Dagur - 15.04.1959, Page 1
Fylgizt með því sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
------<c-------------------
DAGUR
kemur næst út Iaugar-
dagimi 18. apríl.
XLII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 15. apríl 1959
19. tbl.
Ósvífin árás á sjálfstæði Iiéraðanna
Stefnt að auknu flokksvalcíi
t gær flutti „Sólfaxi“ 11 flugfreyjur hingað norður og var það snotur hópur. Þessar ungu stúlkur
eru á flugfreyjunámskciði hjá Flugfélaginu um þessar mundir og var ferðm hingað til Akureyrar lið-
ur í hinni verklegu kennslu. Myndin er tekin á flugvellinum. Yfirflugfreyja Flugfélags íslands, Hólm-
fríður Gunnlaugsdóttir, er lengst til hægri. — (Ljósmynd: E. D.).
Kúsmæðrafundir á Ák. og í Eyjaf
Ungfrú Olga Ágústsdóttir, sem
nýlega er rá:ðin hjá SÍS,
fræðsludeild, mun koma hingað
um næstu helgi og hafa 6 hús-
mæðrafundi á félagssvæði KEA.
Fyrsti fundurinn verður í Sól-
garði á mánudaginn og sá næsti
Dómur fallinn í Tungu-
fossmálinu
Tungufosmálið svonefnda hef-
ur nú endanlega verið dæmt og
voru 25 menn sóttir til saka fvrir
smygl eða þátttöku í því, en einn
hinna 25 var sýknaður.
Sakadómur Reykjavíkur taldi
sektir hæfilegar frá 2 þús. til 180
þús. krónur, eftir þátttöku hvers
um sig. Samtals nema sektirnar
rúmlega 1.4 millj. og renna þær
til Menningarsjóðs, en hagnaður
af smyglinu var gerður upptækur
og rennur í ríkissjóð. En hann
nam tæplega 190 þús.
Kaupendur spíritusins voru
einkum leigubílstjórar.
Spurningu svarað
„fslendingur“ dylgjar um „vís-
vitandi fréttafölsun" í sambandi
við frásögn Dags af tveimur
fundarsamþykktum Þingeyinga.
Onnur fundarsamþykktin var
birt hér í síðasta tölublaði. Sem
svar við aðdróttun „íslendings“
er hér í dag birt hin samþykktin.
Þess er óskað að ritstj. „ísl.“ geri
annað tveggja: Segi það skýrt og
afdráttarlaust að Dagur falsi
fréttir þessar og taki afleiðingun-
um af því, eða taki dylgjur sínar
aftur.
að Freyvangi á þriðjudag, en síð-
an verða 4 fundir að Hótel KEA.
Með Olgu verður ungfrú Ingi-
björg Þórarinsdóttir húsmæðra-
kennari á Laugalandi. — Hér í
bænum munu útibú KEA annast
úthlutun aðgöngumiða fyrir þá
fundi sem hér verða. — Á þessum
fundum verður sýnikennsla í
matreiðslu, ungfrú Olga flytur
erindi um næringarefnafræði
með skýringarmyndum óg kvik-
mynd verður sýnd.
Að síðústu veröur bragðað á
réttum og kaffisopi drukkinn.
Útigöngukind í
Skíðadal
Rétt fyrir páskana fannst
hrútlamb í fjallinu ofan við bæ-
inn Þverá í Skíðadal. Þegar átti
að handsama það og færa til bæj-
ar, hljóp það norður á svonefnda
Hamra, en varð þó náð. Eigandi
er Sveinn Vigfússon bóndi að
Þverá. Hrússi var hinn brattasti
og voru á honum mikil horna-
hlaup. Telur eigandi líklegast,
að hann hafi fennt í hreti í haust,
en komist úr snjjónum þegar
hlánaði skömmu síðar. Mun það
óvenjulegt ef ekki einsdæmi, að
lömb gangi af á þessum slóðum.
Stefán Árnason bóndi í Stóra-
Dunhaga andaðist í Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri 8. þ. m.
aðeins 58 ára að aldri. Hann var
sæmdarbóndi.
M. A. lokað vegna
inflúenzu
Menntaskólanum á Akureyri
var lokað á mánudaginn vegna
inflúenzu. Veiki þessi barst hing-
að fyrst í MA, og var svo komið
að meira en helmingur nemenda
í efri bekkjunum hafði veikzt er
skólanum var lokað.
f Gagnfræðaskólanum eru einn-
ig töluverð brögð að veikinni, en
lítil í Barnaskólunum.
Á laugardaginn var höfðu Al-
þýðuílokkurinn og Sjálfstæðis-
flokkurinn loksins samið við Al-
þýðubandalagið um þá gerbylt-
ingu, að afnema öll gömlu kjör-
dæmin utan Reykjavíkur, en
steypa þeim saman í 7 stór kjör-
dæmi með hlutfallskosningu og
auka þingmannatölu Reykjavík-
ur, sem yrði þá 8. kjördæmið, um
4. Alþingismenn verða sam-
kvæmt þessu 60 talsins, 49 kiör-
dæmakosnir og 11 uppbótarþing-
menn.
Fyrstu umræðu um þetta mál
var útvarpað frá Alþingi í gær-
kveldi.
Meginmál frumvarpsins fer hér
á eftir:
„31. gr. stjórnarskrárinnar orð-
ist svo:
Á Alþingi eiga sæti 60 þjóð-
kjörnir þingmenn, kosnir leyni-
legum kosninum, þar af:
a. 25 þingmenn kosnir hlut-
bundinni kosningu í 5 manna
kjördæmum:
Vesturlandskjördæmi: Borgar-
fjarðarsýsla, Akraneskaupstaður,
Mýrasýsla, Snæfells- og Hnappa-
dalssýsla og Dalasýsla.
Vestfjarðakjördæmi: Barða-
strandarsýsla, Vestur-ísafjarðar-
sýsla, ísafjarðarkaupstaður, Norð
ur-ísafjarðarsýsla, Strandasýsla.
Norðurlandskjördæmi vestra:
Vestur-Húnavatnssýsla, Austur-
Húnavatnssýsla, Skagafjarðar-
sýsla, Sauðárkrókskaupstaður og
Siglufjarðarkaupstaður.
Austurlandskjördæmi: Norður-
Múlasýsla, Seyðisfjarðarkaup-
staður, Suður-Múlasýsla, Nes-r
kaupstaður og Austur-Skafta-
fellssýsla.
Reykjaneskjördæmi: Gull-
bringu- og Kjósarsýsla, Hafnar-
fjarðarkaupstaður, Keflavíkur-
kaupstaður og Kópavogskaup-
staður.
b. 12 þingmenn kosnir hlut-
bundinni kosningu í 2 sex manna
kjördæmum:
N orður Iandsk jördæmi eystra:
Eyjafjarðarsýsla, Akureyrarkaup
staður, Olafsfjarðarkaupstaður,
Suður-Þingeyjarsýsla, Húsavík-
urkaupstaður og Norður-Þing-
eyjarsýsla.
Suðurlandskjördæmi: Vestur-
Skaftafellssýsla, Vestmannaeyja-
kaupstaður, Rangárvallasýsla og
Árnessýsla.
c. 12 þingmenn kosnir hlut-
bundinni kosningu í Reykjavík.
d. 11 landskjörnir þingmenn til
jöfnunar milli þingflokka, svo að
hver þeirra hafi þingsæti í sem
fyllstu samræmi við atkvæðatölu.
Selfangari fórst
Á mánudaginn bárust hingað
þær fréttir, að norski selfang-
arinn Selfisk hefði brotnað í
ísnum norður í hafi, en að
mannbjörg hafi þó orðið. —
Norskt eftirlitsskip náði mönn-
unum um borð og ætlaði að
sigla hingað til Akureyrar, og
var þess vænzt að það kæmi
árdegis í gær. Svo varð þó
ekki, því að ísinn tafði. Skip-
brotsmennirnir voru 16 talsins.
Nánari fréttir af slysinu var
ekki unnt að fá í gær.
Veiðist í net, en ekki á
línu eða færi
Undanfarna daga hafa bátar
fengið mjög sæmilegan afla í net
hér skammt út á firðinum. Hins
vegar hefur ekkert veiðzt á línu
eða færi. Ein trillan fékk 2 þús.
pd. á mánudaginn. — Bátur frá
Sauðárkróki fékk 16 tonn í net út
með Skaga nú nýlega.
TOGSKIPIN
Snæfell landaði 50—60 tonnum
í Hrísey í gær.
Súían landaði um 55 tonnum á
Akurevri
Álykfun almenns kjósendafundar
í S.-Þing, um kjördæmamálið
Laugardaginn 28. marz 1959 var haldinn almennur stjórnmála-
fundur að Laugaskóla í Rcykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu. Var þar
íjölmenni sanían komið.
Fundarboðandi var Karl Kristjánsson alþingismaður. Fundarstjóri
Páll H. Jónsson, kennari, Laugum. Fundarritarar: Atli Baldvinsson,
framkvæmdastj., Hveravöllum, og Pétur Jónsson, bóndi, Reynihlíð.
Eftir að fram höfðu farið umræður, sem margir tóku þátt í, kom
fram og var samþykkt svofelld tillaga,
„Almennur stjórnmálafundur, haldinn að Laugum í Suður-Þing-
eyjarsýslu, lýsir yfir því, að hann telur tilræði við héruð landsins
tillögur þær til kjördæmabreytinga, sem boðaðar hafa verið af nú-
verandi ríkisstjórn og stuðningsflokki hennar, á þá Ieið: að Ieggja
niður öll núverandi kjördæmi utan Reykjavíkur og taka upp í
þeirra stað 7 stór kjördæmi með hlutfallskosningum.
Skorar fundurinn á Alþingi að fella þær tillögur ef fram verða
Iagðar.
Telur fundurinn að endurbætur á kjördæmaskipuninni beri að
gera, vegna mikillar fólksfjölgunar, sem orðið hefur á sunium stöð-
um, og að þær sé hægt að gera þannig, að allir megi vel við una.
Einnig lítur fundurinn svo á, að ljúka beri cndurskoðun stjórnar-
skrárinnar allrar í heild, svo sem Alþingi gerði ráðstafanir til þegar
lýðveldið var stofnað 1944, en ekki taka kjördæniaskipunina fyrir
til afgreiðslu sérstaklega.“
Tillaga þcssi var samþykkt nálega eini-óma.