Dagur - 12.11.1958, Blaðsíða 7

Dagur - 12.11.1958, Blaðsíða 7
D A G U R I 7 Miðvikudaginn 12. nóv. 1958 HITAVEITA AKUREYRAR (Framhald af 5. síðu.) hún látið reka jarðboranir út um allar jarðir og hlaupið síðan frá óloknu verki, með allmiklum kostnaði í hvert sinn. En því, sem hér ætti að vera aðalatriði máls, og skýrt er allrækilega frá í fyrr- nefndri grein 8. og 12. sept. 1956, og' bæði fyrr og síðar, hefur lítið verið sinnt og vanrækt hörmu- lega! Og þannig virðist einnig hafa verið á málum haldið á um- ræddum fundi húseigendafé- lagsins, þar sem þetta atriði hefði einmitt átt að vera aðalumræðu- cfni! Verður nú vikið nánar að því, — enn á ný. III. Heitu lindirnar í Glerárgili eru það fyrsta og eina, sem rannsaka verður til þrautar, áður en bæj- arstjórn tekur á ný að skeiðríða út um allar jarðir, jafnvel í aðrar sveitir, eftir „nægilega heitu vatni handa Akureyri", án nokk- urs tillits til fjárhagslegrai' getu bæjarins, eins og t. d. við hita- leiðslu vestan af Þelamörk, handan yfir Moldhaugaháls, sem a. m. k. myndi verða eins dýr og hin fjárfreka hitaveita Reykja- víkur! — Og auðvitað yrði Ak- ureyri að bíða eftii' henni um áratugi! Glerórlindirnar eru algerlega órannsakaðar enn! Á marg- nefndum fundi var drepið á hina gömlu, hálfkveðnu vísu og órök- studdu, sem áður fyrr í ræðu og riti, og auk þess ekki fyllilega rétt skýrt frá staðreyndum. — f Sundlaugarveituna var tekið 53° heitt vatn ofanjaröar, án allrar borunar. Með lítils háttar spreng ingu og greftri hafði hitinn þegai' aukizt úr 49° upp í 53°. — Þetta er rennandi vatn milli laga neð- arlega í brekkuslakkanum. Langt um ofar, upp undir Laugarhól, er gamla laugin, sem hóllinn dregur nafn a£. Og þar er aðalhitans sennilega að leita, því að óefað er samband á mjlíi efra og neðra hitasvæðisins. Og þar átti auð- vitað að bora fyrst, —• og verður að bora, — áður en lengra er haldið enn á ný! Haustið 1940 var að vísu „borað“ þarna efra á einna ólíklegasta stað í gilinu, og árangurslaust. Fannst ekki einu sinni vatn — í hvorugi'i holunni. — Já, þær voru tvær! „Rúmlega 80 m. og 30 m.“ (en ekki 66 og 26 m., eins og segir í fundarfrétt- inni!) í opinberri skýrslu segir: Borað var „mestmegnis gegnum molaberg, sand eða leir. Af þess- um ástæðum voru veggir hol- unnar ótraustir, svo að stöðugt hrundi niður í holuna (báðar eins). Tafði þetta mjög borunina, og varð að lokum að hætta við hana.“,— Hér var því alls ekki um neina rannsókn að ræða. Henni er ólokið enn í Glerárgili! Þetta er annars „grátbrosleg" saga: Þar eð borun þessi reyndist árangurslaus sökum þess, að borað var á röngum stað, svo að eigi fannst jafnvel það, sem fyrir var (heita vatnið í Laugarveit- unni), var hætt í miðju kafi og hlaupið í aðra sveit! — Síðan hefur bæjarstjórn í bréfaskiptum við Jarðborunarráð ríkisins í okt. og nóv. 1957 gefið í skyn, að „lít- ils árangurs muni vera að vænta í Glerárgili," og húseigendafund- urinn endurtekur sömu, órök- studdu ummælin athugasemda- laust! — „Og þá er Laugaland á Þelamöi'k líklegasti staður- inn. . . .“, segir fundurinn. — Já, barnabörnin sjá um það! — Og fundurinn skorar á bæjarstjórn- ina. .. .! etc. Upp undir Laugarliól í Glerár- gili er 60 m. borhola, sem enginn kannast við, og í henni er 4” pípa full af 36° heitu heitu vatni með dálitlum þrýstingi, svo að spýtist upp úr henni. Þarna undir, eða ofar, er sennilega að leita heita vatnsins, sem kemur fram milli laga í Laugaveitunni langtum neðar, og enn dýpra upptökum jarðhitans á þessu hitasvæði. — Fullnaðarrannsókn í Glerárgili myndi aldrei hafa kostað nema lítið brot af fé því, sem varpað hefur verið á glæ með pólitískum borunum út um hvippinn og hvappinn! Helgi Valtýsson hefur átt bréfa- skipti við forstjóra Jarðhita- deildar ríkisins og sent honum m. a. „Annál Sundlaugarveit- unnar“ og skýrt honum allræki- lega frá gtaðháttum og athugun- um sínum í Glerárgili. — Þar verður því vonandi fyrst stungið við fæti, er þær framkvæmdir hefjast á vegum Akureyrarbæj- ar, sem lokið hefði átt að vera fyrir áratugum tveim, hefði vel verið á málum haldið! Og svo að lokum innan sviga: (Bregðist Glerárgilið, eiga Akur- eyringar í allmörg horn að líta, þar sem fjarlægð „nægilega heits vatns“ virðist ekki skipta máli. Þá er t. d. hitinn nægur austur í Reykjahverfi, upp á Hveravöll- um, og enn víðar. — „Also sprach Zarathustra“. — Helgi Valtýsson hefur talað.) GOLFTREYJUR Allt með gamla verðinu. Sími 1261. Rýniingarsala iiefst í dag á alls konar PRJÓNAFATNAÐI Mikið úrval af DÖMUGOLFTREYJUM, BARNAFATNAÐI, o. fl. o. fl: Komið og gerið góð kaup. VERZLUNIN ÐRÍFA Tékkneskur kristall Brauðíöt Blómsturvasar Öskubakkar Kokteilglös Sherri-glös Úra- og skartgripaverzlun Franch Michelsen Kaupvangsstræti 3. Um helgina: Uilarkjólar og hvífar hlússur VERZLUN B. LAXDAL Ný sending af hollenzkum °g hottum VERZLUN B. LAXDAL LEIKFÖT á 1—8 ára. STAKKUR og BUXUR Tvær teg. Verð ÍTá kr. 73.00. Klæðaverzlun Sig. Guðmundssonar h.f. STORESEFNI breidd 120 cm. Verð kr. 83.70. Barnanáttföt, allar stærðir, verð frá kr. 35.80 - 92.30. Barnaskyrtur frá kr. 8.85. Bréf-nylon, kr. 54.60 Nylonsloppar, kr. 395 Nylon-barnakjólar væntanlegir á morgun. ANNA & FREYJA. •Zi Huld, 595811127 — IV—V — 2. I. O. O. F. Rb. 2 — 1081112814. I. O. O. F. — 14011148V2 — Kirkjan. Messað í Akureyrar- kirkju kl. 2 e. h. næstk. sunnud. Sálmar nr.: 416 — 348 — 346 — 669 — 680. — P. S. Sunnudagaskóli Akureyrar- kirkju er á sunnudaginn kemur. kl. 10.30 f. h. — 5 og 6 ára börn í kapellunni og 7■—13 ára börn í kirkjunni. Bekkjarstjórar mæti kl. 10 árdegis. GuSspekistúlkan Systkinaband- ið. Fundui' verður haldinn þriðju daginn 18. nóv. kl. 8.30 e. h. á venjulegum stað. — Erindi. Kristniboðshúsið Zíon. Sunnu- daginn 16. nóv.: Almenn sam- koma kl. 8.30 e. h. Gunnar Sigur- jónsson, cand, theol., talar. Allir velkomnir. — Sunnudagaskóli kl. 11 f. h. Akureyringar! Minnist þess að ágóði af sýningu helgileiksins í Akureyrarkirkju rennur til org- elsjóðs kirkjunnar. PENINGAVESKI tapaðist í miðbænum þriðjudaginn 4. okt. sl. Finnandi vinsamlegast hringi í sima 1103. FRÍMERKI íslenzk og erlend. F rínierkjabækur Iniistimgiibækur Verðlistar Kaupi gömul íslenzk fri- merki, hrítt verð. Bókabúð Jónasar Jóhannssonar AKUREYRI SAMKOMU heldur Slysavarnadeildin „Svala“ sunnudaginn 16. nóvember 1958 í samkomu'húsi Sval- barðsstrandar. Hefst kl. 9 e. h. 1. Erindi: Sr. Sigurður Hauk- ur Guðjónsson. 2. Bögglauppboð. 3. Dans. Hljómsveit spilar. Veitingar á staðnum. NEENDIN. SPILAKLÚBBUR Skógræktarfélags Tjarnar- gerðis og Biist'jórafélaganna í bænum. EÉLAGSVIST í Alþýðuhús- inu sunnudaginn 16. nóv. kl. 8.30 e. h. Mætið stundvíslega. Skemmtinefndin. Hjónaefni. Nýlega opinberuðu trúlofun sína ungfrú Aðalheiður Aðalsteinsdóttir frá Baldurs- heimi, Arnarneshi'., og Jóhannes Emilsson frá Syðra-Hóli, Glæsi- bæjarhreppi. 65 ára. Sigui'ðui' Haraldsson, Hafnarstræti 80, Akureyri, varð 65 ára 26. okt. sl. Skyggnilýsingar hefur frá Lára Agústsdóítir, miðill, í Alþýðu- húsinu n.k. sunnudag kl. 4 e. h. Gamlir myndarammar úr kop- ar fundust á öskuhaugunum. Sá, sem veit einhver deili á þessum hlutum, gefi sig fram á afgr. blaðsins. Dánardægur. — Soffía Stefáns- dóttir, hjúkrunarkona Barna- skólans, lézt sl. laugardag. Hún var hin ágætasta kona. I grein um samkomuhald í síð- asta blaði er m. a. minnst á árekstur sýslumanns og dyra- varðar að Freyvangi. Hefur blaðið fregnað, að rangt sé með farið. Staðfesti settur sýslumaður þetta í viðtali. Þar sem telja má að honum sé kunnugast það, sem fram við hann hefur komið og hann telur frásögnina ýkjur, að því er þetta atriði greinarinnar snertir, ber að telja hans frásögn sannari, en þær heimildii', sem blaðið byggði frásögn sína á, Skógræktarfélag Tjarnargerðis heldur afmælisfund að Stefni fimmtudaginn 13. nóv. kl. 8.30 e. h. Skemmtiatriði: — Félagskon- ur! Mætið vel og takið með ykk- ur kaffi, brauð á staðnum. — Stjórnin. Stúkan Ísafold-Fjallkonan nr. 1 heldur fund fimmtudaginn 13. þ. m. kl. 8.30 e. h. í Landsbanka- salnum. Fundarefni: Vígsla ný- liða. — Erindi. — Upplestur. — Spurningaþáttur. — Félagsvist. Kvenfélagið Framtíðin heldur fund föstudaginn 14. nóv. kl. 8.30 e. h. í Túngötu 2. Félagsvist. — Verðlaun. — Hafið með ykkur kaffi. Áríðandi að félagskonur mæti. -— Stjórnin. Frá Sjálfsbjörg, Akureyri. — Fjáröflunardagur Sjálfsbjargar var 26. okt. sl., þá söfnuðust fyrir merkjasölu, kaffisölu, kvik- myndasýningai' og dansleik, um það bil kr 23 þúsund, og var það svo langt fram yfir þær vonir sem félagið hafði gert sér. — En þetta ber fyrst og fremst að þakka öllum þeim, sem veittu fé- laginu ómetanlega aðstoð þennan dag. Sjálfsbjörg þakkar þessar góðu undirtektii', sem eru mjög uppörvandi fyrir hið nýstofnaða félag. — Sjálfsbjörg þakkar öll- um þeim, sem á einn eða annan hátt veittu félaginu aðstoð með gjöfum eða vinnu, og biður öllum blessunar. — Stjórn Sjálfsbjarg- ar, Akureyri. - Mjólkursamlag KEA (Framhald af 8. síðu.) er leyfilegt að blanda bætiefnum í skyrið, og þess vegna hefur Mjólkursamlagið, í samráði við héraðslæknirinn hér á Akureyri, byrjað nú fyrir skömmu á að blanda allt skyr, sem Mjólkur- samlagið framleiðir og selur með D3 bætiefni í alkoholiskri upp- lausn. Mun hvert kg. af skyri innihalda fyrst um sinn 4.000 D- bætiefniseiningar. Þetta er gert neytendum að kostnaðarlausu. — Væntum við þess, að allir neyt- endur, sem hlut eiga að máli, fagni þessari nýbreytni, og að sú ráðstöfun megi verða sem flest- um til heilla.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.