Dagur - 06.09.1961, Side 1
S: Framsóknarmanna
: Rirsrjóm: Eruni:i;r Davíhsson'
Skrikstoi-a í HAFNARSTR.cn 90
Sími Hö6 . Sr.r\i.\(.ii oc i'RENTUN
ANNAST Prknt\'erk Onus
Björnssonar h.f. Akurevri
—------------------;...
Dagur
XLIV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 6. september 1961 — 41. tbl.
Aitci.ÝstNOA.sfjóki: Jön Sam-
ÚEJLSSON . ÁKGANCURINN KOSIAK
KR. 100.00 . O j Al.DUACI F.K 1. JÚ'U
Bl.AÐIÖ Kr.Mt'R Úl' Á MIBVIKUDÖG-
' t'M OG Á I.AUCARUÖCL'M
FECAR ÁSTÆÐA ÞVKIR TIL
k---------------------------....; J
Frá aðalfundi Stétfarsamb. bænda
Framleiðendur telja verðhækkun óhjákvæmi-
lega, en neytendur bjóða þeim lækkun
FIMMTÁNDI AÐALFUNDUR Stéttarsambands bænda var sett-
ur í Bifröst í Borgarfirði kl. 10 árdegis í gærmorgun af Svefri1
Gíslasyni í Hvammi, form. sambandsins. Fundarstjóri var kosinn
Jón Sigurðsson fyrv. alþingismaður á Reynistað. Fulltrúar voru
47 auk stjórnar Stéttarsambandsins, Framleiðsluráðs og margra
gesta.
Sverrir Gíslason flutti skýrslu um störf sambandsins á liðnu ári
og gat þess m. a. að Kristján Karlsson fyrv. skólastjóri á Hóluin.
hefði verið ráðinn erindreki Stéttarsambandsins. Sverrir ræddi
ýtarlega um verðlagsmálin. Verðlagsgrundvellinum hefði verið
sagt upp af hálfu fratnleiðenda.
Samningur um nýjan verðlagsgrundvöll hefur ekki náðst ennþá
þrátt fyrir marga fundi. Og ber mikið á milli. Framleiðendum
virðist, að útsala á búsafurðum þurfi að hækka um allt að 30%
miðað við sl. verðlagsgrundvöll, vegna gengisfellinga og stórhækk-4
aðs verðs á rekstursvörum landbúnaðarins, og vegna mikilla hækk
ana á launum verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna, sem þess-
ar stéttir hafa fengið. En þær hækkanir verða að koma bændum til
tekna á sama hátt.
Fulltrúar neytenda í sex-manna-nefndinni, sem ákveður verð-
lagsgrundvöllinn og verð búvara, bjóða 2% lækkun, og ríkir mikil
grcmja á fundinum vegna þessarar afstöðu neytendanna.
Þrátt fyrir þennan ágreining er vonandi að vinnandi stéttir
komi sér saman um verðlagsgrundvöllinn, og að fulltrúar neytenda
skilji, að vel atliuguðu máli, kaupkröfur bændanna og mæti þeiml
á sama hátt og þeir vildu að atvinnurekendur mættu hinum al-
mennu kaupkröfum í sumar. □
Elzfur botaniskur garður á íslandi
Þýzkur fagmaður og organisti Akureyrarkirkju við niðursetningu nýja pípuorgelsins (Ljm.: E. D.)
Ný kjörbúð IÍEA i Glerárliverfi
NÝLEGA birti Reykjavíkur-
blað þá fregn að í Laugardal
væri fyrsti vísir að botaniskum
garði á Islandi. Þetta er rangt.
Á Akureyri er slíkur garður
þegar orðinn 5 ára, stofnaður
1956 og er hluti Lystigarðs Ak-
ureyrar, sem er hálfrar aldar
gamall og með fegurstu görðum
þessa lands.
íslenzka deildin í Lystigarði
Akureyrar vantar nú aðeins
tvær tegundir til að fylla fjórða
hundraðið. Virðist þess því
skammt að bíða, að þar verði
saman komnar allar hinar ís-
lenzku tegundir á einum stað.
Auk þessa eru í Lystigarði
Akureyrar um 1200 tegundir er
lendra plantna, að því er Jón
Rögnvaldsson, forstöðumaður
garðsins, tjáði blaðinu, tré, runn
ar og blómjurtir. □
K.E.A. opnaði laugard. 2. sept.
sína fimmtu kjörbúð á Ak-
ureyri. Þessi kjörbúð stendur
við Lögmannshlíðarveg í Gler-
árhverfi og er stærsta og vand-
aðasta kjörbúð félagsins, og
glæsilegasta nýlenduvöruverzl-
un bæjarins.
Aðalbyggingarmeistari húss-
ins var Haukur Árnason, sem
hefur teiknað husið. Húsið er 2
hæðir á kjallara og um 2.200
rúmmetrar að stærð. Búðarhæð
er um 350 fermetrar, þar af er
sjálf búðin um 230 fermetrar.
{IVýtt uppbótarkerfi |
SÍÐASTA hálmstrá ríkis-
stjórnarinnar, sem hún hékk á
eftir að hún var búin að svíkja
flest sín stóru loforð og breyta
gegn yfirlýstri stefnu í öllum
meginaatriðum, var afnám
hennar á útflutningsuppbótum.
Það hálmstrá brást í nýafstað-
inni gengisfellingu, því að sam-
hliða henni lögleiddi stjórnin
(allt með bráðabirgðalögum)
nýtt útflutningsgjald á allar
sjávarafurðir. Sjóðir, sem af
þessu myndast, eiga að standa
straum af nýju uppbótarkerfi
atvinnuveganna. — Lengi vel
var því hampað í blöðum ríkis-
stjórnarinnar hve vel henni
hefði tekizt í þessu efni vegna
skörungsskapar og framsýni. □
” % §
i. . L_...... ... .
Starfsfólk útibúsins. Torfi deildarstjóri lengst t. h. (Ljm. G. P. K.):
Slærsta síldar-kaslið á sumrinu
ÓLAFUR MAGNÚSSON frá
Akureyri var á síldveiðum fram
að síðustu helgi, 80—90 mílur
austur í hafi. í síðustu veiðiferð
náði hann 900 tunnum úr því
stærsta kasti, sem skipsmenn
höfðu nokkru sinni séð. Engin
tök voru á að ná allri síldinni
og tókst að hella úr nótinni
þangað til viðráðanlegt magn
var eftir, eða fyrgreindar 900
tunnur. Byrjað var að bræla.
Síldin var stór og feit og hefur
faiúð batnandi austur þar. Að-
eins tvö norðlenzk skip eru enn
á síldveiðum, Ólafur Magnús-
son, sem kominn er yfir 20 þús.
mál og tunnur og Baldur frá
Dalvík.
Til skamms tíma hefur fjöldi
erlendra skipa verið á síldar-
miðunum eystra og aflað vel.n
Múrhúðun var unnin af Sigurði
Hannessyni og félögum.
Búðarinnréttingu annaðist
húsgagnaverkst. Ólafs Ágústs-
sonar, sem hefur og séð um
smíði allra innréttinga í kjör-
búðum félagsins, Teikningar að
innréttingunni gerði teiknistofa
SÍS.
Raflögn annaðist Raflagna-
deild KEA, en hita- og kælilögn
var gerð af Vélaverkst. Odda og
Blikksmiðjunni. — Uppsetn-
ingu hreinlætislagna annaðist
Gunnar Austfjörð. — Málara-
meistari var Jón A. Jónsson.
Kjörbúðarstjóri er Torfi
Gunnlaugsson, sem verið hefur
útibússtjóri í Glerárhverfisúti-
búinu. Hann er yngstur útibús-
stjóranna hjá KEA, aðeins tví-
tugur að aldri. Með honum
vinna 4—5 manns við þessa
nýju verzlun.
Kjörbúðin í Glerárhverfi er
*lllllllllllllllllllllllfllllllMMMIIIII>tlMlt>tltlttlltllllllM
|hvassafell|
kom hingað með 1700 tonn af
Kjarna frá Gufunesi.
í síðustu viku kom 4260 tonna
tankskip í Krossanes og tók 600
tonn af lýsi og síðan 1000 tonn
af lýsi á Hjalteyri. Þetta er
stærsta skipið, sem vörur hefur
tekið við bryggjuna í Krossa-
nesi. □
GÓD UFSAVEIÐI
Snæfell hefur aflað 115 tonn af
ufsa eftir að síldarvertíð lauk,
og Sigurður Bjarnason 55 tonn.
•MMMMMMMMMMMMIIMMIMIMMMMMIMIMMMMMMMIM*
IDagur I
kemur út á laugardaginn vegna
mikils efnis, sem bíður.
mikið gleðiefni íbúum norðan
Glerái', enda sóttu þeir það mál
fast að fá þetta nýja útibú.
Við opnun hinnar nýju og
glæsilegu verzlunar kom margt
manna, bæði til að verzla og til
að svala forvitni sinni.
Þessi kjörbúð er sú fyrsta á
Akureyri, sem er byggð frá
grunni, sem kjörbúð. Þar er
mjög þægilegt að verzla og
meira vöruval mun vera þar en
í öðrum kjörbúðum kaupstaðar
ins.
Nýja kjörbúðin í Glerárhverfi
er í röð myndarlegustu kjör-
búða á Norðurlöndum. □
•111111111111MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIM*
iVarð hlutskarpastur I
TÍMARITIÐ Vorið á Akureyri
efndi, ásamt Flugfélagi íslands,
til ritgerðasamkeppni meðal
unglinga. Efni ritgerðarinnar
var: Hvaða möguleika hefur ís-
land sem ferða
mannaland?
Margar ritgerð
ir bárust.
Sigurvegari
i keppni þess-
ari varð Einar
Karl Haralds-
>on, Byggða-
negi 91, Akur-
eyri, og fær að
Kerðlaunum ó-
keypis ferð til
Hafnar og vikudvöl í Dan-
mörku. Einar er tæpra 14 ára
og nemandi í Gagnfræðaskóla
Akureyrar. Tvenn II. verðlaun
hlutu Nína Gautadóttir, Reykja
vík og Guðmundur Gíslason,
Bólstað, Vatnsnesi, og eru það
fríar flugferðir innanlands. Auk
þess voru þrenn bókaverðlaun
veitt fyrir góðar ritgerðir □