Dagur - 31.05.1957, Blaðsíða 1

Dagur - 31.05.1957, Blaðsíða 1
DAGUR XXXX. árg. Akurcyri, laugardaginn 31. maí 1957 Fylgist með því, sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. kemur næst út miðviku- daginn 5. júní. 26. tbl. Jóhann Frímann, skólastjóri, llutti rttfiu og veitti ylirlit í stór- um dráttum um skólastarfið á liðn- um vetri. Skólinn starl'aði í 14 bekkjardeildum, 6 verknámsdeild- um og 8 bóknámsdeildum. Auk skóiastjórans starfaði 21 kennari við skólann, 15 fastir kennarar og C stundakennarar. Alls voru inn- ritaðir í skólann 354 nemendur. Gagníræðaprófi luku 59 nemend- ur, cn 15 nemendur þreyttu lands- próf miðskóla. Nöfn og einkunnir liinna nýju gagnfræðinga birtast á öðrum stað i blaðinu, cn úrslit landsprófsins eru cnn ekki að lullu kunn, vegna þess að síðasta prófið \ar háð í gær. I-Iins vegar taldi skólastjóri, að þorri nemenda hefði staðizt prófið, og ýmist mcð góðri eða ágætri einkunn. Iíæstu einkunn í skóla hlaut I’órunn Olafsdóttir, Hamraborg, Akurcyri, I. ágætiseinkunn 9.3G. Hún var í 1. bekk bóknámsdeildar. I Ixstu cinkunnir við gagnfræðapróf bóknámsdcildar lilutu Asdís Flva Jónsdóttir, I. einkunn 8.64, og Guð- rún Sólveig Sveinsdóttir, 1. eink. 8.40. Haestu einkunnir við gagn- fræðapróf verknámsdeildar lilutu Sigríður Jóna Þorvaldsdóttir, I. einkunn 8.18, og Guðmundur Rafn Pctursson, I. einkunn 7.94. Skólastjóri afhcnti síðan vcrð- laun. Umsjónarmaður skóla, Guð- jón Reynir Valtýsson, lilaut bóka- verðlaun fyrir skyldurækni og dugn- Laiidsliðio farið iiían íslcnzka landsliðið í knatt- spyrnu hélt áleiðis til Parísar sl. fimmtudag. — Keppir ]rað við Frakka á morgun, cn Belgíu- menn á miövikudaginn. að í starfi. Þórurin Ólafsdóttir hlaut bókaverðiaun fyrir framúr- skarandi námsafrek og hugþekka prúðmcnnsku í allri framkomu. Baeði þessi verðlaun bafði Bóka- forlag Odds Björnssonar gefið skólanum í þessu skyni. Árni Bjarnarson, bókaútgefandi, hafði enn fremur fært skólanum bóka- gjöf, er varið skyltli til verðlauna fvrir beztu ritgerð við próf í skrif- legri íslenzku. Þau verðlaun hlaut Hjörtur Pálsson, nemandi í lands- prófsdeikl 3. bekkjar. Þegar skólastjóri hafði afiient prófskírteini, flutti hann liinum nýju gagnfræðingum ávarp og ræddi einkum um mátt trúarinn- ar bæði til góðs og ills. Hann benti m. a. sérstaklega á þá íram- rás trúhneigðarinnar, sem hún nú á dög.um virðist fá á sviði félags- mála og stjórnmála. Að lokinni ræðu skólastjóra kvaddi Gunnlaugur Kristinsson, bókari, sér hljóðs og flutti skólan- um kveðjur og árnaðaróskir frá 10 ára gagnfræðingum. Hann afhenti og skólanum penirigagjöf frá giimlum bekkjarfélögum. Gjöfin skal lögð í Gjafasjóð nemenda, en honum er ætlað að standa straum af kaupum ýmissa tækja, sem að gagni koma i skólastaríinu, en fást ekki keypt fyrir opinbert lé. Söngkennari skólans, Áskell Jóns- son, stýrði söng við skólaslitin. Gagnfræðingahópurinn cr ný- kominn úr 6 daga ferðalagi til Reykjavíkur og suðvesturlandsins, Og nemendur þeir, sem luku lands- prófi miðskóla í skólanum, halda í dag i limm daga för á sömu slóðir. Svalbarð á Svalbarðsströnd er höfuðból frá fornu fari og annað fyrsta byggða bólið þar í sveit. og margt safnaðarfólk, dvalið um stund í hinni öldnu og nú aflögðu kirkju, sem stendur spölkorn Þar hafa þróttmiklar asttir setið neðar en nýja kirltjan. Þar sem mann fram af manni og gert garð inn héraðs- og landskunnan. Svalbarðsströndungar hafa á síðustu tímum verið í fararbroddi byggðanna við Evjafjörð um verklegar framkvæmdir í búnaði. Hið kuldalega nafn er ekki leng- ur táknrænt fyrir sveitina, því að óvíða á landinu er blómlegra um að litast. Þar ná iðgræn tún sam- an og þar eru reisulegar bygg- ingar yfir fólk og fénað. Auðséð er, að þar fer saman dugnaður og velmegun og bygging nýju kirkj- unnar sýnir einnig menningu og safnaðar- og samvinnuþroska. Ef miðað er við tölu sóknar- barna og hins vegar hina glæsi- legu kirkju og byggingarkostnað hennar, er óhætt .að fullyrða, að óvíða hefui' fólk lagt meira af mörkum guði sínum til dýrðar, nú í seinni tíð. Áður en gengið var til hinnar J?nýju kirkju, hafði biskup, prcstar hún var afhelguð og kvödd. Að vígslu lokinni og síðan messugjörð, þar sem sóknarprest ui'inn, séra Þorvarðui' Þormar, prédikaði, Jóhann Konráðs- son og kirkjukór, undir stjórn Áskels Jónssonar, sungu fagra sálma, er hljómuðu vel, var safn- aðarfundur. Þar flutti biskup ávarp og Benedikt Baldvinsson rakti sögu byggingarinnar. Vald. V. Snæ- varr flutti ræðu, og hann hafði líka ort fagran vígslusálm, er sunginn var í upphafi. Aðrir ræoumenn voru: Jóhann Skapta- son, sýslumaður, sóknarprestur- inn, séra Þorvarður Þormar, séra Benjamín Kristjónsson, sem sagði sögu Svalbarðskirkju frá fyrstu tíð og Júlíus Havsteen. Sigurjón Valdimarsson tiikynnti með ræðu að Sparisjóður Svalbarðsstrandar gæfi kirkjunni 50 Jiúsund krónur. Prófasturinn, séra Friðrik A. Friðriksson, stýrði fundi og ávarpaði söfnuðinn. Allir ræðu- menn árnuðu sóknarbörnunum hcilla með hið nýja guðshús og báðu því og söfnuðinum allrar blessunar. Að vígslu og messu lokirmi bauð kvenfélagið til kaffi- (Framhald á 8. síðu.) Co U(. msöngur Geysis ICarlakórinn Geysir hélt söng- skemmtun í Samkömuhúsinu á ' Akureyri síðastilðið' miðviku- 1 dagskvöld. Söngstjóri var Árni , Ingimundarson, einsöngvari ung- frú Ingibjörg Steingrímsdóttir og ■ undirleikari ungfrú Guðrún Kristinsdóttir. Húsið var fullskipað og kór og einsöngvara ágætlegá tekið. — j Áheyrendur fögnuðu einnig und- Biskupinn, herra Ásmundur Guðmundsson, vígir Svalbarð’skirkju. (Ljcsmynd: Edvard Sigurgeirss.).! irleikaranum, svo sem vert var. I 4» Nyja kirkjan a Svalbarðsströnd. Tíimda uppeldismála- þingið háð á Ákureyri i j Nædsta uppeldismálaþingið verður haldið á Akureyri dagana 12.—-15. júní n.k. Fjallar það einkum um námsskrá fyrir skyldunámsstigið og ríkisútgófu námsbóka. -— .1 sambandi við námskeið þetta verða haldin tvö námskeið, annað fyrir kennara í handavinnu stúlkna og hitt nám- skeið í blokkflautuleik. r r Biskupinn yfir Islandi, herra Asmimdur Guð- mundsson, vígði þetta nýja guðshús að viðstöddu, f jöimenni, þeirra á meðal margra presta Á fimmtudaginn, nppstigningardag, fór fram vígsla Iiinnar nýju kirkju að Svalbarði á Svalbarðsströnd. — Var vígsluat- höfnin mjög virðuleg og hátíðleg. líiskupinn, séra Ásmundur Guðmundsson, vígði hina nýju og veglegu kirkju, að A Íð- stöddum 13 hempuklæd^um, prestvígðum mönnum. MikiH niannfjöldi sótti þessa vígsluhátíð og mun hún lengi verða mönnum minnisstæð. á Svðl

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.