Dagur - 21.12.1957, Side 9

Dagur - 21.12.1957, Side 9
Laugardaginn 21. desember 1957 D A G U R 9 Eftir ár og dag eftir frönsku skáldkonuna FRANCOISE SAGAN. Bókaforlag Odds Björnssonar, Akureyri. Þessi saga hinnar frægu en kornungu skáldkonu var ofarlega á blaði í fréttum heimsblaðanna, þegar hún kom út í haust. Og til dæmis um áhuga manna fyrir bókinni seldust 200 þúsund ein- tök af henni upp á 8 dögum. Eftir ár og dag er þriðja bók höf. Hinar eru: Sumarást og Eins konar bros. Fyrri bæk- urnar færðu höfundinum heims- frægð og eru frábærlega vel gerðar skáldsögur. Þær komu báðar út hjá Bókaforlagi Odds Björnssonar á Akureyri og seld- ust óhemjumikið. Þýðingu allra bókanna gerði Guðni Guðmunds- son. Eftir ár og dag fjallar um sam- skipti nokkurra Parísarbúa, sem lifa og hrærast í heimi bók- mennta og lista. Og ekki gleymir hún ástinni. Oll er frásögnin gædd töfrum hinnar einstöku frásagnarlistar. — E. D. Leitarflugið ÁRMANN KR. EINARSSON. Bókaforlag Odds Björnssonar, Akureyri. Leitarflugið er fimmta bókin í 'þessum vinsæla bókaflokki um Arna flugmann, sem allir ungl- ingar hrífast af og hlotið hefur einróma lof gagni'ýnenda. í þessari bók segir frá eltinga- leik Árna við Gvend gullhatt og félaga hans. Verður hörð og æv- intýraleg rimma í helli einum og kemur sér þá vel að vera snar- ráður og sæmilega hugrakkur. Ennfremur fer hann í kindaleit á flugvél sinni. Bækur Ármanns hafa, auk vin- sælda sinna hér á landi, vakið eftirtekt utan landsteinanna, því að ein af þessum bókum er kom- in út í Noregi og líklegt að fleiri verði þýddar áður en langt um líður. Unglingar eru sólgnir í þessar bækur og þær eru hollur lestur og kærkomin jólagjöf. — E. D. MERKILEG BÓK UM ANDLEG MAL. Efnið og andinn eftir SÉRA SVEIN VÍKING. Bókaútgáfan Fróði, Reykjavík. Það er ekki margt af bókum um andleg mál í búðargluggum um þessi jól. Nútíma höfundar lýsa fremur ytri atburðum en andlegum sýnum. Þó eru hér undantekningar. — Bókaútgáfan Fróði hefur sent frá sér merkisrit um andleg mál. í fyrra kom út bókin Meðan þín náð eftir séra Sigurbjörn Einars- son, sem er kunnur predikari og rithöfundur. Og nú í ár er komin út bókina Efnið og andinn eftir séra Svein Víking, einn af snjöll- ustu kennimönnum þjóðarinnar. Eg opnaði þessa bók með nokk- urri eftirvæntingu og varð ekki fyrir vonbrigðum. Höfundur hennar lýsir þar lífsskoðunum sínum í snjöllu, meitluðu máli og er rökvís og heilbrigður í skoð- unum. Bókinni er skipt í 26 kafla og gefur hún svör við mörgu, sem allir hugsandi menn velta fyrir sér um mannlífið, upphaf þess, markmið og endalok. Hér eru nokkrar setningar úr forspjalli bókarinnar: „. . .. Lífsskoðun mannsins leit- ar jafnan og finnur fótfestu og stuðning í reynsluþekkingunni, en hún hlýtur þó að leita út fyr- ir hana að takmarki tilverunnar og frumorsök. Þar kemur trúin til greina, heimspekin, svo og al- menn sálarfræði. Vér getum stuðzt við raunvísindin, og þurf- um að gjöra það, er vér reynum að mynda oss samfellda lífsskoð- u,n en vér getum ekki byggt hana á þeim einum.... Enn er trúin sá bjartasti kyndill, sem lýsir oss út yfir hin miklu djúp, sem þekkingin enn hefur ekki náð að kanna.“ Þetta eru þau grundvallar- atriði, sem höfundurinn gengur út frá. Það væri freistandi að vitna víðar í þessa spaklegu bók. Eg læt þó nægja að taka hér upp lítinn kafla um bænina. „I bæninni leitum vér samfé- lags við Guð og opnum sálir vor- ar fyrir innstreymi æðri máttar. f bæninni berum vér fram óskir vorar og þrár, áhyggjur og sorg, í lotningu og auðmýkt, fyrir lífs- ins herra. Bænin hefur oftlega verið nefnd andardráttur trúarinnar. Svo mikið er talið gildi hennar og þýðing fyrir trúarlífið. Með iðkun bænarinnar kemst maður í dulrænt samband við æðri öfl og við Guð, og öðlast huggun og frið í sál.“ Þetta er enginn ritdómur. Það er lausleg umgetning, þar sem skýrt er frá, að bókin Efnið og andinn er falin einhvers staðar innan um allar þýddu skáldsög- urnar í bókabúðunum. Það er bók um kristna lífsskoðun eftir einn af snjöllustu kennimönnum þjóðarinnar. Eiríkur Sigurðsson. Bækur Æskunnar í 58 ár hefur barnablaðið Æsk- an ferðast um landið til að fræða og gleðja íslenzk börn. En jafn- framt hefur Æskan gefið út fjölda barnabóka. Og enn sendir hún frá sér sex barnabækur. Af- greiðslumaður Æskunnar, Jó- hann Ogm. Oddsson, annast út- gáfu af sinni alkunnu alúð og smekkvísi. Það, sem einkennir bækur Æskunnar, er góður frágangur og vandað efni. Eru þrjár bækurn- ar eftir íslenzka höfunda og eru það Geira glókollur eftir Mar- gréti Jónsdóttur, Steini í Ásdal eftir Jón Björnsson og Ennþá gcrast ævintýr eftir Óskar Aðal- stein. Þýddu bækurnar eru Dagur frækni og Sumargestir, báðar þýddar af Sigurði Gunn- arssyni, skólastjóra, en eftir þekkta, norska höfunda. Þá eru Kisubörnin kátu í þýðingu Guð- jóns Guðjónssonar handa yngstu lesendunum. Allt eru þetta vand- aðar bækur, bæði handa drengj- um og stúlkum. Margir drengir munu una um þessi jól við að lesa Steina í Ásdal eða Dag frækna. Og mörg stúlkan mun gleyma sér við að lesa Geiru gló- koll og Sumargesti. Og mér finnst eg heyra hlátur litlu barn- anna meðan þau eru að skoða myndirnar og stafa sig fram úr Kisubörnunum kátu og Ennþá gerast ævintýr. Bækur Æskunnar munu nú sem fyrr njóta vinsælda um land allt. Eiríkur Sigurðsson. Sleipnir eflir Einar E. Sœmundsen. Norðri gaf út. Sleipnir er saga um afburðahest og nokkra nienn. Bókin er sérstæð í íslenzkum bókmenntum, skrifuð af næmurn skilningi þess manns, sem sjálfur var mikill hestamaður. Jón l'.yjjorsson bjó bókina undir prentun og skrifar formála. Þar segir hann: „Þessi bók verður hvorki skiliti réttilega né metin án Jtess að gera sér Jtegar í upphafi ljóst, að reið- hestur er ekki skepna, heldur skyni gædd vera, sem hugsar á sína vísu, elskar, Jjjáist og liatar, umbunar, umber og liefnir. Sannur hestamað- ur veit Jtetta og skilur. Hann virð- ir hestinn sinn og Jtykir vænt urn hann sem vin og fclaga, en fer hvorki með hann seni vél eða vinnudýr." Þessi formálsorð eiga vel við sög- una um Sleipni. Sleipnir var fyrsti sonur móður sinnar, og Jregar hann fæddist, var hátíð í huga fátæka bóndans. Hér hafði hann eignazt reiðliestsefni, sem skyldi halda virð- ingu ltans á loít meðal sveitung- anna, og hér var loksins það hest- efni, sem verðugt var sönnum hcsta- manni. Og Sleipnir óx og dafnaði. Hann fékk ætíð nóg, þótt stundum væri þröngt í búi. Folaldið, tryppið og unghesturinn var stolt bóndans og gleði. Hann \ arð afburða fríður og Jiróttmikill. Svo kom að Jiví, að Guðmundur bóndi fór á bak Sleipni í fyrsta sinn — og í annað sinn, og vonirnar rættust. Brátt bar Jjessi ungi liestur langt af öllum hestum sveitarinnar að flýti, fegurð og viti. En J)á kom Bakkus til sögunnar og kaldrifjaðir embættismenn. Læknirinn og kaupmaðurinn komu í lieimsókn með gnægð vín- fanga. Morguninn eftir vaknaði bóndi illa til reika. Peningaseðlar lágu á borðinu, en Sleipnir var horlinn. Konau og þörnin grétu af sökuuði og blygðun. Hin andlegu sár bóndans greru ekki. En ])að er af Sleipni að segja, að hann J)ýddist ekki hinn nýja hús- bónda sinn og varð ofsafenginn í skapi, svo að ekkert réðist við hann, og heimþráin kvaldi hann. Hann gekk síðan kaupum og söl- um, átti oft illa daga og varð kald- lyndur og klækjóttur, svo að orð var á gert. En þá verða aftur þáttaskil í sögunni. Sleipnir kemst í eigu góðs drengs og hestamanns, Þorsteins þegjandi, sem í mörgu svipar til fyrsta eiganda söguhetjunnar, að ])ví fráskildu, að vínið freistaði hans ekki. Með honum og Sleipni tekst hin bezta vinátta, og Sleipnir verður á ný liiun mikli gæðingur, geðríkur, fjörhár, gangfimur, allra hesta mestur og tígulegastur, af- burða fljótur, eftirlátur og auð- sveipur húsbónda sínum, en einsk- is annars meðfæri. Lýsingin á sam- skiptum þeirra Sleipnis og Þor- steins er frábærlega vel siigð og sýnir, hvernig maður og liestur njóta samvista, svo að báðir vaxa af. Sleipnir, saga Einars Sæmundsen, er viðburðarík, sérstæð og spenn- andi. En hún er miklu meira. Hún minir íslendinga á, að ])eir eiga hundruð og þúsundir gæðingsefna, sem bíða umhyggju Þorsteins liins fámálga, svo að liæfileikar J)eirra komi í ljós. Fjöldi manna, bæði karlar og konur, getur veitt sér unaðsstundir á liestbaki og við uppeldi góðhesta og auðgað með því líf sitt. Sleipnir minnir á þetta, svo að ckki gleymist. E. D. Hjörtur Gislason: Vökurím Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar h.f., 1957. Þetta er fyrsta kvæðabók liöfund- arins, en áður hefur komið út eftir hann barnabók. Nær 50 kvæða er í bókinni, og fer fjarri því, að illa sé af stað farið, en dálítið eru J)au misjöfn að gæðum, en mörg góð. Venjulega er mjög skýr hugsun í kvæðum Hjartar, sjaldnast hálf- dulin meining, og kann sumum að ])ykja ])að galli. En höfundurinn er hreinn og beinn og blátt áfram, og dregur oftlega upp mjiig skýrar myndir í fáum orðum. Hann hefur venjulega fvrir augum ákveðið mark, sem hann miðar til og liæfir oft vel. Fyrsta kvæðið cr samnefnt bók- inni. Það er prýðisskýr frásögn af lífi og starfi fólksins á vetrarvöku í ísenzkum sveitabæ, eins og þetta vökulíf var íyrir og eftir síðustu aldamót. Man ég ekki eítir að hafa áður séð í bundnu máli eins góða og nákvæma skyndilýsingu af kvöid- vökulífinu og ])essa, sem höf. meitl- ar svo vel í nefndu kvæði. Hér er brugðið upp sannsögulli mynd af liinum mikla menningarfrömuði ís- lenzkrar alþýðu — kvöldvökunni. Ef menn líta svo á, að þjóðinni sé hollt og skylt að vera á verði um það, að ekki slitni að fullu tengslin við fortíðina, þá má meðal annars ekki gleymast sá þáttur, sem kvöld- vakan hefur átt í fræða- og menn- ingarviðleitni íslenzkrar alþýðu á liðnum öldunt. Og við lestur á kvæðinu „Vökurím" kemur manni í liug að það ætti að setja það og önnur áþekk kvæði um forna þjóð- hætti, ef til eru, í námsbækur skóla- .barna, og láta þau læra utanað. Við 'nám þess konar• kvgsða með viðeig- andi skýringum, niundu bömin eigi síður fá glögga og minnisstæða líísmynd frá fortíðinni en við skoð- un minja- og byggðasafna, sem nú er mjög í tízku og góðra gjalda verð. En hvað sem þessu líður nú, er áminnzt kvæði gott og hefur í rauii- inni menningarsögulegt gildi. „Róður" er líka ágæt lýsing af afa höfundarins og samvinnu þeirra lrænda á fiskimiðum. Þar er í fáum orðunt miklu efni saman þjappað, enda er það víðast hvar einkenn- andi fyrir höfundinn, hve gagnorð- ur hann er. í „Söngva-Borgu" er skýrt frá reimleikum, sem íerðafé- lagar tveir, maður og hestur, verða varir við. Viðbrögðum hestsins er vel lýst í þessari vísu: „Stirðnar Roði, stöðvast reiðin, starir fákur, linusar átt, hlustum nemur söngvaseiðinn, sýpur hregg og frísar hátt. Augun skima, eyrun kvika, ákaft jaxlar bryðja mél. Beizlisfroða beggja vika bræðir frerans köldu skel.“ En þótt lýsing ytri fyrirbæra virð- ist hin sterka hlið skáldsins, dvelur það ekki altalf við það viðfangs- efni. Meðal kvæða þess eru allmörg kenndarljóð og önnur ýmislegs efn- is. „Lilja" er fallegt og innilegt þakkarljóð og af svipuðum toga spunnið er „Hulda", „Minuing" o. 11. „Munaðarleysingi" er vel gert kvæði en ekki laust við napurleika. Svipað er að segja um „Júdas"; endahnúturinn á því kvæði er nokk- uð kuldalegur en smellinn og kem- ur alveg óvænt; svo er og um „Heit- rof": Þar er skemmtilega leikið á lesandaiin, þangað til síðasta orðið kemur, eins og skollinn úr sauðar- leggnum. „Stökur" nefnast sextán lausavísur um ýmis efni. Ekki kveð- ur mikið að sumum þeirra, en inn- an um eru góðar stökur. Ekki skal öðru trúað, en mörgum Eyíirðingi þyki vænt um vísurnar „Við Eyjafjörð", þessa hlýju og fal- legu lolgerð um sveitina þeirra: „Fagurvaxinn gróður glampar, glitrar dögg á blómahvarmi, tíbrá móti himni hampar Hrísey litlu á bláum armi. Hvílir jörð i blómabaði, blundai drótt í koti og höllum allt frá Kaldbaks konungs-Iilaði að Kristnesi og Möðruvöllum. Eyjafjörður er og verður ævintýrið gulli skyggða, enda bezt af guði gerður gimsteinn allra landsins byggða." Jakob Kristinsson. Amerískar kirkju- auglýsingar Prestar og kennarar í Baag Herred á Fjóni héldu fund um daginn og ræddu m. a. um aug- lýsingar í kirkjum. Komu fram ýmsar skoðanir, en á eitt urðu þó allir sáttir — að haga slíkum auglýsingum ekki á ameríska vísu. Nymann Andersen yfirkennari kvaðst hafa séð mjög undarlegar kirkjuauglýsingar vestanhafs. Á undan messu í einni kirkjunni kvaðst hann hafa séð prestinn hlaupa með boxhanzka inn á eins konar hnefaleikapall, og hafi hann þar tekið að berjast við djöfulinn, gefið honum glóðar- augu og slegið hann niður í 2. lotu. Að þessu loknu hófst messan. (Politiken.) Frá Álasundi Stærsta blað Álasunds í Nor- egi, Sunnmörsposten ,varð 75 ára í vetur. í tilefni af því kom út hátíðablaðs, mjög vandað. — Til gamans má geta þess að upplag þessa hátíðabl. vigtaði 7V2 tonn. Miðað við að rakið væri niður af pappírsrúllunum, sem fóru í þetta eina blað, myndi pappírinn, sem er 76 sm. breiður, ná 180000 metra vegalengd, eða til dæmis frá Akureyri og austur í Möðru- dal. í blaði þessu er viðtal við Helga Valtýsson rithöfund á Akureyri. En hann var um aldamótin starfsmaður blaðsins og gat sér mjög gott orð. Álasund er vinabær Akureyr- ar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.