Dagur - 21.10.1959, Blaðsíða 5

Dagur - 21.10.1959, Blaðsíða 5
4 D A G U B Miðvikudaginn 21. október 1959 Miðvikudaginn 21. október 1959 D A G U B 5 hlýjan og bjartan. Flest minnti á gamla daga, meðan litast var um að Laugum irust skólanum góð eldri nemendum. — Mennfasetur Þingeyinga að Laugum í Reykjadal Hálft annað hundrað nemendur í héraðsskóla og húimæðraskóla nema verkleg og bókleg fræði Fyrir 100 árum áttu íslendingar aðeins einn viðurkenndan skóla, Latínuskólann í Reykjavík. En eftir nokkurt sjálfstæði 1874 risu upp skólar á ýmsum stöðum og skipta nú hundruð-' um. Fjórði liver íslendingur situr nú á skólabekk hálft árið. svo að vel ætti að vera séð fyrir menntun landsmanna yfirleitt. Þingeyingar byggðu tvö menntasetur að Laugum í Eeykjadal. Kéraðsskólann að Laugum íyrir 35 árum og Hús- mæðraskólann að Laugum fyrir 30 árum. Skólar þessir voru þeir fyrstu, sem reistir voru á jarð- hitasvæði og hafði staðið um þá styrr mikill á Alþingi. Jónas Jónsson frá Hriflu beitti áhrifum sínum á Alþingi fyrir aukinni alþýðufræðslu og hagnýtingu jarðhitans og sýslungar hans heima fyrir undirbjuggu málið að sínum hluta og voru ódeigir. til framkvæmda, konur ekki síð- ur en karlar, svo sem húsmæðra skólinn vitnar. Hugmyndin um héraðsskóla í sveitum fékk ekki hljómgrunn hjá ihaldinu ogmálið varð hið mesta hitamál. And- stæðingar héraðsskólanna höfðu í heitingum við liinar nýju stofn- anir og kváðu þar hvern stein stolinn. Nú eru þessi deiiumál úr sögunni fyrir löngu, en æskan í landinu nýtur þeirrar aðstöðu, sem framsýnir menn veittu henni fyrir þriðjungi aldar. í þessum eða líkum hugleið- ingum var eg á austurleið þegar Reykjadalur opnaðist og gamal- kunnar og kærar stöðvar frá yngri árum blöstu við á kyrrum haustdegi. Og að þessu sinni skyldi haldið að Laugum til að líta á staðinn, fólkið, sem nú er þar, og til þess að anda að sér ilmi frá liðnum dögum. Enginn nemandi úr kaupstað Sigurður Kristjánsson skóla- stjóri setti héraðsskólann með ræðu 14. október, að aflokinni guðsþjónustu sóknarprestsins, eéra Sigurðar Guðmundssonar. Nemendur eru 117 talsins, en umsóknir voru á þriðja hundrað. í skólánum eru .nokkru fleiri piltar en stúlkur, eða- 68 og 49 stúlkur. Athyglisvert-er, að af þessum nemendahóp eru 90 ung- menni úr Þingeyjarsýslum. Telja má til undantekninga, ef ungir Þingeyingar fari ekki til náms að Laugum. Þá er þess að geta, að í þetta sinn er enginn nemandi úr kaupstað. Skólaár það, er nú er háfið, er híð 35. í sögu Héraðs- skólans að Laugum. ll Kennarar í hópi nemenda sinna að Laugum. Starfslið skólans Sigurður Kristjánsson skóla- stjóri, sem er guðfræðingur að menntun og ættaður úr Svarfað- ardal, er ókvæntur maður, hefur áunnið sér vináttu og virðingu í og þar er kallað, er Stefanía Jón- asdóttir. Ný bygging Sigurður Kristjánsson skólastjóri. einkar farsælu skólastarfi og ber hag nemenda mjög fyrir brjósti. Hann hefur haft á hendi skóla- stjórn 9 síðustu árin. Þórhallur Björnssón smíða- kennari frá Ljósavatni, er eízti kennari skólans, hefúr starfað þar frá upphafi, en mun nú brátt láta af því starfi fyrir aldurs sakir, en hann er riú 69 áfá. Undir stjórn hans varð smíða- deild Laugaskóla :þekkt úm land allt að ágætum. Þai- á rætur hinn einfaldi__-og ysmekklegiy: stíll húsgagna, sem hver maður hlýtur að taka eftír í Þingéyjár- sýslum. Páll H. Jónsson kennir söng o. fl., Óskar Ágústsson er íþrótta- kennari, Anna Stefánsdóttir handavinnukennari, en aðrir fastir kennarar eru: Ingvi Tryggvason, bóndi, Kárhóli, Guðmundur Gunnarsson, Laug- um, Lilja Kristjánsdóttir er stundakennari í vetur. Skólaráðsmaður er Helgi Sig- urgeirsson frá Stafni, en ráðs- konur Guðrún Jósepsdóttir og Sigurveig Ásvaldsdóttir. Um- sjónarkona, eða húsmóðir, eins Nú er verið a3 byggja borð- stofu og eldhús norðan við skól- ann, jafnlangt vestur og aðal- skólahúsið nær. í það verður innangengt úr forstofu skólans. íbúð verður á efri kæð bygging- arinnar. Muri bygging þessi bæta mjög ,úr því hörmungarástandi, sem verið hefur í skólanum vegna þrengsla. Þá hefur vegur verið lagður meðfram ánni vestan skólans, til að létta á umferðinni við skól- . ann og er það einnig nauðsynleg breyting og mjög til bóta fyrir ' skólasetrið. Góðar f sumar ar gjafir frá ■ » » ~ , .Jp '***&£-*'' *■! Iléraðsskólinn, elzta hús staðarins. Smíðakennslan fer fram í Dvergasteini. brotið. Um byggingarnar má að sjálfsögðu deila eins og önnur mannanna vei’k. En víst er það, að skólinn hefur verið mörgum, vonandi öllum, mikils virði. Jarð hitinn,sem notaður var til að hita húsis öll og yfirbyggð sundlaug ní rrin drnlrinn Hraustlegar konur g;leðjast við nám og starf. Anna Stefánsdóttir kennslukona og nokkrir nemendur. Tíu ára gagnfræðingar gáfu mál- verk af séra Hermanni Hjartar- syni fyrrv. skólastjóra og 5 nem- endur, sem prófi luku frá skól- anum fyrir 30 árum, gáfu borð- fána og bjöllu. íþróttavöllur skólans hefur verið stækkaður og lagfærður. Það verk framkvæmdi Héraðs- samband S.-Þingeyinga. Völlur- inn er skjólsæll og fagrar brekk- ur, vaxnar lyngi og ungum skóg- viði, hið ákjósanlegasta áhorf- endasvæði, sem hugsast getur. Bjartur og hlýr skóli Reykjadalur er mjög hlýleg og gróðurmikil sveit. Umhverfi skólans er vinalegt, en ekki stór- hinn kyrra haustdag. Nemendur eru yngri nú en áður, en þrosk- aðri eftir aldri og frjálsmann- legri. Nokkrir piltar voru að íþrótta- æfingum á túninu austan við skólann, áðrir voru í sundlaug- inni, unnið var að hreingerningu og hið veika kyn bar þess nokk- ur merki að dansað yrði um kvöldið. Ærsl voru engin, en kátína nokkur. Skólastjórinn gerði mér þann greiða, að kalla saman þá nem- endur og kennara, er til náðist þá í svipinn til þess að eg gæti tekið nokkrar meðfylgjandi m'yndir. Og eftir að hafa þegið kaffi í skrifstofu hans, fengið ýmsar þær upplýsingar um skólann, sem hér hefur verið frá greint og rætt við hinn glögga og skarp- leita skólamann og nokkra sam- kennara hans um stund, var er- indi mínu og ánægjulegri heim- sókn lokið. Með grein og myndum hér á opnunni fylgja árnaðaróskir til skólanna að Laug- um og þakkir fyrir ágætar móttökur. Ritstj. Húsmæðraskólinn að Laugum. Húsmæðraskólinn aí Laugum þrjáfíu ára Þann 18. nóvember í haust er Húsmæðraskólinn að Laugum í Reykjadal 30 ára og verður þess afmælis eflaust minnzt á viðeigandi hátt. Enginn kemur að Laugum, án þess að taka sérstaklega eftir þessum kunna húsmæðraskóla, og víst hafa margir átt stór erindi í huga, er þeir komu þar. Af skólanum fór snemma mikið orð fyrir margra hluta sakir, sem allar voru á einn veg og honum til lofs. Tvær gáfaðar og stjórnsamar forstöðukonur hafa mótað þenn- an þingeyska skóla, þær Krist- jana Pétursdóttir og Halldóra Sigurjónsdótíir núverandi for- stöðukona. En þingeyskar konur eiga heiðurhm af því, að hafa með samtakamætti og miklum dugnaði verið hinn skapandi kraftur skólans í upphafi. Húsmæðraskólinn er glæsileg- ur árangur af sameiginlegu átaki þingeyskra kvenna með aðstoð stórhuga og vinveittra stjórn- málaforingja. Gamalt og riýtt í góðri sátt að Laugum Allir kannast við hinn gamla og burstabyggða húsmæðraskóla, ef ekki af eigin sjón, þá af myndum. Sá skóli reyndist allt- of lítill og var stækkaður á árun- um 1947—1948. Ekki var burst- um bætt við í hina nýju við- byggingu, en það er eins og nýtt og gamalt hafi getað komið sér saman á þessum stað á viðunandi hátt. Á bak við skólann er vöxtulegur skógur, þar sem áður var grjótholt. En um svipað leyti og lauf falla á haustin, fyllist skólinn ungum konum og verðandi hús- mæðrum. Ferðinni var einnig heitið á þennan stað. Sólin var hálf yfir brún Fljótsheiðar og skipti skini og skuggum í Reykjadal og enn var húsmæðra skólinn sólarmegin, eins og hann hefur raunar alltaf verið. Skólasetning og starfslið Húsmæðraskólinn að Laugum var settur 22. september í haust og er því nær fuilskipaður, en hann mun taka 34—36 nemend- Forstöðukona er, eins og áður er sagt, Halldóra Sigurjónsdóttir, og hefur haft það starf á hendi frá 1946. Auk hennar kenna við skólann: Kristín Jakobsdóttir, Jónína Bjarnadóttir og Auður Gunnlaugsdóttir. Frú Halldóra Sigurjónsdóttir skólastýra. En auk þess njóta námsmeyj- ar skólans að einhverfju leyti að- stöðu við sundlaug héraðsskól- ans, svo og þeirra félagslegu hlunninda, sem margmenni stað- arins og gott nábýli geta veitt. Húsmæðrafræðslan Húsmæðramenntun að Laug- um hefur ætíð þótt hin ágætasta og svo er enn. Enda eru þar öll skilyrði góð, svo sem séð verður í stuttri heimsókn. Húsakynni eru alveg óvenjulega vistleg og hafa ekki þann verksmiðjustíl, sem sums staðar verður ekki komist hjá að veita eftirtekt í nýrri skólum. Matreiðsla, margs konar saumaskapur og hússtjórn eru aðalnámsgreinarnar, auk nokk- urra bóklegra fræða. Mikil áhrif Enginn stofnun hefur haft eins sýnileg og áberandi áhrif á hin myndarlegu híbýli Þingeyinga og Húsmæðraskólinn að Laugum. Önnur áhrif skólagöngunnar mæti ætla, að væru sízt minni, þótt slíkt verði ekki metið á annan hátt en þann, sem við blasir á heimilu mnámsmeyjanna víða um land. Ekki hef eg kunnugleika á nið- urröðun námsefna á þessum stað, en kennsla mun yfirleitt hafa verið samræmd svo í húsmæðra- skólum landsins, að mjög svipar saman. Hins vegar hefur skólinn tekið upp þá nýbreytni, að taka á móti húsmæðrum til stuttrar dvalar á skólatímanum, til kynn- ingar og skemmtunar. Þetta er mjög vinsælt. Forgöngu um þetta hafði Kvenfélagasamband S.-Þing. Fyrirmyndar heimili Halldóra Sigurjónsdóttir for- stöðukona sýndi mér skólann, sem allur er hinn myndarlegasti, hvar sem litið er. Það er að vísu ekkert frétt- næmt að sjá vel byggðan og vandaðan skóla á þessum tímum. Húsakynni gefa heldur ekki mikla hugmynd um það, hvort skóli er góður eða lélegur. Þar ræður allt annað úrslitum. Góður skóli þarf að vera eftir- mynd af góðu heimili, og leiðin- legur kennslutími ætti að varða við lög, sagði kunnur skólamað- ur einhverju sinni. í Húsmæðraskólanum að Laug um haldast í hendur bóklegt og verklegt nám, og þar þarf engum nemanda að leiðast. Skóli Halldóru á Laugum mun vera eitt mesta fyrirmyndar- heimili á Norðurlandi. Daguk SKrif.iUiúi i 11 alii.u.initt '»ll — Sínti 11<K» RITSTJÓHI: ERLIXGUR D A V í D S S O N' VtigUtúngattjúii: jón s \ \ír elsson Árgangurinn kosiai kr. 75.00 Kliifsift ktiiiui tit á ntlðtikudogum og laugaidiitjuiii, ]>cear t'ftit stamla jil OjaI(t<l:u;i cr I. júii PHENTVEHK OOOS HJÖUNSSONAR H.r. „Kiækin er kaupmannslund“ ! JÓNAS HALLGRÍMSSON, sem ýmsir 1 telja orðsarastan allra íslenzkra skálda, kvað þó þennan hræðilega dóm yfir erlendu og ' innlendu íhaldi: „Klækin er kaupmanns- i lund / kæta hana andvörp föðurleýsingj- ! anna.“ Klemens Jónsson segir í sögu Reykja- 1 víkur: „Tómthúsmenn voru í skuldum hjá j kaujrmönnum og þeim algerlega háðir, enda I skömmtuðu þeir bæði vinnutíma og dag- ' kaup. — — Alþýðan hafði aldrei peninga i Iianda milli. Öll fjármál hennar voru í hönd- ! um kaupmanna. Opinber gjökl urðu menn i að greiða með innskriftum í reikning sinn hjá kaupmanni. En svo voru menn skyldugir i að láta kaupmanninn hafa allan fisk sinn. i Kaupmaður skamtaði sjálfur verð á vörum i sínum og fiskinum.“ i Kaupmannavaldið var svo algert, að þrátt i fýrir fátækt almennings, gat það rakað saman ; miklum auði á viðskiptunum, með því bein- i línis að kiiga fólk og féfletta það. Samvinnufrömuðir í Þingeyjarsýslu brntu j fjötrana af verzluninni, síðar komu svo i verkalýðsfélögin, sem vörnuðu því að hægt 'i væri að kúga einn og einn, og sömdu við at- vinnurekendur fyrir heildina. Þessar félagsmálahreyfingar fólksins sjálfs breyttu ánauðugri alþýðu í frjálsborið fólk. t Kaupmannslundin er altaf sjálfri sér lík, I en samkeppni við samtök fólksins í sam- vínnufélögunum gerðu kaupmenn að siðaðri mönnum. íhaldsflokkurinn, sem síðar nefndi sig Sjálfstæðisílokk, hefur alla tíð verið og er ! enn, eins konar einkafyrirtæki kanpmanna I og auðmanna landsins með noklcur hundruð j milljónera að greiðslutryggingu fyrir áróð- j ursritum, gjafablöðum, launuðum frambjóð- ! endum og hagkvæmum bitlingum. Jónas Rafnar og Magnús Jónsson eru | launaðir vikapiltar hjá hinum einu og j sönnu arftökum mannana, sem hið orðvara ! skáld kvað um og áður er vikið að. ! Þessir menn „skiptu um svip eftir sveit- j um“, og viðurkenna til dæmis störf sam- j vinnufélaga hér, vegna þess að þeir reyna á j hverjum stað að tala eins og fólkið vill heyra. 1 En jafnframt predika }>eir um dýrð einstakl- 1 ingsframtaksins og hins almenna frelsis borg- i aranna — um sæluríki á jörð, ef kaupmanna- j og auðhyggjuflokkur landsins nær völdum. ; Þeir menn, sem hafa skuggajega foníð, ! vilja ekki á hana minnast. Þeir, sem hafa ill ! áform í huga, bregða gjarnan á léttara hjal. ! Sjálfstæðisflokkurinn og' útsendarar hans I reyna að tala sem fegurst við fólkið, en j blanda orð sín sögufölsun og rógi. Til dæmis ! em öll vinsæl mál og þarfar íramkvæmdir, 1 sem gerðar liafa verið, verk Sjálfstæðismanna ! í munni þjóna þeirra, hvað sem ræður manna og atkvæðagreiðslur á Alþingi sýna. j Sem dæmi um róginn er „stórsvindlið“ hjá Olíufélaginu, sem frambjóðendur o. fl, i íhaldsmenn gaspra oft um. Ef um svindl er j að ræða þar og einhverjum einstökum stjórn j málaflokki að kenna, er þess að geta að íhald- ið á 3 af 5 í stjóm félagsins.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.