Dagur - 25.11.1959, Síða 1

Dagur - 25.11.1959, Síða 1
XLII. árg. Akureyri, miðvikudaginn 25. nóvember 1959 65. tbl. Félagsheimilin eru góður ávöxfur félagsmenningar í sveifum landsins Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi flutti ágætt erindi um félagsheimili og rekstur þeirra á fjölmennum Bændaklúbbsfundi á Akureyri Jón Ingimarsson, Jón Kristinsson og Björg Baldvinsdóttir í sjónlciknum Á elleftu stundu. — Sjá grein á blaSsíðu 4. — (Ljósmynd: Edvard Sigurgeirsson.) Sfjórnarflokkarnir jáfa á sig fáheyrð ósannindi Viðurkenna 250 milljón króna vöntun í ríkissjóð r og Utflutningssjóð, þvert ofan í endurteknar yfirlýsingar fyrir kosningar . Á mánudagskvöldið hélt Bændaklúbburinn eyfirzki fund að Hótel KEA og sóttu hann 70 manns, flestir úr sveitunum við Eyjafjörð. Ármann Dalmannsson var fundarstjóri, en Þorsteinn Einarsson flutti mjög fróðlega ræðu um félagsheimilin. Hann rakti í upphafi lögin um félags- heimilasjóð frá 1947, tekjuöflun sjóðsins og aðstoð þá, er sjóður- inn veitir við stofnun félagsheim ilanna. En félagsheimilin munu vera á annað hundrað í landinu. En bygging þeirra hefur verið svo aðkallandi og ör, að félags- heimilasjóður er orðinn langt á eftir með greiðslur sínar til þeirra. Um sukk og svall. íþróttafulltrúinn hrakti þær staðhæfingár, að félagsheimilin væru of fín og of dýr. Taldi hann engum íburði til að dreifa fram yfir nauðsyn og engin ástæða til þess að sveitafólkið gerði sér lakari húsakynni að góðu en þéttbýlisfólkið. Hann gerði líka þær ófögru sögusagnir af skemmtanalífi fé- lagsheimilanna að umtalsefni og taldi freklega ýkt. Reynslan væri sú, að þar sem lögreglueftirlit væri mikið og traust, þrifist ósóminn ekki. En hverskyns undanlátssemi í sjálfsögðum um- gengnis- og hegðunaratriðum væri hin háskalegasta. Þá gat hann þess, að ekki á einni ein- ustu innanfélagssamkomu, sem hann hefði komið á, væri um ósóma að ræða af nokkru tagi. Félagsheimilin væru líka fyrst og fremst byggð til að þjóna hvers konar félags- og skemmtanaþörf sveitanna, þótt þau, af fjárhags- ástæðum, héldu oft danssamkom- ur. — Þeir, sem mest löstuðu skemmtanahald félagsheimilanna, gleymdu því sukki og svalli, sem iþví miður hefði verið til áður en nokkurt félagsheimili var til og hvarvetna stingi enn upp kollin- um. Góð reynsla. Þá sagði íþróttafulltrúinn frá reynslu félagsheimila á ýmsum st.öðum á landinu, sem fróðlegt var á að hlýða. Staðhættir yrðu að ráða því á hverjum stað, hvort 'fólkið sætti sig við, eða vildi, héraðsheimili fyrir fleiri hreppa eða félagsheimili í hverri sveit. Aðeins eitt félagsheimili hefði ekki staðið í skilum, en víðast væi’i fjárreiður sæmilegar og skýrslu- og reikningshald, t. d. hér í firðinum, með ágætum. Þá varaði Þorsteinn Einarsson við því að treysta um of á viðbygg-1 ingar gamalla og úreltra sam- komuhúsa taldi þær dýrari en almennt væri reiknað með og fullnægja þó sjaldan kröfum tím- ans. Hann taldi þá stefnu Eyfirð- inga rétta, að byggja þrjú félags- heimili framan Akureyrar. Listafólk á flakki. Þá gerði ræðumaður umferða- skemmtikrafta og hljómsveitir að umræðuefni. Taldi umferða- skemmtikraftana stundum valda vandræðum í sveitum og að hljómlistin þyrfti í framtíðinni að vera í höndum sveitafólksins sjálfs. Að síðustu talaði ræðu- maður um félagslíf almennt og þá breytingu í uppeldismálum þjóðarinnar, sem nú er orðin. Margir ræðumenn. Til máls tóku: Ingólfur Guð- mundsson, Sverrir Guðmunds- son, Hjörtur Eldjárn, Jónas Hall- dórsson, Angantýr Hjálmarsson, Guðmundur Benediktsson, Jósep Jóhannesson, Valtýr Kristjáns- son, Jón Bjarnason, Ólafur Jóns- son og Jónas Kristjánsson, og frummælandi svaraði mörgum fyrirspurnum. Fundi í Sameinuðu þingi var fram haldið á mánudaginn og fóru fram kosningar. — Forseti Sameinaðs þings var kjörinn Friðjón Skarphéðinsson með 33 atkv., Karl Kristjánsson fékk 17 og Hannibal Valdimarsson 10. Fyrri varaforseti var kjörinn Sigurður Ágústsson með 33 atkv. Gísli Guðmundsson fékk 17 og Gunnar Jóhannsson 10. Annar varaforseti var kjörinn Birgir Finnsson með 33 atkv., Skúli Guðmundsson fékk 17, en auðir seðlar voru 10. Ritarar í Sameinuðu þingi voru kjörnir Skúli Guðmundsson og Matthías Á. Matthiesen. í kjör bréfanefnd voru kjörnir Einar Ingimundarson, Alfreð Gíslason, bæjarfógeti, Eggert Þorsteins- son, Ólafur Jóhannesson, Alfreð Gíslason, læknir. Þá var kjörið til Efri deildar og eiga þar sæti eftirtaldir 20 þing- menn: Hermann Jónasson, Karl Kristjánsson, Sigurvin Einarsson, Hólamenn heiðra minn- ingu Jósefs Björnssonar Á morgun, hinn 26. nóvember, eru 100 ár liðin frá fæðingu Jós- efs J. Björnssonar, fyrsta skóla- stjóra og kennara við Bænda- skólann á Hólum. í tilefni af ald- ai'afmælinu hafa Hólasveinar ákveðið að heiðra minningu hans með því að reisa honum minnis- merki að Hólum. Gísli Kristjánsson ritstjóri og Gunnar Árnason skrifstofustjóri Búnaðarfélagsins taka á móti framlögum til minnismerkisins. Ásgeir Bjarnason, Ólafur Jó- hannesson, Páll Þorsteinsson, Al- freð Gíslason, læknir, Björn Jónsson, Finnbogi R. Valdimars- son, Friðjón Skarphéðinsson, Eggert Þorsteinsson, Jón Þor- steinsson, Auður Auðuns, Gunn- ar Thoroddsen, Bjartmar Guð- mundsson, Kjartan J. Jóhanns- son, Magnús Jónsson, Gunnar Gíslason og Guðlaugur Gíslason. Framhald á 2. siðu. íslendingar eiga nú mörg skip í smíðum ei'lendis, eða 72 að tölu, með 17.652 brúttórúmlestir. Meðal þeirra er nýja varðskipið Óðinn, skip Eimskipafélagsins, Vestmannaeyjaskipið Herjólfur og flutningaskipið Laxá, sem Hafskip h.f. á í smíðum í Þýzka- landi. Þá eru 5 togarar í smíðum: Fyrir Guðmund Jörundsson, Þegar Ólafur Thors, hinn nýi atkvæðislausi forsætisráðherra ílutti þingheimi og þjóðinni allri „stefnúyfirl.“ ríkisstjórnar sinnar, sátu ílokksm. hans um land allt við viðtæki sín og hlustuðu eftir hverju orði. En þeir fundu ekki foringja sinn og þekktu hann ekki, kokhreystin var horfin. En þeir fundu, eins og aílir aðrir, að „stefnuyfirlýsingin“ lýsti engri stefnu, heldur algeru lirræða- leysi. Þeir minntust þess ekki, að nokkur ný ríkisstjórn hefði látið svo lélega yfirlýsingu frá sér fara. Síðan er ekki hægt að nefna Ólaf Thors í áheyrn þeirra, án þess að þeir líti undan. En þegar hinn nýi forsætisráð- herra hafði stunið upp stefnuleysi stjórnar sinnar á Alþingi, gekk hann á Varðarfund og var þá „eins og örlítið meira heima hjá sér“. Þar tók hann að barma sér yfir ástandinu í cfnahagsmálun- um. Morgunblaðið scgir þetta m. a. úr ræðu Ólafs: , annar fyrir Bæjarútgerð Hafnar- fjarðar, ísbjörninn h.f., ísfell h.f. og Síldar- 'og fiskimjölsverksmiðj una Akranes. Ennfremur er ver- ið gera við gamlan, nýkeyptan togara úti, sem Hafnfirðingar eiga. Alls eru í smíðum 62 fiskiskip 250 smál. og minni. Á þessi skip þarf um 900 sjómenn. Fiskiskipin stækka og stálskipum fjölgar. „Næst rakti Ólafur Thors stefnuyfirlýsingu (!) stjórnarinn- ar og skýrði hana í einstökum atriðum. Kvaðst hann tclja lík- legt, áð þjóðin yrði að fórna ein- hverju í bili til að tryggja framtíð sína (þar hefur hann auðvitað átt við „Iciðina til bættra lífskjara“). Sagðist hann hj’ggja, að engin þau úrræði, sem til greina gætu komið, yrðu almenningi þung- bærari, en 250 millj. kr. nýjar álögur, sem þó væru óhjákvæmi- legar, ef ekki yrði Ieitað annarra úrræða.“ Margir minnast ummæla Emils Jónssonar, fyrrv. forsætisráð- herra, í útvarpinu rétt fyrir kosn ingarnar, eða Friðjóns Skarphéð- inssonar og fleiri, þar sem þeir fullyrtu, og Morgunblaðið sam- þykkti, að hagur Útflutningssjóðs hefði aldrci verið betri og hagur ríkissjóðs góður. Þeir, er trúðu þessu staðlausa skrumi, verða fyrir miklum vonbrigðum við of- anskráða yfirlýsingu frá formanni þcss stjórnmálaflokks, sem bjó Alþýðuflokksstjórnina til, sagði hcnni fyrir verkum og bar á Framhald á 2. siðu. Dýr skemmtun Fréttir herma, að dýrasta skemmtun, sem um getur, fari bráðlega fram í Lídó í Reykjavík. Hver aðgöngumiði kostar 1000 krónur, en er um leið happdrætt- ismiði. Vinningurinn er Volks- wagenbifreið. Ljónaklúbburinn heldur skemmtun þessa og ver ágóðanum til líknarstarfa. Kosningar í Sameinuðu þingi Mörg skip í smíðum erlendis

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.