Dagur - 31.05.1957, Blaðsíða 7
Laugardaginn 31. mai 1957
D A G U R
7
Til
Margrétar Guttormsd.
Ásláksstöðum.
Rís 5. júní og roðar fjöll
röðull, — himneskt ljós; —
en samt er hún ekki sagan öll
sögð, um vorsins rós.
Vökul þig breiðir, sem vorsins
skin,
víkur þér aldrei frá,
böndin þar toga að blíðum vin
bundin af sterkri þrá.
Á sextugum aldri situr þú
sæl á óðals-jörð
og hugann leggur á börn og bú
við blessaðan Eyjafjörð.
Haustið 1956 voru hrútasýn-
ingar í Eyjafjarðarsýslu og Ól-
afsfirði hjá öllum fjárræktarfé-
lögum á þessu svæði og sá Bún-
aðarfélag íslands um þær, sam-
kvæmt gildandi búfjárræktar-
lögum. Fékk það Harald Árnason
ráðunaut á Sjávarborg til að
vera aðaldómara á þeim. Jafn-
framt hrútasýningunum voru af-
kvæmasýningar, en eg ætla ekki
að ræða um þær núna.
Starfandi eru sauðfjárræktar-
félög í öllum hreppum sýslunnar,
að þrem undanteknum: Skriðu-,
Hrafnagils- og Ongulsstaðahr., en
eins og fyrr segir, þá voru sýn-
ingar aðeins þar, sem starfandi
voru sauðfjárræktarfélög, svo að
engar sýningar voru í þessum
þrem hreppum, en öllum hinum.
Allar sýningarn'ar voru vel
sóttar af félagsmönnum o. fl.
Alls voru sýndir 426 hrútar. Af
þeim hlutu 37.1% fyrstu verð-
laun, en 12.0% enga viðurkenn-
ingu. Miðað vjð. síðustu sýnipgp,
sem vaf tó54,'t vóru • úrsíitin
28% fyrstu verðlaun, en enga
viðurkenningu 22.0%, en hér er
miðað við alla sýsluna í tölum
frá sýningu 1954 og eru því ekki
alveg sambærilegar, þar sem
hrútar flokkuðust heldur illa í
Öngulsstaðahr. og Hrafnagilshr.
Fullorðnu hrútarnir, sem nú
voru sýndir, 231 að tölu, hlutu
51.1% af þeim fyrstu verðlaun,
en 1954 40.7%, og enga viður-
kenningu nú 6.0%, en 1954
11.9%. Veturgömlu hrútarnir,
sem nú voru sýndir, 195 að tölu,
hlutu 21.0% af þeim fyrstu verð-
laun, en 1954 11.9%, enga viður-
kenningu hlutu 18.0% ,en 1954
33.9%. Þessar tölur sýna okkur
það, að um nokkra framför er að
ræða, og vil eg þakka það því, að
bændur eru farnir að vanda meir
til lífhrútavalsins, en verið hef-
ur, en betur má, ef ástandið í
sauðfjárræktinni á að verða við-
unandi, því að mjög er mikill
mismunur frá einni sveit til ann-
arrar og liggja til þess mai'gar
orsakir, t. d. léleg afrétarlönd og
mismunur á stofnum.
Bezta útkoma á hrepp var í
Öxnadal. Þar voru sýndir 43
hrútar og hlutu 26 af þeim fyrstu
verðlaun, eða 60.5%, og er það
góð útkoma, og vafalaust má
þakka landgæðum eitthvað af
þessu, en mikill áhugi er um
sauðfjárrækt í Öxnadal, sem öðr-
J um hreppum sýslunnar. Næst
bezta útkoma á sýningum var í
Ólafsfirði og Árskógshreppi, eða
50% af sýndum hrútum hlutu
fyrstu verðlaun. Lélegasta út-
koma á sýningunni var á Dalvík.
Þar voru sýndir 59 hrútar, og af
þeim hlutu 11 fyrstu verðlaun,
eða 18.6%, og er það mjög slæm
útkoma. Hrútarnir, sem komið
var með á sýningu á Dalvík, voru
yfirleitt mjög grannholda, sem
1 mun mest stafa af því, hve
þröngt er í högum hjá Dalvík-
ingum. Ef Dalvíkingar ætla sér
að hafa svona margt fé áfram,
| eins og þeir hafa nú, þá er úti-
lokað fyrir þá annað en að beita
fénu á ræktað land þegar líður á
sumarið, ef þeir ætla sér að hafa
afurðir af fénu, og víðar mun
þáð, þúýfa,: pins og 'tc 'd', í hrepp-
um hér framan Akureyrar.
Læt eg svo útrætt um þessar
sýningar á síðastliðnu hausti.
Ingi Garðar Sigurðsson.
Þanniof er meitluð stund við
O
starf,
staðurinn glöggt það ber:
að blíða þín við bezta arf
birtist hvar sem fer.
Ljúft er í elli að minnast margs
er mætumst í lífsins för:
blíðu-atlots og barna-args
úr bernskunnar fyrstu vör.
Á Ósi var mótuð ævi þín
í ævintýra-rann
og síðan býr yndi, sem aldrei
dvín
og innst í hjartanu brann.
Nú hefurðu gengið langa leið,
nú líður hver stundin fljótt,
en fyrir þér iiggur gatan greið,
þótt gangi að koldimm nótt.
Áfram í töfrum ævi-braut,
ennþá við himneskt ljós,
megi þér berast blóm í skaut
og blæfögur júní-rós.
Amaldur Guttormsson.
Á Vestur-Jótlandi eru mold-
vörpur mesta plága, og stendur
nú yfir eyðingarherferð þar um
slóðir. Talið er að hver hreppur
þurfi að kosta til 10—20 þús. d.
kr. til útrýmingarinnar.
lier sjasi nokkrar indverskar konur, klæddar sínum gamla, þjóðlega
búningi, bera körfur á höfðinu, cn í baksýn sést nýtízku járn- og
stálbræðsluverksmiðja ein mikil, sem Alþjóðabankinn hefur lánað
Indverjum fé til að reisa.
„. .. . ijýsna stór með hornin sín. . . ."
Að hugsa um fögur heima-lönd
að helga sér göfug störf,
og raka og binda blóm í vönd
þú birtir af innri þörf.
Traktorinn er lang-
Iiættulegasta land-
búnaðarvélin
Brezkar rannsóknir hafa leitt í
Ijós, að um 60% af slysum við
jarðræktarstörf, þar sem vél-
væðing er orðin almenn, stafa af
dráttarvélum. Og eru slys þessi
afar margvísleg. Voru á einu ári
í Bretlandi 4000 slík slys, og þar
af 60 banaslys.
í Noregi hafa Ríkistrygging-
arnar skráð 3000 slík vinnuslys
með 13 banaslysum á einu ári.
Vinna þar þó miklu færri að
búnaðarstörfum heldur en í Bret
landi.
Alltítt er, að unglingar, og
jafnvel börn slasist og bíði bana
í traktorslysum, og þykir þó
óverjandi með öllu að setja yngri
unglinga en 16 ára til slíkra
starfa. Hafa þess háttar slys því
miður einnig hent hérlendis,enda
virðist lítið eða ekkert eftirlit
með þess háttar. Fyrir skömmu
sást auglýst í einu Reykjavíkur-
blaðanna, að bóndi óskaði eftir 13
ára dreng í sumarvinnu, — „og
1 væri æskilegt, að hann væri dá-
I lítið vanur að stjórna dráttar-
vél.“ — Þar birtist ábyrgðarleys-
ið á prenti!
(Aðsent.)
KIRKJAN. Messað í Akureyr-
arkirkju kl. 10.30 f. h. á sunnu-
dagínn kemur. Sjómannamessa.
Sálmar nr: 660 — 68 — 681 —
318. -— Ath. breyttan messatíma.
P. S.
Skinfaxi
tímarit ungmennafélaganna, 1.
hefti þessa árs, er komið út í
breyttu formi.
Ritstjóraskipti hafa orðið að
ritinu. Stefán Júlíusson, sem ver-
ið hefur ritstjóri síðustu 11 árin,
•lætur nú af því starfi, en við því
tekur Stefán M. Gunnarsson.
Brot ritsins er breytt og útlitið
nýtízkulegra.
Af efni má nefna afmælisgrein
um Guðmund Inga fimmtugan og
kvæði og ennfremur grein um
Guðbrand Magnússon sjötugan.
Þorsteinn Einarsson skrifar um
íþróttir. Þá er viðtal við tvær
konur, skákþáttur, þýdd saga
eftir Oscar Wilde og hugleiðing
eftir ritstjórann o. fl.
- Bókamarkaðurinn
(Framhald af 2. síðu).
margar konur mikinn áhuga og
hafa náð furðugóðum árangri í
blómarækt. Og fá eru þau heim-
ili orðin, þar sem ekkert blóm
skartar í glugganum.“
Skellinaðra
GORICKE - TIL SÖLU
Uppl. í síma 1484
5 ungar kýr
VIL ÉG KAUPA
G. S. Haldal
Sörlatungu
Sími um Bægisá
Að sögn útgefanda er bókinni
„Stofublóm“ ætlað það hlutvei'k
að leiðbeina húsmæðrum um
tegundaval innijurta og eru
myndir birtar af flestum aðalteg-
undunum í þessu skyni. Bókin er
240 blaðsíður með nafanskrá,
gefin út af Bókaforlagi Odds
Björnssonar á Akureyri. Bókin
er prentuð í Prentverki Odds
Björnssonar h.f., Akureyri, og er
það nokkur trygging fyrir
smekklegum og vönduðum frá-
gangi.