Dagur


Dagur - 18.01.1961, Qupperneq 5

Dagur - 18.01.1961, Qupperneq 5
4 5 FISKRÆKT OG FISKELDI HÉR Á LANDI eru víða mikil hlunnindi af lax- og silungsveiði og hafa veiðiár verið leigðar veiði- mönnum og veiðifélögum fyrir of fjár á síðustu árum. Fram á þenn- an dag hefur verið veitt, víða eitt- hvað takmarkað vegna ótta við of- veiði, en lítið látið í staðinn. Fisk- rækt er skammt á veg komin enn þá hér á landi, en á síðustu árum mun almennt hafa aukizt skiln- ingur á því að ár og vötn búa yfir miklum möguleikum, sem vert er að sannprófa, ekki aðeins með tak- mörkun á veiði eða friðun, heldur með fiskrækt eftir nýjum leiðum í samræmi við reynslu annarra þjóða. Tekizt hefur að fylla mjög léleg veiðivötn af góðfiski á fáum ár- um, með því fyrst að „dauð- hreinsa“ vatnið, þ. e. eyða öllum fiskum er fyrir voru og ala þar upp nýjan stofn og breyta lífsskil- yrðum með tilbúnum áburði og öðrum kemiskum efnum eftir for- skrift vísindanna. Einnig hefur tekizt að auka svo lax- og silungs- gengd í ám með klaki, að furðu sætir. En til að auka fiskgöngur úr sjó, hefur á síðustu árum reynzt bezt að ala seiðin mun lengur en áður var algengast og búa þau þannig undir lífsbaráttuna, að minna færi forgörðum. Auk þessa má svo bæta fiskvegi og gera nýja þar sem skilyrði eru fyrir hendi. I mörgum löndum er einnig stundað fiskeldi á þann hátt, að ala harðgerðar og ljúffengar fisk- tegundir, svo sem lax- og silungs- tegundir upp eins og hver önnur húsdýr, þar til þær hafa náð æski- legastri stærð miðað við sölu. í þessu efni eru mikil verkefni fram undan og gæti eflaust orðið veru- leg atvinnu- og útflutningsgrein. Margar stoðir renna undir þessa nýju búgrein. í fyrsta lagi er víð- ast auðvelt að ná í heilnæmt vatn, í öðru lagi eru fiskvinnslustöðvar allt í kringum land, sexn lagt gætu til mest allt fóðrið og í þriðja lagi er sjórinn við strendur landsins mjög auðugur af næringarefnum og tiltölulega hlýr árið um kring. En fiskar í sió eða sjávarblönduðu vatni þrífast flestir betur en í fersku vatni og vaxa mun örar. Norskar tilraunir allra síðustu ára sýna, að laxinn deyr ekki að hrygningu lokinni, heldur tímgast í sjávarkvíum ár eftir ár með fullri orku. Þær tilraunir sýna einnig, að eldi lax og regnbogasil- ungs í sjávarkvíum er mjög arð- vænlegur atvinnuvegur og hafa margar slíkar stöðvar þar í landi þotið upp síðustu árin. Að sjálfsögðu er eldi fiska ekki vandalaust verk og getur tilviljun ein ráðið um árangur á byrjunar- skeiði. Verkleg þekking er grund- vallarskilyrði fyrir því, að hald- góðar niðurstöður fáist, þegar far- ið verður inn á þessa braut og því ber að örfa menn til mennta í fisk- rækt og fiskeldi. Fiskvinnslustöðvarnar, bergxatn ið og hinn næringarauðugi sjór ,, skapa einstæð skilyrði liér á landi fyrir hina nýju búgrein. □ ■•iimmmmiiiiiiimimmiimMiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiMiiiiiiiiimiiiiiiHiiiiMiiiiiiiiiiii IMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIII IMMMIIIIIMMMMIMI.......MMM.....III 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 immmmiiimmiiiimi IMMMMMMII • • BJORGVIN GUÐMUNDSSON tónskáld í . í DAG fer íram fiá Akuieyiaiknkju útför Björgvins Guð- í mundssonar tónskálds, sem andaðist á Fjórðungssjúkrahús- 1 inu hér 4. janúar síðastliðinn eftir langa vanheilsu. Að É minnsta kosti þrír söngflokkar og margir einsöngvarar munu | aðstoða við þessa athöfn, o£ verður þar aðallega flutt tón- i list eftir Björgvin, en prestar safnaðarins og séra Benja- I mín Kristjánsson á Laugalandi flytja ávörp. i Þar sem Björgvin Guðmundsson hefur um þrjá áratugi i verið einn at aðsópsmestu og vinsælustu borgurum Akur- i eyrarbæjar, vildi Dagur heiðra minningu hans með því að i birta ýtarlega yfirlitsgrein um líi hans og störf, og sneri i sér í því efni til séra Benjamíns Kristjánssonar, sem kynnt- I ist tónskáldiu fyrst í Vesturheimi og hetur alla stund síðan i verið náinn vinur hans. Vísaði séra Benjamín blaðinu á rit- i éeTð, sem hann hafði skrifað tyrir fáum árum í timaritið Í „Heima er bezt“. Og með því að vér teljum þessa ritgerð i gera mjög glöggva grein fyrir hinum fjölþættu og sérkenni- i legu gálum og persónueinkennum tónskáldsins, höfum vér i tekið þann kost að endurprenta hana hér í heilu lagi með i leyfi hötundarins og tímaritsins. „Blessaður Björgvin." Þegar ég réðst til prestsþjónustu vestur um haf árið 1928, bað einn af kennurum mínum, hinn ljúfi og elskulegi kirkjuhöfðingi Sigurður P. Sívertsen vígslubiskup, mig fyrir kveðju til fermingarbarns síns í Winnipeg. Kveðjari var til Björgvins Guðmundssonar tónskálds, og hafði ég þá aldrei fyrr heyrt hans getið. „Blessaður Björgvin, hann var alltaf svo góður. Og svo eru lögin hans svo falleg. Hann ætti að koma heim til ís- lands.“ Einmitt þannig fórust prófessor Sívertsen orð, og ég man, hvernig góðmennskan ljómaði af svip hins göfuga öldungs, er hann sagði þetta. Mér komu i hug ummælin úr Jakobs- bréfi: Kröftug bæn réttláts manns megnar mikils. Þessi ósk rættist líka fyrr en varði. Ekki hafði ég hugmynd um það þá, hvort ég myndi nokkru sinni sjá þennan Björgvin, en þó höguðu atvikin því svo, að ég kynntist honum tiltölulega fljótt eftir að vestur kom, og komum við brátt til með að eiga allmikið saman að sælda, einkum eftir að hann tók við organleikarastarfi og söngstjórn við Sambandskirkju. Varð ég þess brátt var, að þar var munur að mannsliðinu. Söngpallur kirkjunnar fyllt- ist þegar í stað, og varð þar öflugur kór. Get ég ekki hugsað mér áhugasamari og upplagðari kirkjuorganista en Björgvin var á þessum árum, og það var eins og hann smitaði alla með lífsþrótti sínum. Söngurinn var vel æfður og prýði- legur, og Björgvin var sífellt með hugann við að semja ýmsa helgisöngva, er hann lét flytja í kirkjunni við hátíðleg tæki- færi. Samvinnu okkar við Sambandssöfnuð minnist ég með einskærri ánægju og alls þess, sem við höfum átt saman að sælda síðan. Frá því að Björgvin fluttist til Akureyrar árið 1931 og tók þar við söngkennslu við tvær menntastofnanir, hefur nafn hans verið á hvers manns vörum um land allt. Ber margt til þess, að hann verður mönnum hugstæður. Fyrst og fremst hefur hann verið elskaður og dáður fyrir tónsmíð- ar sínar, sem hlotið hafa miklar vinsældir meðal þjóðarinn- ar. Hann hefur haldið uppi sönglífi sem tilþrifamikill söng- stjóri eins fjölmennasta söngflokks, sem starfað hefur á Akureyri. Með kjarnyrtum ritsmíðum sínum hefur hann vakið athygli. En auk alls þessa er hann mjög sérkennilegur persónuleiki, óvenju orðheppinn og skemmtilegur, þegar vel liggur á honum. Brýtur hann þá heilann um hin sundurleit- ustu efni og er gæddur frjórri og frumlegri athugunargáfu. Mörg hnyttinyrði hans eru landfræg. Þess hef ég orðið var, að ýmsir nemendur hans í Mennta- skólanum hafa elskað hann mjög umfram aðra menn. Stafar þetta sennilega ekki af því, að hann sé svo natinn við kennsl- una, því að annað hentar honum betur en kennslustagl, heldur af hinu, að þeir hafa gert sér það ljóst, að þarna er á ferðinni svo sérkennilegur og frumgáfaður maður, að sjald- gæft er að kynnast hans líkum nema fáum á öld. Það er því óvenjuleg lífsreynsla að kynnast slíkum mönnum með kostum þeirra og vanköntum. Jafnvel vankantarnir gera svipmót þeirra enn ógleymanlegra. Það mætti segja um Björgvin líkt og Bjarni skáld Thor- ansen sagði um vin sinn, Odd lækni Hjaltalín, að hann væri eins og hreinn demant í ryðgaðri járnumgerð. Björgvin hef- ur aldrei tamið sér neina uppgerðarkurteisi og kemur ávallt til dyranna eins og hann er klæddur. En við vini sína er hann frábærlega einlægur og hreinskilinn. Og er það nú ekki í rauninni sannasta kurteisin? Ætt og uppeldi. Björgvin Guðmundsson fæddist að Rjúpnafelli í Vopna- firði 26. april 1891. Foreldrar hans voru Guðmundur Jóns- son bóndi þar og kona hans, Anna Margrét Þorsteinsdóttir frá Glúmsstöðum í Fljótsdal. Hafði hún flutzt ung mær úr Fljótsdalnum til föðurbróður síns og konu hans, er bjuggu á Merki á Jökuldal, en hörfað með þeim hjónum austur í Vopnafjörð undan öskufallinu, sem varð af Dyngjufjalla- gosinu árið 1875. Hún var af ætt Þorsteins jökuls á Brú, en sá ættleggur var vel að sér gerr og hamrammur, enda sagður vera kominn af Guðbjarti flóka, galdrapresti í Lauf- ási, sem orti dansa og kvað við raust. Ætt föður hans má rekja til Möðruvallapresta og séra Ólafs Guðmundssonar, sálmaskálds á Sauðanesi. Eru þeir Björgvin og Jón Arnason bankastjóri bræðrasynir. Annars er mér ekki kunnugt um listagáfur í ætt Björg- vins hið næsta honum, nema faðir hans mun hafa verið mjög söngvinn og lagvís. En auðvitað er það ekkert að marka, slíkar gáfur geta legið í láginni, þar sem engin tæki- færi eru til listiðkunar og allir eiga fullt í fangi með að bjarga lífinu. A uppvaxtarárum Björgvins lá Vopnafjörður mjög utan við alfaraveg og var eins og veröld fyrir sig. Sími var ekki lagður þangað fyrr en 1906, og segir Björgvin í Minningum sínum, að svo lygilegt hafi það þótt í ungdæmi sínu, að skáld gætu fæðzt í Vopnafirði, að kæmist kvis á um það, að unglingar færu að leggja sig eftir tónsmíðum, þá hafi verið um það rætt í hálfum hljóðum, 'hvort ekki rnyndi vera að búa um sig geðbilun í þeim. I þennan tíma var litið á kirkjuorganista og menn, sem eitthvað skynbragð báru á nótur, sem hálfgert veraldarund- ur, enda var tónmenning þjóðarinnar á frumstigi. Með söng- lagaheftum sinum hafði Jónas Helgason að visu unnið mikið og gott brautryðjandastarf að útbreiðslu fallegra smásöngva, en tónskáld átti þjóðin ekki mörg, og hið eina, sem nokkuð kvað að, var Sveinbjörn Sveinbjörnsson. En hann var bú- settur erlendis og var fátt kunnugt hér heima af tónsmíðum hans nema þjóðsöngurinn. Þrátt fyrir alla fátækt í tónlistarefnum hérlendis og þá ekki sízt í þessari afskekktu sveit, var Björgvin farinn að brjóta heilann um tónstigakerfin og hlutföllin milli tónteg- unda langt innan við fermingu og lærði af eigin rammleik að skrifa upp bæði takt- og tónrétt þau lög, er hann kunni. Auðvitað varð hann að leggja hönd að öllum venjulegum sveitastörfum í æsku sinni og það því fremur, sem faðir hans andaðist, er Björgvin var ekki nema 16 ára. Heldur var hann óhneigðum til líkamlegrar vinnu, eins og oft verður um menn, sem meiri hæfileika hafa á öðrum sviðum. Finnst þeim moldarverkið miða lítið til þeirrar áttar, sem þá dreymir um. Þó var Björgvin laghentur, ef hann vildi, svo sem verið hafði föðurafi hans, og kom það sér vel seinna, er hann fékk helzt atvinnu við húsasmíðar vestan hafs. Ekki lýsir Björgvin sjálfum sér glæsilega um sextán ára aldurinn. Segist hann hafa verið þunglyndur og einrænn og orðhákur hinn mesti, og hafi á þessum gelgjuárum kennt mikils jafnvægisleysis í lundarfari sínu. An efa hefur hann snemma verið orðheppinn og tannhvass, ef því var að skipta, en á hinn bóginn mildur og blíður sem barn. En það er al- kunna, að sálarstrengir listamanna eru oft þandir milli and- stæðra skauta, og er lundarfar þeirra því iðulega viðkvæm- ara og vanstilltara en venjulegra borgara. En bezta athvarf hans í þessu ölduróti gelgjuskeiðsáranna var ofurlítið stofu- orgel, sem hann hafði eignazt. A þessum árum byrjar Björgvin á því að fást við að semja sönglög og raddsetja þau. Fyrsta lagið, sem hann samdi, var við sálminn „Þitt nafn er, Jesú, unun öll“. Það lag endur- samdi hann þó síðar. En fáum dögum síðar gerði hann lag við hinn alkunna sálm Hallgríms Péturssonar: „Bænin má aldrei bresta þig“. Skapaðist það lag í huga hans fyrirhafn- arlaust og svo að segja á svipstundu með öllum röddum, og er það prentað eins og hann gekk frá því seytján ára unglingurinn í Prestafélagsritinu 1931. Næstu árin samdi hann nokkur smálög, og voru þá þegar farnar að skapast í huga hans tónhendingar, sem hann notaði mörgum árum síðar í hin miklu tónverk, er hann gerði við ljóð Guðmundar Guðmundssonar. Systkini Björgvins þrjú höfðu flutzt vestur um haf nokkr- um árum áður en faðir þeirra dó, og undu þar allvel hag sínum. Þó brá elzti bróðirinn sér heim skömmu eftir að faðir hans andaðist, í því skyni að taka við búskap á Rjúpnafelli, en ekki undi hann sér þar í fásinninu eftir utanför sína. Varð þetta til þess, að öll fjölskyldan hvarf að því ráði að flytjast til Ameríku þremur árum síðar, sumarið 1911. Ekki var Björgvin létt um hjartarætur, er hann yfirgaf heimasveit sína og sá ættjörðina hverfa í hafið. En bak við söknuð hans vakti þó einhver von um, að fyrirheitna landið myndi ef til vill verða þess megnugt að greiða honum veg að takmarki drauma hans. Það eitt sætti hann við þessa ráðabreytni. Fyrstu órin vestra. Þegar vestur kom tók við fyrsta sprettinn lífsbaráttan hörð og miskunnarlaus. Þó gafst honum þarna tækifæri til að heyra miklu meira af sígildri tónlist, einkum kirkjutón- list, en hann hafði áður átt kost á, og einnig kynntist hann nokkrum tónlistarmönnum, sem miðluðu honum af þekk- ingu sinni og örvuðu hann til starfa. Allt þetta féll eins og dögg yfir sál hins unga listamanns. Einkum var hann hrifinn af oratoriustílnum, og samdi hann fyrsta helgikór sinn, „I upphafi var orðið“, árið 1914. En nú dundi yfir heimsstyrjöldin fyrri og með henni kreppa á atvinnusviðinu. Þegar kom fram á sumarið 1915 mátti heita, að Winnipeg væri orðin gersamlegx dauð borg, byggingarnar stóðu hálfreistar, en hvergi hey' jist hamars- högg. Höfðu Björgvin og bræður hans eöikum stundað byggingarvinnu, en sáu nú, að annað hvort yrðu þeir að ganga í herinn eða flýja út á landsbyggðina Völdu þeir seinni kostinn og hófu búskap i svonefndum Vatnabyggðum, í Leslie, Sask. Þarna átti Björgvin heima um sjö ára skeið. A þessum árum samdi hann tónverkin við hina miklu ljóðaflokka Guðmundar Guðmundssonar, Strengleikar og Friður á jörðu. Skrifaði hann þau við borð úr óhefluðum kassafjölum, er hann hafði rekið saman á frumbýlingsárum sínum, milli þess sem hann sinnti gegningum og annarri sveitavinnu. Tóku nú sveitungar hans að veita tónlistar- starfsemi hans vaxandi athygli, og var hann brátt fenginn til að æfa kóra og stjórna söng við öll hátíðleg tækifæri þar í byggðinni. Mesta uppörvun fékk hann þó við það, er vinir hans í Elfros létu sér detta það í hug að senda píanó- snillingnum Percy Granger sýnishorn af tónsmíðum hans. En þessi frægi maður lét svo um mælt, að þessi tónverk hans væru betri en flest nútímatónskáld gætu samið. Gáfu þessi lofsamlegu ummæli tónskáldinu bj'r í seglin og stæltu sjálfstraust hans, sem stundum hafði fengið ágjöf og verið hikandi. Einnig var nú farið að syngja tónverk hans á sam- komum meira en áður, og vöktu þau athygli söngvinna manna með þrótti sínum og þokka. Kvonfang og iónlistarstarf í Winnipeg. Eftir að Björgvin fluttist aftur á ný til Winnipeg, urðu mikil og góð þáttaskipti í lífi hans, er hann kvæntist vorið 1923 Hólmfríði Frímann, sem fædd var vestra en ættuð úr Kelduhverfi. Var hún ekki aðeins hin fegursta mær, heldur einnig gædd hinni elskulegustu skapgerð og þar að auki frá- bærlega myndarleg húsmóðir. Hefur hún alla stund síðan verið manni sínum mesta hollv^ettur og heimili þeirra róm- að fyrir gestrisni. I Winnipeg gerði Björgvin helgikantötuna „Til komi þitt ríki“, og var hún flutt af söngflokki undir stjórn tónskálds- ins í Fyrstu lúthersku kirkju þar í borg ásamt nokkrum tónverkum fleiri, með aðstoð góðra listamanna. Vakti þessi konsert svo mikla athygli, að Vestur-íslendingar hófust nú handa um að safna fé til að kosta hann til tónlistarnáms. Kom þá fyrst í ljós, hversu vinsæll Björgvin var og hvílíks álits hann naut vegna tónsmíða sinna, því að peningarnir streymdu að úr öllum áttum. Haustið 1926 héldu þau hjónin til London, þar sem Björg- vin hóf nám i Royal College of Music. Lauk hann þar námi á skömmum tíma og tók burtfararpróf vorið 1928. A þessum árum samdi hann að rnestu leyti oratoríuna við Þiðranda- kviðu Stephans G. Stephanssonar, sem mun vera hans mesta tónverk. Eftir komu þeirra hjónanna aftur til Winnipeg sumarið 1928 tók Björgvin til óspilltra málanna þar sem fyrr var frá horfið við tónsmíðar alls konar og tónlistarstarfsemi, auk þess sem hann stundaði tímakennslu, og gat hann nú fremur en áður einbeitt sér að hugðarefnum sínum. Stofn- aður var karlakór, sem hann æfði, og síðar tók hann við stjórn blandaðs kórs, sem nefndist The Icelandic Choral Society, auk þess sem hann tók brátt við söngstjórastarfi og organleikarastörfum við Sambandskirkju, eins og fyrr er getið. Mátti það teljast með helztu tónlistaratburðum meðal Islendinga í Winnipeg þessi árin, að Choral Society flutti veturinn 1630—31 kantötu þá hina miklu, sem Björg- vin hafði gert við hátíðarljóð Davíðs Stefánssonar 1930, við IIIIIIIIIIIIMIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMi|IIMIMIIIIIIIIIIIIIIIIIM(IIIMIIIIIMMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIMIIIIIIIIIIIIMIIIMMIIIIIIIIMMIIIIIIIIIMIIIII|IIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIMIIIIIIIIII|IHIMIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIim|UIMIIMMIIIIMMMMIIMIIIIIMI almenna hrifningu áheyrenda. í þann sama mund barst hon- um tilboð frá Akureyri um að taka við söngkennslu við Menntaskólann og barnaskólann þar. Blossaði þá heimþráin upp í honum á ný, og tók hann þessu boði og hvarf heim til ættjarðarinnar að áliðnu sumri árið 1931. A Akureyxi. Það yrði of langt mál að fara að gera grein fyrir allri tónlistarstarfsemi Björgvins Guðmundssonar eftir að hann fluttist heim til ættjarðarinnar. Kennslu hefur hann haft á hendi við Menntaskólann á Akureyri til þessa dags. Arið 1946 var hann af bæjarstjórn í heiðursskyni leystur frá kennsluskyldu við Barnaskólann með óskertum launum, svo að honum mætti gefast betri tími til tónsmíða. Skömmu eftir heimkomuna stofnaði hann Kantötukór Akureyrar, sem flutt hefur mörg af stórverkum hans við rnikla hrifn- ingu manna hér norðanlands, auk þess sem hann hefur farið í söngför til Norðurlanda við góðan orðstír. Hefur Björgvin haft á hendi stjórn kórsins til skamms tíma. Alls mun hann hafa stjórnað söngflokkum í 38 ár og samið á sjötta hundr- að tónverk stærri eða minni, en sum af þeim umfangsmeiri en dæmi eru til eftir nokkurt annað íslenzkt tónskáld. Fáir munu gera sér grein fyrir því feikna starfi og þolin- mæði, sem til þess iþarf að þjálfa söngflokka af misjafnlega söngvönu fólki. Er það efalaust hið mesta stritverk. En til slíkra starfa hefur Björgvin verið óþreytandi. En þrátt fyrir það, að hann hefur löngum verið önnum kafinn við þessi viðfangsefni og tónsmíðar sinar, hefur hann einnig fundið tíma til að reyna sig við önnur viðfangsefni. Arið 1941 var sýnt eftir hann á Akureyri leikritið Skrúðsbóndinn, undir égætri leikstjórn Agústs Kvaran ,og hlaut það svo mikla að- sókn, að sjaldan hefur leikur verið betur sóttur í höfuðstað Norðurlands. Einnig hefur hann skrifað sjálfsævisögu sína, er hann nefnir Minningar, og kom sú bók út árið 1950. Er hún skemmtilega skrifuð, enda hefur Björgvin prýðilega frásagnargáfu og minni trútt. Fjölda blaðagreina hefur hann og skrifað, sumar nokkuð stórorðar, en málfarið er venju- lega svo sérkennilegt og kímniblandað, að án efa hefði Björgvin getað orðið góður rithöfundur, ef hann hefði feng- ið næga þjálfun á því sviði. Eldur guðanna. Sú þjóðsaga er sögð um Prómeþevs, að hann hafi sótt eldinn til guðanna til að gefa hann mönnunum, en orðið að þola fyrir óbærilega þjáningu. Tónlistinni mætti Hkja við þennan eld guðanna. Gæti þá goðsagan byggzt á þeirri staðreynd, að sárviðkvæmt tilfinningalíf er löngum skilyrði fyrir því, að sál skáldsins geti höndlað þennan eld og orðið farvegur fyrir hann. Ekki er þess að dyljast, að Björgvin er maður skapstór og stundum hrjúfur viðkomu, þó að miklu oftar sé það góðmennskan og mildin, sem ríkir í huga hans. En það getur hvesst, og stundum er hugur hans eins og gjósandi hver. Þrátt fyrir það hefur hann ævinlega átt trygga vini, sem fylgt hafa honum gegnum brim og boða vegna- þess, hversu falslaus og hreinskilinn hann er og sátt- fús, þó að eitthvað gefi á bátinn. Ekki hef ég þekkingu til að dæma um listagildi þeirra tón- verka, sem Björgvin hefur samið, enda skilst mér að sundur- leitir verði oft dómar listamanna sjálfra hver um annan. En þó finnst mér, að einn dómur ætti að verða hverjum listamanni dýrmætastur, og hann er þessi: Hefur þeim tekizt að hrífa aðra með list sinni og veita þeim gleði? Sú list, sem engan hrífur, sýnist vera gagnslítil. Það er víst, að Björgvin hefur með list sinni vakið hrifn- ingu og miðlað fegi^rð og gleði til þúsunda manna. Myndi IIIMIMIIIIIIIIIMIIIIItlllMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIttllMIIIIMMI lllllllllllltlllllllllltl enginn, sem séð hefur hann stjórna hinum miklu kórum sínum, er þeir hafa flutt kórverk hans, efast um að þá logar hinn heilagi eldur í sál hans. Þá hrynur ryðið utan af dem- antinum, og persóna hans gerist öll aðsópsmeiri og heiðum hærri. Þannig geyma vinir Björgvins mynd hans í huga sínum. Benjamín Kristjánsson. Fáein kveðjuorð MÖRG er gæfa bæjarins okkar fagra við Eyjafjörð. Ein er sú, að honum hefir auðnazt að fóstra nokkra afburða listamenn, sem hér hafa lifað og starfað, brugðið stórum svip yfir kyrrlátt — stundum helzti mollulegt — bæjarlíf. Einn þessara höfuðskörunga, tónskáldið Björgvin Guð- mundsson, hefir nú kvatt þennan heim. Að oss setur trega og söknuð, vér stöndum fátækari eftir, því að hér er góður maður, tryggur vinur og gáfaður snillingur genginn. Mig langar að minnast þessa föðurlega vinar míns örfáum, fá- tæklegum þakkarorðum að skilnaði. Ég á margt að þakka. Kynni okkar hófust, þegar ég var á unglingsaldri, og síðan hefir aldrei borið skugga á vin- áttu okkar. Mest urðu kynnin, er við störfuðum saman að málum Kantötukórs Akureyrar í sambandi við Norður- landaför kórsins. Frá þeim tíma á ég margar bjartar minn- ingar, sem ég fæ aldrei fullþakkað. Margar stundir á heim- ili Björgvins og frú Hólmfríðar verða mér ógleymanlegar. Henni og dóttur þeirra, frú Margréti, flyt ég nú einlægar samúðarkveðjur. Eftir heimkomuna til íslands frá Vesturheimi stofnaði Björgvin Kantötukór Akureyrar. Segja má, að síðan hafi kórinn verið óskmögur hans og ástmögur, enda aðallega stofnaður til að flytja kórverk tónskáldsins. Það er hróður Akureyringum og fagnaðarefni, að það ætlunarverk skyldi falla þeim í skaut. A söngpalli var Björgvin í veldi sínu, gáfaður skapandi, næmur túlkandi, styrkur stjórnandi. Þeg- ar hann lyfti tónsprotanum, stráði hann ilmrósum fegurðar og göfgi í sálir áheyrendanna, var í senn auðmjúkur þjónn listarinnar og strangur herra hins lifandi hljóðfæris. Björgvin Guðmundsson varð fyrstur íslenzkra tónskálda til að semja stór kórverk. Nægir að minna á Alþingishátíð- arkantötuna, Frið á jörðu, Til komi þitt ríki, Strengleika og Örlagagátuna. Auk þess liggur eftir hann sægur kórlaga, einsöngslaga auk ýmissa verka fyrir hljóðfæri. Um gildi þessara tónsmíða brestur mig kunnótta til að dæma, en hitt er ljóst, að þau eru stórvirki langt ofar smámennsku eða meðalmennsku. Dómur brjóstvitsins er og sá, að það, sem gleður, hrífur og heillar, sé gott. Einmitt þetta er aðall Qg eðli tónsmíða Björgvins. Þess vegna þykir svo mörgum vænt um þær. Honum var gefinn guðsneisti sköpunarinnar í listinni og var óniskur veitandi og miðluður fegurðarinn- ar. Hann gaf öðrum hlutdeild í sýn sjáandans, dýrlegri reynslu upphafningarinnar, hrifningu náðarstundarinnar. Allur ljótleiki var honum andstyggð. Hann barðist ó- trauður og af heilagri vandlætingu gegn öllu því, sem hann taldi í ætt við spillingu og saurgun. Hann vildi göfga smekk þjóðarinnar og hefja hana upp af láglendi og flatn- eskju til víðrar útsýnar og tærra himinstrauma. Oftlega átti hann í höggi við sinnuleysi og kotungshátt samtíðarinn- ar, sem oft vill leggjast sem mara á stórhuga hugsjóna- menn. Björgvin var jafnan maður hinnar hreinu afstöðu, villti aldrei á sér heimildir. Hann hataði hið illa af heilum hug og elskaði hið góða og fagra af heilum hug. Hann talaði opinskótt og fór aldrei í felur með skoðanir sínar. Tæpi- tungumál var honum ekki léð. í breiðum barmi sló við- kvæmt og stórt barnshjarta. Hreinleiki hugans geislaði úr björtum augum og hlýju brosi. Göfugt hjartalag og varmt vinarþel snart djúpt í löngu, þéttu handtaki. Nú er hann horfinn sjónum. Fjölmennur hópur vina og aðdáenda stendur hnípinn og drúpir höfði í hljóðlátri þökk. Þjóðin á á bak að sjá einum sinna sönnustu sona. Þreyttur, jarðneskur hjúpur er hniginn til moldar. En and- inn er svifinn á vit guðs síns um vonbjarmans djúp. Við biðjum honum fararheilla, góðrar heimkomu og eilífrar blessunar. Guði sé lof, sem gaf hann. Sverrir Pálsson. IMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMi iimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiimimiiiiiiiiimmiiiiiiimiiiiiiimiiiiimmiiiimmmiiiiiiiiiiimmiimmimimmiimimmmiiiiiiiiiimiiiiimiiiiimiiimiiimimmmimmm*

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.