Dagur - 30.03.1960, Side 5

Dagur - 30.03.1960, Side 5
4 Skrifslolii i I infií.íi >! i .* :i !><> — Sitni lltili Kn S l J<')Rl; E R L I N c; V R n A V í í> S S () X Aut'lysini'iist jt>ii: JÓN S A M r F. I..SSON ÁiT'ant'uriiiii ko.snit kr. 7.ri.<M> Hl.uSíi’l kcniiir til ;i iiii<Sviku(l«i>um <HJ l;utj';irtl(it!uni, |)cs-:ir cfni stamUi til (ijalililaiji <i 1. jiilí 1‘WENTVF.RK OI)I)S HJÓRNSSONAR Il.F. HLUTUR UNGA FÓLKSINS Á MEDAN vinstri stjórnin liét og var og barðist gegn verðhækkunum á breiðum grundvelli og með víðtæku samstarfi við fjöl- mennustu stéttir og starfshópa og með mikl- um árangri, var það slíkt fagnaðarefni íhalds- ins þegar einhver vara hækkaði í verði, að því var líkast, að þá hefði það liimin höndum tekið. Jafnvel liinar óverulegustu hækkanir á smávörum urðu að risafréttum á fremstu síðu Morgunblaðsins, sem Islendingur síðan endurprentaði með þjónustusamlegri undir- gefni — og fögnuði. — Hver verðhækkun, jafnvel verðhækkun á korktöppum, hafði svipuð áhrif á íhaldsblöðin og gróðrarskúr á sárþyrstan eyðimerkurgróður. Þá var íhaldið að eyðileggja verk vinstri stjórnarinnar. Því miður urðu verðhækkanir og kauphækkanir í tíð vinstri stjórnarinnar, það skal viður- kennt og jafnfranrt harmað. En hvernig horfa mál þessi nú í dag undir íhaldsstjórn? Ásgeir Bjamason bóndi og alþingismaður liefur meðal annars sagt þetta í umræðum um efnahagsmálin og hvernig ríkisstjórnin býr að ungu fólki, senr vill mynda heimili í sveit: „Hvemig lítur það t. d. út hjá ungum hjónum sem eru með 5 börn og ætla að stofna heimili í sveit. — Þau þurfa 10 naut- gripi á 50 þúsund kr. Með þeim góðu kjör- um, sem liæst virtur ríkissjóður býður þeim upp á, þarf í ársvexti miðað við 12%, 6 þús- und krónur — eða eitt kýrverð og einu þús- undi betur — aðeins í vexti, án afborgana á einu ári. Á rúmum átta árum fer andvirði kúnna aðeins í vexti. — Verð þeirra tvöfald- ast á þessum 8 árum, þegar farin er „leiðin til bættra lífskjara“ eftir stjórnarstefnunni. — Sé lán tekið fyrir dráttarvél þá þarf að borga 10.800 kr. í vexti á ári — eða samtals tæplega 17 þúsund kr. á ári miðað við 12% — ef keyptar em 10 kýr og ein dráttarvél. — Þaö má svei mér vera hátt afurðaverð, ef það á að borga þetta — ásamt öllu því, sem til búskap- ar þarf. Það örlar nú nokkuð á því, að mjólkur- framleiðslan sé ekki nægileg, miðað við neyzluþörf þjóðarinnar á landbúnaðarvör- um. Það þyrfti því að gera róttækar ráðstaf- anir til þess að stórauka landbúnaðarfram- leiðsluna — í stað þess að stefna í gagnstæða átt eins og hér er boðað. Vera má að þau lífskjör, sem hæstv. ríkis- stjórn býður almenningi upp á, verði það aum, eins og allt bendir til, að fólk verði að neita sér urn að drekka mjólk og borða kjöt og grænmeti, svo að það saki ekki, þótt fram- leiðslan dragist saman. Og hvers á unga fólkið að gjalda hjá hæst- virtri ríkisstjórn? Það getur ekki hafið bú- skap í sveit. Það getur ekki keypt liúsnæði í kaupstað og það getur ekki kostað sig til náms erlendis — þar sem það þarf nú kr. 17.900 á móti hverjum 10 þús. sem áður þurfti. ...“ Miðvikudaginn 30. marz 1960 Miðvikudaginn 30. marz 1960 D A G UR í næsta mánuði eru liðin 100 ár frá fæðingu Kristjáns Níelsar Jónssonar, en hann fæddist hér á Akureyri 7. apríl 1860. Er hann öllum ís- lendingum kær og kunnur sem K. N. eða Káinn, og mun hann verða nefndur því gælunafni það sem eftir er þessarar greinar. Reyndar segir Páll Eggert Olason í íslenzkum æviskrám, að Káinn hafi fæðzt 7. apríl 1859. Eftir því að dæma átti hann aldarafmæli í fyrra. Ekki minnist ég þess, að hans hafi verið getið þá, svo að þeir eru fleiri en ég, sem trúa betur því, sem ritað hefur verið um hann vestanhafs. Vestur-íslendingar héldu skáldi sínu veizlur stórar í apríl 1935, á 75 ára afmælinu, en ekki er getið um neitt sérstakt „húllumhæ“ í apríl 1934. Káinn hefur sjálfur haldið, að hann væri fæddur 1860, og ég vil láta skáldið fá að ráða sínum fæðingardegi, hvað sem æviskrám og kirkjubókum líður. Káinn orti eitt sinn: Af langri reynslu lært ég þetta hef: að láta drottin ráða meðan ég sef. En þegar ég vaki, þá vil ég sjálfur ráða, og þykist geta ráðið fyrir báða. Skáldið er ráðríkt, og verður því 100 ára næsta 7. apríl, hvað sem hver segir. „HIÐ EINA SKALD.... “ Ef til vill þykir einhverjum kynlegt að kalla Káinn „Hið eina skáld frá Akureyri.“ Munu þeir hinir sömu segja, að hér hafi verið Matthí- as, og hér sé nú Davíð og ýmsir ennþá yngri menn, sem skáld geti talizt. En hverjir þeirra eru fæddir og uppaldir hér á Akureyri? Enginn. Jón Sveinsson, Nonni, var ekki heldur fædd- ur hér. Hann dvaldi hér aðeins fá ár í æsku sinni, en hann tók tryggðir við þennan stað eins og svo margir aðrir, og við viljum gjarnan kenna hann við Akureyri og minnast hans. En ekki ber okkur minni skylda til að minn- ast Káins á aldarafmæli hans í vetur, því að hann er fæddur hér og uppalinn til 14 ára ald- urs. Næstu fjögur árin dvaldi hann á sveitabæ skammt héðan, en svo flutti hann vestur. Er auðséð á vísum hans og kvæðum, að hann hefur aldrei fullkomlega fest rætur á sléttum Norður-Ameríku fremur en margir aðrir íslend- ingar, og hann dáði alltaf og tregaði sínar æskuslóðir. Það hefur oft komið fyrir víða um lönd, að ýmsir staðir hafa rifizt um fræga menn, og al- veg eins þeir, sem ekkert hirtu um þá lífs, því að hinir nafntoguðu bregða ætíð sínum Ijóma á einhverja staði hér á jörð, þótt látnir séu. í þessum síngjarna bardaga um gagnið og sómann af frægra manna minningu, hafa fæð- ingarstaður og æskuslóðir farið með sigur af hólmi víðast hvar. H. C. Andersen og Shakespeare fóru báðir frá sínum æskustöðvum innan við tvítugt, en vei þeim borgum, sem reyna að ræna Odense eða Stratford on Avon heiðri og sóma af minningu þessara fræga sona. Enginn staður á Islandi getur heldur eignað sér Káinn nema Akureyri. ÆTTIN. Okkur er tamt að spyrja um ætternið, íslend- ingum, enda er hægt að þekkja ýmsa af ætt sinni. Mér er þetta mjög Ijóst, því að ég er barnakennari. Menn skera sig rækilega í ættir, allflestir, þótt ýmislegt annað hafi áhrif á. „Fjórðungi bregður til fósturs,“ segir gamalt spakmæli, en það mun þýða, að hver maður sé að fjórðungi það, sem uppeldið veitir, en að hin- um þrem fjórðungunum sé hann sonur ættar sinnar, gjaldi hennar og njóti. Þetta álít ég, að sé rétt, þegar upp eru gerðir reikningar að lok- um, en fóstrið mun þó gera meira en fjórðung á fyrri hluta hverrar ævi. Um ætt Káins skal aðeins sagt þetta: Níels skáldi var afabróðir hans, og eftir honum var hann heitinn, en í móðurætt var hann kominn út af Davíð Tómassyni frá Hvassafelli, afabróð- ur Jónasar Hallgrímssonar. Káinn var því eng- in dúfa úr hrafnseggi. FÆÐINGARSTAÐURINN. Káinn fæddist í Aðalstræti 76, og á þeirri lóð byggði faðir hans, Jón Jónsson járnsmiður, fyrsta húsið laust fyrir 1860. (Fékk byggingar- leyfi í maí 1857.) Þarna á Káinn heima fyrstu 14 ár ævinnar, en svo deyr Þórunn Kristjáns- dóttir, móðir hans, 1874, og þá flutti drengurinn til Davíðs bónda á Jósdísarstöðum, móðurbróður síns, og dvaldi þar, unz hann fór vestur 18 ára gamall. En húsið? Stendur það enn á sínum stað? Nei, því miður. „En 1875 kaupir Kr. Sigurðsson, Vært, húsið, flytur það út á Oddeyri og reisir það aftur á Strandgötu 25, og var það nefnt Værtshúsið eða „Baujan“. (Skrifaðar heimildir Jóns heitins Sveinssonar fyrrv. bæjarstjóra.) Friðrik Þor- grímsson úrsmiður, sem nú mun meðal elztu og fróðustu Akureyringa, sagði mér, að húsið hefði verið flutt í heilu lagi á ísi að vetrarlagi, og ber honum þar saman við heimildir Jóns Sveinssonar. En 1914 var Sigvalda Þorsteinssyni leyft að reisa steinhús á lóðinni Strandg. 25, og þá var gamla húsið rifið. Árið 1931 fær svo Sigvaldi leyfi til að byggja eina hæð ofan á húsið. Þetta hús er nú venjulega nefnt Alaska. En húsið, þar sem Káinn fæddist, er ekki lengur til. KÁINN A AKUREYRI. Ein öld er talsverður tími, og enginn man nú svo langt. Ekki ganga miklar sögur um æsku- brek Káins, en þó sagði Friðrik Þorgrímsson mér, að Káinn hefði snemma tekið að búa til vísur. Kunni hann eina, sem hann hafði lært ungur. Tilefni vísunnar var það, að Káinn var í vinnu hjá Höpfner við að flytja brenni úr bát upp í hús. Með honum vann ungur piltur, Hann- es Sveinbjörnsson. (Fór menntaveginn, dó ung- ur.) Fór Hannes sér víst hægt, því að Káinn kvað: Eftir vonum einkarsnar er í brennivinnu Hannes sonur Sveinbjamar og sómakonu Margrétar. Var Káinn 12 eða 13 ára, er þetta gerðist, og heldur Friðrik, að þessi vísa hafi ekki verið prentuð áður. ÆVISTARFIÐ. Káinn flutti af landi burt 18 ára gamall, eins og áður segir, og hann kom aldrei aftur. Hann átti heima á sléttum Norður-Ameríku í meira en hálfa öld og stundaði erfiðisvinnu bæði í borg og sveit. Sitt daglega brauð fékk hann því fyrir styrk og snilld handa sinna en ekki anda, og eru það undarleg örlög fyrir slíkan mann. Ef einhver sér mig ekki vera áð moka, — þetta orða þannig hlýt: þá er orðið hart um skít. Þannig lýsir hann sjálfur lífsstarfinu. Káinn tilheyrði því „hinum vinnandi stéttum" á máli þeirra atkvæðaveiðara, sem enga telja vinnandi nema þá, sem afla sér viðurværis með líkamlegu erfiði. En Káinn er frægur fyrir sínar hugarsmíðar, og að þeim vann hann kauplaust. Hann var skáld, sem notaði uppskeruvinnu, kýr, brenni- vín og alls konar daglegt amstur sem yrkisefni. Getur nokkurt skáld valið slík yrkisefni sér til langlífis og öðrum til gleði? Já, það gat Káinn, og hann var einstakur í sinni röð. Hann átti gullið, sem glóði, húmorinn af hinni beztu teg- und. Hann gerði sjálfum sér og öðrum glatt í geði með meinlausri kýmni og gamni. ÍSLENZKUR IIÚMOR. Við íslendingar eigum því miður húmor af skornum skammti. Við höfum eignázt ýmsa húmorista, en tiltölulega fáa. Okkur er alvara og hátíðleiki eiginlegri en gamanið. Hvort hörmungar fyrri alda hafa gert okkur þannig — eða þetta liggur djúpt í þjóðareðlinu, veit ég ekki. , Kímni og húmor má kenna á ýmsu, en þó mun það sannast mála, að sá er mestur húmor- istinn, sem getur gert gys að sjálfum sér. Hverjir íslenzkir húmoristar hafa gert það? Einungis tveir, Þórbergur Þórðarson og Káinn. Húmor Benedikts Gröndals komst aldrei á það stig. Honum tókst allra manna bezt að gera gys að öðrum, en sjálfum sér — nei; sjálfan sig tók hann alvarlega. Það er talið aðalsmerki Skota, áð þeir semja sjálfir um sig gamansögurnar, Skotasögurnar alþekktu. Við íslendingar erum svo viðkvæmir fyrir eigin persónu, að við myndum aldrei gera slíkar sögur um sjálfa okkur, og ef aðrir gerðu það, myndum við stórmóðgast. Við erum ennþá landar Sneglu-Halla, sem galt hverjum sitt, greiddi kesknihögg en þoldi engin sjálfur. BAKKUS GAMLI. Þeir, sem Káinn þekktu bezt og um hann hafa ritað, reyna ekki að fela þá staðreynd, að hon- um hafi þótt sopinn góður. En þeir taka um leið fram, að hann hafi einskis manns virðingu né ást misst af þeim sökum. En Káinn gerir sig ekki betri en hann er, og mikið hefur hann ort um sjálfan sig og vínið. Oftast þegar enginn sér og enginn niaður heyrir, en brennivínið búið er, bið ég guð að hjálpa mér. Þessa bæn flytur Káinn á torginu, en í hljóði mun hann hafa beðið margra annarra bæna, því að hann var maður trúaður að eðlisfari og var grafari í sókn sinni í mörg ár. En það, sem hann sagði í gamni um vínið, var þó stundum alvöru blandið, því að Káinn sótti gleði til Bakkusar og þóttist ekkert betri en hann var. Eitt sinn kvað hann, er hann leit andlit sitt í spegli: Æru þrotinn, þrútiiui, blár, þögull greipar spennir; hæruskotinn, grettur, grár, glóðaraugum rennir. Þessi vísa mun líklega hafa orðið til að morg- unlagi. Öðru sinni leit Káinn í spegil og kvað: Hans er Iundin Ijúf og trygg, í lófunum þó hann hafi sigg; maðurinn líkist hclzt ég hygg hunda-dogg og svína-pigg. Káinn segir sjálfur svo frá: „Hr. Sveinn Oddsson ritstjóri lét flösku á afvikinn stað í „offisi“ sínu og sagði mér, að við Stephán G. ættum að heimsækja hana, þegar við gengjum fram hjá, meðan við værum í bænum, og þegar hún væri dauð, þá tæki systir hennar plássið . hennar.“ í þessu tilefni orti Káinn m. a. þessar vísur: Þú fríðasta flaska í heimi, ég fann þig á ókunnri strönd; ég veit þú átt systur á sveimi, cn sjálfri þér aldrei ég gleymi, og tek mér þinn tappa í hönd. Ég brúka þig eins og ég ætti og uni mér glaður hjá þér. Ég fer ekki fyrr en ég hætti, og færi ekki, þó að ég mætti, og hætti’ ekki fyrr en ég fer. Otal margt annað orti Káinn um flöskur og drykki, og er einna þekktastur bragurinn „Æv- intýri á gönguför“, sem flestir hafa einhvern tíma sungið: „Úr fimmtíu „centa“ glasinu ég fengið gat ei nóg.“ — Sá bragur mun lifa lengi. Við eina vísu sína gerir Káinn þessa athuga- semd: „Ég tók eftir því hér í haust, að það var eyða í handritinu að ævisögu minni, frá þeim tíma, er ég hætti að drekka í tvö ár eða meira, fyrir liðugum fjörutíu árum síðan, svo ég fyllti upp eyðuna með þessu erindi, og vona það geti orðið öðrum til viðvörunar: Ég hét að reyna að hætta að drekka bjór, en hörmung er að vita hvernig fór. Ég umgekkst bara gott og guðhrætt fólk, sem gaf mér sýrublöndu, vatn og mjólk. Með góðtemplurum gekk ég til og frá og góðtemplara dömum kvaldist hjá, og þetta hreif — en þá fór líka ver: það þornaði upp í lakanum á mér.“ Auðvitað segir Káinn frá þessu í sínum venjulega tón, en kannski hefur honum verið einhver alvara í huga. „Einmitt þá fann ég oft það mál, sem endurhljómar í fólksins sál,“ læt- ur Einar Ben. hinn synduga prest á Mosfelli segja. EINN Á BATI. Káinn var alla ævi ókvæntur, og veit ég ekki hvað valdið hefur. En ein vísan hans er svöna: Heyri ég þilsa geystan gust, grípur hjartað ótti. Sú mér reyndist svikulust, sem mér vænst um þótti. Það er ekki ætíð auðvelt að vita, hvenær húmorista er alvara og hvenær ekki, en ef til vill hefur stúlka brugðizt skáldinu, en það gerir úr öllu gaman: Að láta skáldin Iúra ein, — ljótur er það siður! Þetta’ er gamalt þjóðarmein, því er ver og miður. Og Káinn orti vísu, sem hann nefndi: Slys. Hún er svona: D A G U R Um það gátu innlend blöð, að einhver landi hengdi sig í hjónabandi. Engum getum skal að því leitt, hvort kvæntur Káinn hefði orðið nokkuð öðruvísi. Ég er a. m. k. ánægður með Káinn svona ‘eins og mér finnst ég þekkja hanri og læt þar við sitja. SKÁLD? En var maðurinn nokkurt skáld? Var hann ekki bara vísnasmiður? Það getur verið meiri skáldskapur í einni vísu en löngu kvæði. Þar er spurt um gæði en ekki magn. Og hvað lifir lengst? Hvað gleymist og týnist? Kveðskapur Káins, það bezta af honum, mun lifa miklu lengur með þjóðinni en hinar ótelj- andi tregasinfóníur íslenzkra ljóðskálda. Húm- orinn er eilífur og fer aldrei úr tízku. Sigurður skólameistari sagði eitt sinn svo ég heyrði, að Halldór Gunnlaugsson mætti heita gott skáld fyrir hið eina kvæði: „Um aldamótin ekki neitt ég segi.“ Þau dæmi, er ég hef til þessa tilfært úr kveð- skap Káins, hafa ekki verið þau, sem lengst munu lifa. Hér kem ég með þrjú, sem ég skil ekki, að gleymist nokkurn tíma. Einu sinni sem oftar, er Kálnn var fjósamað- ur, orti hann þetta: — Hala á kú ég liata að sjá honum trúi ekki. Heilabú mitt hann vill slá. Halelúja segi ég þá. Á meðan fengizt er við mjaltir á íslandi verður þessi vísa metin að verðleikum. Og svo er það vögguvísan: — Farðu að sofa, blessað barnið smáa. Brúkaðu ekki minnsta fjandans þráa. Haltu kjafti, lilýddu og vertu góður. Heiðra skaltu föður þinn og móður. Þessi vísa hafði m. a. þau áhrif, að þeir, sem sömdu biblíusögur þær, sem nú eru kenndar börnum, breyttu orðalaginu á 4. boðorðinu! Og hvað er að segja um vögguvísu Kiljans í svipuð- um anda? Er hún ekki hálfgerð stæling á vísu Káins? Að lokum er hér kvæðið: „Við útförina,“ sem er aðeins tvær vísur: — Ég held þú mundir hlæja dátt með mér að horfa á það, sem fyrir augun ber. Þú hafðir ekki vanizt við það liér, að vinir bæru þig á höndum sér. En dauðinn hefur högum þínum breytt og hugi margra vina til þín leitt; í trú og auðmýkt allir hneigja sig, og enginn talar nema vel um þig. Þetta kvæði er til í ágætri enskri þýðingu og heíur birzt í Icelandic Lyrics, The IcelandiC Canadian og vafalaust á fleiri stöðum, þótt mér sé ekki kunnugt. ÆVILOK. Káinn varð maður gamall, einu ári betur en hálfáttræður. Sagt var, að hann hefði enga óvini átt, aðeins vini. Hann hafði þó ort skammavísur, Hið eina SKála frá Akureyri K.N. eha Káinn verhur 100 ára jjann 7. april n.k. 5 en hann meinti bara ekkert með þeim. Hann dó svo með bros á vör 25. okt. 1936. Útfarardaginn var öllum skólum lokað í íslendingabyggðum í Norður-Dakota. Bæði Lögberg og Heimskringla minntust Káins í ritstjórnargreinum. í öðru blaðinu er hann m.a. kallaður mannvinur og skáld. Fyrirsögn hinnar greinarinnar var: „Hver gerir oss nú glatt í lund?‘‘ l MINNINGIN. Káinn hefur sjálfur séð fyrir því, að hann gleymist ekki. Vestmenn af íslenzkum ættum muna ennþá kímnisskáldið sitt, því að þeir eru tryggir og ræktarsamir. Áreiðanlega munu þeir minnast Káins 7. apríl næstkomandi, á verðugan hátt, og rifja upp gamlan kveðskap og glaðar stundir. Káins mun minnzt á prenti víðar en í Degi nú á næstunni, og Ríkisútvarpið hlýtur að helga honum eina kvöldstund. Hjá þeirri staðreynd verður því ekki komizt, að hann er nafnkunn- astur allra „innfæddra“ Akureyringa lífs og lið- inna. HLUTUR AKUREYRAR. Á Akureyri nokkuð að gera skáldinu til heið- urs á aldaraímælinu? Og hvað þá helzt? Gamla húsið er ekki lengur til, en staðurinn er sá sami, þótt annað hús standi þar. Hvernig væri að koma fallegum, íslenzkum steini fyrir í brekkunni, þar sem strákur lék sér forðum, og letra þar nafn hans? Gæti þá rætzt þessi vísa Káins: — Þegar ég er fallinn frá, og fúna í jörðu beinin, verðúr fögur sjón að sjá sólina skína á steininn. En hann orti vísu, sem bendir í aðra átt: Kæra foldin, kennd við snjó, hvað ég fcginn yrði, mætti holdið hvíla í ró heima í Eyjafirði. Á vísu þessari er rímgalli, en þetta er ort af heilum huga, og hér er Káinn ekki að gera að gamni sínu. Hann langaði til að bera hér beinin. Væri engin leið að flytja þau hingað og koma þeim fyrir í garðinum rétt fyrir ofan brekku- brúnina? Þá væri Káinn kominn heim aftur. ÖRN SNORRASON.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.