Dagur - 05.05.1960, Qupperneq 7
7
- Tónleikar í Akureyrarkirkju
FramlialA af 8. siðn.
uppsetningu, og verður það til-
búið sennilega í ágústlok eða
byrjun september, og er áætlað
að hægt verði að taka það til
notkunar á 20 ára afmæli kirkj-
unnar.
Kirkjukórinn hefur verið
hlynntur orgelkaupunum frá
fyrstu og ýmislegt gert til þess
að tryggja framgang þess máls.
Ennþá vantar þó mikið fé til að
greiða orgelið. Fyrir því hefur
Kirkjukór Akureyrarkirkju
beitt sér fyrir því í samvinnu
við Kailakór Akureyarr, að
haldnir verði tónleikai' í kirkj-
unni næstkomandi föstudags-
kvöld, og er ákveðið að allt, sem
inn kemur gangi til orgelsins.
Það, sem fram fer á þessu
kirkjukvöldi er eftirfarandi:
1. Karlakór Akureyrar syng-
ur.
2. Lúðrasveit Barnaskóla Ak-
ureyrar spilar.Hefur hún æftsig
undanfarið til þess að geta kom-
ið þarna fram. Er óhætt að full-
yrða að þessir ungu hljóðfæra-
leikarar hafa náð undraverðum
árangri á svo stuttum tíma, sem
þeir hafa notið kennslu og þjálf-
unar.
Að síðustu syngur kirkjukór-
inn nokkur lög.
Góðir Akureyringar! Hér er
verið að vinna fyrir kirkjuna
okkar og að miklu menningar-
máli bæjarins. Við höfum reist
eina veglegustu og stærstu
kirkju landsins og kennt hana
við höfuðskáld síðari alda, séra
Matthías, sem lifði og starfaði
um langan aldui' á Akureyri,
sem prestur og höfuðskáld
þjóðarinnar.
Takizt að fá pípuorgel í
kirkjuna, og það er þegar í
smíðum og mun það verða eitt
veglegasta hljóðfæri í kirkju á
íslandi, og vel sæma kirkjunni
sem guðshúsi og minningu hins
mikla skálds, sem hún er kennd
við. Kirkjukórinn og þeir, sem
vinna að framgangi þessa máls,
vænta þess mjög einlæglega, að
Akureyringar vilji sækja þetta
kirkjukvöld og með því hjálpa
til að hrinda þessu máli fram
til sigurs fyrir næsta afmælis-
dag kirkjunnar á komandi
hausti. Gjöfum til þessa málefn-
is mun góðfúslega veitt móttaka
á kirkjukvöldinu.
Fyrir hönd Kirkjukórs Akur-
eyrar og fjáröflunarnefndar.
Árni Björnsson.
Auglýsíngar þurfa að
berast fyrir hádegi dag-
inn fyrir útkomudag.
BARNAHEÍMILID ÁSTJÖRN
vantar matreiðslukonu í tvo mánuði (júlí og ágúst).
BOGI PÉTURSSON, Víðimýri 16, sími 2238.
JÖRÐIN GRUND
í Svarfaðardal er laus til ábúðar í næstu fardögum. —
Nánari upplýsingar gefur
VALDIMAR ÓSKARSSON, Dalvík.
&
t . &
Hjartcms þakkir færi ég ykkur öllum, börnum,
% tenodabörnum, barnabörnum og v'mum, er glöddu mig |í
£ meö heimsóknnm, gjöfwn og heillaóskum á áttræðis- ^
:i afmæli viími, l. viaí síðastliöimi. — Lifið heil. .. <?
| ÁSEJÖRN ÁRNASON, Hrafnagilsstr. 22, í
.? Akureyri. «-
■4- <3
Jarðarför eiginkonu minnar,
VALGERÐAR ÞÓRU VALTÝSDÓTTUR,
sem andaðist 29. f. m., fer fram frá Akureyrarkirkju næstk.
laugardag kl. 2 e. h.
Blóm og kranzar afbeðið, en þeim, sem vilja minnast henn-
ar, er vinsamlega bent á Krabbameinsfélag íslands.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Haraldur Valsteinsson.
Við þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför móður okkar
BJARGAR KLEMENZDÓTTUR.
Sigríður Sigurðardóttir, Þóra Sigurðardóttir,
Helga Sigurðardóttir.
NÝJA-BIÓ [
Sími 1285
1 Aðgöngumiðas. opin frá 7-9 i
Næsta mynd:
I ALHEIMSBÖLIÐ |
} (A HATFUL OF RAIN.) |
i Stórbrotin og athyglisverð 1
= ný, amerísk kvikmynd um i
ógnir eiturlyfja.
: Aðalhlutverk:
Eva Marie Saint,
Don Murray,
Anthony Franciosa, i
Lloyd Nolan.
| Bönnuð yngri en 16 ára. i
BORGARBÍÓ {
Sími 1500 |
: Aðgöngumiðasala opin frá 7—9 i
| SENDIFERÐ TIL ]
| AMSTERDAM |
1 Óvenjulega vel gerð og i
i spennandi brezk mynd frá \
: Rank, er fjallar um mikla i
| hættuför í síðasta stríði. i
iAðalhlutverk:
PETER FINCH,
EVA BARTOK. í
i Bönnuð börnum.
I Næsta mynd sennilega: i
{Hákarlar og hornsíli \
FREYVANGUR
Dansleikur 7. maí kl.
10 eftir hádegi.
Júpíter-kvartettinn
leikur.
Sætaferðir frá Ferðaskrif-
stofunni. — Veitingar.
ÁRROÐINN
FÓRNARLAMBIÐ
Sýning í Laugarborg
á fimmtudagskvöld kl. 9.
Næsta sýning sunnudags-
kvöld í síðasta sinn.
Aðgöngumiða má panta
að Ytra-Gili, sírni 02.
Hver þolir ekki að hlæja
eina kvöld stund.
U. M. F. FRAMTÍÐ.
LÍTIL ÍBÚÐ
til leigu, enn fremur her-
bergi í Brekkugötu 7. —
Til viötals kl. 4 e. h.
Jóhanna Sigurðardóttir.
HERBERGI
TIL LEIGU
í Hamarsstíg 2.
Uppl. í síma 1369.
TILBOÐ ÓSKAST
í íbúðarhæð mína í
Oddagötu 1.
Árni Valmundsson.
I. O. O. F. — 1425681/2 — O
Kirkjan. Messað á sunnudag-
inn kemur í Akureýrarkirkju
kl. 10.30 árd. Sálmar nr.: 575 —
219 — 322 — 571 — 528. P. S.
Friðunar njóta nú gæsir,
endur, fýlar, súlur, skarfar,
lómar, sefendur og toppendur.
Samband Dýraverndunarfélaga
Islands.
Munið bazar M. F. f. K. í Ás-
garði á sunnudaginn. Sjá augl.
í blaðinu í dag.
Að síendurteknu tilefni eru
það einlæg tilmæli til allra
þeirra, sem komast í færi við
hvalavöður, að reka þær ekki á
land, nema þeir örugglega viti,
að í landi séu traust lagvopn til
deyðingar á hvölum og tæki og
aðstæður til þess að nýta hvala-
afla.
Samband Dýraverndunarfélaga
Islands.
Sýning nemenda Gagnfræða-
skóla Akureyrar var á sunnu-
daginn. Hún var mjög fjölsótt
að vanda, enda margt að sjá, og
yfirleitt vel gerða muni og nyt-
sama.
ÚTIGÖNGU-
KINDUR
Síðasta þriðjudag í vetri
Eundust 2 veturgamlar ær,
útigengnar í Varmaiands-
hólafjalli í Öxnadal. Var önn-
ur grá en liin hvít. Eigandi
þeirra var Ásgrímur Hall-
dórsson bóndi á Hálsi. Þær
voru styggar mjög og fráar
og virtist veturinn ekki hafa
leikið þær hart, enda veður-
far hagstætt og snjóalög ekki
mikil, né langvarandi jarð-
bönn. I fyrravetur gengu
tvær kindur af fremst í
Öxnadal og voru þær úr
Skagafirði.
Með gamla verðinu!
KARLMANNAFÖT
FRAKKAR
DRENGJAFÖT
STAKAR BUXUR
STAKKAR
PEYSUR
SKYRTUR
SOKKAR
ÐÖMUKÁPUR
STUTTKÁPUR
PEYSUR
SPORTBUXUR
VINNUBUXUR
NÆRFÖT
UNDIRFATNAÐUR
SOKKAR
Góðar vörur, gott verð
KLÆÐAVERZLUN
SIGURÐAR
GUÐMUNDSSONAR H.F.
fslandsklukkan verður sýnd
á laugardags- og sunnudags-
kvöldið. Aðgöngumiðasími er
1073. Aðeins fáar sýningar eftir.
Kvennasamband Akureyrar
heldur aðalfund í Landsbanka-
salnum uppi mánudaginn 9. maí
kl. 8.30 síðd. Venjuleg aðal-
fundai-störf. — Stjórnin.
Leifar frá stríðsárunum,
gaddavírsgirðingar og síma-
þræðir valda árlega dýrum
meiðslum og dauða. Fjarlægja
þarf þessar hættur áður cn bú-
smala er sleppt út til beitar.
Samband Dýraverndunarfélaga
íslands.
I. O .G. T. — Stúkan ísafold-
Fjallkonan nr. 1 heldur fund
fimmtudaginn 5. þ. m. kl. 8.30
e. h. í Landsbankasalnum. —
Fundarefni: Vígsla nýliða. —
Kosning fulltrúa á Þingstúku-
þing, Umdæmisstúkuþing og
Stórstúkuþing. — Hagnefndar-
atriði: Upplestur, söngur með
gítarundirleik og félagsvist.
Góð vei'ðlaun. — Mætið vel og
stundvíslega. — Æðstitemplar.
Verndið dýr gegn meiðslum
og dauða með því að hirða vel
um girðingar og skilja eigi vír-
spotta eða vírflækjur eftir á
víðavangi.
Samband Dýraverndunarfélaga
íslands.
Tónleikar verða haldnir í Ak-
ureyrarkirkju á föstudaginn
kemur kl. 9 e. h. — Þar syngur
Kirkjukór Akureyrar, Lúðra-
sveit barnaskólanna leikur og
Karlakór Akureyrar syngur.
Einsöngvarar með kórunum
eru: Jóhann Konráðsson, Krist-
inn Þorsteinsson og Jósteinn
Konráðsson. — Tónleikarnir eru
haldnir til fjáröflunar hinu nýja
pípuorgeli kii'kjunnar.
Silungsveiðimenn, kastið ekki
girni á víðavang. Það getur
skaðað búsmala.
Samband Dýraverndunarfélaga
Islands.
Kvenfélagið Hlíf heldur fund
í Pálmholti fimmtudaginn 5. maí
(í kvöld) kl. 9 e. h. Farið frá
Ferðaskrifstofunni kl. 8.40. Við-
komustaðir „Höpfner“ og Sund-
laugarhúsið. Konur! Takið með
ykkur kaffi. — Stjórnin.
Vegna þess, hve kettir hafa
undanfarin vor drepið mikið af
ungum villtra fugla, eru katta-
eigendur einlæglega bcðnir um
að loka ketti sína inni að næt-
urlagi á tímabilinu frá 1. maí til
1. júlí.
Samband Dýraverndunarfélaga
Islands.
M. F. I. K. heldur félagsfund
að Hótel KEA (Rotarysal)
mánudaginn 9. þ. m. kl. 8.30
síðdegis. — Stjórnin.
Leiðréttingar á prentvillum í
ræðu Gísla Guðmundssonar sem
birt var í Degi 27. apríl. 1. í e.
d. átti að standa: Kreppa —
fellur í Jökulsá austur af
Herðubreið, eða litlu norðar.
Ennfremur falla í Jökulsá hið
efra, að vestan auk kvíslanna
frá Dyngjujökli, Svartá, Lindaá
o. s. frv. — 2. í sama d. átti að
standa, að af vatnasvæði Jök-
ulsár séu 1700 ferkílómetrar
undir jökli (ekki 7100). — 3. í
3. d. átti að standa frá brún
Selfoss (ekki brúm). — 4. í 4.
d. áétti að standa: Þá helmingi
stærri en Þingvallavatn. — 5. í
6. d. átti að standa: og um leið
fljótlega byggð margra manna
(ekki verksmiðja).