Dagur - 21.12.1957, Page 2
2
D A G U R
Laugardaginn 21. desember 195?
UM BAGINN
OG YEGINN
FRÉTTIR í STUTTU MÁLI
Sjúkraflug.
Um síðustu mánaðamót sótti
Björn Pálsson flugmaður slasað-
an pilt norður í Reykjaskóla í
Hrútaí'irði. En þá var ófært yfir
Holtavörðuheiði á bíl. Veður var
hið versta og þurfti flugmaðurinn
að þræða' með sjónum og lenti
hann svo vél sinni á söndunum í
Miðfirði. En þangað var hægt að
flytja sjúklinginn, scm var fót-
brotinn og meira slasaður, á bíl
írá skólanum.
Björn Pálsson hefur nú lent á
nær 300 stöðum á landinu og
mjög oft við hin erfiðustu skil-
yrði, en jafnan farnast hið bezta.
Sjúkraflug er orðið hið ómet-
anlegasta öryggi fyrir hinar
dreifðu byggðir landsins. Akur-
eyringar vilja nú eignast sjúkra-
flugvél og hafa til þess öll skil-
yrði ig góða aðstöðu. En ennþá
hafa yfirvöld gjaldeyrismálanna
ekki lagt blessun sína yfir kaup á
iiýrri vél. Fjármálin í þessu sam-
bandi eru leyst heima fyrir og
hér er líka flugmaður, sem hefur
boðizt til að taka sjúkraflugið að
sér. Þetta mál þarf að leysa á
viðunandi hátt og með fullu til-
Jiti til þess, hve sjúkraflugið er
mikils virði fyrir dreifbýlið, og
að miklum mun meira ef önnur
sjúkravél er staðsett hér nyrðra.
Jafnvel flugskýlið býður vænt-
anlegrar vélar á Akureyrarflug-
velli.
R'aþóisk útvarpsstöð.
Fyrir skömmu var á ferð hér á
Jandi Ameríkani einn, sem var að
athuga möguleika á að ’reisa hér
útvarpsstöð fyrir kaþólska. Ka-
þólsk útvarpsstöð er risin
. skammt frá Róm og mun ætlunin
að reisa aðra innan skamms. En
fleiri staðir koma til greina en
ísland. Ymsu kaþólsku efni er
útvarpað frá hinni nýju stöð,
bæði trúarlegu og einnig fréttum
■ og öðru efni.
4000 ofdrykkjumenn.
í umræðum þeim á Alþingi um
afnám áfengisveitinga á vegum
hins opinbera, hefur það verið
staðfest og ekki mótmælt, að nú
séu sennilega um 4 þús. of-
drykkjumanna á landinu, og er
það óneitanlega há tala, eða að
minnsta kosti of há. Heildar-
áfengisneyzlan í landinu svarar
til þess að hver maður neyti sem
svarar 1V> lítra á ári.
í handaskolum.
Þegar gerfihnettir Rússa kom-
ust á loft, þótti Bandaríkjamönn-
um á sig halla í vísindunum. Var
ekki beðið boðanna við undir-
búning þess að senda gerfihnetti
svo fljótt sem verða mætti, svo
. að augu manna mættu mæna á
fleira á háloftunum en rússneska
framleiðslu. Þegar til átti að taka
mistókst þeim þó að senda upp
tveggja kilóa gerfihnött og vai‘
verr farið en heima setið. Er nú
kapplega unnið að smíði cld-
flauga og gerfitungla, því að
kapphlaupið heldur áfram af
fullum krafti milli eimsveldanna,
bæði á þessu sviði og öðrum.
Sputnik annar heldur enn
áfram ferð sinni kringum jörðina
með tíkarhræið innanborðs. En
Sputnik fyrsti er fallinn til jarð-
arinnar .Ekki hefur ennþá fund-
ist af honum tangur né tötur.
Sjötíu ára góðviðriskafli.
Dr. Sigurður Nordal sagði í
ræðu sinni fyrsta desember, að
þegar litið væri á sögu landsins
allt frá landnámstíð, væru síð-
ustu 70 árin líklega mesti og
lengsti góðviðriskaflinn í sög-
unni. Hann sagði að það hefði
ekki eingöngu verið að þakka ís-
lenzkum stjórnmálamönnum, að
ísland hlaut fullt sjálfstæði.
Margir atburðir hefðu einnig
verið íslendingum í hag. Þar
hefði til dæmis barátta Dana við
Þjóðverja, um endurheimt Suð-
ur-Jótland, mjög veikt aðstöðu
Dana til yfirráða hér á landi.
Meðal annars þess vegna hefðu
þeir ekki hafnað kröfum íslend-
inga 1918. Síðasti kafli sjálfstæð-
isbaráttunnar, frá 1897—1944,
hefði verið ævintýri líkastur. ís-
lendingar hefðu fengið allt sitt en
ekki úthellt einum blóðdropa í
þeirri baráttu.
í niðurlagsorðum benti hann á,
að íslendingar þyrftu að vera
þrautseigir og þolinmóðir öðrum
flestum þjóðum fremur, ef þeim
ætti að verða lífs auðið í landinu
til frambuðar. Dr. Sigurður var-
aði við þeirri bjartsýni að álíta
það sjálfsagðan hlut að góðærið
yrði um alla framtíð eins og
undanfarin 70 ár. En skylda okk-
ar væri að búa afkomendui' okk-
ar undir það að geta mætt meiri
örðugleikum, en flestir myndu
nú.
Minnisvarði Einars
Benediktssonar.
Bókaútgáfufélagið Bragi og
Almenna bókafélagið gefa út
verk Einars Benediktssonar
skálds. En Bókaútgáfufélagið
Bragi var stofnað til að haldn
minningu skáldsins á lofti og
hefur það nú áhuga fyrir því að
reisa því minnisvarða í Reykja-
vík. Hefur Ásmundur Sveinsson
þegar gert myndina. Þá er ráð-
gert að gefa út ævisögu Einars,
sem varpað geti skýrara ljósi á
þann þátt ævi hans, sem laut að
framförum og atvinnumálum
landsmanna.
Bækurnar.
Enn sem fyrr eru bækur mest
áberandi á jólamarkaðinum. —
Bækur eru hentugar til jólagjafa
og bækur, það er að segja góðar
bækur, eru tryggir vinir og ráð-
hollir bókelskum mönnum. En
það er nokkur vandi að lesa
bækur, og þeir eru áreiðanlega
of fáir, sem kunna þá list þótt
læsir kallist. Góður sögumaður
og góð bók nýtur sín ekki nema
þegar vel er hlustað og vandlega
lesið. Of margir venja sig á að
gleypa allt ótuggið og er það ekki
síður ljótur vani þegar um ritað
orð er að ræða, en í bókstaflegri
merkingu.
„Njótið góðra bóka í næði.“
GLEÐILEG JÓL!
Séra Siefred Schmutzler, 42
ára ,er ljóshærður, hár og grann-
ur. Hann er gamall hermaður, og
honum þykir ekkert að því að
takast á við eitthvað. í síðustu
viku vann hann sigur í eftirtekt-
arverðu stríði við austui'-þýzku
kommúnistastjórnina.
Sigfi'ied Schmutzler var liðs-
forforingi í þýzka hernum í sið-
asta stríði, en eftir að hann var
leystur frá herþjónustu, tók hann
að lesa guðfræði, og 1954 var
hann vígður evangeliskur prest-
ur við St. Péturskirkjuna í Leip-
zig. Hann lét mál háskólastú-
dentanna einkum til sín taka og
geröist sjálfboöaprestur í Lút-
herska stúdentafélaginu. Þetta
félag var ekki fremur stjórn-
málafélag en K .F .U. M. og önn-
ur slík, en eftir ungverska blóð-
baðið í fyrra urðu kommúnistai'
taugaóstyrkir og litu illu auga
allan stúdentafélagsskap, sem
ekki var kommúnískur, ekki sízt
þetta stúdentafélag í Leipzig,
sem hafði að trúarleiðtoga mann,
Nætursfestir
Nótt eftir nótt geisar útrým-
ingarstríðið í höfuðborg Frakk-
lands milli hinna ýmsu hópa
þjóðernissinna frá Alsír. Á fyrstu
10 mán. þessa árs hafa verið
myrtir um 600 Alsírmenn í Frakk
landi og um 2000 hafa særzt.
í síðustu viku voru framin
manndráp við lítið kaffihús Al-
sírbúa við Rue etit í Par,s í
annað sinn á mánuði. Þrír Norð-
ui'-Afríkumenn voru drepnir
með vélbyssuskothríð frá bíl, sem
stanzaði snöggvast á götunni.
í úthverfi Parísar ruddist hóp-
ur manna inn í lítið, skuggalegt
hótel og skaut til bana 6 Alsírbúa
sem bjuggu saman í herbergi.
Árásarmenn skutu úr vélbyss-
um á alsírskan ráðherra í lög-
reglufylgd rétt hjá Eiffelturnin-
um, er ráðherrann var að koma
af þingfundi seint um kvöldið ,en
þeii' hittu ekki.
Eitt kvöld í síðustu viku sat
lögregluþjónn á lögreglustöð í
skuggalegu úthverfi Parísar og
las í blaði um úrslit knattspyrnu-
kappleikja dagsins. Hann var
þreyttur. Drykkjurútar, vasa-
þjófar, skelfdir Alsírmenn, ekk-
ert af þcssu var lengur neitt
nýjabrum fyrir lögreglumanninn,
þetta voru allt hversdagsleg mál.
Hann leit upp úr blaðinu, er
hann heyrði, að inn var komið.
Fyrir framan hann stóð maður,
skjálfandi á beinunum, og rétti
honum bréf, ritað á arabísku.
„í hamingju bænum, lesið
þetta, herra minn,“ bað maður-
inn. „Það er búið að dæma mig
til dauða. Þeir ætla að drepa mig
um miðnætti. Hjálpið mér! Lokið
mig inni í fangelsinu!“
Lögregluþjónninn var enn að
hugsa um það undarlega fyrir-
bæri, að eftirlætisfélagið hans
gæti aldrei gert mörk, þegar þörf
væri á. Hann stóð upp hægt,
opnaði klefadyr og benti hinum
-ÞSSj]
skelfda Norður-Afríkumanni
þegjandi á opnar dyrnar. Eftir
örskamma stund var Afríkubú-
inn sofnaður á bekk í klefanum,
öruggur í skjóli franskra laga og
réttar.
Um það bil hálfri stund síðar
kom annar Alsírmaður þjótandi
inn á lögreglustöðina, auðsýni-
lega eins hræddur og sá fyrri.
„Það á líka að drepa mig á
miðnætti," hrópaði hann. „Vinur
minn hefur fengið griðland
hérna. Bjargið mér líka!“
Hin þögla athöfn var endur-
tekin. Klefadyrnar voru opnaðar,
og þeim nýkomna vísað inn, ig
þá voru þeir báðir komnir á ör-
uggan stað. Allt varð nú hljótt
aftur, nema hvað „tikkið" heyrð-
ist í klukkunni ó veggnum, og
endru mog eins heyrðist skrjáfa í
blaði.
Klukkan 2 eftir miðnætti kom
seinni Alsírmaðurinn út úr klef-
anum. „Stund hættunnar er lið-
in,“ sagði hann, „eg ætla að fara
heim.“
Lögreglumaðurrinn kinkaði
kolli. „En hvað um félaga þinn?“
spurði hann.
„Hann er þreyttur,“ sagði Al-
sírbúinn. „Leyfið honum að
sofa.“
Lögregluþjónninn gægöist inn.
Já, vissulega. Þarna lá fyrri Al-
sírmaðurinn, kyrr og rólegur
með teppi yfir sér, breitt upp
undir höku. Lögregluþjónninn
veifaði í kveðjuskyni til Alsír-
búans, sem út fór og settist svo
og tók að fást við sínar heim-
spekilegu hugleiðingar.
Það var ekki fyrr en 6 stund-
um síðar, þegar vaktin var loks
búin, að lögregluþjónninn tók
eftir nýtingnum, sem stóð á kafi
milli herðablaðanna á fyrri næt-
urgestinum.
(Time 9. des.).
sem kunnur var að staðfestu í
skoðunum.
Siegfried Schmutzler predikaði
hiklaust og skýrt. gegn sýndar-
helgiathöfninni, er æskufólk er
tileinkað ríkinu, en með þeirri
athöfn eru kommúnistar að
reyna að útrýma fermingunni. —
Hann predikaði líka gegn því, að
unnið væri á messutíma á sunnu-
dögum, og þá var honum varpað
í fangelsi, hann var ákærður fyr-
ir að „skaða 5 ára áætlunina“.
Svo liðu 8 mánuðir og ekkert
í'éttarhald var haldið yfir presti,
en þennan tíma hafa kommúnist-
ar auðsýnilega notað til þess að
reyna að brjóta viðnámsþrótt
hans, fá hann til þess að „játa“.
í síðustu viku var um 150
„verkamönnum" og „áheyrend-
um“ hleypt inn í dómhús í Leip-
zig, nú skyldi settur sýndarrétt-
ur yfir séra Siegfried Schmutzler.
Vestrænum fi'éttamönnum var
bannaður aðgangur, en það var
eftirtektarvert, að í frásögn
kommúnistablaðanna af réttar-
haldinu, þá vantaði alveg hinar
innfjálgu lýsingar á hinum
venjulegu „játningum“ sakborn-
ingsins oð bænir hans um misk-
unn. Séra Silegfried var dæmdur
í 5 ára þrælkunarvinnu.
Kirkjuhöfðingjar í Austur- og
Vestur-Þýzkalandi mótmæltu
dómnum, en þeir vissu raunar, að
þessi dómur þýddi það, að séra
Siegfried Schmutzler hefði unnið
sigur, hann væri ósigrandi.
Hedmut Thielicke, guðfræði-
prófessor í Hamborg, sagði í til-
efni dómsins:
„Eg veit vel ,hvað hann gerir
nú. Flann mun biðja fyrir óvin-
um sínum og verða uppspretta
lífsþróttar fyrir samfanga sína.. .
En munum við ekki hugleiða,
hvaða dóm austur-þýzka harð-
stjórnin hefur fellt yfir sjálfri sér
með því að fangelsa hann?“
í síðustu viku bað hinn hug-
prúði 77 ára gamli bisskup, Otti
Dibelius, fyrir séra Siegfried
Schmutzler við messu í hinni
frægu Maríukirkju í Austur-
Beidín. Hann sagði söfnuði sínum
að kirkjan hefði þegar unnið
sigur í stríðinu við kommúnista
um æskuna. „Unga fólkið okkar,“
sagði hann, „er sér meira með-
vitandi um trú sína en við vor-
um sem ungir menn. Það les
Biblíuna af kappi sér til styrktai’
í trúnni.“
(Time. 9. des.).
Friðrik varð sjötti
með 61/2 vimiing
Skákmótinu í Dallas í Texas er
lokið með sigri Gligoric frá
Júgóslavíu og Reshevsky frá
Bandaríkjunum. Hlutu þeir 8V2
vinning. í 3.—4. sæti voru þeir
Larsen og Szabo, Ungverjalandi,
með TVi vinning, þá Yanofsky,
Kanada, fimmti með 7 vinninga,
Friðrik sjötti með 6V2 vinning,
Najdorf, Argentínu, varð sjöundi
með 5% vinning og Evans, Banda
ríkjunum, áttundi með 5 vinn-
inga.