Dagur - 18.05.1960, Blaðsíða 4
4
5
Spurningar og svör á Alþingi
SAMKVÆMT þingsköpum hafa alþing-
ismenn rétt til að bera fram skriflegar fyrir-
spumir til ráðherra og fá þeim svarað, ef
þingið leyfir. Fyrirspumir þessar eru prent-
aðar og teknar fyrir á fundum sameinaðs
þings, venjulega á miðvikudögum. Hver
fyrirspyrjandi má þá taka tvisvar til máls,
en ekki lengur en í 5 mín. í hvert skipti.
Ræðutími ráðheiTa er ótakmarkaður.
Á yfirstandandi þingi hefur komið fram
íjöldi fyrirspurna, einkum eftir að líða tók
á þingtímann. Eins og vænta má, eru það
einkum þingmenn stjórnarandstöðunnar,
sem spyrja, og flestar fyrirspumir frá þing-
mönnum Framsóknarflokksins. Nokkur
dæmi skulu hér nefnd.
Asgeir Bjarnason spurði: „Hvað ætlar
ríkisstjórnin að greiða mikið niður verð á
fóðurbæti og tilbúnum áburði?“
I»essu svaraði Ingólfur Jónsson landbún-
aðarráðherra efnislega á þessa leið: Fóður-
bætir kostar í dag kr. 3,80 hjá Mjólkurfél.
Reykjavíkur. Hækkun þessarar vöm verð-
ur um 14—15%. Mais hækkar um 18—
19%. Þrífosfatpoki mun sennilega kosta
225 krónur, en hefði kostað 296 án niður-
greiðslu. Kalí kostar sennilega 108 krónur,
en hefði kostað 134 án niðurgreiðslu.
Blandaður áburður kostar 117, en hefði
kostað 145 án niðurgreiðslu. Þá sagði ráð-
herrann, að til mála kæmi að hækka tonnið
af Kjama upp í 2500 krónur, pokinn yrði
þá seldur á 125 í stað 115 í fyrra. Þetta
þóttu fremur loðin svör og skrýtin og
spunnust af umræður, en ráðherra svaraði
skætingi, eins og oftar í fyrirspumartíma,
rétt eins og hann telji fyrirspumir móðgun
við sig eða flokk sinn, enda stundum í
vanda staddur með svörin. Þessar umræður
fóm fram seint í marz.
Bændur em nú að kaupa áburðinn og
bera hann „í ginið á gróðrinum“, svo sem
vera ber, en margir eiga erfitt með áburðar-
kaup vegna dýrtíðarinnar og margvíslegra
álaga hins opinbera. Þeir, sem trúnað lögðu
á frásögn landbúnaðarráðherra í vor, sem
að framan getur, hafa orðið fyrir vonbrigð-
um. Nú kostar áburðurinn miklu meira en
þar var ráð fyrir gert. Kjarni kostar 136 kr.,
þrífosfat 256 kr., kalí 123 kr., blandaður
áburður 135 kr. Þetta verð er nú á áburðin-
um hér og skýtur nokkuð skökku við upp-
lýsingar ráðherrans.
Nokkm síðar báru þeir Ásgeir Bjamason
og Halldór Sigurðsson fram sundurliðaða
fyrirspurn um niðurgreiðslur í heild. Gylfi
Þ. Gíslason svaraði því skilmerkilega. Gaf
hann m. a. þær upplýsingar, að fóðurbætir
og áburður yrði greiddur niður um
18,61%, fobverð, eða sem svaraði 16 millj.
kr. á árinu. Þeir peningar yrðu teknir af
niðurgreiðslum landbúnaðarvara til neyt-
enda og yrðu þær lækkaðar um sömu upp-
hæð. En niðurgreiðslur í heild áætlaði ráð-
herrann 287 milljónir króna á yfirstand-
andi ári.
Þessar tölur gefa til kynna hve ríkis-
stjóm stendur vel við þau fyrirheit sín áð
ganga af uppbótar- og niðurgreiðslukerfinu
dauðu. Aldrei hafa niðurgreiðslur úr ríkis-
sjóði verið nálægt því svona háar áður.
Um útflutningsuppbæturnar, sem stjóm-
in segist vera búin að afnema, er það að
segja, auk þess, sem frá er skýrt hér að fram-
an, að útgerðinni munu ætlaðar 60 milljón-
ir — þ. e. eftirgjöf á hluta útflutnings-
skattsins, sem lögfestur var í vetur. Útflutn-
ingsuppbætumar eru því miður heldur
ekki úr sögunni.
Undanfarna daga hefur lifn-
að mjög yfir íþróttalifinu og
allmörg mót verið haldin, en
sökum þrengsla í blaðinu hafa
umsagnir og úrslit orðið að
bíða birtingar. Helztu viðburð-
ir á þessu sviði fara hér á eftir.
í aprílmánuði.
Stórhríðarmót skíðamanna.
A-flokk vann Svanberg Þórðar-
son úr Reykjavík, 2. Hákon Ol-
afsson MA, 3. Reynir Pálmason
KA. 15 ára flokk vann Reynir
Brynjólfsson Þór og yngri
flokk vann Guðm. Pétursson
KA.
Jón Stefánsson KA varð Ak-
ureyrarmeistari í badminton.
Fimleikaflokkur Einars
Helgasonar hélt sýningu í Lóni
við hinar beztu undirtektir, en
of litla aðsókn.
í apríllok kom KFR og háði
hér keppni í körfuknattleik
gegn KA og varð jafntefli,
55:55. Síðar kepptu sömu lið
sýningarleik á Húsavík og sigr-
uðu þá KFR-piltar.
Helztu viðburðir í þessum
mánuði.
Akureyrarmót í svigi. 1. Sig-
tryggur Sigtryggsson KA. B-fl.
vann Hörður Þorleifsson MA.
Sigtryggur Sigtryggsson K. A.
Akureyrarmeistari í svigi
C-fl. vann Guðm. Tulinius KA.
Drengjakeppni, 13—15 ára fl.
vann Sigurður Jakobsson KA
og yngsta fl. vann Smári Sig-
urðsson KA.
Hraðkeppni í knattspyrnu. KA
vann Þór 2:0 og MA 2:1.
Akureyringurinn Guðm. Þor-
steinsson tók þátt í víðavangs-
hlaupi Meistaramóts íslands og
varð annar í röðinni.
Firmakeppni skíðamanna. —
Sigurvegari varð Reynir Pálma
son, sem keppti fyrir Rakara-
stofu Valda, Ingva og Haralds.
Annar varð Björn Sveinsson,
sem keppti fyrir Kjötbúð KEA
og þriðji Magnús Guðmunds-
son, sem keppti fyrir Sundhöll-
ina. Hér var um forgjafar-
keppni að ræða og fengu kepp-
endur mismunandi háa frá-
dráttartölu, nema Magnús. —
Reynir fór brautina á 39,1 + 4
= 35,0 sek. Bezta brautartíma
hafði Magnús G., 35,2.
Þróttur úr Reykjavík í
heimsókn.
Knattspyrnufélagið lék hér 2
leiki um síðustu helgi og fóru
leikar þannig, að Ak. unnu
fyrri leikinn 2:1, en seinni leik-
inn unnu Þróttarar með 4:2
mörkum. Þá kepptu Þróttarar
einnig í handknattleik við hand
knattleiksmenn hér og unnu
sunnanmenn með 24:20 mörk-
Norræna sundkeppnin.
Samnorræna sundkeppnin
hófst sl. sunnudag og brugðu
Akureyringar vel við og syntu
margir strax fyrsta daginn.
í tilefni af þessari keppni
flutti forseti íslands útvarps-
ávarp og synti síðan tilskyida
vegalengd.
íþróttavikan og fleira.
íþróttavika FRÍ verður 16.—
23. júní, og keppt verður í 100
m. og 800 m. hlaupi, langstökki
og kringlukasti. Stigaútreikn-
ingi er svo hagað, að allir ættu
að geta náð í stig, t. d. þarf að-
eins 17 m. í kringlukasti, 3,80'
m. í langstökki eða 100 m.
hlaup á 16,0 sek. til að ná í stig.
En keppni þessi er einnig milli
kaupstaða og sambanda. Dag-
ana 16.—23. verða frjálsíþrótta-
menn á vellinum kl. 6—9 e. h.
til að mæla fyrir þá bæjarbúa,
sem vilja spreyta sig.
Norræna unglingakeppnin
stendur yfir 4. júní til 3. júlí og
eru keppnisgreinar: 100 m.
grind, 3000 m. hlaup, þrístökk,
stangarstökk, kúluvarp, sleggju
kast. En kvennakeppni í 100
m. hlaupi, 80 m. grindahlaupi,
langstökki, kúluvarpi og
kringlukasti.
Frjálsíþróttanámskeið fyrir
drengi og unglinga verður vik-
una 23.—29 maí kl. 6—8 e. h.
dag hvem, og munu beztu
frjálsíþróttamenn bæjarins
leiðbeina drengjunum. Nám-
skeiðið er öllum opið og ókeyp-
is. I lok námskeiðsins verður
drengjamót fyrir þá, sem þess
óska og loks kvikmyndasýning.
Ármann í Reykjavík er vænt-
anlegur með lið handknattleiks-
og körfuknattleiksmanna um
hvítasunnuna.
Unglingameisíaramótið á
Akureyri.
Unglingameistaramót íslands
(19—20 ára) í frjálsum íþrótt-
um verður að þessu sinni hald-
ið hér á Akureyri og verður
sennilega síðustu helgina í júní.
Stærstu íþróttaviðburðir sum-
arsins verða að sjálfsögðu
kappleikir knattspyrnumanna
okkar í I. deild, og er þeirra
beðið af mörgum með spenn-
ingi, en ekki er enn vitað um
leikdaga, en keppnisdagar
verða birtir hér í blaðinu um
leið og endanleg niðurskipun I.
deildarmótsins er lokið.
Vormót í frjálsíþróttum og
maíboðhlaup verður sennilega
um helgina 28.—29. maí.
Ráðherrar ganga til spurninga
ekki hjá prestinum heldur hjá þmgmönnum
stjórnarandstöðunnar á Alþingi
••iiiiiiiiiiii
Formaður tilkymiir kjör heiðursfélaganna í afmælishófinu.
Ungmennasamb. Skagafjarðar 50 ára
Ársþing Ungmennasambands
Skagafjarð,ar var haldið á
Sauðárkróki dagana 7. og 8.
maí. Um 40 fulltrúar frá 11
ungmennafélögum sátu þingið.
Form. sambandsins, Guðjón
Ingimundarson, setti þingið. —
Bauð hann fulltrúa og gesti
velkomna. Minnti hann á, að nú
væru 50 ár liðin frá stofnun
sambandsins, og rakti stuttlega
starfssögu þess.
í landhelgismálinu samþykkti
þingið svohljóðandi ályktun:
„Héraðsþing UMSS 1960
treystir því að íslenzk stjórnar-
völd haldi fast á málstað þjóð-
arinnar í landhelgismálinu og
geri enga samninga í því máli,
sem takmarka rétt þjóðarinnar
til 12 míinanna og frekari út-
færslu landhelginnar.“
Stjórn sambandsins var öll
endurkosin, nema Halldór .
Benediktsson, sem baðst-undan- -
endurkosningu. í stjórn ei'u nú:
Guðjón Ingimundars., Skr., Sig-
urður Jónsson, Reynistað,
Gísli Felixson, Sauðárkróki,
Eggert Ólafsson, Sauðárkróki,
og Stefán Gúðmundsscon,
Sauðárkróki.
Formaður þakkaði Halldóri
Benediktssyni langt og gott
starf.
Ungmennasamband Skaga-
fjarðar var stofnað að Vík í
Staðarhreppi 17. apríl 1910.
Undirbúningsnefndin hafði
séð um útgáfu afmælisrits, og
kom það út nú fyrir helgina,
vandað og mörgum myndum
prýtt.
50 ára afmælisins var minnzt
með hófi í Bifröst fyrra laugar-
dag. Hófst það kl. 9 um kvöldið
með þvi að form. sambandsins
bauð félaga og gesti velkomna
og fól veizlustjórn í hendur Ey-
þóri Stefánssyni. í hófinu
fluttu þessir ræður: Guðjón
Ingimundarson, Skúli Þor-
steinsson framkvæmdastjóri
UMFÍ, Benedikt Waage, forseti
ÍSÍ, Árni Guðmundsson, skóla-
stjóri fþróttakennaraskóla ís-
lands, Jón Sigurðsson, fyrrver-
andi alþm., Reynistað, Árni J.
Hafstað, bóndi, Vík, Björn
Jónsson, bóndi, Bæ, Höfða-
strönd, og Stefán Guðmunds-
son, Sauðárkróki, form. UMF
Tindastóls.
Form. sambandsins tilkynnti
kjör heiðursfélaga, en þeir
voru: Jón Sigurðss., Reynistað,
Árni J. Hafstað, Vík, Þórarinn
Sigurjónsson, nú á Hvanneyri,
og Ólafur Sigurðsson, Hellu-
landi, en þeir voru allir full-
trúar á stofnfundi sambandsins
og tveir hinir fyrst nefndu í
fyrstu stjórn þess, auk Bryn-
leifs Tobiassonar, sem nú er
látinn. Þá var og kjörinn heið-
ursfélagi Sigurður Ólafsson,
fræðimaður á Kárastöðum, sem
setið hefur í stjórn sambands-
ins lengst allra, eða í 21 ár. —
Heiðursfélagarnir . ,voru allir
mættir i hófinu, néma Ólafur
Sigurðsson, sem ekki gat komið
því við vegna fjarveru. Afhenti
form. þeim heiðursskírteini og
oddveifu sambandsins, með
þökkum fyrir unnin störf.
Sýndir voru tveir þættir úr
leikritinu íslandsklukkan eftir
Halldór Kiljan Laxness. Leik-
endur Kári Jónsson, Sigurður
Ármannsson, Þorkell Halldórs-
son og frú Stefanía Frímanns-
dóttir.
Karlakvartett söng. Söngvar-
ar: Árni Kristjánsson, Stefán
Haraldsson, Pétur Sigfússon og
Halldór Benediktss. Undirleik
annaðist Björn Ólafsson. Hall-
dór Benediktsson las upp
kvæði.
Benedikt. G. Waage, forseti
ÍSÍ afhenti form. sambandsins
þjónustumerki ÍSÍ vegna langr-
ar þjónustu í þágu sambands-
ins, en hann hefur verið í
stjórn þess í 18 ár. Frá Þor-
steini Einarssyni íþróttafulltrúa
barst honum vinarkveðja,
Ferðabók dr. Helga Péturss.
Sýslufundur S.- Þingeyjarsýslu mót-
mælir breytingu á útsvarslögunum
Á aðalfundi sýslunefndar
Suður-Þingeyjarsýslu 1960 var
samþykkt eftirfarandi ályktun:
„Sýslunefnd Suður-Þingeyj-
arsýslu lýsir yfir, að hún telur
fram komið frumvarp til bráða-
birgðabreytinga á lögum um
útsvör marka mjög varhuga-
verða stefnu, og færir þetta
helzt til um rökstuðning fyrir
því áliti:
1. Álagning almennra útsvara
er alveg einskorðuð við tekju-
skattsframtöl, sem engar líkur
eru til að verði ábyggilegri
undirstaða álagningar hér eftir
en hingað til.
2. Lögleiðing veltuútsvars á
viðskipti almennt er dulbúin
aðferð til að færa mjög veru-
legan hluta af útsvarsþunga
bæja og kaupstaða yfir á ibúa
þeirra sveitabyggða, sem verða
að hafa aðalviðskipti sín í bæj-
unum, en hafa engin skilyrði til
gagnkvæmra ráðstafana á
hendur þeim.
3. Með fyrirhuguðu veltuút-
svari á vöru í umboðssölu —
sem engin verzlun er í venju-
legum skilningi, — og þá fyrst
og fremst framleiðsluvöru
landbúnaðarins, er allra lengst
gengið í rangsleitninni, og það
því fremur, að frumvarpið
opnar leið til að leggja á eina
og sömu vörueiningu í þremur
sveitarfélögum.
Þar sem engar óumflýjanleg-
ar ástæður geta legið til þess
að gera þurfi bráðabirgða-
breytingar á útsvarslögunum á
þessu þingi, skorar sýslunefnd-
in á háttvirt Alþingi, að af-
greiða engar breytingar á
nefndri löggjöf, fyrr en nefnd
sú, sem vinnur að breytingu á
henni, hefur lagt fram fullnað-
artillögur sínar í því efni, og
landsmönnum hefur gefizt ráð-
rúm til að gagnrýna þær breyt-
ingar, sem þar verða væntan-
lega bornar fram.“
Sýslunefndin samþykkti eft-
irtaldar fjárveitingar:
Til menntamála kr. 72.000.00.
— Til heilbrigðismála kr.
103.000.00. — Til búnaðarmála
kr. 65.000.00. — Til samgöngu-
mála kr. 285.000.00.
Þá lét sýslunefndin í ljós það
álit, að ef reist yrði trjáplötu-
verksmiðja, til vinnslu úr þing-
eyskum skógum, ætti hún að
vera innan héraðsins.
Sýslunefndin ákvað að ger-
ast aðili að kaupum og rekstri
lögreglu- og sjúkrabifreiðar
ásamt Húsavíkurkaupstað, til
starfrækslu í héraðinu.
Eins og frá er sagt í leiðara
blaðsins í dag um fyrirspurnir
þingmanna til ráðherra, sam-
kvæmt þingsköpum, ber margt
á góma þegar fyrirspurnir eru
fram bornar.
Eysteinn Jónsson spurði,
hvort nýjar reglur hefðu verið
settar um endurkaup Seðla-
bankans á afurðavíxlum og í
hverju breytingarnar væru
fólgnar. Viðskiptamálaráðherra
upplýsti, að út á sjávarafurðir
væri lánað úr Seðlabankanum
(endurkeypt) sama krónutala
og í fyrra út á framleiðsluein-
ingu. Ut á landbúnaðarafurðir
mætti ekki lána hærri heildar-
upphæð á árinu 1960, en lánað
hefði verið 1959 (og sama
krónutala út á framleiðsluein-
ingu). Hér er því um að ræða
hlutfallslega mikla lækkun af-
urðalána úr Seðlabankanum og
að auki sérstök takmörkun.
Ásgeir Bjarnason og Páll Þor-
steinsson spurðu, hvers vænta
mætti um starfsemi Ræktunar-
sjóðs og Byggingasjóðs sveita-
býla, og var spurningin í 4 lið-
um. Ingólfur ráðherra svaraði
því til, að búið væri að veita
þau lán úr Byggingasjóði, til
nýbygginga 1959, sem sam-
kvæmt venju hefði átt að af-
greiða fyrir áramót. Afgreiðslu
þessara lána er ekki lokið enn
og flestum kom það á óvart, að
vextir á þessum lánum hækk-
uðu úr 3\t>% upp í 6%. Þá lét
ráðherrann í veðri vaka, að
báðir sjóðirnir gætu afgreitt á
venjulegum tíma, lán út á nýj-
ar framkvæmdir á þessu ári og
munu menn hafa tekið þau orð
hans sem loforð. Loks sagði
hann, að búið væri að veita lán
úr Ræktunarsjóði út á allar
framkvæmdir frá árinu 1959.
Þetta er því miður ekki rétt
hermt hjá ráðherranum. Ekki
vildi ráðherrann kannast við að
nein óvenjutregða hefði verið
á afgreiðslu lána úr Bygginga-
sjóði fyrir áramót og mun sú
þrjózka hafa vakið furðu
margra þingmanna, því að
margir þeirra hafa af þeim per-
sónuleg kynni, sem umboðs-
menn lántakenda, nú eins og
jafnan fyrr. Á þessum áratug
mun það ekki áður hafa komið
fyrir, að Byggingasjóðslán hafi
legið óafgreidd yfir áramót, ef
lánaskjöl voru til staðar í byrj-
un desembermánaðar eða fyrr
og eftir þeim lánum gengið.
Gísli Guðmundsson og Sigur-
vin Einarsson spurðu um þrjú
atriði í sambandi við efnahags-
mál sjávarútvegsins. í fyrsta
lagi, hvort ákveðnar hefðu ver-
ið nýjar uppbætur eftir á, út á
framleiðslu frá 1959. í öðru
lagi, hvað stjórnin ætlaði að
gera til að bæta úr erfiðleikum
vegna niðurfalls sérbóta á ýsu,
steinbít sumarveiddan fisk o.
fl. 1 þriðja lagi, hvort stjórnin
ætlaði að beita _ sér fyrir ráð-
stöfunum vegna verðhækkunar
á fiskiskipum, sem smiðuð eru
erlendis, og greiða þarf nú eða
síðar í erlendum gjaldeyri.
Sjávarútvegsmálaráðherra,
Emil Jónsson, sagði, að greidd-
ar yrðu nálega 32 millj. króna í
sérstakar verðbætur á togara-
fisk frá 1959, samkvæmt sér-
stakri stjórnarákvörðun í fe-
brúar í vetur. Væri þetta þegar
að mestu greitt. Nemur þessi
uppbót 24,4 aurum á kg., sem
lagt var á land hér og 11,74
aurum á kg., sem flutt var á
land erlendis. Þá kvað ráðherr-
ann enga ákvörðun hafa verið
tekna um að bæta tjón það,
sem fyrirsjáanlegt er vegna nið-
urfalls sérbótanna á ýsu, smá-
fisk o. fl., og þykja þetta hörð
tíðindi hér fyrir norðan. Við
síðustu spurningunni komu
engin jákvæð svör.
Eysteinn Jónsson bar nýlega
fram tvær fyrirspurnir varð-
andi lántökur erlendis og ráð-
stöfun erlendra lána. Fjármála-
ráðherra, Gunnar Thoroddsen,
svaraði því, að af 6 milljón doll-
ara framkvæmdaláni, sem Al-
þingi heimilaði í fyrra að taka,
er óráðstafað 112 milljónum ísl.
króna. En 98 millj. kr ráðstaf-
aði Alþingi sjálft á sínum tíma
(til rafvæðingarinnar 45 millj.,
til hafnargerða 28 millj. og 25
millj. til Ræktunarsjóðs). En
það er á huldu, hvað ríkis-
stjórnin aetlar að gera við
þessar 112 milljónir króna, sem
óráðstafað er og mun þurfa að
ræða það frekar áður en þingi
lýkur.
Af vörulánum (P. L. 480),
sem tekin hafa verið í Banda-
ríkjunum eða gert er ráð fyrir
að fá á þessu ári, er óráðstafað
114 milljónum króna.
Loks upplýsti viðskiptamála-
ráðherra, Gylfi Þ. Gíslason,sem
svar við fyrirspurn Eysteins
Jónssonar, að þegar væri búið
að nota 296 milljónir króna af
20 millj. dollara (760 millj. ísl.
króna) yfirdráttarláni ríkis-
stjórnarinnar hjá Evrópusjóðn-
um í alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Það er þessi yfirdráttarheimild
erlendis, sem ríkisstjórnin kall-
ar gjaldeyrissjóð, eins og kunn-
ugt er, þótt þar sé í rauninni
um lausaskuldir að ræða.
•111111111111111111111111■ll■lllll■ll■tlllll•l■•lll■lltlllltllll••±
- Z
! Æskulýðsblaðið |
1. hefti þessa árs, er komið út.
Af efni þess má nefna: Unga
fólkið í fréttunum (Þegar
Ragnheiður Sigfúsdóttir vann
flugfarið til Reykjavíkur á
Æskulýðshátíðina, Helena og
Finur við hljóðnemann, Séra
Ólafur Skúlason o. fl.). Æsku-
lýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar
skrifar: Þú sagðir já. Sigríður
Hannesdóttir, 6. bekk M. A.:
Viðhorf mitt til framtíðarinnar.
BiskupshjóninheimsækjaLöngu
mýri (mynd). Þá er þýdd grein
eftir Pat. Boone. Myndasaga
Albert Schweitzer o. fl. — Að-
alritstjóri þessa heftis er séra
Sigurður H. Guðjónsson, Hálsi.
í Oddeyrarskóla voru 272 böro
Oddeyrarskólanum á Akureyri var slitið 10. maí sl. Ei-
ríkur Sigurðsson, skólastjóri, skýrði frá skólastarfinu á
árinu, úrslitum prófa og ávarpaði brautskráða nemendur.
Sú breyting varð á kennaraliði á síðastliðnu hausti, að
Guðmundur Olafsson hvarf frá skólanum, en í hans stað
kom frú Hólmfríður Ólafsdóttir. •
I skólanum voru í vetur 272 börn í 11 deildum. Fastir
kennarar voru 7 með skólastjóra og þrír stundakennarar.
Einn af kennurum skólans, Theodór Daníelsson, forfall-
aðist frá kennslu um áramót, en í stað hans tók við
kennslu frú Guðrún Friðriksdóttir.
Heilsufar hefur yfirleitt verið gott í vetur. Börnin
fengu vitamíntöflur daglega'.
Skólaskemmtun barnanna var í byrjun marz, og um
sama leyti kom út skólablaðið „Eyrarrós".
Sparifjársöfnun fór fram í öllum deildum skólans og
voru seld sparimerki fyrir 16.800.00 krónur, og er það
heldur meira en áður.
Lestrarstofa fyrir börnin var opin í skólanum 2 daga í
viku og urðu lesstofugestir alls um 1200.
Listkynning í skólum fór fram síðastliðið haust. Voru
kynnt kvæði Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi af ágæt-
um listamönnum. Las skáldið þar eitt af ljóðum sínum
fyrir börnin. Þetta er einhver ánægjulegasta heimsókn,
sem skólinn hefur fengið.
Nokkrar gjafir hafa skólanum borizt á árinu. Má þar til
nefna Lesarkasafn Jóns Ófeigssonar frá Magnúsi Péturs-
syni, kennara. Tveir nemendur skólans, Jónas Brjánsson
og Brynjar Brjánsson, gáfu skólanum eggjasafn við skóla-
slitin.
Mikil þrengsli eru í skólanum og viðbótarbygging fyrir-
huguð. Veitti Alþingi styrk til hennar í vetur. Þó er vafa-
samt, að hægt verði að byrja á henni fyrr en næsta vor,
af því að ekki er nóg fé fyrir hendi.
Barnaprófi luku aðeins 20 börn úr skólanum að þessu
sinni. Kvöldvökuútgáfan á Akureyri gaf tvær af útgáfu-
bókum sínum til verðlauna. Hlutu þær Arnar J. Magnús-
son og Kolbrún Sigurðardóttir fyrir hæstu einkunnir við
barnapróf. Þá gaf Ásgeir Jakobsson bóksali einnig tvær
verðlaunabækur fyrir beztan árangur í skriflegri íslenzku.
Þær bækur hlutu Laufey B. Einarsdóttir og Ólína K. Jó-
hannsdóttir.
Sýning var á skólavinnu barnanna í skólanum sunnu-
daginn 8. maí. Sýningin var mjög vel sótt.
Orgelveltan
Brjánn Guðjónsson skorar á: Jóhann Valdemarsson
bóksala, Birgir Helgason, söngkennara, Hákon Eiríksson,
Hvannavöllum 8.
Jón Sigurgeirsson, skólastjóri, skorar á: Hallgrím Jóns-
son, Klapparstig 1, Hrafnhildi Jónsdóttur, Klapparstíg 1,
Svanbjörn Sigurðsson, Brekkugötu 39.
Hannes J. Magnússon, skólastjóri, skorar á: Eirík Sig-
urðsson, skólastjóra, Tryggva Þorsteinsson, yfirkennara,
Jóhann Þorkelsson, héraðslækni.
Júlíus Davíðsson skorar á: Halldór Halldórsson,
Strandgötu 15, Jón Sigurjónsson, Holtagötu 2, Kolbein
Ogmundsson, Helgamagrastræti 48.
Ingibjörg Eldjárn skorar á: Petrínu Ágústsdóttur,
Petrínu Eldjárn, Jón Eðvarð, rakarameistara.
Finnbogi S. Jónasson skorar á: Garðar Svanlaugsson,
Gránufélagsgötu 19, Björn Bessason, Gilsbakkaveg 7,
Guðmund Skaftason, Skólastíg 1.
Kári Johansen skorar á: Sigmund Björnsson, Löngu-
mýri 20, Arnór Karlsson, Helgamagrastræti 50, Frímann
Guðmundsson, Eyrarvegi 27.
Kolbeinn Árnason skorar á: Guðmund Frímann, Ham-
arstíg 14, Bjarna Jóhannesson, skipstjóra, Þingvallastræti
28, Trausta Adamsson, Þingvallastræti 29, Ingólf Arna-
son, Byggðavegi 132, Guðjón Daníelsson, Ásveg 19.
Arngrímur Bjarnason, skrifstofustjóri, skorar á: Björn
Þórðarson, skrifstofum., Oddagötu 5, Stefán Guðnason,
lækni, Oddagötu 15, Ágúst Steinsson, skrifstofum., ’Rán-
argötu 10.
Þyri Eydal skorar á: Soffíu Guðmundsdóttur, Þórunnar-
stræti 128, Kristinn Gestsson, Þórunnarstræti 113, Ólaf
Tr. Ólafsson, Spítalavegi 15.
Bragi Guðjónsson skorar á: Stefán Ág. Kristjánsson,
forstjóra, Jón Kristinsson, rakara, Sigtrygg Júlíusson,
rakara.
Stefán Halldórsson, Strandgötu 15, skorar á: Pétur
Jónsson, Hamarstíg 12, Magnús Bjarnason, Strandgötu
17, Eggert Stefánsson, Eyrarvegi 2.
Þuríður Sigurðardóttir skorar á: Jóhönnu Sigurðardótt-
ur, Oddeyrargötu 30, Elínu Hallsdóttur, Hrafnagilsstraéti
10, Þorgerði Stefánsdóttur, Hlíðargötu.
Vilhjálmur Sigurðsson skorar á: Jón Helgason, Iðunni,
Þorstein Davíðsson, Iðunni, Guðmund Baldvinsson,
Fjólugötu 15. -- .