Dagur - 19.10.1960, Blaðsíða 2
2
Fjárlög hafa hækkað um þriðjung
Framhald af 1. síöu.
Ríkisfangelsi.
Helzta mál ríkisstjórnarinnar,
enn sem komið er, fyrir utan
fjárlögin, er frumvarp um rík-
isfangelsi í stað „Steinsins“ við
Skólavörðustíg, stækkun Litla-
Hrauns og bráðabirgðafangelsi
í „kjallara“ lögreglustöðvar-
innar, svo og um héraðafang-
elsi.
NOKKUR ÖNNUR MÁL.
Hafnarframkvæmdir.
Þingmenn Farmsóknarflokks-
ins hafa lagt fram frumvarp um
lækkun vaxta, svo sem sagt er
frá á öðrum stað í blaðinu.
Gísli Guðmundsson og fleirí
Framsóknarþingmenn hafa-
flutt frumvarp um lán til hafn-
arframkvæmda. Þar er gert ráð
fyrir að ríkið endurláni til
hafnarframkvæmda á 2—3 ár-
um 196 milljónir króna, sem
tekið verði að láni erlendis. Er
á það bent í greinargerð, að
ekki verði hægt að gera nauð-
synlegt átak í þessum málum
án erlends lánsfjár. Fyrir Norð-
urland skiptir það, eins og
kunnugt er, miklu máli, hvort
hægt verður að halda þar
áfram hafnarframkvæmdum,
sem unnið hefur verið í áföng-
um undanfarin ár.
Framlag til jarðræktar-
vélakaupa.
Ágúst Þorvaldsson og fleiri
Framsóknarþingmenn flytja
frumvarp um breytingu á lög-
um um jarðræktarsamþykktir.
Þar er lagt' til, að haldið verði
áfram að greiða ríkisframlag til
jarðræktarvéla, sem ræktunar-
samböndin kaupa, 50% kostn-
aðar, og til endurnýjunar á
slíkum vélum. En aðstoð sú,
sem áður var, hefur verið felld
niður af núverandi stjórnar-
flokkum.
Lán út á veiðarfæri.
Jón Skaftason og fl. flytja
þingsályktunartillögu um, að
athhugaðir séu möguleikar til
að skipuleggja í einni eða fleiri
lánastofnunum föst lán út á
Barnarveniclardagiir
Eins og að undanförnu hefur
Barnaverndarfélag Akureyrar
fjársöfnun fyrir starfsemi sína
fyrsta vetrardag, en það er n.k.
laugardag. Fer þá fram merkja-
sala félagsins, einnig verður þá j
seld hin vinsæla barnabók Sól-
hvörf. Þess er vænst að bæjar-
búar muni nú, eins og jafnan
áður, taka vel á móti sölubörn-
unum.
Allur ágóði Barnaverndar-
dagsins gengur til leikskóla íé-
lagsins — Iðavallar. Þar eru nú
45 börn. Forstöðukona leikskól-
ans er Dóróthea Daníelsdóttir. !
Enn skuldar félagið mikið eft- |
ir hið myndarlega átak að |
byggja Hinn smekklega leik-
skóla á Oddeyri. En það er trú
forráðamanna félagsins, að bæj-
arbúar muni með velvild sinni
hjálpa félaginu yfir þá erfið-
leika.
verðmikil veiðarfæri, sem hafa
þá endingu, að þau geti talizt
veðhæf. Er bent á, að algengt
muni vera, að síldarskip kaupi
veiðarfæri fyrir 7—800 þús. kr.
og ekki sé hægt fyrir útgerðina
að greiða þá upphæð af afla
eins árs.
Vegamál.
Garðar Halldórsson og fleiri
flytja í Neðrideild frumvarp
um, að taka upp í vegalög all-
marga vegi í Norðurlandskjör-
dæmi eystra.
Geitfé.
Gísli Guðmundsson fly tur,
ásamt fleiri þíngmönnum, til-
lögu til þingsályktunar um að
komið verði í veg fyrir að eytt
vei'ði hinum foi'na geitfjárstofni
hér á landi.
! Góðar gjafir til f
| Skáiholtskirkju f
•„Með síðustu ferð „Heklu“
frá Norðui'löndum á að senda
Skálholtskirkju veglegar gjafir,
sem áður hafa verið boðaðar.
Eru þetta 4 kirkjuhurðir og 3
stólar. Eru þetta stólar með
miklum tréskurði og gulldregnu
fóðri.“ — Gjafir þessar hafa ef-
laust komið með síðustu ferð
„Heklu“. Er það íslandsvinur-
inn alkunni, séra Haraldur
Hope á Hörðalandi, skammt frá
Björgvin, sem staðið hefur að
gjöfum þessum og gefur nú tvo
stólana sjálfur.
Z S
f Bólusetning gegn |
lömunarveiki j
Þegar bólusetning gegn
mænusótt (lömunarveiki) hófst
hér og annars staðar, var reikn-
að með því að nóg væri að gefa
2 sprautur með mánaðar milli-
bili og hina þriðju að 9—12
mánuðum liðnum.
Mundi þá vera svo mikið
ónæmi gegn sjúkdómnum fyrir
hendi, að telja mætti trygga
vörn hjá ailflestum hinna bólu-
settu um margra ára skeið.
Reynslan hefur sýnt, að hjá
sumu því fólki, er sprautað var
þrisvar, hafa mótefnin í blóðinu
gegn mænusótt minnkað það
mjög, að ráðlegt þykir að gefa
4. sprautuna til frekari trygg-
ingar og hefur svo verið gert
bæði í Danmörku og hér á
landi nú í sumar og haust.
Þessi 4. mænusóttarsprauta
verður á boðstólum fyrir Akut’-
eyringa mánudaginn 24. og
þriðjudaginn 25. þ. m., kl. 5—7
e. h., og föstudaginn 28. þ. m.,
kl. 7—9 e. h. í húsnæði Heilsu-
verndarstöðvar Akureyrar, og
er bæjai'biíum eindregið ráð-
lagt að notfæra sér þetta.
Þess skal getið að börn, sem
eru í barnaskólum bæjarins,
geta fengið sína, 4. mænusóttar-
sprautu þar, ef foreldrar óska
þess.
Sjá nánar auglýsingu í blað-
inu.
ÓLAFUR SIGURÐSSON, HELLULANDI:
BÚHNYKKUR
Það var í gamla daga talinn
búhnykkur, ef bóndi varð fyrir
happi, eða gerði eitthvað sér-
stakt til framdráttar búreksti'i
sínum, t. d. ef hann keypti kú,
sem reyndist úrvals gripur eða
hreppti hest, er reyndist af-
bragð til brúkunar — reglulegt
búmanns-þing. '
Aftur á móti þótti það illa
borga sig „að svelta hjúin eða
svíkja þau um kaupið.“
Nú hefði það talizt vera góð-
ur búhnykkur, að eiga þessa
dagana 4—5 mánaða gamla
minkahvolpa í búrum inni og
geta selt úr landi grávöru fyrir
100 til 200 milljónir króna, svo
að ekki sé meira sagt. Varla
hefði það skemmt gjaldeyrisað-
stöðuna, svona rétt fyrir jólin.
Það mundi vissulega vera kall-
að að eiga sitt á þurru. Og til
þess hefði þurft 10—12 minka-
bú með 3000 kvendýrum hvert.
Segja má um minkinn, að
hann sé til þrifnaðar, því að
hann étur mest það sem úr-
gangur er talinn og vei'ðlítið
efni. Þar er beztur fiskúrgang-
ur ýmiss konar, sem til fellur
frá öllum frystihúsum kringum
landið og úrgangur frá slátur-
húsunum. Þetta kaupa nú bú-
menn á hinum Norðurlöndun-
um af okkur og munar ekki um
að bæta skipsfragtinni við
verðið, sem þeir gefa okkur
fyrir og sumir segja einnig
drjúgum umboðslaunum til
þeirra, sem annast útvegunina.
Ymislega fleira væri hægt að
nýta til fóðurs minkum, sem nú
er algjörlega kastað. Nokkur
hundruð þúsund lítrar af dýra-
blóði renna út um skolpleiðslur
sláturhúsanna, frá mjólkurbú-
unum gæti fengist ýmiss konar
affall og úrgangui', sem væri
ákjósanlegt fóður fyrir minka,
og svo mætti lengi telja.
1 sveitinni er stundum sagt
um þá, sem lieyrandi heyra
ekki og sjáandi sjá ckki, að þeir
hafi ekki meðal kindavit. Eg
held að nágrannaþjóðir okkar
geti sagt það sama um okkui',
þegar minkaeldi ber á góma.
Alþingi verður að leysa úr
álögum þessa öruggu atvinnu-
grein nú strax og það kemur
saman. Þá gætu nokkur bú,
sem fullnægðu settum skilyrð-
um, byrjað á uppbyggingu þeg-
ar í haust. Eftir engu er að bíða
nema skaðanum. Þjóðinni veit-
ir ekkert af því að geta fram-
leitt sem fyrst örugga útflutn-
ingsvöru, til þess að brýna
verstu skörðin úr misheppnaðri
síldarvertíð og vega upp á móti
þverrandi fiskafla við landið,
sem maðui' vonar þó að ekki
verði til lengdar.
Tíu minkabú með 3000 læð-
um hvert gefa af sér um 100
þúsund hvolpa árlega. Meðal-
verð á minkaskinnum í Dan-
mörku var árið sem leið um
1450 kr. ísl. Meðalverð yfir
Norðui’löndin öll var um kr.
1300.00 fyrir stykkið. Ef við
reiknum með kr. 1200.00 á
skinn gefa 10 áminnst bú af sér
720 millj. króna verðmæti. Vel
mætti hugsa sér, að í framtíð-
inni yrði rekið myndarlegt
minkabú í tengslum eða í ná-
grenni við hvert einasta frysti-
hús á landinu. En vitanlega
þarf frá fyrstu hendi að beita
vísindalegri nákvæmni við
fórðun og hirðingu.
Á gangnasunnudaginn 1960.
TIL SÖLU:
6 herb. íbúð við Ása-
byggð.
4ra herb. íbúð við
Hamarsstíg.
3ja lierb. íbúð við
Hamarsstíg.
2ja herb. íbúðir við Þór-
unnarstræti og Ásabygð.
Einbýlishús í smíðum \ ið
Kringlumýri.
Jörð á Svalbarðsströnd.
Áhöfn getur fylgt,
Guðm. Skaffason hdl.
Hafnarstræti 101 — 3. hæð
Sími 1052
ÍBÚÐ TIL SÖLU
í Eiðsvallagötu 7 A (vest-
urendi) nú þegar.
Ingólfur Erlendsson,
sími 1834.
Tveggja til þriggja
herbergja
ÍBÚÐ ÓSKAST
nú þegar.
Uppl. í síma 1156.
í B Ú Ð
Tveggja til þriggja her-
bergja íbúð óskast til
leigu.
Jón E. Aspar.
Sími 2300 og 2410.
HERBERGI
TIL LEIGU
í Kringlumýri 33.
Sími 2035.
Framsóknarvist verður spiluð
n.k. íöstudagskvöld á Hótel
KEA og hefst kl. 8.30 e. h. Að-
alverðlaun verða útvarpstæki,
Parkerpenni og málverk, auk
kvöldverðlauna, en spilað verð-
ur þrjú kvöld. — Upplýsingar í
skrifstofunni, sími 1443, eftir
hádegi. Sjá nánar frétt i blað-
inu í dag.
Eftirtalin númer hlutu vinn-
inga í Happdrætti N. L. F. í:
1. 34462 — 2. 9934 — 3. 41246 —
4. 31528 — 5. 23361 — 6. 40615
— 7. 18926 — 8. 14909 — 9.
14350 — 10. 961 (Birt án áb..).
Gjafir í Orgelsjóð. — Jón B.
Jónsson kr. 100.00. — Áheit frá
M. S. kr. 100.00. Kærar þakkir.
Fjáröflunarnefnd.
Auglýsingar þurfa að
berast fyrir hádegi dag-
inn fyrir útkomudag.
WILLY’S JEPPI
óskast til kaups
gegn staðgreiðslu.
Gestur Jónsson,
Víðivellir 6, Akureyri.
TIL SÖLU
Willy’s jeppi, árg. 1946.
Trl sýnis í Stórholti 1,
Glerárhverfi eftir kl. 7
eftir hádegi.
Góður WILLY’S JEPPI
TIL SÖLU.
Afgr. vísar á.
TIL SÖLU ER
Volkswagenbíll, árgerð
1960. Keyrður 16 þúsund
km. — Uppl. jgefur
Eiríkur G. Brynjólfsson.
Sími 1292.
BÍLL TIL SÖLU
Tilboð óskast í Ford-
Anglia, árgerð 1959, lítið
keyrð og vel með farin.
Upplýsingar gefur
Bjarni Kristinsson,
Bílasölunni, sími 1749.
TIL SÖLU
ódýr Fordson ’46.
Uppl. næstu kvöld
Bragi Guðmundsson,
Hafnarstræti 35.
FORD JUNIOR
í góðu lagi til sölu. —.
Greiðsla eftir samkomu-
lagi.
Afgr. vísar á.
CHEVROLET -
VÖRUBÍLL,
árgerð 1946, í mjög góðu
lagi er til sölu.
Uppl. í síma 51, Dalvík.
LAUGARBORG
Dansleikur laugardaginn
22. þ. m. kl. 9.30 e. h.
Ásarnir leika.
Kvenfélagið Iðunn og
U. M. F. Framtíð.
SPILAKVÖLD
Verkakvennafél. Eimng
og Verkanrannafélagið
hafa ákveðið að hafa
SPILAKVÖLD
í Alþýðuhúsinu n. k.
föstudagskvöld kl. 8.30.
Góð kvöldverðlaun.
Fastlega skorað á alla að
verða þátttakendur.
Undirbúningsnefndin.
M U N I Ð
SPILAKVÖLD LÉTTIS
í Aljrýðuhúsinu sunnu-
daginn 23. okt. kl. 8.30.
Kvöldverðlaun veitt.
Fjörugur dans á eftir.
Skemmtinefndin.