Dagur - 15.07.1961, Page 6

Dagur - 15.07.1961, Page 6
ÞYÍ DREPTI GUÐ EKKI TRÖLLIN.. Gunnar, sonur Matthíasar Jochumssonar, flutti eríndi þetta við opnun Matthíasarhússins *)^ - Mikið síldarmagn (Framhald af bls. 8) TILFINNINGAR mínar á þess- ari stund eru eins og týnda son- arins, þegar hann kom aftur til foreldrahúsa. Eg geri varla ráð fyrir að honum hafi verið létt um tungutak og einhver þrengsli munu hafa verið inní- fyrir, sem hindruðu það, að hugsanirnar fengju útrás í orð- um. Og mínum orðum er hér alveg ofaukið, því hvorki mikla þau eða minnka minningu þess manns, sem öll íslenzka þjóðin geymir í hjarta sér. Já, sonurinn er aftur kominn til föðurhúsanna eftir langa úti- vist, föðurhúsanna, sem þó voru mér aldrei töpuð eða týnd, því minningarnar hafa verið mitt leiðarljós um æfina. Eg þykist sjá það á svip fólksins hér, að það búi yfir þessari spurningu: Hverskonar fugl er hann þessi, sem flaug úr hreiðri sinna elskulegu foreldra fyrir 63 ár- um? Er nokkurt ættarmót með honum og föður hans? Jú, hann hefur stórt nef, en hann hefur líklega vaxið meira niður frá nefinu en upp, og um það, sem innifyrir býr, er ekki vert að forvitnast. En kannski varð ég þó þjóðkunnur fyrir spurninguna, sem ég rak að pabba, þegar við riðum yfir Oxnadalsheiði, en þá var ég á fimmta ári: „Því drepti ekki guð tröllin þegar hann skap- aði?“ Svarið var honum ofraun. Eg sé hér margt, sem gleður hugann: Utsýnið fagra, því söm er Vaðlaheiðin, Pollurinn fiski- ríki með skautasvellið á vetr- um. Eg sakna að vísu ættingja og vina, sem eins og komizt er að orði, eru komnir yfir um. En ef þeir skildu eftir sig vel prjónaða sjóvettlinga, var þeirra líf einhvers virði. í minni æsku vorum við allir hér, þorparar, háir sem lágir, en nú hafið þið teygt ykkur mjög upp úr meðalmennsk- unni. En það átti ekki að vera mitt hlutskipti, og er ég því ekki laus við öfund. En þó ég hefði haldið áfram að vera þorp ari, myndi ég hafa glaðzt af stórstígum framförum ykkar. Þegar ég nú lít yfir húsmun- ina og safngripina hér, kemur mér margt kunnuglega fyrir sjónir og margt af þessu á sína sérstöku sögu. Skrifpúltið gamla gæti sagt frá mörgu ó- skráðu, ættum við skyggnigáfu. Þegar ég kom inn í rökkrinu eitt sinn, sá ég föður minn vera að nudda blett á púltinu, raul- andi eitthvað á meðan. „Hvað ertu að nudda, pabbi?“ „Eg er að reyna að afmá bjettinn, sem ég hef ekki tekið eftir fyrr“, svaraði hann. „Hættu pabhi, þetta er tunglinu að kenna“. „Jæja, þá verð ég líklega að láta blettinn vera.“ Eg sakna horn- skápsins, sem var naglfastur í gamla húsinu. Hann hafði að geyma sætabrauð og fleira, en var vandlega læstur. En pabbi vissi um lykilinn, og þegar viss- ir gestir komu, var skápurinn opnaður. Þótti mér það fagurt, sem ég sá í efstu hillunni. Þar voru glitrandi glös og dálítil flöskudýrð og silfurbikar, mjög virðulegur. Hann ferðaðist, fólg inn í hnakktösku pabba ásamt messuvíni og oblátum. Hann hefði getað sagt frá huggun og hressingu hinna þjáðu. Þessi bikar var líka notaður fyrir sterkari drykki, en það voru að eins vissir sálufélagar pabba, sem fengu að teyga hinn kröft- uga vökva, svo sem séra Jónas frá Hrafnagili og séra Pétur úr Grímsey, og hafði ég gaman af | Meðfylgjandi erindi flutti | I Gunnar Maíthíasson við opn 1 = un Sigurhæða, minjasafns \ § Matthíasar Jochujnssonar. i | Gunnar hefur lagt gjörfa 1 | hönd á margt, svo sem lyfja- i i fræði og lyfjasölu. Hann er i | maður hreinskiptinn, einarð- = ; ur og vel máli farinn. Blaðið i = fékk leyfi hans til að birta i i erindið og þakkar blaðið það i i og ánægjulega viðkynningu. | • >11■11■11111■■i■l■■■l■■I■■lli11111•11■■■11111■l■■11111111111■l< ■ að sjá þá kalla púa í skeggið og hlusta á samræður þeirra, sem aldrei voru hlekkjaðar guð- fræðilegum ágreiningi. Forn- sögufróðleikur Péturs og frá- sagnarsnilld Jónasar var mitt yndi. Þó að Guðmundur Hann- esson væri tíður gestur, sá ég pabba aldrei bjóða honum bik- arinn. Andi Guðmundar og andi bikarsins áttu víst ekki sam- leið. Eg hélt mikið upp á þessa kalla og hleraði hvað þeir sögðu og þegar Eggert Laxdal var í hópnum, var létt um samræður. Mikið var í þann mann spunn- ið og stundum lánaði hann mér netin sín. Þessi umtalaði bikar (og Gunnar dró bikarinn upp úr vasa sínum) hefur verið í minni umsjá í mörg ár, ásamt silfurdósum (og Gunnar dró þær upp úr öðrum vasa), sem Steingrímur bróðir sendi mér skömmu eftir lát föður okkar. Dósirnar voru gefnar af Einari Benediktssyni og bárust mér þær fullar af ilmandi tóbaki með baun. Þóttfst ég viss um, að töframáttur fylgdi dósunum, þar sem slíkir andans menn áttu í hlut. En þótt ég nuddaði dós- irnar og hrópaði til andans, kom það fyrir ekki og ég gat ekki einu sinni orðið leirskáld, hvað þá atomskáld. Eg var bú- inn að ganga með dósirnar í tvö ár og tóbakið farið að minnka í þeim án nokkurs árangurs, þeg ar þær loksins tæmdust í veizlu í Seattle hjá okkur Halldóri Laxness, en honum var veizla þessi haldin. Líklega hefur and anum litizt betur á hann. Af uppvexti mínum og sjálf- um mér er lítið að segja. Eg óx upp eins og gorkúla, sleit fötum mínum í tuski, gekk oft á kú- skinnskóm, var langur sláni og kallaður langi Gaui af sumum.. Eg hélt, að allt mætti vinna með hreysti upp á fornkappavísu, var hyskinn við nám og áreið- alega óhæft prestsefni. En pabba og mömmu þótti vænt um mig. Þá var þröngt í búi, framtíðarvonir daufar, hafís og harðindi. Þá fór ég að hugsa til Ameríkuferðar, til lands alls- nægtanna, og ef mér geðjaðist ekki að búskapnum þar, færi ég bara vestur að Kyrrahafi, þar sem fiskigöngur voru sagðar miklar. „Farðu vestur, ungi maður“, var kjörorðið. Svo fór ég vestur, en eftir tvö og hált ár hjá góðu fólki í Manitoba, var ég orðinn leiður á búskapn- um, hitanum og mývarginum en hafði þó fest mér unnustu, sem síðar varð konan mín, og ég hef átt með hveitibrauðsdaga í 56 ár, án þess að ég sé að stríða þeim i Hollyvood. Foreldrar mínir tóku vestur- för minni með trega, en móðir mín þóttist þó viss um að ég gæti mannast þar með Guðs hjálp. En pabbi, sem mundi hve treglega gekk með kverið, gekk með mér fram og aftur um dekkið á skipinu, sem flutti mig vestur, áður en landfestar voru leystar, talandi margt, en hugur minn var allur bundinn við hið fyrirhugaða land í vestri. En eitt man ég, sem faðir minn sagði við mig: „Hættu að fara með byssu og skjóta fugla.“ Þessu hef ég hlýtt. Enn fremur sagði hann: „Og ef þú átt bágt með að hlýða öllu, sem þú varst fermdur uppá, þá reyndu að lifa í sátt við alla og helzt að láta þér þykja vænt um alla menn.“ Þessi áminning föður míns hefur oft flækst fyrir mér, því þó ég hafi oftast leitast við að vera ekki öðrum tjl trafala, þá er fyrirgefningarhneigð mín ekki meiri en svo, að mig tekur sárt ójöfnuðurinn, kynþáttaríg- urinn, lýgin svikin og hatrið, sem af áróðri og ofstæki stjórn- málamannanna er runnið. Það má svo heita, að ég sé flokks- leysingi og þá um leið efasemd- armaður, en met mikils það, sem faðir minn sagði í kvæði: „Hvað hefi ég lært að líf og heilsa manna er leit og stöðug eftirspurn hins sanna.“ Ég fagna nú því hlutskipti að eiga ágæta foreldra. Fagna því einnig að ég hlaut þegnréttinni hjá ágætri þjóð, þó margt sé til, sem miður fer. Það er mín stað- föst trú, að ef vetnissprengjunni verður ekki varpað, muni bræðralag og jafnrétti nást með tíð -og tíma. Þá er komjð nærri takmörkum minnar trú- arjátningar. Þegar vopnin eru niður lögð og rás öfugstreymis- ins stöðvuð, mun ný veröld verða í sköpun, þar sem menn fara að læra að hugsa í sam- ræmi við hinn mikla mátt, sem stjórnar hinum enn lítt skiljan- lega geimi. Það er ósk mín og von að þegar „faðmast fjarlægir lýðir . . . verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár, sem þroskist á guðsríkisbraut." □ Kálfabjúgu úrvalsgóð. NÝJA-KJÖTBÚÐIN Símar 1113 og 2666 Útibúið sími 2661. Auglýsingar þurfa að berast fyrir hádegi dag- inn fyrir útkomudag. ið og myndavélin vinnur sitt verk á sinn óhlutdræga hátt. Hvenær komstu annars hing- að norður á síldveiðarnar? Eg kom hingað 19. júní. Við vorum enn ekki hættir syðra þegar fyrsta síldin barst á land hér fyrir norðan. Hvað varstu búinn að vciða mikið af síld fyrir sunnan? Frá 1. júní til 16. júní fengum við 6 þúsund, en hættum þá og héldum norður. Þegar hér er komið kallar landsíminn og Eggert kveður og fer upp bryggjuna. Þarna fer hinn umtalaði aflakóngur, gjörvilegur maður í sjón, og ef mér ekki skjátlast því meira, góður maður í raun. Um borð vinna hásetarnir, allt ungir menn og vasklegir, að lönduninni og láta gamanyrði fjúka. Þessir menn sýnast hvorki svefnvana eða þreyttir. Skipstjóri eins og Eggert getur auðvitað haft valinn mann í hverju rúmi. Þökk fyrir viðtalið, skipstjóri. Góða ferð á miðin. E. D. *iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii<iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiI,,, I Úperetta og útihátíS I ÞAÐ HEFUR dregizt lengur en ég ætlaði, að stinga niður penna og minnast lítillega óperettunn- ar „Bláa kápan“, er flutt var hér á Akureyri í vor, og þá einnig útihátíðar tileinkaðri þjóðhátíðinni, er haldin var á Ráðhústorgi að kvöldi 18. júní síðastliðinn. Það er oít fundið að hinu og þessu, sem mætir í daglegu lífi, enda vissulega margt þar, sem er aðfinnsluvert. En hins skal þá og jafnframt geta, sem er þess eðlis, að það varpar gleði- leiftrum inn í grá.móðu hvers- dagsins, lyftir mót ljósi og yl og er þeim, sem um það fjalla til vegs og sæmdar. Með fullri virðingu fyrir því, sem ég hef séð og heyrt í leik- , húsi á liðnum árum, og án þess að nokkurt vanþakklæti komi fram gagnvart þeirri list, sem þar hefur verið túlkuð, segi ég það í fullri hreinskilni, að telj- andi eru þær stundir, sem ég hef átt ánægjulegri í leikhúsinu en þegar ég í vor horfði á „Bláu kápuna“ í meðferð Leikfélags Akureyrar. Ég gleymdi bókstaflega stund og stað og hin góðu áhrif voru annað og meira en skrautbúirt dægurfluga. Þau vöruðu lengi og lýstu og yljuðu umhverfið. Á leiksviðinu í flutningi „Bláu kápunnar" var margt stórvel gert, látbrögð, tal og tón ar allt í senn, orkaði á þá, sem notið fengu, með eftirminnileg- um hætti og bera leikstjóra og leikendum vissulega miklar þakkir fyrir frammistöðuna, og er þeim þökkum hér með komið á framfperi, þótt seint sé — í skírskotun til þeirrar ævagömlu fullyrðingar, að betra sé seint en aldrei. Ég nefni hér engin nöfn, geri ekki upp á milli einstaklisiga, er fram komu í óperettunni, enda cr þetta greinarkorn- ekki í ætt við neinn leikdóm. Eg segi aðeins: Hafi þeir allir heila þökk fyrir ánægju- n'ka og lífræna túlkun á ljúfum söngleik. Megi þeim launast vel fyi'ir öll brosin, sem þeir vöktu á vörum leikhúsgesta,- og allan fögnuðinn, sem þeir kveiktu í brjóstum þéirra — með svö hugþekkum hætti. Vegna eftirlætis míns á óper- ettunni „Bláa kápan“, vakti það mér sérstaka gleði, er at- í’iði úr henni var fellt inn í skemmtidagskrá þá, er Akur- eyi'ingar tileinkuðu kvöldi þjóðhátíðardagsins og fram fór á Ráðhústorgi þann 18. júní sl. Á ég þar við samleik og söng þeii-ra Bjai'gar Baldvinsdóttur og Jóhanns Ögmundssonar. En þau skiluðu þessu hlutverki með mikilli prýði þar á útihá- tíðinni á torginu sem á sviðinu í Samkomuhúsinu. Ég vil nota tækifærið til að þakka ágæta skemmtun, sem Lúði-asveit Ak- ureyrar veitti þetta kvöld með leik sínum, sem ætíð, er hún kemur fram. Einnig vil ég þakka gamanþátt, gamanvísna- söng og annað það, er þarna var flutt og varð þess megnugt að vekja gleði og lyfta um stund yfir dægurönn og amstur. Þetta allt, sem hér hefur verið nefnt, ásamt dansi nýstúdenta á torg- inu, undir mildum geislum, er veðurguðii-nir höfðu bi-eytt um frá hörku til blíðu, er þess vert að minnast þess og geyma í hlýjum huga. — Því að þannig er lífið, þegar sumarið hlær við með þeim hætti, að við hljótum að játa, að það sé „sælt að vera til. Borgari.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.