Dagur - 30.03.1960, Qupperneq 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 30. marz 19G0
Ónóg vöruvöndun er þjóðarvoði
segir Þorleifur Ágústsson, yfirfiskimatsmaður
í viðtali því, sem hér fer á efiir:
Hvenær varst þú skipaður
yíirfiskimatsmaður?
Það var frá fyrsta janúar 1957,
dálítið kvíðafullur verð eg að
segja, sérstaklega vegna þess, að
umdæmið var það stórt, hafði
verið allmiklu við það bætt þá
um áramótin.
En árið 1958, þann 15. júlí, var
umdæminu skipt, og þá enn við
það aukið með tilliti til þess að
þá var skipaður annar yfirfiski-
matsmaður með búsetu á Siglu-
firði. Má því segja að Norður-
umdæmi nái yfir svæðið frá
Langanesi að Djúpuvík á Strönd-
um. Við þessa breytingu skapað-
ist mun b'etri aðstaða til að sinna
starfinu á hinum ýmsu sviðum.
— Svo þegar hraðfrystihúsið á
Akureyri tók til starfa skapaðist
hér áður óþekkt og yfirgrips-
mikil afvinnugrein, á eg þar við
hraðfrystingu meginhluta þess
afla sem á land barst hér af tog-
urunum. — En við þetta voru
óskir Akureyringa bundnar, og
tel eg þær hafa orðið að veru-
ieika á vissan hátt. En aftur á
móti lagðist saltfiskverkun að
mestu niður og ber að harma
það og skreiðarverkun varð
minni en áður.
Hvernig kanntu við starfið, og'
hvað viltu um vöruvöndunina
scgja?
Eins og eg sagði í upphafi, tók
eg við starfinu dálítið hugsandi,
en samt hef eg kunnað vel við
það að mestu leyti, árekstrar
hafa orðið tiltölulega fáir það
sem af er. — Um vöruvöndunina
vil eg segja þetta: Ónóg vöru-
vöndun er sá voði, sem þjóðar-
innar bíður, ef ekki verða nú
þegar gerðar, af hálfu hins opin-
bera, róttækar ráðstafanir til að
koma þessu á heilbrigðan grund-
völl. Sölumöguleikar á erlendum
mörkuðum ei u sums staðar næst-
um lokaðir og á öðrum stöðum
er hæftan yfirvofandi ef ekkiverð
ur úr bætt. Það er alltof áber-
andi lítið um það hugsað af hálfu
sjómanna, sem fiskinn veiða,
hversu verðmikill fiskurinn get-
úr orðið, ef rétt er með hann far-
ið á allan hátt. Sama á við í landi
hjá þeim, sem búa hann undir
sölu á erlendum mörkuðum. Það
má fullyrða, að þar er ástandið
ekki betra. Svo má minnast á
þriðja aðilann, sem oft eru eig-
endur fiskjarins, þegar hér er
komið. Um þá gildir hið sama:
Ástandið er miður en skyldi og
alltof fáar undantekningar. Eg er
hér ekki að tala um neina sér-
staka menn eða einstakar ver-
stöðvar.
Viltu segja eitthvað iun hrað-
frystinguna sérstklega?
Viðkomandi hiaðfrystingu get
eg sagtsem dæmi: Það sjónarmið
hefur skotið upp kollinum, að
ekki mundi saka þótt hráefni til
frystingar væri ekki sem bezt,
hraðfrystingin bætti úr því og
gerði það að fyrsta flokks vöru.
Þetta er hinn háskalegi liugsun-
arháttur, hraðfrystingin stöðvar
aðeins starfsemi rotnunargerla,
sem í fiskinn kunna að vera
komnir, en drepur þá ekki. Þess
vegna taka þeir til af fullum
krafti, þegar fiskurinn er þýdd-
ur upp til neyzlu. Þess vegna er
það höfuðnauðsyn, að hráefnið
sé heilnæmt og vel með farið,
þegar úr því er unnið.
Hvað viltu segja um fisk-
skemmdirnar á Jamaica?
Eg vil í því sambandi vitna til
greinar, sem fiskmatsstjóri skrif-
Þorleifur Ágústsson,
yfirfiskimatsmaður.
aði á sínum tíma og birtist í flest
um dagblöðum og vikublöðum
Reykjavíkur. Eg vil taka það
skýrt frain, að enn er ekki vitað,
hvað umræddur fiskur var gam-
all orðinn þegar kvörtun barst
um síðastl. áramót, þ. e. hve
marga mánuði eða jafnvel ár þeir
á Jamaica höfðu geymt hann, um
það getur enginn fslendingur
vitað.
Hvað leggur þú til málanna um
skemmda fiskinn fyrir sunnan?
Eins og kunnugt er af blaða-
skrifum í sambandi við fiskveið-
ar og fiskvinnslu er það mál
málanna, hvaða ráð séu tiltæk til
úrbóta. Hvað viðkemur liinu
mikla og oít óhæfa hráefni,
sem á land berst til vinnslu, tel
Fyrir þremur árum gekkst
Æskulýðsheimili templara á Ak-
ureyri fyrir starfsfræðsludegi á
Akureyri.
Nú hefur verið ákveðið að
Æskulýðsheimilið gangist fyrir
öðrum starfsfræðsludegi hér n.k.
sunnudag. Mun Ólafur Gunnars-
son sálfræðingur skipuleggja
daginn og stjórna þeirri fræðslu,
sem þar verður veitt. Er gert ráð
fyrir að veita ungu fólki ýmsar
upplýsingnr um atvinnugreinar,
svo sem iðnað, sjómennsku,
verzlun o. fl. Munu menn úr við-
komandi starfsgrein gefa upplýs-
eg fleira en eitt ráð geta til
greina komið:
1. Að komið verði á opinberu
mati á fiski upp úr skipi og hann
greiddur eftir því, sem hann
reynist að gæðum.
2. Ef þetta yrði gert þurfa
verkunarstöðvar í landi að
standa vel á verði í þessu efni og
fleira kemur til.
Þei(ta kynni tvímælalaust að
verða til bóta. En eg álít að það
sem mest og bezt bætti hér úr
væri aukinn skilningur og
ábirgðartilfinning þeirra, sem aö
þessum málum standa. Þetta er
það, sem vantar nú í dag. —
Það opinbera ætti að setja á
stofn verulega fræðslu hér að
lútandi, fiskiðnaðarskóla, bæði
fyrir fiskimenn og þá sem að
fiskframleiðslunni starfa í landi.
Þessari hugmynd hefur frekar
lítill gaumur verið gefinn, en nú
um nokkurt skeið hefur þessu
verið veitt verðskulduð athygli,
sem vera ber. Það munu flestir
viðurkenna nauðsynina, og eg er
það bjartsýnn á þessi mál, að sá
tími mun ekki langt undan, að
þeim sem við fiskiðnað vinna,
hvort heldur um er að ræða
hraðfrystingu, meðferð aflans,
bæði á sjó og landi, þurfi að hafa
lokið námi og tilskildum skóla.
Svo að lokum vil eg þakka
Degi fyrir að flytja þessi orð
min. Það á ekki að geta verið því
neitt til fyrirstöðu að blað utan
Reykjavíkur minnist oftar en
hefur verið á þessi mál, segir
yfirfiskimatsmaður að lokum, og
þakkar blaðið fyrir viðtalið.
HLJÓMLEIKAR
Á MORGUN
Hin heimskunna, rússneska
flúrsöngkona, Nadézda Kazant-
séva, ásamt undirleikaranum
Taisíja Merkúlova, koma hingað
til Aukreyrar á morgun og
halda hljómleika í Nýja-Bíó að
kvöldi sama dag's. í för með lista-
konunum er prófessor Gontsar-
ov, forseti íslandsvinafélagsins í
Moskvu, og rithöfundurinn Sjo-
múskhin. Gestirnir fara aftur til
Reykjavíkur á föstudag.
ingar, og getur unga fólkið valið
starfsgreinar eftir eigin vild til
að spyrja um.
Þá er í ráði að hafa einhverjar
kvikmyndasýningar í sambandi
við daginn. Enn er þó ekki full-
ráðið hverjar þær verða.
Starfsfræðsludag'urinn mun
eins og áður fara fram í Barna-
skóla Akureyrar, og er gert ráð
fyrir að hann standi frá kl. 2—4.
Unglingar utan Akureyrar, í
nágrenni bæjarins, geta notfært
sér fræðslu sem þarna fer fram,
því að allir eru velkomnir á
starfsfræðsludaginn.
Annar sfarfsfræðsludagur á Ak.
Æskulýðsheimili templara gengst fyrir hoiium
r
Ölafur Guimarsson sálfr. skipuleggur daginn
Fermingarhörn í Akureyrarkirkju 3. apríl
D r c n g r :
Bnldur Þorstcinsson. Glcrárgötu 3.
Einar Ilaraldsson, Víðimýri (>.
F.mil Ragnarsson, Ilrafnagilsstncti 28.
Frcyr Áskelsson, Þingvallastræti 34.
Friðrik Viðar Þórðarson, Eyrarvcgi 10.
Gtiðm. Krisljánsson, Brckkugötu 27 A.
Guðm. ó. Guðimindsson, yEgisg. 13.
Ciunnar Haraklsson, Reynivöllum 8.
C’-unnl. Á. Ingólfson, Hrafnagilsstr. 22.
Halldór V. Jóhannesson, Strandg. 2óB.
Hí'irður Björnsson. Byggðavcgi 122.
Jóscf K. Guðmundsson, Aðalstr. 13.
Kristján Árnason, Hrafnagilsstra-ti 4.
Kurt Sig. Niclsen. Halnarstra ti 105.
óli Bcrg Kristdórsson, Hafnarstr. 2.
Páll Andrcs l’álsson, Sniðgötu 1.
Rafn Árnason, Bvckkugötu 21.
Rcynir Guðbjörnsson, Gróðrarstöð.
Sigurður E. Davíðsson, Rcynivöllum 2.
Sigurður R. Jakobsson, Engimýri 4.
Stcinar Marínósson, Ægisgötu 22.
Svavar Iíaraldsson, Oddcyrargötu 19.
Sverrir Viðar Pálmason, Bjarmastíg 6.
Sa var Jónatansson. Norðurgötu 26.
Valgarður Stcfánsson, Hamarstíg 8.
S t ú 1 k u r :
Auður Eyþórsdóttir, Hclgam.str. 12.
Ásgcrður Ragnarsdóttir, Byggðavcg 89.
Ásta E. Pálsdóttir, Hafnarstr. 29.
Erla Elva Möllcr. Oddagötu 11.
Cicrður l*álsdóttir, Hclgamagrastr. 40.
Guðfinna I. Eydal. Þingvallastrati 32.
(hiðmunda E. Ingólfsdóttir. Grfg. 53.
BORGARBÍÓ
sýnir ennþá: Danny Kay og
hljómsveit. Þetta er aðeins fárra
mánaða gömul mynd og er tekin
í litum og Vista-vision. Er mynd-
in byggð á ævisögu hins fræga,
ameríska hljómsveitarstjóra Red
Nichols og hljómsveitarinnar
„The five pennies". Er fjöldinn
allur af lögum leikinn og sunginn
í myndinni, þeirra á meðal ,,The
five pennies“, „Lullaby úr Rag-
time“ og „Goodnight — Sleep
Tight“, svo að eitthvað sé nefnt.
Danny Kay leikur Red Nichols
og er bráðskemmtilegur að
vanda. Þá spillir það ekki, að
Louis Armstrong og hljómsveit
hans leikur í myndinni. — Mynd
þessi hefur alls staðar hlotið
mikla aðsókn.
HÚS OG ÍBÚÐIR
HEEI TIL SÖLU:
5 lierg. íbúö við AÖalstræti.
4rn herb. íbúðir við Odda-
götu, Oddeyravgötu og
Norðurgötu.
3jn herb. íbúðir við Fjólu-
götn, Pjjarmastíg og Helga-
magrastræti.
■2ja herb. ibúðir við Löngu-
■ mýri, Hafnarstræti og L.ækj-
argötu.
5 herb. einbilishús við Eiðs-
vallagötu og Byggðaveg.
3ja herb. einbýlishús við
Munkaþserárstræti.
4ra—5 herb. fokhelda ibúð
við Vanabyggð.
Býli í Ixejarlandinu.
Guðm. Skaftason, hdl.,
Hafnarstr. 101, 3. hæð,
simi 1052.
Inga Stcingiímsdóttir, Sniðgötu 1.
Ingibjöi'g Friðjónsdóttir, Hafnarst. 71.
Jóhanna M. Antonsdóttir, Ránarg. 25.
Jónína E. Þorstcinsdóttir, Hamarst. 27.
Margrct J. Valgcirsdóttir, Kaupvstr. 1.
Margrct Tryggvadóttir, Brckkug. 25.
María E. Ingvadóllir, Ránargötu 27.
Nanna K. Jósefsdóttir, Stcinliolti 12.
Oddný Friðriksdóttir, Norðurgötu 41.
Ragnhildur Skjaldar, Gamugötu 10.
Rcbckka Árnadóttir, Ránargötu 13.
Sigríður D. Friðfinnsdóttir. Stórh. 11. .
Sigurlína Þorstcinsdóttir. Byggðav. 92.
Þóra J. Kjartansdóttir, Ausiurhyggð 2..
Skömmtunarseðlarnír
falla úr gildi
Búizt er við að skömmtunar-
seðlar smjörs og smjörlíkis falli
úr gildi 1. apríl, þ. e. á morgun.
Þótt hér sé ekki um staðfesta
fregn að ræða, þykir rétt að
benda fóiki á að nota miða sína
í tíma.
Orðsending til bænda
frá Bún.samb. Eyjafj.
Áformað er að ráðunautar B.
I., Agnar Guðnason og Óli Valur
Hansson, ínæti á fiuidum í
næstu viku á eftirtöldum stöð-
uin: Dalvík, Sólgarði og Greni-
vík. Nánar tilkynnt síðar.
Ferðaáætlun Ferða-
félags Akureyrar 1960
14. apríl: Gengið á Súlur.
26. maí: Gengið á Torfufells-
hnjúk.
18. eða 19. júní: Grímsey.
25. júní til 26. júní: Þeistareyk-
ir. Ekið suður í Mývatnssveit.
8. júlí til 10. júlí: Hólmatung-
ur. Hljóðaklettar.
13. júlí til 17. júlí: Hveravellir
— Kerlingarfjöll — Hvítárvatn
— Gullfoss — Geysir — Þing-
vellir — Kaldidalur — Surts-
hellir.
21. júlí til 24. júlí: Hvanna-
lindii’.
30. júlí til 1. ágúst: Herðubreið-
arlindir.
6. ágúst til 7. ágúst: Vopna-
fjörður — Þistilfjörður — Axar-
fjörður.
13. ágúst til 14. ágúst: Lauga-
fell.
Formaður ferðanefndar er Álf-
heiður Jónsdóttir. Þátttakendur
eru vinsamlegast beðnir að láta
hana vita, ef þeir hyggjast taka
þátt í ferðum félagsins, í Skó-
verzlun M. H. Lyngdal, sími
2399. — Utanfélagsfólki er heim-
il þátttaka.
Stúlka óskast
GUFUPRESSAN,
Skipagötu 12.
Simi 1421.
'ícrtnín^rsUtijlí UfUM&K
aforcío^Lv Ccí*laAjolu.&
ofin frS %í z~ f fyrír fcrtr/d,
á fcmid.frd Ul /ofh, - ?$,d,
tfSur" ónt&U ríS
£»£ttdatn cftir p&nTutntm
U&í 111 An rn<X