátt siður og
venja annars staðar í landinu.
Áfengisvarnanefnd.
11
Jf
Mjög gott tæki til eyðingar á skordýr-
uin og illgresi svo sem njóla o. fl.
Eimiig góðar sem
KALK- og
MÁLNINGASPuAUTl R
BAKDTXUR, kr. 43G.GÖ
FÖTUDÆLUR. kr. 133,00
Hagstætt verð.
Véla- or búsáhaldadeild
Nýárið byrjaði með sömu veð-
urblíðunni sem síðastliðið ár
kvaddi. Það má segja, að hér hafi
verið góður vetur, það sem liðið
er af honum. Bændur hér út á
Skaganum hafa enn ekki tekið
sauðfé sitt á hús til gjafar.. í lok
janúarmánaðar var hér auð jörð
og færir vegir eins og um sumar-
dag. Stormar hafa verið hér afar-
miklir, svo að fiskibátar reru
ekki nema sex róðra allan janú-
armánuð. Héðan róa 5 eða 6 bátar
í vetur. Afli hefur verið meiri nú
í vetur, þegar gefið hefur á sjó,
en undanfarin ár. Má óefað þakka
Dað friðun fiskimiða hér inn-
fjarða. Það er því ákveðin stefna
okkar Skagstrendinga í landhelg-
ismálum þjóðarinnar, að vinna að
útvíkkun landhelginnar. Það mun
gifturdrýgst fyrir landið í heild.
17. og 18. jan. sl. var hér ofsa-
veður á suðvestan, sem olli miklu
tjóni, sérstaklega á höfninni og
vegum meðfram henni. Sjór
gekk mjög hátt og braut víða
skörð í veginn. Þök skemmdust á
húsum og fuku nokkuð. Tjón af
veðri þessu varð mjög mikið.
Gæftaleysið heldur áfram þessa
viku sem liðin er af febrúar en
vonandi fara þorrastillurnar að
koma, og þá kemur fiskurinn fyr-
ir frystihúsið og vinna fyrir
ólkið.
Ilugleiðing um áramótin.
Flugvöllur. — Samgöng-
ur eru eitt frumskilyrði fyrir
bættum atvinnuháttum og af-
komumöguleikum fólks hvar sem
er á landi hér. — Samgöngur á
Skagaströnd á landi eru allar um
einn veg. Ef hann teppist eða lok-
ast af snjó sem alltaf er hægt að
búast við á veturna erum við,
sem hér búum, slitnir úr vega-
sambandi við aðalumverðaveg
héi', Norðurlandsveginn. Hér þarf
að gera flugvöll, enda er hér gott
flugvallárstæði í nágrerini kaúp-
staðarins.
Á svokölluðum Vindhælisstapa
má byggja flugvöll einungis með
því að valta og jafna harða mela,
sem eru norðaustan í Stapanum.
Þar festir aldrei snjó, svo að eg
muni, á þeim þrjátíu árum, sem
eg hef verið í nágrenni við Vind-
hælisstapann. Veg er mjög auð-
velt að leggja að Stapanum. Hon-
um má ýta upp með jarðýtu alla
leið inn með sjónum og mundi
hann ekki verða nema ca. 5 km.
langur.
Flugvélar hafa setzt á mela
fyrir neðan Kjalarland án nokk-
urra umbóta af manna völdum,
en þeir melar liggja ekki eins vel
við eins og melarnir á Vindhæl-
isstapa. Þeir eru of nærri fjöllun-
um. Auk þess mun ætíð reynast
gott flugtak á Stapanum, því að
jafnvel í logni mun vera nokkut'
loftstraumur ofan úr Hallárdaln-
um, sem kemur mjög til góða
flugvelli á Vindhælisstapa.Fengj-
um við Skagstrendingar slíka
samgöngubót mundum við vera
eins vel settir, hvað samgöngur
snertir, og önnur þorp á útskög
um landsins.
Heitt vatn. — Á nokkr-
um stöðum á landinu hefur heitt
vatn verið leitt í kaupstaði og
einstaka hæi til upphitunar, og
hvar, sem svo hefur verið gert,
þykir það mikil hagsbót. Nú er
svo háttað hér við „Kaupstaðinn",
að í Spákonufelli, sem rís hér
austan við þorpið í 3ja km. fjar-
lægð, eru lindir, uppsprettur, sem
aldrei frjósa, og þó að yfir þær
fenni, líða ekki nema 1-—2 dagar
svo að lindirnar verði aftur auð-
ar. Nú þarf að rannsaka, hvort
hér er heitt vatn í jörðu, sem svo
víða annars staðar. Það þarf að
afhuga og rannsaka með borun.
Ef svo reyndist, að þarna væri
hægt að ná í heitt vatn, væri það
til mikilla hagsbóta og mikil
vandamál leyst, ef heitt vatn
fengist til upphitunar húsa í þorp
inu. Einu sinni voru það loforð
þingmannsins okkar við alþingi-
iskosningar, að lofa heitu vatni
frá síldarverksmiðju ríkisins, sem
reist var hér á „nýsköpunartím-
unum“. Við litum til þeirra
glæstu loforða um aukin þægindi
og vellíðan. Þingmaðurinn var
endurkosinn. En síldin kom ekki.
Verksmiðjan hefur lítið verið
starfrækt, og heitt vatn hefur
ekki runnið frá henni um þorpið,
nema þá sjóinn. En við horfum
til Spákonufellsins eins og Þórdís
forðum. Við spáum, að framfara-
mennirnir líti til „Fellsins“ at-
hugi lindarnar og fái heitt vatn,
sem hægt verður að leiða í hús
þeirra frámtíoarinnar barna, sem
þá byggja Höfðakaupstað, og þá
hefjist nýsköpunin fyrir alvöru.
8. febrúar 1957.
Páll Jónsson.
Borgarbíó fullkomnar
sýningartæki sín
Borgarbíó hefur nú hafið sýn-
ingar með nýju Cinema-scope-
tjaldi. Verða myndirnar stærri á
tjaldinu og njóta sín betur, sér-
staklega í landslagsmyndum gef-
ur myndin meiri dýpt. Linsurnar,
sem Borgarbíó hefur fengið, eru
þær fyrstu sinnar tegundar, sem.
fgngnar eru frá Ameríku. Enn-
fremur er Ijósaútbúnaður í saln-
um og fleiri lagfæringar gerðar.
Bauð bíóið blaða- og frétta-
mönnum og nokkrum fleiri gest-
um á sýningu sl. laugardagskvöld
af þessu tilefni og sýndi þá
myndina Ríkarður Ijónshjarta og
krossfararnir.
Er hér um góða framför að
ræða og gleðilega fyrir sýning-
argesti bíósins.
Hestur til sölu
Vil selja dráttarhest nú
þegar.
GÍSLI JÓNSSON,
Ytri-Reistará.
Áskriftarsími TÍMANS á
Akureyri er 1166