Dagur - 15.06.1960, Blaðsíða 5
4
5
Daguk
Fjötrar í stað frelsis
ÞEGAK líða tók á Alþingi varð
ljóst, að stjórnarflokkarnir efndu
ekki kosningaloforð sín. Þeir gengu á
bak orða sinna «g yfirlýsingar í smáu
og stóru, þverbrutu margyfirlýsta
stefnu sína og skjalleg loforð. Þeir
lofuðu að stöðva verðbólguna, og
jafnvel án nokkurra fórna af hendi
almennings, en stej’ptu óðaverðbólgu
yfir þjóðina. Þeir lofuðu bættum lífs-
kjörum með því skilyrði einu, að þeir
fengju meirihlutavald á Alþingi. I
stað þess að efna þetta loforð hafa
þeir bcinlínis ráðizt á lífskjör þegn-
anna með nýjum sköttum,, svo sem
tvöföldum influtningsskatti, söluskatti
og veltuútsvari. Þeir hafa létt tekju-
skatti af almennum launatekjum og
skal það viðurkennt, en jafnframt
hafa þeir lækkað tekjuskatt á há-
tekjumönnum um fleiri þúsundir
króna og einnig veitt þeim stórkost-
legar ívilnanir í breyttum útsvarslög-
um. Þannig hafa þeir framkvæmt
hina einu og sönnu íhaldsstefnu allra
Ianda: Að gera þá ríku enn ríkari á
kostnað hinna fátækari. En ckki lét
stjórnarliðið við þetta sitja. Sam-
kvæmt lagahoði á hreinlega að fara
ránshendi um inneignir manna í spari-
sjóðum og innlánsdeildum kaupfé-
laga og flytja til Seðlabakans. Og þá
Iét blessuð ríkisstjórnin hækka
bankavexti svo mjög, að breyta
þurfti fyrst landslögum til þess að hin
nýja skipan heyrði ekki undir okur.
Og enn sýndi stjórnin og flokkar
hennar hug sinn til uppbyggingar at-
vinnuveganna í landinu með því að
stytta Iánstíma lánastofnana, svo sem
til að fylgja hinum nýju okurvöxtum
betur eftir.
Um leið og þessar aðfarir voru
gerðar á lífskjör almennings, voru
tryggingarnar notaðar sem eins konar
sárabætur og voru þær þar með
flæktar inn í efnahagsmál núverandi
ríkisstjórnar, og er það óhæfa út af
fyrir sig. Þessi sama stjóm, sem mest
hræddi þjóðina á erlendum skuldum
ríkisins, tók nær 800 milljón króna er-
lent lán, án þess að ætla það til verk-
Jegra framkvæmda, svo sem var um
eldri lán frá tímum vinstri stjórnar-
innar.
Aldrei hefur þvílík óánægjualda
risið í landinu út af aðgerðum vald-
hafanna og allir viðurkenna nú, að
ríkisstjórnin hefur margfaldlega svik-
ið þjóðina í nær öllum helztu málum.
Ennfremur er augljóst, að núverandi
stjórnarflokkar hafa ekkert umboð
frá kjósendum sínum til slíkra aðfara.
Þeir starfa ekki í anda fólksins, sem
gaf þeim umboð sitt á Alþingi og
stjórna með ólýðræðislegum hætti.
Eftir allt þetta eru stjórnarblöðin
að reyna að telja fólki trú um, að rík-
isstjómin sé að innlciða frelsi á öllum
sviðum, ekki sízt í viðskiptum. Þetta
er hin mesta firra. Um 40% af vöru-
kaupunum erlendis eru leyfum háð.
Uin frelsi einstaklinganna, almennt
séð, er það að segja, að skert lífskjör
eru fjötrar í stað frelsis. Einnig á
þessu sviði hefur stjórnin brugðizt
hlutverki sínu og loforðum. Hið sanna
er, að ásamt með óðaverðbólgunni er
komin kreppa, sem allir óttast. íslend-
ingar, sem hafa aukið þjóðartekjur
sínar stórlega mörg undanfarin ár,
hafa minna til skiptanna en áður.
V_________________________________-
ÞEIR STEFNA AFTURÁBAK
Framsóknarmenn héldu al-
mennan stjórnmálafund á Akur-
eyri á mánudagskvöldið. Fram-
sögumenn voru Ingvar Gíslason
lögfræðingur, Garðar Halldórsson
alþm. og lvarl Kristjánsson alþni.,
en að lramsöguræðum Ioknum
hólust umræður, og tóku margir
til máls, eti þingmennirnir svör-
uðu fyrirspurnum.
Ekki er rúm til að rekja efni
ræðanna að neinu ráði, en hér á
eítir fara þó nokkur atriði úr
ræðu Karls Kristjánssonar í end-
ursögn blaðsins:
„Ríkisstjórninni cr hcimilt."
Ræðumaður minnti á nokkra
þá stórviðburði, sem orðið hafa
á Alþingi á síðustu þingum og að
grundvelli stjórnmálastarfseminn-
ar hefði mest verið breytt nteð
kjördæmabyltingunni, en með
henni var sjálfstæði héraðanna
skert og múgmennskunni aukinn
byr í þjóðfélaginu. Meiri liluti
Alþingis varð til vegna breyttrar
kjördæmaskipunar og rangra
stefnúyfirlýsinga. Þessi meiri hluti
hefur notað aðstöðu sína til að
láta Alþingi afsala sér völdum
til ríkisstjórnarinnar.
hað er áberandi, hve oft eru
ákvæði á þessa leið: „Ríkisstjórn-
inni er lieimilt" o. s. frv. Vald
stjórnarinnar er aukið en þing-
ræðið skert. Ræðumaður taldi
þessa þróun hina háskalegustu og
það hefði jjegar sýnt sig, að nú-
verandi stjórnarflökkum væru
mislagðar hendur.
Lciðarinn í Morgunblaðinu.
Hann gerði að umtalsefni nýleg
an leiðara í Morgunblaðinu, þar
sem m. a. segir: „Megintakmark
hinnar nýju og frjálslyndu efna-
hagsstefnu, sem nú hefur verið
lagður grundvöllur að og hér
mun ríkja í framtiðinni, er að
auka þjóðartetqurnár og þar með
almenna hagsæld. En jafnframt
er stefnt að því, að færa hið fjár-
hagslega vald í ríkara mæli frá
ríki og opinberunt aðilum til ein-
staklinganna í þjóðfélaginu."
Aljjingismaðurinn efaðist ekki
unt, að stjórnarflokkarnir vildu
auka þjóðartekjurnar, það vildu
auðvitað allir Islendingar. . En
hvernig á að auka Jrær og hvern-
ig á að skipta Jreim?
Ræðumaður taldi að núverandi
stjórn vildi gefa nokkrum út-
völdum einstaklingum mikil tæki-
færi til Jress að ná ntiklu af þjóð-
artekjunum til sín. Þetta kalla
Jjcir að efla einstaklingsframtak-
ið.
Úr fátækt til sjálfsbjargar.
Karl Kristjánsson gerði síðan að
umtalsefni hvernig íslendingar
heíðu br'otizt upp úr fátækt til
sjálfsbjargar með því að taka
höndum saman með félagssamtök-
um sínum. Með traustum félags-
samtökum leystu Jjeir sig undan
arðráni, juku þjóðartekjurnar, er
J)eim var skipt með jafnrétti fyrir
augum, og urðti efnalega sjálístæð
ir. Hann sagði ennfremur, að rík-
ið hefði tekið sinn Jrátt í Jjessari
breytingu, )>ar sem hin félagslegu
samtök hefðu ekki hrokkið til.
Nú er, samkvæmt nefndri forystu-
grein Morgunblaðsins, „stefnt að
Jjví að færa hið íjárhagslega vald
... frá ríkinu og opinberum að-
ilum til einstaklinganna í þjóðfé-
Jaginu". Þeir ríku eiga að taka
eins mikið til sin og þcir geta.
Hvernig þeim ríku cr hlíft.
Einkenni hinnar nýju íhalds-
stefnu eru meðal annars þau, að
lögleiddir eru nýir söluskattar
samtals um 12%, sagði ræðumað-
ur, sem koma á allar nauðsynja-
vörur erlendar, og 3% þar af á
alla sölu innlendra vara nema nv-
mjólk. Því verða byrðar Jjyngstar
á þeim, sem hafa mesta órnegð.
Víxilvextirnir eru orðnir svo
gífurlegir, að þeir eru vel til þess
fallnir að beygja þá, sem hafa
þungar skuldabyrðar.
Ræðumaður tók dæmi um Jjað,
livernig tekjuskattslögin væru nú
notuð til að létta byrðar hinna
ríku.
Hjón með 2 börn og 50 þúsund
króna nettótekjur þurfa nú ekki
að borga tekjuskatt. Þau losna þar
við 343 króna útgjöld. Hjón með
tvö börn og 150 þús. kr. nettó-
tekjur fá 14.376 kr. tekjuskatts-
lækkun, eða yfir 40 sinnuni meiri
lækkun útgjalda en sá launalægri.
Veltuútsvar skal lagt á viðskipti
káúpfélagsmanna í þeirra eigin fé-
lögum eftir söniu reglufn og kaup-
menn sama staðar. Lögbannað er
að miða kaupgjald viÓ vísitölu.
Frumskógarsiðir.
Þingmaðurinn sagði, að ekki
væri erlitt, samkv. þessum dæm-
um, að ættfæra stjórnarstefnuna.
„Hún er af ætt frumskógarsið-
anna, Jjar scm sá sterki á að
drottna en hinn veiki fellur...
Það er að vísu nokkuð langt til
frumskógarins, en í J)á átt er
snúið aftur."
Þá vék ræðumaðurinn að þeim
sambúðarreglum, sem islenzka
þjóðin hefði tamið sér og hefði
leitt til meiri jöfnunar lífskjara
en annars staðar tíðkaðist. Þjóðin
er fámenn og verður að lifa sem
ein fjölskylda. Þar má ekki taka
upp Jiá reglu að hver hrifsi til
sín Jiað, scm liann getur eða hef-
ur kralta til að ná. Slík lögmál
gilda ekki innan fjölskyldu og
geta ekki staðizt hjá jafn lítilli
þjóð.
Ræðumaður harmaði það, að
sú stefna skyldi upp tekin, að
hlynnt væri að auðhyggjunni og
farið inn á reglur frumskóganna
um skiptingu auðs og arðs. Hann
rifjaði upp ummæli eins meiri-
háttar stuðningsmanns stjórnar-
innar, sein sagði á Alþingi í vetur,
að efnahagsaðgerðirnar ættu að
verká eins og blóðgjöf á þann, er
vantar blóð. Frummælandi benti
á, að Jjessi blóðgjöf væri ekki af
réttum blóðílokki og verkaði því
sem eitur.
Niðurlagsorð Karls Kristjáns-
sonar alþingismanns voru efnis-
lega á Jtessa leið:
Það Jiarf samstilltrar mótspyrnu
við, til Jiess að forða því, að J)jóð-
ina beri langt til baka. Félagssam-
tök almennings verða að snúa
bökum samau til mótspyrnu og
varnar því, að vcra brotin niður
og að engu gerð erfið en gæfusöm
ganga undanfarna áratugi.
Akureyringar sigruðu Keflvíkinga 3:1
Sunnudaginn 12. þ. m. fór
fram fyrsti leikur Knattspymu-
móts íslands, þeirra, sem fara
fram á Akureyri. Mættust þar
lið Keflvíkinga og Akureyringa.
Var þetta jafnframt fyrsti leik-
ur Akureyringa í mótinu.
Áður en leikurinn hófst lék
Lúðrasveit Akureyrar létta tón-
list á vellinum. — Þá ávarpaði
Ármann Dalmannsson, formað-
ur ÍBA, leikmenn og áhorfend-
ur og stóðu leikmenn beggja
liða í einni röð framan við hina
nýju stúku vallarins á meðan.
Síðan voru nöfn leikmanna
Keflvíkinga lesin upp. Hefði
farið betur á að gera það, áður
en raðir leikmanna leystust upp
og láta hvern einstakan stíga
fram úr röðinni, er nafn hans
var lesið upp. Er slík kynning á
leikmönnum aðkomuliða mjög
æskileg fyrir áhorfendur. Veð-
ur var mjög gott, aðeins and-
vari af norðri. Áhorfendur voru
óvenju margir, líklega um 1300.
Keflvíkingar unnu hlutkestið
og kusu að leika undan golunni.
Hófu Akureyringar því leikinn.
Þeir byrjuðu með miklum hraða
og sóttu fast að marki Keflv.
Lá mikið á Keflv. í byrjun
leiksins og í þessari fyrstu leift-
ursókn myndaðist hálfgerð
þvaga við mark Keflv., sem
Steingrími tókst að skora úr,
þegar á annarri min,- léiksins.
Var ekki meira en sVo, að Kefl-
víkingar væru komnir „i gang“,.
þegar markvörður þeirra varð
Június Jónsson, fyrrum verk-
stjóri hjá Akureyrarkaupstað,
varð 75 ára í gær, 14. júní. —
Blaðið sendir þeim mæta manni
beztu afmæliskveðjur. — Viðtal
við afmælisbarnið átti að birt-
ast í þessu tölublaði, en var
ekki tilbúið.
17. júní 1959.
HINN 17. JÚNÍ var runninn
upp, ekki samt bjartur og fag-
ur eins og æskilegt hefði verið,
heldur kaldur og skuggalegur
með hríðarél í fjöllum og hreint
ekkert líkt því, að þetta gæti
talizt hátíðaveður.
Talsverður undirbúningur til
hátíðahalda hafði verið gerður
við Ráðhústorg. En nú virtist sá
undirbúningur ekki ætla að
verða að neinu gagni, því að
enginn getur staðið úti í kulda-
næðingi og hlustað á ræðuhöld
og látið sér líða vel.
Svo að nú var horfið að því
ráði að hafa hátíðahöldin inni.
Samkoma var nú auglýst í Nýja
Bíó kl. 2, og ætluðu ýmsir að
halda ræður í tilefni dagsins.
Eg hafði ætlað mér að sækja
þessa samkomu. Svo að nú fór
eg af stað, þegar klukkuna
vantaði tíu mínútur í tvö.
Þegar eg kom á samkomu-
staðinn, sá eg það að eg hafði
lagt af stað full snemma, því að
þarna voru mjög fáir komnir.
En þeir, sem komnir voru, voru
aðallega börn á skólaaldri, sem
munu hafa verið um fimmtíu.
En eitt var sérstaklega einkenni
legt við þennan barnahóp, að
þau höfðu flest spýtubrjóstsyk-
ur í munninum, sem þau ýmist
tóku út úr sér eða skutu honum
aftur inn til að sjúga. Þau fáu,
sem ekki voru að hamast á
þessu, höfðu tyggigúmmí, svo
að þarna var spunnið og spunn-
ið af mesta kappi, svo að þeim
fannst víst ekki tíminn lengi að
líða.
Meðan samkoman ekki byrj-
aði, var ekki laust við að mér
leiddist innan um þennan sjúg-
andi og tyggjandi söfnuð. Ekki
svo að skilja að börnin væru
ómyndarleg eða illa klædd, því
að svo var ekki, heldur var það
hegðun þeirra, sem mér líkaði
ekki.
Að börnin þyrftu endilega að
japla á einhverju þessar fáu
mínútur áður en ræðuhöld
byrjuðu er fjarstæða, sem ekki
á áð eiga sér stað á svona sam-
komu.
Eg tel það víst, að einhverjir
hafi grætt ekki svo lítið á þessu
japli og sleikjum barnanna og
þess vegna sé það talið gott.
Stundvíslega kl. tvö byrjaði
samkoman. — Þarna voru flutt-
ar stuttar ræður og fleira til
skemmtunar er stóð yfir til kl.
fjögur.
Nú var skemmtiskráin búin,
svo að nú stefndu allir til úti-
dyra. En þá kom upp úr kafinu
að eiginlega var nú áhrifamesta
atriðið eftir, Jjað bara snerti dá-
lítið aðra strengi í brjósti mans,
en það, sem á undan var gengið.
Nú voru það börnin, sem
voru tekin við stjórninni, og sú
stjórn var hreint ekki til fyrir-
myndar. — Nú voru kraftarnir
notaðir óspart. Það var ýtt,
hrundið og stjakað af svo mikl-
um ofsa, að það lá við að þrek-
litlir træðust undir.
Það er annars slæmt, að þess-
um agalausu börnum skuli vera
leyft að fara á samkomu án
þess að vera í fylgd með for-
eldrum sínum. Eða kannski það
gerði ekki mikið gagn. Því að
ekki lítur út fyrir að heimilið
hafi gert mikið í þá átt að beina
huga barnanna í áttina til meiri
siðmenningar, 'og er það illa
farið.
Eg fer ekki oft á samkomu í
þessu húsi, því að troðningur-
inn þegar út er farið, er alltaf
svipaður þessu, sem eg hef lýst
hér.
Að kveldinu átti að vera
þarna önnur samkoma, og hafði
eg hugsað mér að vera þar við-
staddur. En þegar til kom var
mér vísað frá sökum plássleys-
is. Ekki svo að skilja, að það
væru ekki þarna mörg auð sæti,
en þau voru ekki fyrir íslend-
inga, heldur hóp af erlendum
gestum, sem ætluðu að heiðra
okkur með nærveru sinni.
Við verðum að skilja það, að
þessi hátíðahöld eru fyrir ís-
lenzku þjóðina fyrst og fremst.
Við getum þess vegna ekki boð-
ið erlendum gestum að vera hér
með okkur, og taka þátt í gleði
okkar. Því að ef illa viðrar, eins
og oft gerizt í júní, erum við
reknir inn í hús með hátíða-
höldin, þar sem pláss er svo
takmarkað, að aðeins fáir af
fjöldanum fá þarna sæti.
Fyrstu árin eftir að hátíða-
höld þessi voru tekin upp, var
það reglan að hafa bekki fyrir
gamalt og lasburða fólk að hvíl-
ast á, næst ræðupallinum. Og
var þetta, að eg held, vel þegið
og virt af öllum, sem bekkina
notuðu. Því var ekki þessum
góða sið haldið áfram? Auðvit-
að eru þessir bekkir gagnslaus-
ir nema þeir séu næst ræðu-
palli. Engir standandi áhorf-
endur fyrir framan þá, hvorki
fullorðnir eða börn. Eftir þessu
og öðru tilreyrandi aga á lög-
reglan að líta. — J. S.
að sækja knöttinn í netið. Sama
máli gegndi, að eg held, með
flesta áhorfendur, sem eru því
miður ekki vanir svo skemmti-
legri byrjun hjá framlínu heima
manna. Eftir markið jafnaðist
leikurinn. Keflv. áttuðu sig á
því, að leikurinn væri hafinn og
léku oft góða knattspyrnu.
Héldu þeir knettinum töluvert
mikið betur heldur en Akureyr-
ingar gerðu, eða „áttu meira í
leiknum", sem kallað er á
knattspyrnumáli. Samt var það
svo, að mark Keflv. var mikið
oftar í hættu heldur en mark
Ak., aðallega vegna þess hve
framlína Ak. náði miklu meiri
hraða í upphlaup sín. Upp úr
einu slíku upphlaupi var svo
Ak. dæmd hornspyrna, sem
Björn Olsen framkvæmdi mjög
vel. Leit út fyrir að knötturinn
myndi lenda í markinu, en svo
fór þó ekki, heldur datt hann
niður á þverslána og hoppaði
þrisvar eftir henni, en síðan
niður á völlinn. Meðan á þess-
um ósköpum stóð, biðu allir
leikmenn í ofvæni, en jafnskjótt
og knötturinn kom inn á völl-
inn, myndaðist þvaga framan
við markið og aftur tókst Stein-
grími að skora. Tvö mörk gegn
engu, Ak. í vil. Er um það bil
10 mín. voru eftir af hálfleik,
tókst svo Keflvi að skora sitt
fyrsta og eina mark. Var það
mjög fallega skorað mark. Góð-
ur samleikur með skiptingum
upp eftir vinstra kanti, sem
lauk með ágætu jarðarskoti frá
v. útherja, Skúla, sem kominn
var vel inn í vítateiginn. —
Seint í fyrri hálfleik tognaði
Tryggvi Georgsson, fyrirliði
Ak., og varð að yfirgefa völlinn,
en Hermann Sigtryggsson kom
inn í Eáns síáð. Lék hann v.
úth., en B. Olsen tók stöðu inn-
herja, og Skúli miðherja.
Síðari hálfleikur var að
mörgu leyti skemmtilegur fyrir
áhorfendur. Nóg af spennandi
augnablikum, án þess þó að
mark væri skorað. Var það oft-
ast mark Keflv. sem var hvað
eftir annað í mikilli hættu. Var
ótrúleg heppni þeirra, að ekki
skyldi vera skorað fyrr en raun
varð á. Það mun hafa verið um
eða eftir miðjan hálfleik, að Ak.
skutu þremur „dúndur“-skotum,
hverju eftir annað, en alltaf
varð einhver varnarmaður Kefl-
víkinga fyrir. Við þriðja skotið
hrökk knötturinn úr varnarm.
upp í loftið og enn var það
Steingr. sem tókst að senda
hann í netið, nú með skalla. Þar
með held eg að Steingrímur
hafi orðið fyrsti einstaklingur á
þessu íslandsmóti til að fram-
kvæma svokallað „hat trick“,
það er að segja, skora þrjú
mörk í sama leiknum. — Seint
í síðari hálfleik framdi h. bakv.
Keflv. gróflegt brot, sem dóm-
arinn dæmdi vítaspymu fyrir.
Auðséð var að Keflvíkingurinn
var ekki ánægður með þennan
dóm og mun í mótmælaskyni
hafa gengið inn í sitt eigið mark
og virtist ætla að standa þar
meðan vítasp. væri framkvæmd.
Eftir nokkuð þóf fékkst hann
þó fram á völlinn aftur. Steingr.
spyrnti vítasp., en beint í fang
markv., sem hélt þó knettinum
ekki. Barst hann fram á völl-
inn, einmitt til þess manns, sem
vítasp. hafði verið dæmd á.
Lentu þeir í einvígi, hann og
Páll Jónsson, og í skaphitanum
hrinti Keflvíkingurinn Páli dá-
lítið harkalega, dómaraflaut
kvað við og dómarinn benti
Keflvíkingnum út af vellinum.
Fyrirliði Keflv., Hafsteinn, mun
hafa mótmælt þessu, en út af
fór maðurinn. Ekki tók eg eftir
að dómari veitti Keflv. áminn-
ingu í sambandi við vítasp.dóm-
inn, og hafi það ekki verið, virð-
ist mér það anzi harður dómur
að visa honum út af fyrir síðara
brotið. Knattspyrnukappl. í Isl.-
móti er ekki nein bænasam-
koma, og slíkar hrindingar, sem
þessi var, eru sífellt að koma
fyrir í leikjum. Fleiri mörk
voru ekki skoruð í leiknum og
lauk honum því með sigri Ak-
ureyringa, 3:1.
Einst. leikmenn í liði Ak.
stóðu sig yfirleitt eins og búizt
hafði verið við. Bezti maður
liðsins og jafnframt á vellinum
var tvímælalaust Einar Helga-
son, markmaður. Leikur hans í
markinu var stórkostlegur.
Leikur Jóns Stefánssonar, mið-
framv., var ágætur. Hann hélt
niðri einum hættulegasta manni
Keflv., þar til hann skipti um
stöðu. í framlínu var Steingr.
beztur. Auk þess að skora öll
mörk liðsins, var hann dugleg-
ur og mjög vel vakandi allan
leikinn og þess vegna var það
hann, sem skoraði öll mörkin.
Árni Sigurbj. góður og traustur
og eins og venjulega beztur í
lok leiksins. Tryggvi góður
meðan hans naut við, ágengur
og harður í horn að taka. Arn-
grímur, sem er sýnilega í lítilli
æfingu, var afleitur framan af
leiknum, óviss og taugaóstyrk-
ur, en batnaði nokkuð er leið á
síðari hálfleik. Er það athugun-
arefni fyrir knattspyrnuráð,
hvort ekki er rétt að reyna ann-
an mann í þessari stöðu. Sigur-
óla hef eg oft séð betri, en þess
ber að gæta, að hér átti hann í
höggi við einn af beztu v. úth.
landsins, Skúla Skúlason. Tölu-
vert bar á því, að leikmenn
væru óstyrkir á taugum, sér í
lagi framan af leiknum og voru
sendingar þar af leiðandi óná-
kvæmar. Þá fannst mér einnig
vera áberandi að Ak. væru yfir-
leitt seinni á knöttinn. Þann
ágalla hafa þeir haft í langan
tíma og verða að laga hann.
Bezt væri, ef þeir vildu laga
þetta í næsta leik, sem verður
gegn Akurnesingum um næstu
helgi.
í liði Keflv. voru beztu menn
í sókn Högni Gunnlaugss. mið-
herji, fljótur og fylginn sér og
skotharður, Páll Jónsson, h. út-
herji, eldfljótur og lipur leik-
maður, og Skúli Skúlason, v.
útherji, fljótur og mjög lipur og
skemmtilegur leikmaður, sem
ræður yfir mikilli knatttækni.
Tel eg hann tvímælalaust bezta
leikmann úti á vellinum. I vörn
inni var Hafsteinn Guðmunds-
son langbeztur. Öruggur, bæði
á háum og lágum sendingum.
Dómari var Jörundur Þov-
steinsson frá Reykjavik, og
voru sumir dómar hans vafa-
samir. T. d. sló Árni knöttinn
með hendinni yfir markið, er
tekin var aukaspyrna, rétt við
vítateig. Hefur dómari vafa-
laust ekki tekið eftir þessu, en
hins vegar vissi Árni greinilega
upp á sig skömmina og gerði
ítrekaðar tilraunir til að fela sig
bak við félaga sína. Línuverðir
voru Kristján Freysteinsson og
Jón Beldivnsson og unnu verk
sín vel. — Á. 1.
«iiiiiiinii imiiim iiiiiii iii n HELGI VALTYSSON . iiiiiiiiiiimimiiiMiHiiuiinim*
BORIS PASTERNAK
Frá f járöflunarnefnd
orgelsjóðs Ak.kirkju
Fjáröflunarnefnd orgelsjóðs
Akureyrarkirkju vill votta öll-
um þeim, sem hingað til hafa
tekið þátt í orgelveltunni, svo
og einnig öllum, sem gefið hafa
fé í orgelsjóðinn, innilegustu
þakkir.
Sérstaklega vill nefndin færa
stjórn KEA og aðalfundi þess
beztu þakkir fyrir hina höfð-
inglegu gjöf.
Það er ósk og von fjáröflun-
arnefndar að orgelveltan takist
svo vel, að hægt verði að greiða
orgelið sem allra mest með
frjálsum framlögum Akureyr-
inga.
Þess vegna óskar nefndin eft-
ir því, að veltan verði ekki látin
stöðvast, heldur sjái þeir, sem
á er skorað sér fært, að leggja
fram sinn skerf, og skori jafn-
framt að minnsta kosti á þrjá
aðra hver maður, svo að sem
mest af því fé, sem þörf er á,
safnist með frjálsum framlögum
safnaðarmanna.
Hið nýja orgel mun verða
dýrgripur kirkjunnar, sem hæf-
ir vel reisn hennar og mun í
framtíðinni verða kirkjulegum
athöfnum hér til hins mesta
vegsauka og Akureyrarbæ til
ótvíræðs sóma.
Fjáröflunamefnd Orgelssjóðs
Akureyrarkirkju.
•1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
II.
Lýriskur skáldskapur Paster-
naks varð tiltölulega snemma
heimsfrægur og talinn hið
frumlegasta og ágætasta í rúss-
neskum nýtízkuskáldskap. Sér-
staklega unnu brezkir bók-
menntafræðingar að kynningu
á skáldskap Pasternaks. Og úr-
val af verkum hans hefur kom-
ið út á Bretlandi í fleiri útgáf-
um, m. a. „Prose & Pocms“, úr-
val af ljóðum og smásögum
Pasternaks fyrir 1933, sem kom-
ið hefur út í þremur útgáfum
með rækilegum formálum og
æviatriðum. — Þar segir m. a.:
Lofsamlegur rómur og heims-
athygli sú, sem saga Pasternaks
um Zivago lækni hefur vakið,
bætir engum nýmælum við
orðstír hans, heldur eykur að-
eins stórlega hina víðkunnu
frægð hans. —
Þessi brezka kynning á rit-
mennsku Pasternaks var upp-
haf þess, að bent var á hann
sem væntanlegan , ,Nóbel-
kandídat“ löngu áður, en hann
birti hugsanir sínar og listhæfni
í sögunni miklu, sem vakti
heimsathygli í einni svipan. En
er Sænska Akkademían loks
heiðraði hann með Nóbelsverð-
launum rithöfunda, sem gladdi
hann mjög, og hann hafði þegið
með þökkum, bannaði Sovét-
stjórnin honum að þiggja þessi
„pólitísku verðlaun". Skáld-
bræður hans sneru baki við
honum, ráku hann úr félags-
skap sínum og samtökum, og
blöð og útvarp jusu yfir hann
skömmum og svívirðingum með
óþverrálegustu) illyrðum rúss-
neskrar tungu úr lægstu dreggj-
um öreigastéttanna.
Pasternak varð að beygja sig
og auðmýkja fyrir ofbeldi og
ósvífni landa sinna, hafna verð-
launum og heiðri, sem hafði
glatt hann mjög, og varð auk
þess að „játa brot sitt og
breyskleika" og biðjast vægðar
að verða ekki gerður landræk-
ur úr ástkæru föðurlandi sínu!
Og í símskeyti sínu til Sænsku
Akkademíunnar afsalaði hann
sér Nóbelsverðlauna-heiðrinum
„sökum þess skilnings sem sam-
félag það, er eg lifi í, leggur í
þennan heiður.“
Samtímis hlutu einnig þrír
rússneskir eðlisfræðingar
(,,Spútnikfræðingar“) Nóbels-
verðlaunin á vísinda-vettvangi
og veittu þeim heiðri móttöku
úr konungshendi í Stokkhólmi
á sínum tíma. — En Pasternak
sat heima!
Þetta er veraldarsögulegur
atburður, er seint mun fyrnast.
Lýsir þetta rússnesku sovrét-
menningunni rækilega og mats-
hlutföllum hennar á vélmenn-
ingu og andlegum afrekum.
H J Ö R T U R
GÍSLASON :
HORFT
TIL
HAFS
Á bjarginu hjá vitanum hann stendur einn og starir, i
starir rökum augum á hafið sólu fáð, |
sem kallar fram í öldungsins vitund fyrr en varir
veröld minninganna um sorg og hetjudáð.
I*etta haf er sama og sigldi ég ungur forðum,
er sjóa ristu keipar og vindur reiða skók,
þá var ekki kveðið með tæpitungu orðum
né talað margt um guðspjöll í landkrabbanna bók. |
Þá var látið vaða á súðum yfir sundin,
sjaldan hafður maður við dragreipi né kló,
til yztu rasta lialdið og stjóri stefni bundinn,
ef stóðu járn í grána, af kappi höndin dró.
j Þetta haf er sama og syni mína deyddi,
— sorgar klukknahljóminn að húsi míriu bar —
j og banahöggið þunga gæfu minni greiddi.
| Ég gekk frá auðu nausti, mitt heima fallið var.
I Síðan hef eg gengið um grandann út að stöpum, |
í er geisað hafa stormar og öldur brotið sand,
| en ekkert hefir rekið af ævi minnar töpum,
I því útsogið er máttugt, það sleppir engu á land.
| Hvað er ég að rugla og rýna út í bláinn, |
1 — rökkrið lyftir faldi við sólarroðans ós, —
| hafið bærist ennþá og ævintýraþráin, i
i og ennþá sigla skipin. Ég kveiki vitans Ijós.
vlUlllllllllilltllllllllllllllllllll)111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111«
Furðulegur eftirleikur.
Eftir-að rússneskt útvarp og
blöð höfðu þagað um lát Paster-
naks í 2—3 dægur og síðan ráð-
ist gegn erlendum blöðum fyrir
hrósandi ummæli þeirra, og
sjálf enn farið niðrandi orðum
um ritmennsku Pasternaks og
hallmælt honum, berst furðuleg
frétt frá Moskvu um jarðarför
Pasternaks, er fram hafi farið
„í kyrrþey“, — Aðalefni frétta-
skeytisins er á þessa leið:
— Athöfninni scinkaði um
klukkustund, þar eð enn vildu
þúsundir manna sýna hinu
látna skáldi virðingu sína, þar
scm hann lá á líkbörunum.
Menn tindu blóm á ökrum og
engjum og stráðu á kistu
hans .... Margir kransar bár-
ust bæði frá skáldbræðrum hans
og samtökum rithöfunda og
annarra listamanna Sovétríkj-
anna. Ýmsir frægir, rússneskir
rithöfundar voru viðstaddir
sorgarathöfnina í húsi Faster-
naks . . . . og nokkrir af fremstu
hljómlistarmönnum Sovétríkj-
anna léku sorgargöngulag
Chopins . . . . o. s. frv. o. s. frv.
— Allt fer þctta fram í SOV-
ÉZKRI KYRRÞEY! — Hverjir
standa að slíkum fréttaflutn-
ingi? —
Er þetta ef til vill fyrirboði
þess, að nú eigi að reyna að
breiða yfir Pasternak-hneykslið
allt með því að skjóta spútnikk
hans „á braut umhverfis hnatt-
kríli“ vort, og varpa listrænum
frægðarljóma yfir hið mikla
föðurland hans, sem svívirti
hann niður í gröfina?
Helgi Valtýsson. ,