Dagur - 15.06.1960, Blaðsíða 7
1
Fjölmennt
Um hvítasunnuna fór fram
þriðja fermingarmótið, sem
haldio er að Laugum í Reykja-
dal á veg-um Æskulýðsnefndar
þjóðkirkjunnar. Var þetta hið
fjölmennasta með 213 þátttak-
endum.
Mótið var sett í leikfimisal
Laugaskóla kl. 4.30 annan í
hvítasunnu og voru þar öll
fundahöld. Ávarp flutti séra
Pétur Sigurgeirsson, en auk
hans voru í mótsnefnd séra Sig-
urður Guðmundsson á Grenjað-
arstað og séra Sigurður Haukur
Guðjónsson, Hálsi. Setningarat-
höfnin endaði með því að æsku-
lýðsfáninn dreginn að hún
og allir lásu saman úr ljóði Ein-
ars Benediktssonar: Rís þú
unga íslands merki.
Jónas Jónsson frá Brekkna-
koti stjórnaði íþróttum og leikj-
um báða dagana. Var keppt í
knattspyrnu, handbolta, boð-
sundi og ýmsum öðrum grein-
um.
Um kvöldið flutti hinn ný-
kjörni æskulýðsfulltrúi þjóð-
kirkjunnar, séra Ólafur Skúla-
son, ræðu um höfuðefni móts-
ins: Vertu trúr allt til dauða, og
Guð mun gefa þér lífsins kór-
ónu. Var honum ákaft fagnað
Laugamót
og hann hylltur af fundarmönn-
um.
Þá var kvöldvaka, sem séra
Birgir Snæbjörnsson stjórnaði,
en auk hans önnuðust séra
Kristján Búason og séra Ólafur
Skúlason þætti hennar. Kvöld-
bænir flutti séra Örn Friðriks-
son, en hann lék undir öllum
söng á mótinu.
Seinni mótsdagurinn hófst
með morgunbæn séra Sigurðar
Hauks Guðjónssonar. En þá
hófst biblíulestur. Hver prestur
hafði hóp ungmenna og las með
honum kafla úr ritningunni. —
Var það sagan um talenturnar í
Matth. 25. — Að því búnu hóf-
ust íþróttir. En kl. 2 e. h. var
guðsþjónusta og predikaði séra
Friðrik A. Friðriksson piófast-
ur á Húsavík. — Síðar um dag-
inn var mótinu slitið með fána-
hyllingu og sunginn var þjóð-
söngurinn. — Veður var gott
báða dagana. — Ávarp frá bisk-
upi íslands var prentað í dag-
skránni, og var það lesið af ein-
um þátttakenda, Guðríði Þór-
hallsdóttur. Risu allir úr sæt-
um í virðingar- og þakklætis-
skyni við herra Sigurbjörn Ein-
arsson, en hann var þá á ferða-
lagi í Ameríku.
Bif reiðaeigendur!
í sumar verður smurstöð vor opin sem hér segir:
AHa virka daga frá kl. 8 f. h. til 18.30, nema laugar-
daga frá kl. 8 f. h. til 11.30 f. h.
ÞÓRSHAMAR H.F.
Sími á smurstöð 1843.
e>
ý;
Ij Hjartans pakkir fœri eg ykkur öllum, sem glödduð
’f’ mig með heimsöknum, heillaóskum, htómum og höfð-
| inglegum gjöfum á 50 ára afmœli mínu 11. júní.
Lifið heil.
EINAR ST. SVEINBJÖRNSSON,
Norðurgötu 40, Akureyri.
»
I
i
£
Hjartanlega pakka eg öllnm peim sem glöddu mig
með heimsóknum, gjöfum og skeyturn á 70 ára afmceli
mínu 6. júni sl. Scrstaklega pakka ég félagsmönnum
hestamannafélagsins Léttis. Allur sá hlýhugur gerði
mér daginn óglcymanlegan.
ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON frá Eyrarlandi.
V
!
I
£
l
£
£
£ Alúðarfyllstu pakltir flyt ég hér með öllum vinum
% og kunningjum, fjcer og ncer, sem með gjöfum, licim-
tj sóknum og skeýtum, glöddu mig á sjötugsafmœli minu
£ pann 7. p. m. Árna ég peim allra heilla.
3.
ARNGRIMUR ARNGRIMSSON, Dalvik.
Eiginkona mín,
FJÓLA KATRÍN JÓNSDÓTTIR,
scm andaðist 12. þ. m. verður jarðsungin frá Akureyrar-
kirkju laugardaginn 18. júní kl. 2 e. h.
Fyrir hönd vandamanna.
Alfreð Steinþórsson.
«iiiiiiiiiciiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiii(iiiaiiiiiaiiiiitiiiiiiiiiii||a
NÝJA-BÍÓ {
Sími 1285 |
i Aðgöngumiðas. opin frá 7-9 |
i sýnir 17. júní kl. 5 og 9 i
i heimsfræga bandaríska =
i stórmynd: i
I Og sóiin rennur upp |
fAðalhlutverk: H
Tyrone Power,
i Ava Gardner, i
Mel Ferrer,
i Errol Flynn, i
i Eddie Albert. 1
i Þessi heimsfræga stórmynd, i
i tekin í litum og' Cinema- i
i scope, var páskamynd Nýja- i
i Bíós í Reykjavík og byggist i
i á samnefndri sögu eftir Nó- i
i belsve/ðlaunaskáldið Ernest i
| Heminway, sem komið hefur i
i út í íslenzkri þýðingu. i
i Bönnuð börnum innan i
i 12 ára. i
............................. 1111111111?
•iiiiiiiiiiiiiiiiitiiititiiiniHittiiititiiiiiiiitttitiiittii«l|ft
| BORGARBÍÓ {
1 Sími 1500 i
É Aðgöngumiðasala opin frá 7—9 E
i Myndir vikunnar:
| HJÓNASPIL |
i (The Matchmaker.) i
i Heimsfræg amerísk gaman- i
i mynd, byggð á samnefndu i
i leikriti, sem sýnt var í Þjóð- i
i leikhúsinu síðastl. vetur. i
iAðalh'lutverk: i
Shirley Booth, i
i Anthony Perkins. §
| Pabbi okkar allra |
i (Padri e Figli.)
i ítölsk-rfönsk verðlunamynd í i
|Aðalhlutverk:
Vittorio de Sica,
Marcello Mastroianni, i
i Marsia Merlini. i
iit 111 • t iiiiinn t tii 111 tii ti t nntti t tittiii ti tt t ttt tntt t tiii t?
Súkkulaði spænir
í plastpokum.
Ódýrt og gott sem suðu-
súkkulaði og kökuskraut.
KJÖTBÚÐ K.E.A.
Blúndubiússurnar
margeftirspurðu,
komnar aftur.
N Y K O M I Ð :
Dökkir
netnvlonsokkar
J
Margir litir.
Nýjasta tízka.
Vöruialan
HAFNARSTRÆTf IOH
AKUREYRI
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju á sunnudaginn kemur,
19. júní, kl. 10.30 árdegis. Séra
Sigurður Stefánsson, vígslubisk-
up, messar.
Dregið var í innanfélagshapp-
drætti Kristniboðsfélags kvenna
á Akureyri 12 júní. Upp komu
þessi númer: 107: Veggteppi. —
242: Lampi. — 249: Blómstur-
vasi. — Vinninganna má vitja
til Elinborgar Jónsdóttur,
Munkaþverárstræti 38, Akur-
eyri. — (Birt án ábirgðar.)
Þar sem grasvöllurinn á
íþróttasvæðinu kemur til með
að vera mikið notaður í sumar
við mót og æfingar, er hér með
alvarlega skorað á alla þá, sem
ekki hafa fengið leyfi til afnota
af grasvellinum, að fara ekki
inn á hann. Mikil brögð eru að
því að drengir og unglingar fari
inn á völlinn með bolta og leiki
sér í mörkunum. Munu flögin,
er myndast framan við mörkin
að mestu koma vegna þessa
ágangs. Litli malarvöllurinn
austan grasvallarins er opinn
alla daga til æfinga, og ættu því
drengir ekki að þurfa stærri
völlinn. Verði áframhald á þess-
ari ágengni á grasvöllinn sér
Vallarráð sér ekki annað fært
en að banna öll afnot af svæð-
inu, bæði grasvelli, æfingavelli
og brautum. Þarf þá sérstakt
leyfi til æfinga og kappleikja.
Þakkarávarp. — Innilegustu
þakkir viljum við færa öllum,
sem aðstoðuðu við vígsluathöfn
í Pálmholti 11. júní sl. Sömu-
leiðis þeim, sem gáfu peninga-
upphæðir og aðrar góðar gjafir
á 10 ára afmæli barnaheimilis-
ins. Guð blessi ykkur öll. Kven-
félagið Hlíf.
Frá Ferðafélagi Akureyrar.
Árbók Ferðafélags íslands 1960
hefur borizt til Akureyrar og
verður afgreidd í skrifstofu fé-
lagsins í kvöld og annað kvöld
frá kl. 8—10 e. h., og í næstu
viku kl. 8.30—9.30 e. h. Bókin
fjallar um Suðurjökla og er rit-
uð af Guðmundi Einarssyni frá
Miðdal. Bókin er prýdd fjölda
mynda.
Næstu ferðir Ferðafélags
Akureyrar eru Grimseyjarför
18. júní og Þeistareykjaför 25.
—26. júní. — Væntanlegir þátt-
takendur hafi sem fyrst sam-
band við Álfheiði Jónsdóttur í
Skóverzlun Lyngdals, sími 2399,
sem veitir allar frekari upplýs-
ingar.
Iljónacfni. Nýverið opinber-
uðu trúlofun sína í Rvík ungfrú
Svanhildur Halldórsdóttir, skrif
stofumær, frá Varmahlíð,
Reykjadal, S.-Þing., og Arnald-
ur Valdemarsson, skrifstofum.,
Skaftahlíð 10, Reykjavík.
Hjúskapur. Nýlegn voru gefin
saman í hjónaband í Reykjavík
ungfrú Kristín Tryggvadóttir,
hjúkrunarkona, frá Laugabóli í
Reykjadal, S.-Þing., og Jón
Bjarnason, verzlunarm., Snorra-
braut 63, Reykjavík.
Iljúskapur. Þann 4. júní voru
gefin saman í hjónaband brúð-
hjónin ungfrú Sigríður Gréta
Þorsteinsdóttir og Sigurgeir
Angantýsson bifvélavirkjanemi.
Heimili: Eiðsvallagötu 24, Ak.
— Þann 5. júní ungfrú Ingi-
björg Kolbrún Geirsdóttir og
Jóhann Sveinn Hauksson sjó-
maður. Heimili: Þverholt 8, Ak.
— Þann 5. júní ungfrú Hulda
Róselía Jóhannsdóttir og Jó-
hannes Oli Garðarsson kennari.
Heimili: Vík í Mýrdal. — Þann
11. júní ungfrú Hólmfríður Elsa
Guðmundsdóttir og Rafn Hjart-
arson húsasmíðanemi. —
Heimili: Heiðarbraut 9, Akra-
nesi. — Þann 12. júní ungfrú
Gréta Kolbrún Guðvarðardóttir
og Jón Hlíðberg Ingólfsson iðn-
aðarmaður. Heimili: Aðalstræti
10, Akureyri. — Þann 12. júní
ungfrú Gréta Stefánsdóttir og
Páll Hólm Gíslason, sjómaður,
Strandgötu 25 B, Akureyri.
Systrabrúðkaup. Laugardag-
4. júní sl. gaf sóknarpresturinn
í Vallaprestakalli í Svarfaðar-
dal saman í hjónaband í Valla-
kirkju brúðhjónin Gerði Jóns-
dóttur kennara Jónssonar frá
Böggvisstöðum og Arngrím Ægi
Kristinsson Hallgrímssonar í
Miðkoti, og Filippíu Jónsdóttur,
alsystur Gerðar, og Hafstein
Braga Pálsson skipstjóra Guð-
laugssonar í Miðkoti.
Fimmtugur varð 8. þ. m. Her-
mann Vilhjálmsson, verkstjóri,
Löngumýri 35, Akureyri.
Þeir, sem eiga eftir að fá fæð-
ingarvottorð vegna fjölskyldu-
bóta, eru vinsamlega beðnir um
að vitja þeirra fyrir 20. þ. m. —
Pétur Sigurgeirsson.
St. Ísafold-Fjallkonan nr. 1
heldur fyrsta fund sinn að
Bjargi — félagsheimili Sjálfs-
bjargar — fimmtudaginn 16.
kl. 8.30 e. h. — Vígsla nýliða.
Skemmtiatriði. Kaffi. Dans. —
Félagar, fjölmennið. Allir templ
arar velkomnir! — Æt.
- FRÉTTIR ÚR NÁGRENNINU
Framhald af S. síðu.
að heimsækja bændur, eftir því,
sem tími vinnst til. Það er
Bændafélag Þingeyinga og
Harpa í Reykjavík, sem tóku
höndum saman. Þessir aðilar
veita verðlaun fyrir það heimili
héraðsins, sem bezt er talið
verðskulda þau vegna fegrunar
og ytri umhirðu.
í dag er jarðsungin á Húsavík
Helga Þorgrímsdóttir frá Hraun
koti. Hún var á níræðisaldri og
merk kona.
Húseyjarkvíslarbrú
Blönduósi, 14. júní. — í gær
í gær var brúin af Húseyjar-
kvísl flutt vestur í Svartárdal
og verður hún sett á Svartá hjá
Barkastöðum.
Verið er að setja niður 10
metra ker við hafnargarðinn
hér.
Olafur Björnsson, Holti,
Torfalækjarhreppi, verður 70
ára 19. þ. m. Kona hans er
Jósefína Pálmadóttir frá Æsu-
stöðum. Þau bjuggu lengst af í
Bólsstaðarhlíðarhreppi, eiga
þi'jú uppkomin börn, sem öll
eru búsett í sýslunni og dvelja
þau hjá einu þeirra, Ragnari
bónda í Holti.
Karlakór Bólstaðarhlíðar fer
17. júní í ferðalag austur um
land og allt austur á Hérað.
Laxveiðar eru byrjaðar bæði
í Blöndu og Laxá í Ásum.