Dagur - 15.03.1961, Page 2
«r
2
Landhielgi
í ÚTVARPSUMRÆÐUNUM á
dögunum, er þingál.tillaga um
landhelgismálið var rædd, lýsti
Ólafur Thors, fprsætisráðherra,
viðtali því, er hann átii við-
MacMillan, forsætisráðherra
Breta, þegar þeir hittust á
Keflavíkurflugvelli.
Greindi Ólafur, forsætisráðh.
ýtarlega frá rökstuðningi Bret-
ans, en sagði síðan: „Mín gagn-
rök skipta íslendinga minnu.
Þau eru öllum kunn.“ Þá sagð-
ist hann hafa lagt mesta
áherzlu á, að hann teldi fyrri
„aðgerðir íslendinga reistar á
lögum og rétti,“ og að aðgerð-
irnar'væru „helgur réttur lít-
illar, dugmikillar þjóðar, til
þess að lifa frjáls og öðrum ó-
háð í landi sínu.“
Þegar athuguð eru þessi um-
mæli forsæíisráðherrans, birt-
ist ljóslega hinn furðulegi tví-
skinnungur, sem komið hefur
svo berlega í Ijós hjá formæl-
endum stjórnarliðsins í þessu
máli. T. d. segja þeir að samn-
ingurinn sé gerður til að forða
íslenzkum sjómönnum frá hætt
um, er stafi af ofbeldisaðgerð-
um Breta, en vilja svo í annan
stað ekki viðurkenna, að samn
ingurinn sé gerður vegna of-
beldisaðgerðanna. Yfir þeim
hafa verið þulin ótal rök, er
hafa sýnt fram á, hversu óverj
andi samningurinn við Breta
væri, og þeim virðist sjálfum
hafa verið þau ljós, eins og sést
af þeim ummælum forsætisráð-
herra, er vitnað var í hér að of-
an. En samt kváðu við þessi
undarlegu ummæli: Rök íslend
inga skipta íslendinga niinna
má!i, en rök Breta.
Það er ekki að undra, þótt
það tæki sex vikur að lciða
þeim Jónasi Rafnar, Magnúsi
Jónssyni og Bjartmari Guð-
mundssyni (síðast en ekki sízt)
það fyrir sjónir. En þá, og því
aðeins þá, að það tókst, er skýr
ing á því hvers vegna hinn sorg
legi atburður, að meiri hluti A1
þingis glataði niður hinum ein-
hliða rétti íslands til útfærslu
landhelginnar, skuli hafa gerzt.
En það hlýtur að vera merki
legt rannsóknarefni út af fyrir
sig, hvaða rökum Bjarni dóms-
málaráðherra hefur beitt til að
telja þeim trú um þetta, og
verðúr líklega seint upplýst.
En þó er ekki úr vegi að
minnast á tvö atriði, er sterkar
líkur benda til að beitt hafi ver
ið sem rökum. Hið fyrra er
nauðsyn á flokkshollustu, en
þingmönnum Sjálfstæðisflokks
ins er sjálfsagt ljóst orðið að
hún er fyrst og fremst bundin
vilja örfárra valdamanna, en
ekki kjósenda flokksins yfir-
leitt. En þó má ætla að engu
minni áherzla hafi verið lögð á
nauðsyn eflingar vestrænnar
samvinnu og hefur aðeins örl-
að á þeim rökum opinberlega,
þótt með þau sé farið eins og
feimnismál.
Já, svo mikil nauðsyn virðist
sumum mönnum á eflingu vest
rænnar samvinnu, að þeir telja
það heilaga skyldu sína að
- Vestræn
fórna á altari hennar jafnvel
„rétti lítillar þjóðar til að lifa
frjóls og óháð í landi sínu.“ En
væri það til of mikils mælzt, að
þessir hinir sömu menn gerðu
sér það ljóst, að ef nokkuð get-
ur orðið til þess að gera íslend-
inga fráhverfa vestrænni sam-
vinnu, þá er það þessi furðulegi
undirlægjuháttur og þjónslund
gagnvart Bretum (og Banda-
ríkjamönnum).
Þessum mönnum, sem styðja
vilja og telja mikils virði sam-
starf vestrænna þjóða, átti að
vera það kappsmál, að Bretar
létu skilyrðislaust undan síga
cg að sporna manna mest gegn
kröfum um nokkuð er réttinda
afsal hefði í för með sér af ís-
lands hálfu, ef þeir vildu láta
vestræna samvinnu líta út í
augum íslendinga, öðru vísi en
einhliða eflingu Bretaveldis (og
Bandaríkjanna), þannig hljóta
síðustu aðgerðir að líta út.
En hvernig sem þetta annars
er, er ljóst að fyrir hótun um
beitingu hervalds eða annarra
þvingunarráðstafana hefur
stjórnarforustan guggnað og
samningurinn því nauðungar-
samningur og verður að met-
samyinna
ast eftir því. En hinu ber ekki
að neita, að stjórnarforustan
hefði mátt leggja á það meiri
óherzlu en hún gerði, ef hún
vildi tryggja sér fyrirgefningu
komandi kynslóða. S. B.
| SKÓGARÞRÖSTUR j
I í RORGARFIRÐI ]
MORG eru undur veraldar, svo
sem bezt má sjá af því, að skóg
arþröstur sást í Borgarfirði
syðra hinn fyrsta marz og flögr
aði sá á milli hesta og settist
jafnvel á hestbak.
Frá þessu er skýrt í sunnan-
blöðum og þess getið um leið,
að hér sé líklega um eftirlegu-
kind að ræða, sem orðið hefði
eftir, þegar félagar hans héldu
til heitari landa.
Sem viðbót við þessa frétt
má fraéða sunnlenzka blaða-
menn um það, að mörg hundr-
uð skógarþrestir dvelja vetur-
langt á Akureyri. Til dæmis
um það, sátu um 600 þrestir í
trjám tveggja samliggjandi
húsagarða fyrir fóum kvöldum
og sungu hástöfum. □
BYGGiGANÁLII Á DAGSKIÁ
Þórir Raldvinsson talaði á bændaklúbbsfmidi
SÍÐASTA bændaklúbbsfund
sátu 120 manns. Þar flutti Þór-
ir Baldvinsson, arkitekt, erindi
um byggingar og sýndi myndir
af teikningum í skuggamynda-
vél og skýrði þær. Ræðumaður
kom víða við, minnti á að rækt
unin hefði aukizt, búin stækk-
að og dýrtíðin vaxið, vélar og
hús kostuðu meira nú en áður.
En hver bóndi yrði að gera það
upp við sig, hve búin þyrftu að
vera stór til að bera uppi kostn
að af dýrum byggingum og vél
um og gefa bóndanum viðun-
andi tekjur til að lifa af. Að-
keypt vinna væri dýr og tak-
mörk væru fyrir því, hvað einn
maður gæti á sig lagt, t. d. við
einyrk j ubúskap.
Ræðumaður sagði, að hlutfall
ið milli hinna einstöku kostn-
aðarliða í byggingum hefði rask
azt. Efni hefði hækkað í verði,
vinnulaun staðið í stað. Alltaf
væri spurning, hvort byggja
ætti úr steinsteypu eða léttara
efni. Hann benti á, að báruas-
best væri helmingi ódýrara en
timburklæðning, hver fermetri,
og væru ódýrustu veggplöturn-
ar. Þá vék ræðumaður að súlu
grunnum, sem oft gætu orðið
til sparnaðar á efni og vinnu, þ.
e. húsið hvílir þá á súlum í
stað þess að hvíla á samfelldum
grunni.
Um verkfærageymslur sagði
Þórir að það væri meira en von
að þær væru víða óbyggðar
ennþá, því fyrst yrði að byggja
yfir fólk og fénað. Vel gæti líka
farið á því að geyma vélar úti,
a. m. k. í þurrviðrasveitum, ef
þær stæðu á þurru og hreyfi-
fletir vélanna væru smurðir
fitu. Vélageymslur yrðu aö
vera mjög þurrar og vel loft-
ræstar, ættu þær að vera betri
geymslustaður en úti.
Þórir Baldvinsson taldi hjarð
fjósum margt til ágætis, eink-
um eftir að horfið var frá
timbri í rimla, en þeir eyddust
fijótt undan klaufum nautpen-
ingsins, og járnbentur steinn
kom í þeirra stað.
Ræðumaður taldi vandkvæði
á, að verksmiðjubyggð hús
leystu vandann og lækkuðu
byggingakostnaðinn. Hér á
landi væri of lítið byggt ár-
lega, til þess að svara kostnaði
við verksmiðjubyggingu til
framleiðslunnar.
Umræður ui'ðu miklar að
ræðu frummælanda lokinni.
Sigurjón Steinsson, bústjóri
á Lundi, stjórnaði fundinum. □
| Togari strandar j
BREZKUR togari frá Grimsby
strandaði við Sandárós í Dýra-
firði í fyrrakvöld í ágætu veðri.
Hann var á leið til Þingeyrar
til viðgerðar. Tvö radartæki
togarans voru í gangi er togar-
inn renndi upp í sandfjöru.
Presturinn ó Þingeyri heyrði
fyrstur neyðarmerki skipsins og
gerði aðvart. Tungufoss og
brezkur togari drógu strand-
skipið á flot í gær.
Erlendir togarar leituðu oft
til Þingeyrar á fyrri árum, því
þar er hin góða vélsmiðja Guð-
mundar Sigurðssonar.
Togarinn mun talinn lítið
skemmdur, en strand hans er
hið furðulegasta, hvað sem
valdið hefur. □
- BÆNDAHÖLLIN
(Framhald af bls. 1)
verður hótel á efstu hæðunum
með 90 gestaherbergjum. Þykir
fara vel á því, að hin fræga ís-
lenzka bændagestrisni stuðli að
því að erlendir menn geti heim
sótt landið. En í þeim málum
er slíkt ófremdarástand, að
fjöldi ferðamanna, sem hingað
vill koma ár hvert, verður að
fresta för eða hætta alveg við
að koma vogna gistihúsavönt-
unar. Hitt þarf naumast að taka
fram, að Bændahöllin verður æ
tíð fyrst og fremst gistihús
bændanna og annarra þeirra ut
an af landi, sem til Reykjavik-
ur koma.
Bændahöllin kostar nú um 20
milljónir króna og hafa bænd-
urnir einir lagt það fé fram.
Nokkra tugi milljóna vantar
enn og mun verða reynt að
taka nokkurt lán til að ljúka
byggingunni og taka hana í
notkun. Á neðstu hæðum verð-
ur húsnæði leigt út fyrir verzl-
anir o. fl. og eru af því vissar
tekjur. Þá verður í húsinu 500
fermetra samkomusalur og aðr
ir minni.
Skiptar voru skoðanir manna
um stærð þess húss er byggja
skyldi og eru það eflaust enn.
Flestir munu þó á einu máli
um það, að Bændahöllin verði
bændastéttinni til sóma, sýni
stórhug hennar og getu og að
hún minni jafnan á hinn virðu-
lega og elzta atvinnuveg lands-
manna. Forseti íslands, herra
Ásgeir Ásgeirsson, minnti á í
ræðu við þetta tækifæri, að
þótt einhverjum fyndist e. t. v.
í mikið ráðizt með því að
byggja svo veglegán Miðgarð
íslenzkrar bændastéttar, væri
þetta eðlilegt andóf gegn mold-
arkofum, sem áður voru hvar-
vetna og ekki meiri munur á
húsakosti, en munurinn á hjól-
börum og dráttarvél á sviði
verkmenningar.
Ræktun og menning fer sam-
an, sagði forsetinn. Sveitirnar
hafa alið upp sjómenn, iðnaðar
menn, sérfræðinga og embættis
menn þjóðarinnar, ásamt því
að breytast sjálfar í framfara-
átt.
Ingólfur Jónsson, landbúnað-
arráðherra, gaf loforð ríkis-
stjórnarinnar um það, að styðja
að lánsútvegun til Bændahall-
arinnar og taldi tekjur mjög
vissar af Bændahöllinni til end
urgreiðslu. Hann fagnaði því
mjög, að Bændahöllin greiddi
götu ferðamanna með hótel-
rekstri. Hann vonaði, að hús
þetta yrði tákn nýrrnr sóknar
í landbúnaðarmálum og skal
undir það tekið, en einnig þess
óskað, að bæði Ingólfur Jóns-
son og annað íhald, sem nú ræð
ur og hefur lagt helfjötra á
bændnstétt landsins með hinum
harkalegustu aðgerðum á Al-
þingi, megi framvegis sem
minnstu ráða í málum landbún
aðarins. □
Auglýsingar þurfa að
berast fyrir hádegi dag-
inn fyrir útkomudag.
mmmmm
TIL SÖLU
GÓÐUR JEPPI.
Gísli Guðmann, Skarði,
sími 1291.
FUNDIÐ
Fundizt hafa peningar á
Strandgötunni 4. marz sl.
Uppl. í síma 2496
kl. 2-4 síðd.
ÍBIJB ÓSKAST
til leigu 14. maí. Fyrir-
framgreiðsla kennir til
greina. Uppl. í síma 2167
eftir kl. 7 e. h.
ÍBÚÐ TIL SÖLU
Þriggja herbergja íbúð
í Brekkugötu 33 til sölu.
Uppl. í síma 2Q40.
ÍBÚÐASKIPTI
4ra herbergja íbúðarhæð
óskast í skiptum fyrir ný-
tízku einbýlishús á góð-
um stað í bænum.
Afgr. vísar á.
TIL SÖLU:
Þrenn unglingaföt, karl-
mannsföt, smökingfiit og
peysu f ataf rakki.
Lágt verð.
Eiösvallagötu 9,
sími 1517.
NÝR TROMPET
TIL SÖLU.
Uppl. í síma 2146
milli 6—8 e. h.
TIL SÖLU
VORBÆR KÝR
á fjórða kálfi.
Afgr. vísar á.
TIL SÖLU
P. 70, árgerð 1956.
Ekinn 50 þús. km.
Verð og greiðsluskilmál-
ar sanngjarnt.
Afgr. vísar á.
TIL SÖLU
BARNARÚM með dýnu.
Uppl. í síma 1663.
Tapazt hefur
HVOLPUR,
hvítur með svartan haus
og svarta bletti. Vinsam-
legast geri aðvart í Skjald-
aryík, sími 1382.