Dagur - 07.09.1960, Blaðsíða 2
2
SVIPTIR SÁLRÆNU ÖRYGGI |
AlþýðumaSurinn kvartar undan því í gær í leiðara sínum, |
í að mennirnir, sem standi í eldinum fyrir okkur í landhelgis- i
i deilunni. séu sviftir því „sálræna öryggi að vita einliuga þjóð =
1 að bald sér.“ Athugum þetta nánar. f
1 Fjöldafundir í öllum landshlutum hafa skorað fastlega á =
i ríkisstjórnina að þoka hvergi fyrir Bretum í landhelgismál- f
f inu frá margyfirlýstri stefriu ríkisstjórnar, Alþingis og allra r
i stjórnmálaflokka í landinu. Þetta er ríkisstjórninni — mönn- [
f unum, sem standa í eldinum fyrir okkur — öruggasti stuðn- E
í ingur, sem einhuga þjóð getur gefið ríkisstjórn sinni. [
Sé það hins vegar svo, að ríkisstjórnin ætli að bregðast f
f skyldu sinni í þessu máli, og á því leikur töluverður grunur, i
i svo að ekki sé meira sagt, þá hefur hún sannarlega ekki ein- [
i huga þjóð að baki sér, og er því svift því „sálræna öryggi að i
i vita cinhuga þjóð að baki sér,“ svo sem ritstjóri Alþýðu- f
f mannsins- hefur á orði.
Ertu búinn að synda
200 metrana?
1250 Akureyringar geta nú
svarað spurningunni játandi.
Seinast, þegar keppnin fór
fram, syntu 1508 bæjarbúar. —
Mjög margir eiga því nú eftir
að gera skyldu sína. Innilaugin
er til afnota eingöngu fyrir
keppendur í norrænu sund-
keppninni, á tímanum frá kl.
8—9 á morgnana og 6—9.30 á
kvöldin. Bezt er að draga nú
ekki lengur framkvæmdina á
því að skreppa upp í sundlaug
og synda 6 ferðir í útilauginni,
eða 16 ferðir í innilauginni. —
Taktu félaga þinn með þér og
stuðlaðu að sigri Akureyi'ar í
þriggja bæja keppninni. — II.
Leikfélagið byrjar starfsemi sína
Leikfélag Akureyrar er þeg-
ar farið að undirbúa næsta leik-
ár og má segja, að byrjað sé á
réttum enda, þar sem kennslan
gerigur á undan.
Leiklistarskólinn er þegar
tekinn til starfa undir stjórn
Jónasar Jónassonar, sem áður
hefur komið hér við sögu í leik-
listarmálum. Skólinn er vel
sóttur. Þar er kennd framsögn,
látbragðalist o. fl.
Næsta verkefni félagsins, sem
jafnframt er það fyrsta á leik-
árinu, sem nú fer í hönd, er
þegar ráðið.
Jónas Jónasson setur leikinn
á svið.
Leikfélagið hefur margar
í'áðagerðir á prjónunum að
þessu sinni og hefur m. a. áhuga
á að sýna óperettu næsta vetur,
og er vonandi að af því geti
orðið.
Eins og sagt er frá áður, hef-
ur verið rætt um breytingar á
Samkomuhúsinu í því skyni að
bæta aðstöðu leikhússgesta. —
Nefnd, sem kosin var til að
gera tillögur um þetta, skilaði
áliti í sumar, en ekki er blað-
inu kunnugt um, að breytingar
séu ákveðnar í bæjarstjórn.
- NÝ NIÐURSUÐUVERKSMIÐJA Á AKUREYRI
í Fyrsti aðalfundur rafvirkjameistara, sem hér á landi hefur verið haldinn utan Reyltjavíkur,
i var setíur í Húsmæðraskólanum á Akureyri kl. 10 á Iaugardaginn var og voru mættir um
i 40 manns úr öllum landsfjórðungum. — Auk venjulegra aðalfundarstarfa fluttu tveir erlend-
I ir menn erindi, sem var ágætlega tekið af fundarmönnum. — Stjórn R. F. í. skipa: Gísli Sig-
i urðsson, form., aðrir í stjórn: Gissur Pálsson, Siguroddur Maghússon, Ríkarður Sigmunds-
| son og Viktor Kristjánsson. - Laxárvirkjunarstjórn bauð fundarmönnum til Mývatnssveitar
I og Laxárvirkjunar. — Ákveðið er að stofna nýtt rafvirkjameistarafélag, sem nái yfir allt
= orkuvcitusvæði Laxár og mun það félag þá verða aðili að þessum landssamtökum rafvirkja-
i meistara. Stofnfundurinn mun bráðlega verða haldinn. Myndin tckin á tröppum Húsmæðra-
i skóla Akureyrar. — (Ljósmynd: E. D.).
(Framhald af 1. síðu.)
veginn árviss, til niðursuðu í
stórum stíl. Norðlenzkir þing-
menn lögðu tii, að Alþingi
skipaði nefnd til að rannsaka
hráefnið, skilyrði til byggingar
niðursuðuverksmiðju á Akur-
eyr og áætla kostnað. Þar með
var mál þetta komið á nokkurn
rekspöl. Nefndin hafði náið
samstarf við Kristján Jónsson
og reynslu hans í niðu^suðu
síldar. Árangur alls þessa er sá,
að fyrirtækið Niðursuðuverk-
smiðja Kristjáns Jónssonar &
Co. reisti í sumar verksmiðju-
hús og féll gamla verksmiðjan
þar inn í. Fengnar voru vélar
af nýjustu gerð frá Noregi og
ný verksmiðja tók til starfa 8.
ágúst í sumar. Ríkið aðstoðaði
við lánsútvegun. Með þessari
verksmiðju á að fást úr því
skorið, hvort niðursuða smá-
sildarinnar, og þá væntanlega
einnig annarrar síldar og fleiri
sjávarafurða til útflutnings
borgar sig.
Á miðvikudaginn var áttu
blaðamenn kost á að skoða
verksmiðjuna. Aðalbyggingin
er 480 fermetrar að stærð, stál-
grindahús á steyptum grunni,
járnklædd utan, asbest innan,
einangruð með wellit, plasti og
korki. Vinnuskilyrði eru hin
beztu.
iMBiWl
Skagfirðingur siglir
Sauðárkróki, 5. sept. — Afli
er tregur hjá togskipum. Skag-
firðingur mun sigla með afla á
Þýzkalandsmarkað einhvern
næsta dag.
Fólk hrúgast í berjamó, oft í
Fljótin, en þar er berjaspretta
hin ágætasta.
Aðalfundur
Bárðardal, 15. sept. — Á
sunnudaginn hélt Framsóknar-
félagið aðalfund sinn að Sand-
vík. Hann var vel sóttur og
nokkrir menn gengu í félagið.
Þórólfur Jónsson, bóndi í
Stórutungu, og formaður félags-
ins, stjórnaði fundi.
Karl Kristjánsson, alþingis-
maður, flutti erindi um stjórn-
mál og svaraði fyrirspurnum.
Stjórn félagsins var endur-
kosin. Hana skipa: Þórólfur
Jónsson, form., Þorsteinn Jóns-
son, Bjarnastöðum, og Páll H.
Jónsson, Lækjarvöllum, með-
stjórnendur.
Heyskap er að ljúka, þótt
víða sé verið í heyi ennþá.
Farið verður í göngur á Vest-
urafrétt Bárðdæla 9. þ. m. og
eru það þriggja daga göngur.
Vegna nýs ákvæðis í réglugerð
fyrir sýsluna, eru göngur nokkr
um dögum fyrr hér en áður og
þykir sumum miður, þegar svo
viðrar sem nú.
Af skíðhvalakyni!
Ófeigsstöðum, 6. sept. — Ný-
lega veiddist kynjafiskur í
Skjálfandafljóti fyrir landi
Rauðuskriðu, og var hann tal-
inn blendingur af rauðmaga,
laxi og bleikju. Þó þykjast
sumir menn sjá þess merki, að
fiskur þessi sé af kyni skíð-
hvala. Fiskurinn var 45 sm. á
lengd, sver um miðju og með
undarlegum bakugga, hvoru-
kyns telja menn hann vera og
öll var skepna þessi dularfull
og mikið rannsóknarefni.
Allir eru búnir að heyja sæmi-
lega og flestir hættir. Mikil var
hér berjaspretta og kartöflu-
spretta er einnig mikil orðin.
Hveravallaleiðin
Blönduósi, 6. sept. — Sáuð-
fjárslátrun hefst 14. sept. og
lýkur 19. okt. Slátrað verður
34.700 fjár.
Hveravallaleiðin er orðin
flestum bifreiðum fær og mun
verða fjölfarin, enda glæsileið.
Síðasta veiðidaginn veiddust
á stöng 16 laxar í Svartá og
voru þeir 12 pund til jafnaðar.
Veiði í Blöndu var léleg í ágúst.
Heyskap má heita lókíð. —
Hey eru mikil og nýting fram-
úrskarandi.
Fyrstu réttir eru 18. þ. m.
Róa með línu
Dalvík, G. sept. — Baldvin
Þorvaldsson og Júlíus Björns-
son hafa róið með línu og aflað
þolanlega. Hannes Hafsteiri var
að fara út með reknet. Trillur
hafa róið og stundum aflað
sæmilega.
Heyskap er víðast lokið og
nú munu vera meiri hey en
nokkru sinni áður.
Kristján Jónsson á sjálfur
„nótabrúk" er aflar hráefnisins
á innanverðum Eyjafirði. Mest
er notað 12—15 sm. síld og eru
8—12 síldar í hverri dós. Síldin
er fyrst pækilsöltuð, síðan taka
við vélar hver af annarri. Sú
fyrsta flokkar síldina eftir
stærð, sú næsta þræðir hana
upp á vírbönd og þaðan fer hún
inn í reykingaofn. Reykingaofn-
arnir eru 12 að tölu og þar er
brennt eik. Ur reykofnunum
taka vélarnar við á ný, sú
fyrsta haussker síldina og svo
taka faeribönd við og flytja
hana til kvennanna, sem leggja
hana niður í dósirnar og þaðan
fer hún í suðupottrnn, síðan eru
dósirnar þvegnar, límt á þær
vörumerkið og þær síðan látn-
ar í pappaumbúðir, 100 dósir í
kassa.
Smásíldin er seld undir vöru-
merkinu Síldarsardínur. Verk-
smiðjan er nú að sjóða niður 1
milljón dó’sáv sem-fara eiga til
Tékkóslóvakíu. Síldin er ýmist
lögð í olíu eða tómatsósu og er
ljúffengasti matur, og einkar
handhægur. Hráefnið er talið
mun betra en t. d. í Noregi, þar
sem niðursuða og niðurlagning
smásíldar fer fram í stórum stíl.
Forráðamenn verksmiðjunn-
ar miða full afköst við 35 þús.
dósir á dag af smásíld eða úr 70
tunnum síldar. Á milli 80—90
manns vinna nú í verksmiðj-
unni, þar af 15 karlmenn.
Reynt verður að starfrækja
verksmiðjuna allt árið og við
niðursuðu fleiri vara en smá-
síldar og mun reynslan skera
úr því, hver verkefnin verða
hagfeldust.
Eigendur verksmiðjunnar eru:
Jón Kristjánsson, Kristján
Jónsson, Mikael Jónsson, Jón
Árni Jónsson og Hjalti Ey-
mann. Jón Kristjánsson er for-
maður verksmiðjustjórnar,
Mikael og Kristján annast fram
kvæmdastjórn og Hjalti er
verkstjóri.
Sköpun verðmæta úr auð-
lindum hafsins verður óefað sér
grein íslendinga um langa fram
tíð. En á þeim vettvangi bíða
mörg verkefni, ekki sízt í hvers
konar iðnaði sjávarafurða.
Iðnaðurinn margfaldar verð-
mæti hráefnisins og byggir upp
atvinnulífið. Hver ný iðngrein í
þá átt er því góður áfangi.