Dagur - 29.06.1960, Blaðsíða 1
mmmmmimmiiimimÍíiimmiíiiiiiimmíiimmíimmmíiiiiímmimmmi«i*
:NiÁt.«A< ,N i RAMSÓKNARMA\NA
RrrsTjoRi: Lki.ikci r Davíb'-son
Skuivsioi-a i H.U’.narsir.i.ii 90
SÍM! 1106 . Sl.rNI.Nt.il.: OU !-ltKMt.N
annast Pkkntvkrk Oaos
Bjóirnssonar n.r. ,\kí:iu-:vri
XLIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 29. júuí 1960 — 31. tbl.
Alt.kvsiníiast ]óití: jó,\ Sam-
H I.'SON . /Í.RGANlU’RiNN kóstar
Kk. 100.00 . CjAi.DDAGi f.í: 1. jOtt
BjLADÍS KEMl.’R rr Á Ml»V!Kt.lDÖG-
VM OC Á ! AU.ARIKH.IM
H-.CAK ÁSI /HIA !>’. KIU nl.
IMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
IMMtlllllfll*
SÍLDARVERÐ - SÍLDARSALA
Áður en síldveiðar hófust
fyrir norðan land höfðu
samningar tekizt um sölu á
230 þús. tunnum síldar. En á
síðasta sumri nam söltun á
Norður- og Norðausturlands-
síld um 215 þús. tunnum.
Sovétríkin kaupa stærstan
hluta, eða um 120 þús. tn.
Samkvæmt samningum
Landssambands ísl. útvegs-
manna og félags síldarsalt-
enda er síldarverðið 243
kr. fyrir uppsaltaða tunnu,
en 110 kr. fyrir málið í
bræðslu.
S. í. S. seldi innlenda f ramleiðslu
fyrir 520 millj. kr.
Jakob Frímannsson kosinn stjórnarformaður
Sambandsins á síðasta aðalfundi þess að Bifröst
Nýr frambyggður báfur
Bátur sá, sem hér birtist
mynd af, er 27 smálestir að
stærð og byggður í Slippstöð-
ini h.f. á Akureyri eftir teikn-
ingu Tryggva Gunnarssonar. —
Yfirsmiður var Þorsteinn Þor-
steinsson, skipasmíðameistari á
. Akureyri.
Eigandi er Páll A. Pálsson,
Akureyri, og ætlar hann á síld-
veiðar, þegar báturinn er tilbú-
inn, sem væntanlega verður
upp úr helginni. Sennilega ber
hinn nýi bátur, sem heitir
Björgvin, allt að 400 tunnur
síldar. Vél bátsins er 220 hest-
afla G. M. Dieselvél.
Nýi Björgvin er fyrsti fram-
byggði báturinn hér á 'landi af
þessari stærð. Hann er búinn
kraftblökk. Eigandinn verður
sjálfur með bátinn og vonandi
aflar hann vel.
*IIIIMIIIIHIHIIIII
| Hornafjarðar- I
1 fljót brúað
Þorvaldur Guðjónsson brúar-
smiður á Akureyri, sem er
kunnur brúarsmiður og hefur
byggt fjölda minni og stærri
brúa víða um land, stjórnar
nú smíði nýrrar 255 metra brú-
ar á Hornafjarðarfljót.
Lengsta brú á íslandi er Lag-
arfljótsbrú, 300 metrar.
Björgvin, hinn nýi bátuar Páls A. Pálssonar á Akureyri.
ÞÓR TÓK BREZKÁN TOGARA
NORÐÁN VIÐ GRÍMSEY í GÆR
Togaraskipstjórinn skelfdist komu Þórs og lokaði
sig inni í brúnni - Brezkt herskip kom á veftvang
Eftir hádegi í gær kom Þór að brezka togaranum
Northern Queen um 2 sjómílur innan fiskveiði-
takmarkanna norðvestur af Grímsey. Togarinn
var þar að veiðum. — Varðskipsmenn sendu þeg-
ar menn um borð í togarann, en skipstjórinn lok-
aði sig inni í brúnni og virtist mjög miður -sín.
Togarasjómennirnir sýndu engan mótþróa. —
Brezka herskipið Duncan kom von bráðar á stað-
inn og sendi einnig menn um borð í togarann.
Um klukkan 7 í gær voru öll skipin enn stödd á
sama stað og ókunnugt um afstöðu brezka flota-
málaráðuneytisins til þessa máls. — Nú eiga Bret-
ar næsta leik og verður fróðlegt að fylgjast með
frambaldinu.
I Fulltrúaþing |
á Laugum
I Á laugardaginn hefst kjör- \
I dæmisþing Framsóknarfélag-1
í anna í Norðurlandskjördæmi i
I eystra að Laugum í Reykja- i
i dal. |
f Karl Kristjánsson setur i
: þingið, þar verða m. a. sett i
| lög fyrir væntanlegt sam- i
f band Framsóknarfélaganna i
| í kjördæminu og sagt frá i
i störfum síðasta Alþingis. — i
i Sjá nánar auglýsingu um i
i fundinn í blaðinu í dag. i
Aðalfundur Sambands ísl.
samvinnufélaga, sá 58. í röðinni,
var haldinn að Bifröst í Borgar-
firði — félagsheimili samvinnu-
manna, dagana 22. og 23. júní
sl. Fundarstjórar voru Jörund-
ur Brynjólfsson og Þórarinn
Eldjárn.
Minnzt var í upphafi fundar-
ins hinna kunnu samvinnu-
manna, Þórhalls Sigtryggssonar
og Sigurðar Bjarklinds.
Sigurður Kristinsson flutti
skýrslu Sambandsstjórnar. —
Fjárfestingar voru litlar á ár-
inu. Þó var lokið við byggingu
ullargeymslu á Akureyri, unnið
að byggingu kennarabústaðar
að Bifröst og viðbótarbyggingu
við Samvinnuskólann þar,
keypt húseign í Vestmannaeyj-
um fyrir afurðasölu og fest
kaup á verksmiðju og frystihúsi
í Harrisburg í Bandaríkjun-
um fyrir sölufélag Sambandsins
þar í landi.
Erlendur Einarsson gaf m. a.
þær upplýsingar, að félagsmenn
samvinnufélaganna hefðu í árs-
lok 1959 verið 30.928. Samband-
ið seldi innlendar vörur fyrir
520 milljónir króna, þar af land-
búnaðarafurðir fyrir 257,4 mill-
jónir, sjávarafurðir fyrir 172,7
milj. og iðnaðarvörur frá
Framhald, á 2. síðu.
Beiskur sannleikur
Stjórnarflokkarnir óttast mjög gerðir sínar í efnahagsmálunum,
enda eru þær fordæmdar af öllum almenningi. Þeir biðja um
vægð, góðu lífskjörin komi einhvern tíma seinna. Að sjálfsögðu
vona flestir að betri tímar komi, en þeir verða ekki einni eða
neinni íhaldsstjórn að þakka.
— Hinn beiski sannleikur er sá, að heitið var stöðvun verðbólg-
unnar, en lileypt af stað óðaverðbólgu.
— Skattalækkun var lofað, en nýjum sköttum velt yfir þjóðina.
— Erlendar lántökum voru fordæmdar, en tekið nær 800 milljón
króna erlent eyðslulán.
— Sparnaði var heitið á opinberum rekstri, en eyðsla aukin á hinn
blygðunarlausasta hátt, en hvergi sparað nema í aðstoð við
verklegar framkvæmdir.
— Verzlunarfrelsi var boðað, en stórkostlegur samdráttur fram-
kvæmdur í viðskiptalífinu.
— Hækkun fjárlaga alveg fordæmd, en þau hækkuð um 50—60%.
— Heitið var bættum lífskjörum, en í þeirra stað er ráðizt á lífs-
kjör almennings, en þeim ríku hlíít.
Svo eru stjórnarflokkarnir að biðja fólkið um gott veður.
Bygging keðjuhúsa í undirbúningi
í hinni þrotlausu leit leik-
manna og húsagerðarmanna að
þægilegum, fögrum, ódýrum og
hlýjum hússakynnum, hefur
margt fundizt, en þó fátt á síð-
ustu árum.
Einbýlishús bæjanna eru vin-
sælust og þjóna bezt sérlund-
uðu fólki, en þau eru of „pláss-
frek“ og dýr.
Nú ætlar Ágúst Jónsson
Áímælissamkonia í Vsglaskógi
Afmælissamkoma Skógrækt-
arfélags Eyfirðinga, sem haldin
verður í Vaglaskógi á sunnu-
daginn kemur, og getið var í
síðasta blaði, hefst með guðs-
þjónustu kl. 14. Séra Sigurður
Haukur Guðjónsson messar.
Ræðumenn verða prófessor
Richard Beck og Hákon Guð-
mundsson, hæstaréttarritari,
auk formanns félagsins, Guðm.
Karls Péturssonar, yfirlæknis,
sem setur samkomuna. Smái'a-
kvartettin á Akureyri syngur.
Dansað yerður laugax-dags- og
sunnudagskvöld í Brúaiiundi.
byggingameistari, ásamt Kon-
ráði Árnasyni byggingameistara
og Árna Sigurðssyni smið, að
hefja byggingu keðjuhúsa.
Þeir félagar hafa fengið sam-
þykki Húsnæðismálastjórnar til
byggingaframkvæmdanna og
nauðsynlega fyrirgreiðslu af
bæjarins hálfu (nema kannske
bankanna) — m. a. fengið 17
lóðir í Glei'árhverfi til að
byggja keðjuhúsin á.
Mun ráðgert að byggja fyrstu
húsin nú í sumar og selja þau
fokheld. Bílskúrarnir tengja
keðjuhús þessi saman. Á neði'i
hæð fara heimiiisstörfin fram,
því að þar er eldhús, þvottahús
og stofa (sjá augl. í blaðinu í
dag), en svefnhei'bergin eru
uppi og góðar svalir. Gaman
verður að fylgjast með því,
hversu til tekst með keðju-
húsin.