Dagur - 23.12.1960, Blaðsíða 8

Dagur - 23.12.1960, Blaðsíða 8
$ I dögun, bók orðsnilldar og vizku MÉR ER SAGT að einn spek- ingur aldanna hafi einhverju sinni látið sér þessi eftirminni- legu orð um munn fara: Sá, sem veitir mannkyninu fegurð er mikill velgerðarmaður þess, sá, sem veitir mannkyninu speki er meir velgerðarmaður þess, en sá, sem veitir mannkyn inu gleði, er mestur velgerðar- maður þess. Mér komu þessi orð í hug er ég hafði lesið síð- ustu ljóðabók Davíðs Stefáns- sonar frá Fagraskógi, í dögun. Yfir vötnum þessarra ljóða svífa þessar tvær megindir mafínlegrar tilveru: Fegurðin og spekin. En þegar þessar tvær dísir mæta manni, í sum- arleyfi sínu, sem þær gera stundum, á hvaða árstíð sem er, þegar andans höfðingjar leysa þær af hólmi í formi fagurra listaverka — þá slæst gleðin óhjákvæmilega í för með hin- um tveimur og verður þá jafn- an persónulegust. Flestöll ljóð þessarrar bókar eru perlur. Ég held ég hafi aldrei lesið svo mörg himin- hrein ljóð í einni bók af slíkri gleði. Hver getur slíkum guðakrafti j lýst, er gleði himins út um myrkrið i brýzt og flæðir yfir fjöll og byggð og höf, sem fengu lífið sjálft í morgun- J gjöf. Er sálin rís ur svefnsins tæru laug, f- er sælt að finna lif í hverri taug og heyra daginn guða á glugg- I ann sinn og geta jafnvel boðið honum i inn. í Þannig heilsa'þessi yndislegu ljóð okkur öllum. Við ættum öll að hugleiða þessa síðustu ljóðlínu „og geta jafnvel boðið honum inn.“ Þetta er lífsvizkan, sem skáldið boðar hverju leitandi barni. Skáldið hefur talað við blómin, hlustað á lindina, hlýtt kalli fjallsins, lesið stafrof stjarnanna. Eitt sinn bað það alla íslendinga fyrir svohljóð- andi kveðju til móður sinnar: Sé ég drjúpandi daggir dalablómunum svala og heyri uppsprettur allar um útsæinn hjala. Mér er spurn: Hefur nokkurt skáld nokkru sinni beðið fyrir yndislegri kveðju til móður sinnar? í dögun verður lífið öllum ljúft, sem líta upp og anda nógu dj úpt. Að allra vitum ilmur jarðar berst, þótt enginn skilji það, sem hef- ur gerzt. Annað kvæði bókaiánnar, Um páskaleytið, er frábært kvæði, uppörfandi ádeila, hógvært og réttlátt. Það lætur nærri, að allri baráttusögu mannkynsins sé hér þjappað saman í einu kvæði. Ég undirstrika hér að- eins nokkrar línur af handa- hófi: Frá vöggunni liggur um leiti og hæðir leiðin er þar að kemur fram hjá krossunum þremur .... Þó þriðjung allra þjóða skorti brauð og þegna sína allir furstar svíki .... Sjá, spekingar og spámenn ganga hjá með spjótasár og naglaför á höndum .... Sú bylting ein, sem bætir allra hag, er betri vilji, fegra hjarta- lag .... Þriðja kvæðið, Óður til lífs- ins, er óður hins frjálsa anda. Þar segir m. a.: Við hlutum þá gæfu að gista gróandi jörð um skamma stund. En bíðum þar aðeins byrjar um blikandi hnattasund. Eilífð var öllum sköpuð áður en til voru jarðnesk spor. Síðasta guðagjöfin er gleðinnar ljósa vor. Þetta er töfrandi ljóð, geisla- blik og sigursöngur. Fjórða kvæðið, Þagnarljóð, tek ég hér allt upp: Þá opnast heimar vorra duldu drauma, er dagsins storma lægir, raddir þagna. Þá heyra þeir á bökkum blárra stráuma hinn blíða nið, sem einverunni fagna. Við rætur fjalla rísa gamlir bæir og roða slær á tind og ísar þiðna. En djúpir álar verða gegnum?- glæir og geislár himins milda allt hið liðna. í sálir vorar streymir óðsins andi frá æðri heimum, þjóð og föðurlandi. Hér hlýt ég að nema staðar nokkur andartök. Þetta þagn- arljóð segir mikið í sínum fáu ljóðlínum. En þó ekki nema brot af því, sem var og er, og andi þess á og býr yfir. Þögn þess segir miklu meira en orð- in. Hér stöndum við frammi fyrir eðli og anda skáldsins frá Fagraskógi. Þessa frjálsa og þó staðfasta fjölkunnáttumanns orðs og anda, þaknar og leynd- ardóms. „Það er svo margt án máls sem eilíft lifir.“ Það sem mér hefur ávallt fundizt eftir- tektarverðast og aðdáanlegast við ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi er þetta, hve hann segir mikið í stuttu máli og segir það fallega. Þetta, sem hann hvíslar á orðlausu máli að lesendum sínum. Þetta, sem svo oft geislar frá ljóðum hans. Þetta óræða lífsins ljóð, frum- tak baráttugleðinnar og sigur- vissunnar. Tjáningarform og vinnubrögð ■ eru margvísleg. Málið er auð- legð, tungan fögur og spök að viti, orðin sjálf eiga sinn tón og sína töfra. Þó flytja þau aldrei manna á milli, nema brot af fegurð, vizku og göfgi hins ódauðlega anda. Úr englabirt- unni fáum við aldrei blek. En á hrifningar- og hugljómunar- stundum njóta skáldin þeirrar birtú, sem gefur ljóðum þeirra h'f. Einlægnin fegurðin og sann- leikurinn hrífur. Þannig skapa göfug listaverk heilbrigðari og fegurri menningu. Menn segja að vísu, og þar á meðal frægir snillingar, að listin hafi ekkert siðferðilegt takmark. En það getur ekki verið rétt. Eg held sú fullyðing sé meira í ætt við styrjaldarboðskap en andleg sannindi. Ljóð er tæpast lista- verk, nema það sé brot af sál lands og þjóðar og í ætt við lít- ið lautarblóm, sem langar til að gróa. í því þarf að felast sígild- ur og eilífur neisti. Þannig yrkja þjóðskáld. Þess vegna hefur þeim hiklaust verið skip- að á bekk meðal spámanna og brautryðjenda aldanna. Allt, sem hér hefur verið sagt, segir þjóðskáldið góða raunverulega í þessum tveimur ljóðlínum: í sálir vorar streymir óðsins andi frá æðri heimum, þjóð og föðurlandi, og meira þó. Þessar ljóðlínur skáldsins, ásamt öðrum fleiri, minna mig á það litla, sem eg veit um forna spekinga. Svo er sagt um suma þeirra, að því hærri vígslu, sem þeir tóku í andans heimi, því meira eilífð- argildi fékk jörðin, sem þeir stóðu á og allt líf hennar — í vitund þeirra. Þetta er dyggð og eðlisfar allra spekinga, á hvaða tíma, sem þeir hafa ver- ið uppi. Og þetta er aðalsmerki skáldsins frá Fagraskógi. Því fegri myndir sem hans skyggna auga lýtur, því fegurri og unaðslegri verður honum jörð- in og öll sönn og varanleg verð- mæti hennar. Og skáldið leitar ekki langt yfir skammt til þess að skynja hið óræða og algilda. Ilmur jarðar er eitt af því, sem enginn skilur og þó er það eitt af því, sem allir finna, allir vita um. Svo einfalt er ljóð hans og svo elskulega jarðnesk er list hans í öllum sínum hugræna ljóma. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Að allra vitum ilmur jarðar berst þótt enginn viti það, sem hefur gerzt. Ljóðið Stjörnudraumur, er hjartans mál og helgiljóð, sem hér verður ekki farið höndum um. Kvæðið Hvað hefur breytzt og Hversu lengi eru ádeilu- kvæði, hófsöm, sanngjörn og markviss. Að síðustu tek ég hér annað orðfæsta ljóð bókarinn- ar, Rím: Leyndu lögmáli fylgja hvert líf, hvert strá, hver bylgja. Stjarnan er stafur í rími, stuðlað er rúm og tími. Ljóð, sem er fast í formi, er fjall í aldanna stonni. Þetta er óbrotið ljóð og lætur ekki mikið yfir sér, en í þess- um orðum, er svo mikil spekt, að svo yrkja spámenn einir. Skáldið hefur kannað lífið frá fjöru til fjalla. Þessi höf- undur er væringinn, sem víða hefur farið um höf og lönd. Hann er heimsborgari, og ætt- jarðarvinur hinn bezti. Og þetta er opinskátt skáld og einlægt. Segið það móður minni að mig hafi eitt sinn þrotið hug og dáð til að duga og duftinu lotið Ungur í annað sinni eygi eg nýja vegi, fagna kyrrlátum kvöldum og komanda degi. Svona elskulega einlæg eru aðeins skáld af guðs náð. Þau hljóta jafnan „í völvunnar veðrum, vex-nd góðra disa“. Það gildir einu hvar við lítum í þessa umræddu ljóðabók. Það geislar af hverri síðu. „Það er eins og englar séu alls staðar á ferð.“ Olafur Tryggvason. | Bréfaskóii S. í. S. futlugu ára ( BRÉFASKÓLI SÍS á 20 ára af- mæli um þessar mundir. Hef- ur hann á þessum tveimur ái-a- tugum getið sér mikinn orðstír með starfsemi sinni. Til dæmis um viðgang hans má nefna, að á 10 ára afmæli hans hafði hann 3242 nemendur, en nú hefur sú tala hækkað í 10829. Náms- greinar skólans, alls 27 að tölu, eru þessar: Skipulag og stai-fs- hættir samvinnufélaga, fundar- stjórn og fundarreglur, bók- færsla (byi-jendaflokkur), bók- fæi-sla (framhaldsflokkur), bú- reikningar, íslenzk réttritun, ís- lenzk bragfi-æði, íslenzk mál- fræði, enska (byi-jendaflokkur), enska (framhaldsflokkur), danska I. (byrjendaflokkur), danska II., danska III., þýzka, franska, spænska, esperanto, reikningur, algebra, eðlisfræði, mótorfræði I., mótoi-fx-æði II., siglingafræði, landbúnaðarvél- ar og vex-kfæri, sálarfræði, skák I., og skák II. Vinsælustu náms greinarnar eru bókfærsla með 2238 nemendur og enska með 2009 nemendui’. Fyrsti skólastjóri skólans var Ragnar Ólafsson hæstaréttarlög maðui-. Síðan hafa haft á hendi stjórn skólans þeir Jón Magn- ússon frétlastjór-i og Vilhjálmur Árnason lögfræðingur. Lét hinn síðarnefndi af störfum sl. sumar en við tók núverandi skóla- stjóri, séra Guðmundur Sveins- son. □ Skákmót U.M.S.E, SKÁKMÓTI U. M. S. E. er ný- lega lokið. Sjö fjögurra manna sveitir tóku þátt í því. Keppt var um skákmenn og skák- klukku, sem umf. Skriðuhi-epps gaf. Sveit umf. Sriðuhrepps vann mótið, hlaut 19 v., umf. Svarf- dæla fékk 12% v. og umf. Ár- í-oðinn og umf. Möðruvallasókn ar 12 v. hvort. Önnur félög hlutu færri vinninga. Skáksveit umf. Skriðuhrepps var þannig skipuð: Ari Friðfinnsson, Ár- mann Búason, Guðmundur Eiðs son og Búi Guðmundsson. □

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.