Dagur - 02.09.1959, Blaðsíða 4

Dagur - 02.09.1959, Blaðsíða 4
4 D A G U K Miðvikudaginn 2. september 1950 Daguk Strifstofa i Haíiiarstrati !tll — Sími t ItiG RITSTJÓKI: F.RL! N G l! R 1) A V ! D S S () N Yutdýsingavtjmi: J «N S Y \| l' ELSSO N Yrgan"nrinn koslai kr. 7.r».00 ISlaftiA ktnnir út á miiYvikuiliigum og laugantiigum, [rrgar efni stanila til Cjalililagi t‘T I. júli PKtNTVEUK OOOS HJOKNSSONAR H.F. „Stefoa óbyggðaima“ ! í UMRÆÐUM um nýafstaðna stjórnarskrár- ! breytingu, kom ýmislegt fram, sem skýrir stefnur stjórnarflokkanna. Þríflokkarnir allir( Alþýðufl., Alþýðubandal. og Sjálfstæðisfl.) hafa aðalfylgi sitt í höfuðborginni og biðla fyrst og fremst til liöfuðborgarbúanna. En jafnframt ætlast þeir til, að fólkið úti um land, í sveit og við sjó, veiti sér einnig fylgi. En í bónorði til þess fólks vilja þeir ekki burfa að leggja eins mikla alúð og umhyggju. Málefni þess fólks eiga að mestu að sitja á hak- anum, en atkvæðin vilja þeir fá. Kjördæmabreylingin er tilraun þríflokkanna til að skapa sér skilyrði til þess að ná í umboð lands- byggðarinnar á „ódýran hátt“. Þingmenn ein- menningskjördæmanna og tvímenningskjördæm- anna líka, þótt þeir síðarnefndu væru stunduin hvor á móti öðrum, þóttu of kröfuharðir fyrir liönd sinna héraða. Þeir, sem sóttu fasíast að koma á kjördæmg- breytingunni, töluðu stundum, í hita baráttunnar, opinskár um þetta, heldur en til var ætlast. Það sauð upp úr pottinum hjá þeim og sást hvað átti að brugga. Þeir töluðu ýmist um, að „óarðgæf fjárfesting11 eða „pólitísk fjárfesting“ ætti sér stað úti um land, í kaupstöðum, þorpum og sveitum, og : áttu þar við hafnargerðir, fiskyerkunarstöðvar, bátakaup, brýr, vegi, byggingar yfir fólk og fé, ræktun, vélakaup, rafyæðingu o. s. frv. — Þetta töldu þeir því að kenna, að áhrif héraðanna væru of sterk — aðstaða þeirra í þjóðfélaginu of góð, samkvæml kjördæmaskipun þeirri er gilti. ! Við afgreiðslu fjárlaganna á síðastliðnum vetri kom í ljós, hvað í hugunum býr, þó að minna yrði úr skerðingum þá og hlutdrægni, en verða mun, að afstöðnum næstu kosningum, ef þessum flokk- 1 um tekst að halda fylgi sínu og samstöðu sín á ! milli undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Morgur.blaðið birti um daginn ræðu, sem Gunnar Thoroddsen borgarstjóri flutti á Alþingi við umræður kjördæmamálsins í sumar. Þar segir Gunnar hispurslaust, að Framsóknarmenn, sem voru að berjast fyrir rétti og sjálfstæði byggð- anna, ættu að kalla stefnu sína í málinu: „stefnu í óbyggðanna“. í þessum orðum borgarstjórans í Reykjavík kemur svo glöggt fram, sem verða má, fyrirlitn- ingin á Iandinu utan Reykjavíkur. Þessi maður, sem hefur tamið sér sléttmæli og er jafnan blíð- málgastur allra, þegar hann mætir á samkomum úti um Iand til ræðuhalda fyrir flokk sinn, kemur því upp um sig þama, að hann sér ekki byggð ut- 1 an horgar sinnar. ! Landið er í augum hans óbyggilegt annars staðar. Þeir menn, sem vilja að byggð þrífist j líka annars staðar og vinna að því, þjóna stefnu „óbyggðanna", að hans dómi.Óvinsam j iegri orð og kuldalegri hafa ekki verið sögð í garð landsbyggðarinnar og fólksins þar af stjórnmálaleiðtoga. Þegar blaðamaður Sjálfstæðisflokksins talaði forðuin um, að bændurnir kæmu til Reykjavíkur i ineð mosann í skegginu, hlaut hann langvarandi uppnefni (Mosaskeggur) hjá almenningi að laun- um og flokkur hans fylgistap. Þau ummæli voru þó meinlaus hjá því, að nefna öll héruð landsins [ „ÓBYGGÐIK“. Sú lítilsvirðing á landinu og um leið á fólkinu, sem eyðir ævi sinni í „óbyggðunum“, er fólsku- leg og skammsýn. Og hún er afar háskaleg, ef hún fær í hendur vald til þess að gera sig gildandi í framkvæmdum stjórnarstarfs- ins. Gunnar Thoroddsen er einn af þremur höfuðleiðtogum Sjálf- stæðisflokksins. Sumir telja, að hann muni innan skamms taka við forystu flokksins. „Stefna óbyggðanna“ eru því orð, sem mæjt voru fyrir munn Sjálfsíæð- isflokksins. Þau eru þess vegna liættu- merki — þótt ekki hafi Gunn- ar ætlast til þess — þýðingar- rnikið hættumerki fyrir fólk til leiðbeiningar fram hjá tjaldbúðum Sjálfstæðisflokks- ins og félaga hans við kosn- ingarnar, sem fram eiga að fara í haust. Það verður gaman í haust. f HAUST verður gaman að lifa. Þá verða margir með fulla vasa fjár og miklu af því fé verður eytt á stuttum tíma, ef ráða má af líkum og reynslu undangeng- inna ára. Síldarsjómennirnir okkar,. margir hverjir, hafa unnið sér inn stórar fjárfúlgur í sumar, 20 —50 þús., svo að ekki séu þó nefndar þær lygilegustu tekjur óbreytti-a sjómanna í tvo mánuði, sem þó eru sannar. Að sjálfsögðu hafa margir þurft að láta sér nægja lægri hlut, en heilt yfir hefur þessi síðasta síld- arvertíð fyrir Norðurlandi verið langtum bezt á 15 ára tímabili, og því eðlilegt að margir hlytu „stóra vinninginn“ í hinu ævin- týralega happdrætti sildveiðanna. Allir munu eflaust fagna góð- um afla og góðum hlut sjómanna og þeim nauðsynlegu gjaldeyris- tekjum, sem síld og síldai-afurðir skapa að þessu sinni. En kunnugt er það einnig af langri reynslu, að oft verður hið skjótfengna fé laust í hendi. Sjó- mennirnir okkar, sem nú eru að koma heim, eru vissulega allvel fjáðir, margir hverjir. Við sam- gleðjumst þeim og fögnum heim- komu þeirra. Og það er líka beð- ið eftir peningunum þeirra. — Hvers konar þjónusta er föl fyrir kaupið þeirra og oft fylgja þau ummæli í viðskiptunum, að engir heilvita menn fari að leggja peninga í sparisjóð. Og því mið- ur hafa stjórnmálamennirnir okkar og sjálft Alþingi ekki get- að hamlað svo gegn vaxandi verðbólgu, að þessi orð hinna sölufúsu næðu ekki eyrum hinna nýríku sjómanna. Samt er það svo, að ekkert er eins heimsku- íbúð óskast 3ja til 4ra herbergja íbúð óskast sem fyrst. Uppl. i síma 2457. Strákahjól óskast, stærsta gerð. Uppl. í síma 1765. IVýleg saumavél til sölu Uppl. í síma 2088. S JÓNAUKAR 7x50. Ura og skartgripaverzlun FRANC MICHELSEN Kaupvangsstræti 3 . Sími 2205 legt og óhófseyðsla fjármuna, hvort sem þeirra hefur verið afl- að með skjótum hætti eða ekki. Eyðslusemi íslendinga er beinn þjóðarlöstur, og að skjóta sér á bak við landsfeðurna í því efni, er fávísleg afsökun. Ef einhverjir ætla, að hér eigi síldarsjómenn einir hlut að máli, þegar talað er um óhófseyðslu, fer því víðs fjarri. En því eru þeir gerðir að umtalsefni sérstaklega, að fáii- hafa aflað sér meiri pen- inga á stuttum tíma nú í sumar en þeir, og svo vill til, að hrein- skilið ungmenni, nýkomið af sjónum, sagði blaðinu þær fréttir, að hann, ásamt félaga sínum, hefði komið 20 þúsundum í lóg á 5 dögum og hafði því nokkra eft- jrþanka. í síðustu heimsstyrjöld.bárust okkur miklu meir’i fjármunir í hendur en nokkru sinni áður í sögunni, og þó án þess að til þess væri unnið í aúkinni framleiðslu þjóðarinnar. Sti-íðsárin ollu bylt- ingu í efnaHagskerfinu, margt var gert, sem til framfara horfði og þjóðin tók upp aðra lífshætti ekki ósvipaða þeim, sem atvikið hér að framan greinir frá, að öðru leyti en því, að þjóðin eyddi ekki aðeins 20 þúsunaunum, heldur öllu því, sem í veskinu var, og fékk svo ekki einu sinni eftirþanka. Svíar sáu verðbólguhættuna á stríðsárunum. Þar höfðu allir at- vinnu, miklu meiri en áður. Aukin peningavelta kallaði á aukinn innflutning, verðbólgu- hjólið fór að snúast. En þá tóku stjórnarvöldin til sinna ráða og stöðvuðu peningaflóðið. Sumt af kaupi fólksins var ekki greitt í peningum, heldur ávísunum, sem ekki tóku gildi fyrr en síðar, eft- ir ákveðnum reglum. Þetta var eins konar skyldusparnaður. Ef slíkur skyldusparnaður eða annar, sem verkar í sömu átt, hefði verið settur hér á landi, væri sennilega töluvert jafnvægi í efnahagskerfi okkar nú. Þá væri það viðurkenndur glæpur að eyða 20 þús. á 5 dögum. Alltaf eitthvað nýtt! Herraliattar Nýjasta tízka. Karlmannastakkar þunnir og léttir. ----o------ Telpukápur (Poplin) mjög ódýrar. Allar stærðir. STÁLBORÐBÚNAÐUR i fjölbreyttu úruali. Ullarfilt í telpupils. — Fást einnig sniðin, hringskorin. Úra og skartgripaverzlun FRANC MICHELSEN Kaupvangsstræti 3 . Sími 2205 KLÆÐAVERZLUN SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR H.F. Áherzla lögð á mikilvægi / j fréttafrelsis * Á sumarþingi Efnahags og félagsmálaráðsins, sem haldið var í Genf fyrir skömmu, var lögð rík áherzla á mikilvægi fréttafrelsis. Ráðið samþykkti ályktun, þar sem Dag Hammarskjöld, framkvæmda stjóri Sameinuðu þjóðanna, var hvattur til að senda meðlimum samtakanna uppkast að yfirlýsingu um fréttafrelsi og biðja þá að skila umsögnum um uppkastið fyrir næstu áramót. í uppkastinu er lögð sérstök áherzla á fimm atriði, sem varða ábyrgð ríkisstjórna á þvi „að vernda og efla frjálsa fréttaþjónustu eftir öllum þeim leiðum, sem fyrir hendi eru“ og skyldu fréttastofnana til að sýna heiðarleik og ábyrgðar- tilfinningu í fréttaflutningi, að svo mikiu leyti sem .öryggi fósturjarðarinnar og réttindi einstaklinga og þjóðarheildar leyfa og krefjast. Ráðið gerði fjölmargar ályktanir, m. a. um eftirlit með eiturlyfjasölu, tækinhjálp, mannréttindi og félagslega þróu.n. Á síðastnefnda sviðinu var t. d. mælt með ráðstöfunum til að auka byggingu á ódýru húsnæði og aðgerðum til að draga úr vændi. í nokkrum ályktunum var lögð áherzla á þörfina fyrir raunhæfa hjálp Sameinuðu þjóðanna við ríkisstjórnir til að auka og stuðla að félagslegri þróun. Að því er varðar tæknihjálp Sameinuðu þjóð- anna var látin í ljós von um, að hægt verði að koma fjárhagslegu jafnvægi á þennan mikilsverða þátt í starfsemi Sameinuðu þjóðanna og færa út kvíarnar. Ráðið lýsti yfir stuðningi sínum við þá sérstöku mynd tæknihjálpar, sem komið var á fyr- ir rúmu ári og gengur undir nafninu Opex. Þessi hjálp er í því fólgin, að S. Þ. bjóða hinum Y»anþró- uðu aðildarríkjum sérfræðinga í ríkisrekstri og op- inberri þjónustu til langs ýíma í senn. Þessir sér- fræðingar taka að sér mikilvæg störf í opinberri þjónustu, umræddra-ríkja, en vinna jafnframt að því að þjálfa opinbera starfsmenn í þessum ríkj- um, þannig að þeir geti smám saman sjálfir tekið að sér hin mikilvægu störf, sem sérfræðingarnir inna af hendi. Á vettvangi mannréttinda var mikilvægasta mál ráðstefnunnar samþykkt á drögum að yfirlýsingu um réttindi barna, og verður sú yfirlýsing nú lögð fyrir Allsherjarþingið. Ennfremur var skorað á rík- isstjórnir og hlutaðeigandi yfirvöld að staðfesta samþykkt Alþjóðasamvinnuustofnunarinnar (ILO) um bann við manngreinaráliti vegna hörundslitar, trúarbragða eða annarra hluta, þegar ráða skal menn í vinnu. Krabbalækningar ræddar á fundi í Vínarborg 20 sérfræðingar frá 12 löndum komu saman í Vínarborg dagana 3.—5. ágúst til að ræða síðustu framfarir á sviði geislalækninga. Frá Norðurlönd- um tók þátt í fundinum prófessor S. Hultberg frá Karolinska Insitutet í Stokkhólmi. Að fundinum stóðu tvær sérstofnanir Sameinuðu þjóðanna, Al- þjóðakjarnorkustofnunin (IAFA) og Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin (WHO). Umræðurnar á fundinum snerust einkum um svokallaðar firðlækningar (teletei;api) og súper- voltageislun. Firðlækningar eru í því fólgnar, að sendir eru geislar gegnum bólgur eða æxli frá all- miklu magni af geislavirku efni. Hin svonefnda kóboltsprengja er mest notuð í þessu skyni. Súpervolt táknar magn sem fær yfir milljón volt af elektrónum. Súpervoltageislunin er mikið notuð við krabbalækningar. Eitt af vandamálunum í sambandi við þessar lækningaaðferðir er að safna saman, samhæfa og dreifa þeim upplýsingum, sem þegar liggja fyrir um þær í mörgum ritum á sundurleitum tungum. Sérfræðingunum hefur m. a. verið falið að koma með tillögur um alþjóðlegt átak á þessum vettvangi. NÝTT FRÍMERKI. Hinn 23. október næstk. — daginn fyrir dag Sam- einuðu þjóðanna — verður gefið út þriðja minning- arfrímerki S. Þ. á þessu ári. Þetta nýja frímerki verður helgað Gæzluverndarráðinu og er teiknað af Mexíkómanninum Leon Helguera.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.