Dagur - 27.03.1957, Page 8
8
Bagur
Miðvikudagisui 27. marz 1957
Ymis fíSindi úr nágrannabyggðum
Verkun misgamifs fisks verður að
miðasf ví§ yngsta fiskinn
Viðtal við Bergsvein Á. Bergsveinsson fiskim.stj.
Bjargað frá drukkniin
Dalvík, 26. marz.
Sá atburður varð í Dalvík fyrir
stuttu, að 6 ára drengur, Jón
Steingrímsson, Grímsnesi, féll í
sjóinn milli báts og bryggju. —
Aldraður sjómaður varð þessa
var og gerði nærstöddum sjó-
mönnum aðvart. Einn þeirra,
Þorsteinn Kristinsson, stakk sér
þegar til sunds og bjargaði
drengnum. Var hann þá meðvit-
undarlaus orðinn, en flaut í sjón-
um vegna þess að loft hafði kom-
ist í Hekluúlpuna, sem hann var
í. — Læknir kom þegar og báru
lífgunartilraunir fljótt árangur.
Frá Dalvík eru gerðir út 3
dekkbátar frá áramótum: Freyja,
Skíði og Hafþór. Ógæftir hamla
veiðum.
Elzti maður, sem þreytt hefur
Landsgönguna í Dalvík, er Þor-
leifur Jóhannsson, 84 ára, en 5
börn 3ja ára hafa lokið göngunni,
og er áhugi yfirleitt mikill. Má
m. a. marka hann af því, að kon-
ur, sem aldrei áður hafa stigið á
skíði, hafa lokið göngunni.
Færi er orðið gott til Akureyr-
ar, en fram í dalina hefur ekki
verið skafið, og er þar illfært og
ófært nema stórum trukkbílum.
Sæluvika Skagfirðiuga
Sauðárkróki, 26. marz.
Samgöngur eru nú greiðar
orðnar í Skagafirði og ekki mik-
ill snjór. Sæluvikunni var frestað
þar áður vegna snjóa á vegum, en
hefur nú verið ákveðin í næstu
viku. Verður þar margt til
skemmtunar og búizt við fjöl-
menni, verði veður hagstæð.
Leikfélag Sauðái-króks sýnir
sjónleikinn Gasljós undir leik-
stjórn Eyþórs Stefánssonar öll
kvöldin. Verkamannafél. Fram
frumsýnir Förina til Brazilíu eftir
Agnar Þórðarson á föstudaginn,
Karlakórinn Heimir syngur undir
stjórn Jóns Björnssonar á Haf-
steinsst. Þá gengst stúdentafé-
lagið fyrir málfundi, þar sem
frummælandi verður Guðm. G.
Hagalín. Kvikmyndasýningar
verða margar og dansað öll kvöld
frá miðvikudegi að telja.
Skíðanámskeið í
Ólafsfirði
Ólafsfirði 26. niarz.
Þriggja vikna skíðanámskeið
hefur staðið yfir í Ólafsfirði með
mikilli þátttöku og undir stjórn
Matthíasar Gestssonar frá Siglu-
firði. Sýndi hann dugnað, þótt
veður væru válynd.. Námskeið-
inu lauk með mjög fjölmennu
skíðamóti. Beztum árangri náði
Bjarnþór Ólafsson. Stökk hann 43
metra. í norrænni tvíkeppni hlaut
hann 436,5 stig.
Gunnólfur landaði fyrir viku
15- tonnum af fiski eftir 5 daga
útivist. Hann kom aftur í gær
(mánudag) með 17 tonn eftir 3
daga.
Norðlendingur landaði hér 182
tonnum. Hraðírystihús Ólafs-
fjarðar og þurrkvinnslustöð
Magnúsar Gamalíelssonar tóku á
móti aflanum að mestu. Atvinna
en nokkur, en hefur verið lítil að
undanförnu.
Um 300 manns hafa ! lokið
Landsgöngunni. Elztur er Arni
Björnsson, fyrrv. gjaldkeri
Sjúkrasamlagsins, og er hann 80
ára. Yngstur er Gylfi Ragnarsson
3ja ára.
Þrymur syngur í
Húsavík
Húsavík, 26. marz.
Karlakórinn Þrymur í Húsavík
hélt samsöng í Húsavíkurkirkju á
föstudaginn var við mikla aðsókn
og ánægju. Á söngskránni voru
12 lög ,cg þeirra á meðal eitt eftir
söngstjórann, Sigurð Sigurjóns-
son. Undirleikari var Björg Frið-
riksdóttir, og einsöngvarar:
Ingvar Þórarinsson, Eysteinn
Sigurjónsson og Bjarni Sigur-
jónsson.
Á laugardaginn áttu silfur-
brúðkaup merkishjónin Elín
Jónsdóttir og Gunnar Maríusson
bóndi. Margt fólk heimsótti þau
þennan dag. Enda eru þau
frænda- og vinamörg. Þeim hjón-
um var íært að gjöf vandað út-
varpstæki.
Eiiivísíisskákin
D
Einvígisskák þeirra Hermanns
Pilniks og Friðriks Ólafssonar
lauk á sunnudaginn. Jafntefli
varð eftir þessar 6 skákir og vann
hvítt allar skákirnar.
Þeir munu nú tefla tvær skák-
ir til viðbótar og mun sú fyrri
verða teíld í kvöld.
Einvígisskákinni hefur verið
veitt athygli um land allt af ung-
um og gömlum og hafa þær án
efa enn á ný glætt skákáhuga
almennings. — Pilnik og Friðrik
eru báðir skáksnillingar á heims-
mælikvarða og hafa skákir þeirra
allar birzt í sunnanblöðunum.
Umræðum um Útgerðarfélag
Akureyringa h.f. heldur enn
áfram manna á milli og í blöðum
bæjarins. Er vel að áhugi manna
beinist að svo þýðingarmiklum
málum og sýnir raunar hver ítök
þessi stofnun á í hugum manna.
Enda er Útgerðarfélagið sterkur
þáttur í atvinnulífi og afkomu
fjölda bæjarbúa.
Opinberar umræður, og þar
með talin rökstudd gagnrýni á
stjórn og störf fyrirtækisins ættu
að vera jákvæðar fyrir stofnun-
ina í heild. En umræður hafa
snúizt mjög ákveðið að einum
þætti ,saltfiskverkuninni, og hef-
ur þar mikið borið á milli.
Blaðið greip því tækifærið,
þegar fiskimatsstjórinn, Berg-
sveinn Á. Bergsveinsson, var hér
nýlega staddur og lagði fyrir
r
Opemsöngkonaii Nanna
Egils Björnsson
syngur á vegum tónlistarfélagsins
næstk. fimmtudag, 28. marz, í
Nýja-Býó kl. 9 fyrir styrktarfé-
laga og gésti. — Við hljóðfærið
verður hinn góðkunni píanóleik-
ari F. Weisshappel.
Frú Nanna Egils hefur ekki
sungið á Akureyri fyrr, en hún
hefur getið sér gott orð sem
óperusöngkona erlendis og mun
því Akureyringa fýsa að heyra
söng hennar.
Nýjir styrktarfélagar geta snú-
ið sér til gjaldkera tónlistarfé-
lagsins, Haraldar Sigurgeirssonar,
(sími 1915). Aðgöngumiðar hafa
verið sendir heim til félagsmanna
og er því nú að mestu lokið. Ekki
varð hjá því komist að hækka
árgjöldin, en þau hafa aðeins einu
sinni áour verið hækkuð í þau 14
ár, sem félagið hefur starfað og
félagið hefur þar af leiðandi síður
en svo gétað safnað neinu í vara-
sjóð og. mun svo heldur ekki
verða enn. Aðalfélagar hafa jafn-
an lánað félaginu rekstursfé. Er
þess því að vænta að gjöldin inn-
heimtist fljótt og vel.
Ráðgert er að annar konsert
félagsins á þessu vori verði píanó
leikur okkar mikla listamanns
Árna Kristjánssonar skólastjóra
Tónlistarskólans i Reykjavík. —
Munu Akureyringar eflaust fagna
þessari ráðstöfun.
hann nokkrar spurningar, ef svör
við þeim kynnu að varpa nokkru
Ijósi á þessa hlið málsins. En
Bergsveinn er yíirmaður fiski-
mats á íslandi og ættu orð hans
því að vera nokkur ávinningur til
íróðleiks.
Kann blaðið honum þakkir fyr-
ir viðtalið og fara spurningarnar
og svörin hér á eftir.
—o—
Hverjar telurðu helztu orsakir
skenunda á óverkuðum togara-
fiski?
Fiskimatsstjórinn svarar á þá
leið, að sitt hlutverk sé einkum
það að meta miskinn, en um or-
sakir skemmdanna, er stundura
komi fram, sé ekki hægt að svara
tæmandi í stuttu máli, nema
þrengra sé spurt.
Telur þú sérstök vandkvæði á
fiskverkun, þar sem uppskipun
úr togara fer þannig fram, að
nýjum fiski og götnlum, t. d. 2ja
daga til 18 daga gömliun fiski er
blandað saman.
,Slík meðferð er óviðunandi11
segir fiskimatsstjórinn „og leiðir
af sér meiri vanda í verkun fiskj-
arins en annars væri.“
Er nauðsynlegt að umstafla
fiskinn fljótíega eftir að landað
er?
„Ef fiskinum mjög misgömlum
er blandað saman í uppskipun úr
togara, verður að miða meðferð
hans við yngsta fiskinn, sem ekki
er búinn að draga í sig nema tak-
markað saitmagn. Undir þeim
kringumstæðum er umstöflun
nauðsynleg innan viku til hálfs
mánaðar."
Hversu langa geymslu þolir
óverkaður saltfiskur?
„Eftir 2V2—3 mánuði fer fisk-
urinn að tapa útliti og gæðum,“
segir Bergsveinn, „nema hann sé
geymdur í kældum húsum. En sé
fiskurinn geymdur þannig, þarf
að flytja hann út í kæliskipi."
Léttist hann mikið við langa
geymslu?
„Já, hann léttist um 10—15% á
8—9 mánuðum.“
Þarf gervihendi
Eins og mörgum mun vera
kunnugt varð dóttir þeirra hjón-
anna Sigurbjargar Hlöðversdótt-
ur og Áskels Jónssonar fyrir því
siysi að missa aðra héndina. Þarf
hún því síðar meir að fá gervi-
hendi. Verður það áreiðanlega
kostnaðarsamt, þar sem leita
verður til erlendra sérfræðinga.
Undir svipuðum kringumstæð-
um og þessum hafa oft margir
viijað hlaupa undir bagga, ekki
hvað sízt, þegar ungbörn hafa átt
hiut að máli, en litla stúlkan er á
2. árinu.
„Dagur“ mun því fúslega taka
á móti gjöfum frá þeim, sem eitt-
hvað vilja leggja af mörkum
vegna þessa slyss.
ÁSðífundur SkógrækfðrféEsgs Ák.
Föstudaginn 22. marz sl. hélt
Skógræktarfélag Akureyrar að-
alfund sinn. Formaður, Tryggvi
Þorsteinsson, kennari, gaf skýrslu
um starfsemina á árinu, sem hafði
verið allmikil. Alls höfðu verið
gróðursettar 21.570 plöntuur í
skógarreiti félagsins, mest þó í
Kjarnaskóg. Á árinu höfðu skát-
ar fengið ca. þriggja hektara
laiid í Kjarnaskógi og hyggjast
Börain fá verðlaun
Leikfangagerð Baldvins Ás-
geirssonar hefur heitið verðlaun-
um þeim keppendum Landsgöng-
unnar á Akureyri, sem yngri eru
en fjögurra ára. Verðlaunin eru
leikföng er afhent verða þegar
Landsgöngunni lýkur.
Ekki hefur heyrzt um að öld-
ungar verði gladdir á einn eða
annan hátt og væri þó athugandi.
Fræðsluvika B. í.
Fræðsluvika Búnaðarfélags ís-
landis hófst á mánudaginn með
ávarþi Steingríms Steinþórsson-
bt búnaðarmálastjóra.
Hvatti hann mjög til að veita
erindum þeim athygli, er flu.tt
yrðu þessa 5 daga. Væru þau
einn liður í fræðslustarfsemi
B. f. og nær 20 ára gömul, vin-
sæl ver.ja.
Búnaðarmálastjórinn sagði það
aðkallandi verkefni B. í. að ná
sambandi við það kaupstaðarfólk,
sem þráði að komast úr fjöl-
menninu og setjast að i sveitum
og létta því landnámsstörfin.
Fræðsluvikunni lýkur á föstu-
daginn með kvöldvöku og fjöl-
hreyttri dagskrá.
setja þar niður um 24 þús. plönt-
ur á þremur árum. Sjálfboða-
vinna var alls hjá skógræktarfé-
laginu um 65 dagsverk, og fjölda
margir höfðu lánað ókeypis bíla
til að koma fólki á gróðursetn-
ingastaðina.
Þá gaf Eiríkur Stefánsson,
kennari, formaður unglingadeild-
ar, skýrslu. í deildinni eru 136
félagar, .og um helmingur þeirra
hafði farið í skógræktarferðir.
Þá gaf gjaidkeri félagsins, Mar-
teinn Sigurðsson, skýrslu um
fjárhaginn og lögð var fram fjár-
hagsáætlun. — Niðurstöðutölur
hennar voru 50 þúsund kr. Til
plöntukaupa voru áætlaðar 16
þús. kr., en til framræslu í
Kjarnalandi 15. þús kr.
Þá urðu miklar umræður um
ýmis mál, er varða skógræktina
og samþykktar nokkrar tillögur.
Meðal annars var skorað á skóg-
rækt ríkisins, að hún hlutist til
um, að kvikmyndin „Fagur er
dalur“, svo og ýmsar aðrar skóg-
ræktarmyndir verði jafnan til í
kvikmyndasafni fræðslumála-
skrifstofunnar svo að skólar
landsins og aðrir eigi aðgang að
þeim. Þá var þeirri ósk beint til
Skógræktarfélags íslands, að það
láti gera fræðslu- og hvatningar-
mynd um skógræktarmálin í því
skyni að fá hana sýnda sem auka
mynd í kvikmyndahúsum lands-
ins. Þá taldi fundurinn æskilegt,
að sem flest héröð fengju að
koma upp hjá sér skógræktar-
reitum með svipuðu sniði og
Heiðmörk. Að lokum fóru fram
kosningar og meðai annars á 18
fulltrúum á aðaifund Skógrækt-
arfélags Eyfirðinga.
Fundinum stjórnaði Ármann
Dalmannsson.