Dagur - 05.05.1960, Blaðsíða 8
8
Samvinnutryggingar hafa endurgreiff
22 milljónir króna fil fryggingafakanna
HÆTTULEGUR TRASSASKAPUR
Eru stærsta tryggingafélag landsins og hafa ger
breytt tryggingum til hagsbóta fyrir almenning
í upphafi fundarins minntist
formaður félagsins, Erlendur
Einarsson, forstjóri, Þórhalls
Sigtryggssonar, fyrrv. kaupfé-
lagsstjóra, sem lézt 11. sept. sl.,
en Þórhallur hafði áður átt sæti
í fulltrúaráði Samvinnutrygg-
inga og verið endurskoðandi fé-
lagsins frá árinu 1953 til dauða-
dags.
Fundarstjóri var kjörinn Jak-
ob Frímannsson, framkvæmda-
stjóri, Akureyri, og fundarritar-
ar Oskar Jónsson, fyrrv. alþ.m.,
Vík í Mýrdal, og Steinþór Guð-
mundsson, kennari, Reykjavík.
Formaður félagsins, Erlendur
Einarsson, forstjóri, flutti
skýrslu stjórnarinnar, en fram-
kvæmdastjórinn, Ásgeir Magn-
ússon, skýrði reikninga félags-
ins og flutti skýrslu um starf-
semina á árinu 1959, sem var 13.
reikningsár félagsins.
Tjónabætur 54.3 millj. króna.
Heildariðgjaldatekjur félags-
íns á árinu námu tæplega 63.5
milljónum króna og höfðu auk-
izt um 3.5 milljónir frá fyrra
ári. Tjónin námu röskum 54.3
milljónum og höfðu aukizt um
14 milljónir. Stærsta tjónið nam
14.150.000.00, og mun það vera
stærsta tjónaupphæð, sem ís-
lenzkt tryggingarfélag hefur
innt af hendi.
Endurgreiðslur 4.2 millj. króna.
Samþykkt var að endurgreiða
þeim, sem tryggt höfðu hjá fé-
laginu kr. 4.255.426.00 í tekjuaf-
gang, m. a. af brunatryggingum
10%, dráttarvélatryggingum
25% og skipatryggingum 6% af
iðgjöldum af þessum trygging-
um árið 1959. Með þessari end-
urgreiðslu tekjuafgangs til
hinna tryggðu hefur félagið
endurgreitt samtals til trygg-
ingartakanna frá því að byrjað
Var að úthluta tekjuafgangi ár-
ið 1949, kr. 21.990.034.00.
Sjóðir félagsins 85 millj. kr.
Iðgjalda- og tjónasjóðir félags-
ins námu í árslok kr.
85.125.000.00 og höfðu aukizt um
rúmar 11.4 milljónir á árinu.
Utlán félagsins í árslok. námu
tæpri 51 milljón.
ANDVAKA.
Jafnframt var haldinn aðal-
fundur Líftryggingafélagsins
Andvöku. Á árinu gaf félagið
út 274 ný líftryggingarskírteini,
samtals að upphæð kr.
7.578.000.00. Iðgjaldatekjur fé-
lagsins námu tæplega 3.6 millj.
Samþykkt var að leggja kr.
255.000.00 í bónussjóð og kr.
2.185.000.00 í tryggingasjóð, og
nemur hann þá kr. 16.575.000.00.
í árslok voru í gildi 8860 líf-
tryggingaskírtéini, og nam
tryggingastofninn þá rösklega
100 milljónum króna.
Að loknum aðalfundi félag-
anna hélt stjórnin fulltrúunum
og nokkrum gestum hóf að Hót-
el KEA. Þar voru margar ræð-
ur fluttar, sungið og ræðzt við.
Stjórn félagsins skipa þeir
Erlendur Einarsson, formaður,
ísleifur Högnason, Jakob Frí-
mannsson, Karvel Ogmundsson
Mikill árangur.
Af þessu stutta yfirliti sést,
hve Samvinnutryggingar hafa
náð miklum og almennum við-
skiptum á öi’skömmum tíma. —
Þær hafa brotið nýjar leiðir og
veitt eldri tryggingafélögum
harða samkeppni. Endurgi-eiðsl-
urnar eru talandi tákn þess,
hvernig samvinnuhugsjónin
getur þjónað hagsmunum fólks-
ins, þegar saman fer góður vilji
og ötul forvsta.
Hér á Akureyi’i njóta ti'ygg-
ingar þessar hinna mestu vin-
sælda. En ti’únaðarmaður þeirra
hér er Jóhann Kröyer. Hann
nýtur meira trausts og vin-
sælda en almennt gerist og
vii’ðist jafnsnjall að leysa hvert
rnál af þeirri glöggskyggni, sem
ti-yggingunum er sómi að og
ti-yggingartakar geta vel unað
við.
„Verkamaður" hefur óskað
eftir að vekja athygli á því, að
í-afleiðslum o. fl. umbúnaði við
grjótmulningskvöi’n bæjarins sé
svo illa við haldið, að slys geti
hlotizt af. Rafmagnið „leiði út“,
bláir logar sjáist á kvarnai’-
kjaftinum og á járnpallinum,
sem grjótið er tekið af. Verka-
menn hafi margoft fengið
„stuð“ — r^fhögg — við vinnu
sína. Og að lokum spyr maður-
inn: Hvað á þetta mál að ganga
langt til þess að úi’bætur fáist?
Blaðið hefur ekki kynnt sér
þetta mál, en vísar því til
ábyrgra aðila. Umboðsmaður
Vélaeftix’lits ríkisins hér mun
væntanlega athuga þetta og
gera þær ráðstafanir, sem við
eiga. Og sé rétt frá skýrt, mega
þær ráðstafanir ekki dragast.
MÓTMÆLIGEGN BÍLASTÆÐ-
UM VIÐ RÁÐHÚSTORG
Stjórn Fegrunarfélags Akur-
eyrar kom saman til fundar 30.
apríl 1960, til að ræða fyrirhug-
aðar framkvæmdir á Ráðhús-
torgi.
Eftirfarandi ályktun var gerð
á fundinum:
1. Félagið mótmælir harðlega
fyrirhuguðum bílastæðum við
torgið.
2. Að gróður torgsins verði ekki
minnkaður frá því sem er,
heldur frekar aukinn.
3. Að útlínur torgsins verði
gerðar í sainræmi við tillögu-
uppdrátt Jóns Rögnvaldsson-
ar af Ráðhústorgi. Jafnframt
verði samráð við garðyrkju-
ráðunaut bæjarins, um frá-
gang og skreytingu torgsins.
F. h. stjói’nai’innai’.
Jón Kristjánsson.
ÁSGEIR MAGNUSSON
framkvæmdastjóri.
og Kjartan Ólafsson frá Hafnar-
firði.
Fi-amkvæmdastjói'i félaganna
er Ásgeir Magnússon, en auk
hans eru í framkvæmdastjórn
Björn Vilmundai’son og Jón
Rafn Guðmundsson.
Eins og Akux'eyringum er
kunnugt, hefur um nokkurt
skeið verið unnið að því að út-
vega pípuorgel í kii’kjuna. Var
á sínum tíma, eftir ósk sóknar-
nefndar, kosin sérstök nefnd til
að vinna, ásamt sóknax-nefnd-
inni, að framgangi þessa máls
m. a. með fjái'söfnun, því að vit-
að var að pípuorgel, sem að áliti
sérmenntaði’a manna í þeim
efnum, muni hæfa svo veglegu
og stóru húsi, sem kirkjan er,
hlyti að kosta mikið fé. Hafizt
var handa um fjársöfnun, með
ýmsum hætti, bæði hjá félaga-
samtökum í bænum og einnig
hjá einstaklingum. Þyí ’mið’ur
bar þetta ekki þana-rárángúr,
sem nauðsynlegur var og liggja
til þess ýmsar og eðMlegar or-
sakir. Samt var ráðizt í að leita
tilboða í smíði orgelsins, og er
þau höfðu borizt, var sótt um
innflutningsleyfi, en þeim var
með öllu synjað á þeim tíma.
Á sl. hausti fékkst þó loksins
umbeðið leyfi. En þá var verð
orgelsins orðið allmiklu óhag-
stæðara en áður og síðan bætt-
• ist -við gengisfellingin á næst-
liðnum veti'i, sem 'enri hækkar
verðið að mun. Samningar hafa
þó tekizt um smíði orgelsins og
Framhald á 7. siðu.
mmm.
■ \
IIS‘
■’ ■'■ ■■ ■
Sjálfstæðismenn þykjast
sjá hræðsluglampa í augum
samstarfsmanna sinna úr
Alþýðuflokknum, þegar
minnzt er á verkföll. Menn
velta því fyrir sér, hvað Al-
þýðuflokkurinn gerir ef til
verkfalla kemur.
Sjálfstæðisíílokkurinn ótt-
ast, að hjúið hlaupi úr vist-
inni undir einhverju yfir-
skyni, áður en sú stund
rennur upp.
Alþýðubandalagið bíður
átekta, og ekki laust við
meinfýsi. Það mun hvorki
slátra alikálfi, þótt Alþýðu-
flokknum rynni blóðið til
skyldunnar og sneri aftur á
örlagastund. né gráta heit-
um tárum þótt þessi „flokk-
ur alþýðunnar“ visni upp í
höndunum á hinni kald-
lyndu matmóður sinni.
Hinir óbreyttu Alþýðu-
flokksnxenn horfa fram á
þetta vandamál með vaxandi
ugg og þykir að vonum
vandsloppið úr þeirri sjálf-
heldu, sem flokksforingjam-
ir hafa leitt þá í, með sinni
dæmalausu undirgefni.
... ..... * ' ...
Pípuorgelið, sem væntanlega kemur í Akureyrarkirkju í haust, kostar mikið fé. — Fjár-
öflun er því nauðsynleg og verður að vera svo að um muni.
Dague
kemur næst út miðvikudaginn
11. maí. — Auglýsingar þurfa
að berast fyrir hádegi á þriðjud.