Dagur - 08.11.1961, Blaðsíða 4

Dagur - 08.11.1961, Blaðsíða 4
4 5 Baguk Fegrun heimila FYRIR ALDARFJÓRÐUNGI fékk Jón- as Jónsson frá Hriflu og fleiri áhrifa- menn á Alþingi samþykkt lög um Bygg- ingar- og landnámssjóð og ári síðar lög 'um verkamannabústaði í kaupstöðum og kauptúnum. Það er ástæða til að fagna þessum Iögum og þeirri aðstoð, sem þau veittu bændum og verkamönn- um, bæði til að endurbyggja lélega bú- staði og reisa nýja. Talið er, að sam- kvæmt þessum lögum hafi 4000 sveita- bæir og 2000 íbúðir í þéttbýlinu verið reistar. Þessi mikla byggingaralda heldur enn áfram; þótt hún rísi og falli nokkuð vegna utanaðkomandi áhrifa. Umrædd stofnlög leiddu til þess, að launastéttir landsins hafa líka fengið mikinn stuðning við húsbyggingar úr varanlegu efni. Nær hann til kennara, presta, lækna, hjúkr- unarkvenna, sýslumanna og dómenda í Reykjavík. Þetta er glöggt dæmi um það, hvað djarfar hugsjónir um betra líf fá áorkað. En þótt hér sé orðinn mikill og góður húsakostur, gætu enn víða átt við orð séra Matthíasaar þegar hann lýsti Odd- eyri og sagði að því væri líkast að þar hefði verið fleygt á víð og dreif um völlinn nokkrum vesturfararkofum. ís- lenzk hús standa mörg á berangri og vantar þann hlýlega og menningarlega svip, sem vel hirtur trjágróður veitir. Ennfremur hefur marga vantað bæði smekkvísi og fjármuni til að búa hin myndarlega húsakynni sæmilegum innri búnaði. Við hvern sveitabæ þyrfti að vera a. m. k. ein örugglega friðuð dagslátta lands fyrir trjágróður. Gróðursetninguog viðhald mundi heimilisfólkið annast og ennfremur setja upp vandaða girðingu umhverfis. f mörgum sveitum eru flestir bæir ennþá án þessarar höfuðprýði. Fátt ber sveitabæjum í byggðum þessa lands gleggra vitni en hið ytra svipmót, húsin sjálf, trjágarðurinn og heimreiðin. Á grundvelli Iaga um Byggingar- og landnámssjóð og verkamannabústaðina, scm Iagður var fyrir 1930? liafa risið um 6000 sveitabæir og íbúðir í þéttbýli, og á sama tíma hcfur öll þjóðin, að hcita má, eignazt viðunandi húsnæði. En nú þarf að snúa sér að því tvennu að húseigend- ur fegri umhverfi hinna nýju húsa og að fólk geti búið íbiiðir sínar smekklegum húsgögnum, þar sem saman fari listrænn þokki og einfaldleiki. Samfélagið þarf að leggja til örfandi hönd og nokkra fjár- muni, svo sem í framhaldi af hinni giftu- drjúgu aðstoð við húsbyggingarnar sjálf- ar. Deilur hafa staðið um það, hvort hér á landi væru skilyrði fyrir ræktun nytja- skógar. Erlendir skógræktarmenn hafa tekið þessa skógræktartrú og veitt mik- ilsverðan stuðning. En hér á það við, sem Jónas Jónsson sagði nýlega: Það er deilt um það, hvort menn eigi að elska alla meðbræður sína, enda reynzt erfitt trúboð. Samt vill eng- inn sæmilegur maður fella niður bróður- kærleiksboðorðið. Margir brjóta það. Þó heldur hugsjónin áfram að vera lampi við fætur veikra og jarðbundinna manna á Ieið þeirra úr dýraríkinu til virðulegri bústaða. Og hvað sem líður nytjaskógum er hvarvetna hægt að rækta trjágróður til yndisauka. □ k._____________________________J Yigfús Kristjánsson Litla-Arskógi -. NOKKUR KVEÐJUORÐ — HELGI MAGRI hafði vetursetu á Árskógsströnd. Hann gekk upp á Sólarfjöll, sá að minna vetrarríki var inn til landsins og flutti þangað bæ sinn. Síðan hafa margir gengið á fjöll þau er rísa upp af Ár- skógsströnd, sumir séð hilla undir fögur lönd og farið að dæmi fyrsta landnámsmannsins. En aðrir sáu þaðan skýrar en áður fegurð sinnar eigin sveit- ar, þar sem staðföst hrikafjöllin, Kaldbakur og Ólafsfjarðarmúli og síbreytilegur útsærinn á milli þeirra mynda veglega um- gjörð um Eyjafjörð norðan- verðan, og einn af þeim var Vigfús Kristjánsson bóndi í Litla-Árskógi, sem sveitungar hans fylgdu til grafar 17. októ- ber. Vigfús var fæddur á Litlu- Hámundarstöðum á Árskógs- strönd 7. febrúar 1889. Faðir hans var Kristján Jónsson Hall- grímssonar frá Stóru-Hámund- arstöðum Þorlákssonar frá Skriðu í Hörgárdal. Móðir Vig- fúsar, eiginkona Kristjáns, var Guðrún Jóhanna Vigfúsdóttir Gunnlaugssonar. En Gunnlaug- ur sá var kvæntur Þóru Jóns- dóttur Jónssonar ríka frá Kross um. Foreldrar Vigfúsar fluttu að Hellu í sömu sveit árið 1911 og létu búið í hendur Kristjáni Eldjárn, syni sínum. Þau höfðu búið á Litlu-Hámundarstöðum langa búskapartíð. — Vigfús kvæntist 1913 eftirlifandi konu sinni, Elísabetu Jóhannsdóttur skipstjóra Jóakimssonar. En móðir Elísabetar var Hanna Gísladóttir Jónassonar frá Svín árnesi. Vigfús og Elísabet dvöldu fyrst í húsmennsku á Litlu- Hámundarstöðum, en hófu bú- skap á Kúgili í Þorvaldsdal ár- ið 1915. Þar bjó þá einnig Jó- hannes Jóhannesson. Þrem ár- um síðar fluttu þau að Grund í Þorvaldsdal og bjuggu þar í 7 ár, en keyptu þá Litla-Árskóg og bjuggu þar síðan við vaxandi velmegun. Síðar keypti Vigfús Litla-Árskógssand og lagði hann við jörð sína. Á Grund reis nýr bær, túnið stækkaði og vatni var veitt á Grundarnes. í Litla-Árskógi risu öll hús frá grunni úr var- anlegu efni og túnið þandist út til allra átta. Þetta var þó Vig- fúsi ekki nóg, því að hann hóf útgerð með nágranna sínum og með aðstoð sona sinna og stund aði hana til dauðadags. Enn ber þess að geta að Vigfús var eft- irsóttur smiður og jafnvígur á að reisa hús og byggja báta. Vann hann mikið að heiman fram eftir árum við smíðarnar og var að því ómetanlegt hag- ræði fyrir sveitunga hans. Vigfús Kristjánsson var þrek maður, vörpulegur og vel á sig kominn. Hann var fremur hlé- drægur og prúður í allri fram- komu, sneiddi hjá deilum og va;- góður nágranni. Dulur var hann um eigin hag og fáskipt- inn um annarra. Hann var gæt- inn og gjörhugull fram- kvæmdamaður, öll verk léku honum í hendi. Næmleiki hans fyrir hinum broslegu hliðum mannlífsins léttu honum erfið- leika líðandi stundar og brugðu birtu yfir hrjúfan hversdags- leikann. Yfir heimili þeirra hjóna hvíldi þokki hógværðar og prúðmennsku. Bæði voru gædd fegurðarsmekk, sem börnin erfðu og þroskuðu. í Litla-Árskógi er mikið safn fagurra, heimagerðra muna ög listaverka, á bak við íbúðarhús- ið er mjög fagur og listrænn blóma- og trjágarður. Vigfús Kristjánsson andaðist í sjúkrahiisi á Akureyri 8. október eftir skamma legu. — Margar vonir höfðu rætzt á starfssamri ævi og gæfuna fann hann á æskustöðvunum. Hann var einn af atorkumestu og hógværustu sonum sveitar sinnar, sem bæði er ljúft og skylt að minnast með þakklæti. E. D. ...... imiiiiimiiiit 111111111111111111111111 iiiiiiniiii* f Styrkja kornrækt | NOREGS handels og sjöfarts- tidende segir frá því um miðjan október, að ríkið greiði niður bygg, hafra, rúg og hveiti rækt- að í norskri jörð með kr. 20 milljónum norskra króna, eða um 770 milljónum ísl. króna. Kornrækt í Noregi er víða erfiðleikum bundin, og sem dæmi um það verða norskir bændur að fá nær tvöfalt hærra verð fyrir sinn rúg, en hægt er að fá hann fyrir á heimsmark- aðinum. Ennfremur styrkir norska ríkið þá bændur, sem örðugast eiga með ræktun, svo sem vegna einangrunar, fjalllend- is o. fl. Eftirtektarvert er, að í norska Stórþinginu voru niðurgreiðsl- urnar og uppbæturnar sam- þykktar mótatkvæðalaust. — Norskir þingmenn virðast hafa góðan skilning á því hvers virði það er þjóðinni allri að stemma stigu við fólksflutningum úr norskum sveitum. En þetta dæmi talar þar skýru máli. □ Er orsök kennaraskorlsins loks fundin? Nokkrar athugaseindir við skrif Alþýðumannsins Ritstjóri Alþýðumannsins hef- ur að undaníörnu rætt liag og málefni gamalla stéttarbræðra sinna nokkuð í blaði sínu. Ætla mætti, að þeir kynnu honum miklar jrakkir fyrir vclviljuð um- mæli, vinsamlegar vísbendingar um hagsmunamál sín og fróðlegar „staðreyndir" um kjör sfn. En kennarar liljóta að vera vanþakk- látastir stétta, Jrvf að j)á langar til að leiðrétta sitthvað af Jrví, sem blaðið heldur fram, ])ar sem allmikils misskilnings og missagna gætir J)ar að Jreirra dómi. Er liér J)ó aðeins mælt fyrir munn gagn- fræðaskólakennara, en hitt látið kyrrt liggja, sem að öðrum kenn- urum snýr. Fyrst alls vil ég mótmæla því eindregið, sem Alþm. heldur fram í ritstjórnargrein hinn 17. okt., að kennarar liali ekki sýnt „fullan vöndugleik í staðhæíing- um um kjör sín“ og hafi sett „kröfur sínar Jrannig fram, að Jreir skaði samfélagið og spilli fyrir eigin málstað með liæpnum staðhæfingum." Hér eru niiklar sakir bornar á kennarastéttina, sem hún hlýtur að mótmæla krölt uglega. Veit ég raunar, að rit- stjórinn mælir Jrvert um hug sér, er liann staðhæfir, að kennarar landsins séu teknir að „skaða sant félagið". Engu að síður ætti hamr að biðjast afsökunar á þessum særandi og ærumeiðandi ummæl- um. — Þess hel'ur jafnan verið vandlega gætt f hinni árangurs- lausu launabaráttu kennara á und anförnum árum að skýra aldrci vísvitandi rangt frá staðreyndum eða veita vijlandi upplýsingar um kjör Jreirra. Aðdróttunum í garð kennara um falsanir og ósannindi skal algjörlega vísað á bug. í fyrrnefndri ritstjórnargrcin ræðir ritstjórinn kjör fjögurra stétta, sem honum jrykir nokkuð jafnt á komið um launakjör og allar verðar nokkurrar hirtingar fyrir ósvífnar launakröfur. Þessar stéttir eru: verkfræðingar, læknar, síldveiðiskipstjórar — og kennar- ar. Allir sanngjarnir menn sjá, hversu óréttmætt er að jafna launum Jressara stétta saman. I næsta tbl. Alþm. birti ritstjór- inn góðfúslega fundarályktun Kennarafélags G. A. um launa- kjör, og er J)að hér með J)akkað, eins og skylt er. En á sömu blað- síðu tekur ritstj. sér fyrir hendur að uppfræða mcnn um laun kenn ara við flest fræðslustig. Ver hann til þess allmiklum hluta af hinu dýrmæta rúmi blaðsins. 15er grein sú við fyrstu sýn hclgisvip lirein- leika, sannleika og vandaðrar fræðimennsku, en Jregar blæjunni er lyft, blasir við ýnrislegt, sem Jrörf er að leiðrétta. I fyrsta lagi birtir ritstj. árs- laún ýmissa launaflokkar ríkis- starfsmanna, sem kennarar og skólastjórar teljast til, eins og pau eru áœlluð i fjárlögnm árs- ins 1962, eftir að •/% launaupp- bót hefir verið á lögð frá 1. júni 1962. Þessa launauppbót fá flest- ar ef ekki allar stéttir Jrjóðfélags- ins, svo að ekki er hún sérréttindi kennara. Ritstj. lætur Jress þó ó- getið, lrvernig tölurnar eru fengn ar, en segir, að J)ær séu miðaðar við 13,8% launauppbótina frá 1. júlí 1961. Þess getur ritstj. held ur ekki, að 4% lífeyrissjóðsgjald dregst l'rá launum, áður en Jrau eru greidd, en um })að má vita- skulcl deila, hvort gjald Jretta skuli teljast til launa eða ekki. Með þessum hætti tekst ritstj. að fá upphæð árslauna, sem er kr. 4.969.45 hærri en útborguð árs- laun cru, nriðað við tólfföld nú- verandi mánaðarlaun gagnfræða- skólakennara. Enn er liér við að bæta, að byrjunarlaun kennara eru röskum 20 þús. krónum lægri en full laun og ná kennarar ekki fullum launum lyrr en eftir 4 ára starf. Þá segir í „fræðslu“-þætti þess um, að starfstimi gagnfræðaskóla kennara sé 8 mánuðir við lands- prófs- og gagnfræðadeildir. Hið rétta cr, að kennarar eru skyldir að sinna störfum eftir þörfum fyrri helming júnímán. og síðari helming septembermánaðar auk 8 mánaða skólaárs. A s.l. vori voru flestir kennarar landsprófsdeilda G. A. t. a. m. bundnir við sjúkra- próf og úrlausnafrágang lands- prófa til 10. júní. í Jrriðja lagi segir, að kennslu- skylda lækki „allverulega með hækkuðum starfsaldri." Þetta er rangt. Kennsluskylda lækkar úr 30 í 25 stundir á viku, er kennari hefir náð 55 ára aldri, og í 20 stundir, er hann nær sextugsaldri. Frádráttur Jicssi, er ritstj. kallar „allverulegan," l'er því eftir ald- ursárum, en ekki eftir starfsaldri kennara. Ég hygg, að framhaldsskóla- kennarar verði yfirleitt ekki feit- ir af greiðslunt þcim, sem þeir fá fyrir heimavinnu. Ilæst er greitt fyrir leiðréttingu skriflegra úrlausna í íslenzku, en J)ó efa ég, að kennarar nái dagvinnulaunum verkamanna fyrir þá iðju. Lítil- fjörleg greiðsla er fyrir leiðrétt- ingu stíla í crl. málurn og skrif- legrar stærðfræði, en engin fyrir leiðréttingu skriflegra úrlausna í eðlisl'ræði,, sögu, landafræði eða náttúrufræði. Hartdavinnukcnn-. arar fá og enga greiðslu fyrir auka vinnu, svo sem að sníðá, taka til garu, efrti og fyrirmýndir, útvcga efni, innhéimta gjöld o. m. fl. Kunnugir vita þó, að í þessu ligg ur geysileg vinna, sem verður ekki af hendi leyst í kennslustund um. Á MÁNUDAGSKVÖLDIÐ var, eða þann 30. október síðastlið- inn5 talaði séra Emil Björnsson í útvarpið, og lýsti í mörgum og áhrifaríkum orðum ferðalagi upp að gosstöðvum Öskju, sem hann var þá nýkominn úr. Vafalaust hefur séra Emil orð ið yfirspenntur af að sjá hinn ferlega árangur þeirrar undir- heima eldamennsku, sem átt hef ur sér stað þar efra, og er hann að sjálfsögðu ekki sá eini, sem sú spenna hefur náð tökum á, þó að minna hafi á hinum borið. Það er að sjálfsögðu ekki nema gott eitt um það að segja, að ferðalangar, sem þjálfun hafa í því að klæða hugsanir sínar í sæmilegan búning, styðji dag- skrá útvarpsins með áheyrileg- um og fróðlegum erindaflutn- ingi, enda mun ekki af veita? þar eð dagskráin er orðin svo löng sem raun ber vitni. En mér finnst alveg nauðsyn- legt, að upplesararnir haldi sér við efni það sem })eir eru að ræða um, en blandi ekki saman við vafasömum fullyrðingum, sem ekki geta orðið til annars en að ófegra þeirra málflutning. Séra Emil sagði í nefndu út- varpserindi, að margir myndu hafa óskað þess, að þetta stór- Um jólá-, páska- og mánaðafrí er ])að að segja, að J)au eru ekki til komin vegna kennaranna, held ur vegna nemendanna. Allir kennarar vita, að Jressi hlé nota ])eir að miklu leyti til ýmissa við- vika vegna starfs síns. Þau mundu líka endast kennurum skammt til tekjuaukningar. Hins getur ritstj. ekki, að í prófönnum leggja kenn arar oft nótt við dag til ])css að komast yfir störf sín í tæka tíð, svo og við samningu miðsvetrar- og vetrareinkunna. Aldrei hefir þeim til hugar komið að fara fram á aukagreiðslur vegna Jtessa né heldur að telja Jrcssa vinnu eftir. Mörg eru og þau aukastörf, sem kennari vinnur skóla sínum og nemendum með glöðu geöi, -- vegna J)jónustunnar, en án ann- arra launa. Þessa er hér getið að gefnu tilefni og til fróðleiks rit- stjóranum, en ber ekki að telja eftirtölur. Ymislegt fleira mætti tína til úr fyrrnefndri grein, sem ástæða væri til að leiðrétta, en því skal sleppt að sinni. Eti að lokum get ég ekki látið hjá líða að samfagna ritstjóranum og fræðsluráðsmann inum vegna J)eirrar skarpskyggni hans að leiða í ljós hina „réttu“ orsök kennaraskortsins í landinu, en hún er — samkvæmt tilgátu blaðsins — „hinar sífelldu álykt- anir Jteirra uin hörmuleg launa- kjör kennara," sent „fældu menn frá stéttinni, og J)á fyrst og fremst úti um land.“ Já, mikill er máttur áróðursins, einkum meðal auð- trúa lýðs után Reykjavíkur! Þessi skýrihg er s\’ó skarpleg, að ritstj. ihun vera cinn um liana á sama liátt og blað hans er eina blaðið í. landinu, serti sent hefir kennara stéttinni kaldar kveðjur, svo að vitað sé. Sverrir Pálsson. form. Kennarafélags G. A. kostlega fyrirbæri hefði verið nær mannabyggðum en það raunverulega er. Eg mótmæli þessari ósk. Eg trúi því alls ekki að nokkur íslendingur með sæmilega dóm- greind, láti sér detta í hug að óska slíks. Gróðurlönd þessa lands eru sízt of stór, og því frá leitt að óska þess að hamfarir náttúrunnar fari þar um eyð- andi hendi, en það hefði vafa- laust skeð, með þeim feikna hraunstraum? sem séra Emil lýsti svo stórkostlega, ef aðgerð irnar hefðu átt sér stað nærri byggð. íbúum þessa lands eru aðgerð ir Heklu í síðasta gosi, í nægi- lega fersku minni til þess að útiloka, að slík ósk geti hvarfl- að að. Nei, við skulum heldur þakka guði fyrir að hamfarir þessar eiga sér stað það langt fm byggðum vorum, að við getum vonað að sleppa við eyðingu þeirra að þessu sinni, ef ekki gerist meira þar uppfrá, en orð- ið er. Með þökk fyrir birtinguna. Akureyri 1. nóvember 1961. Egill Jóhannsson. |G V E G I N N FLOGIÐ YFIR ÖSKJU 24. OKT. OG EKIÐ AÐ ÖSKJUHRAUNI 28. OKT. Lækkandi sólin Ijómar glatt, lciftrar um jökulskalla, stálfuglinn efldi hækkar hratt í horfi til Dyngjufjalla. Djúpt sé eg niðri hraun og holt, hæðir og drög og sanda, cn þingeysku f jöllin fríð og stolt, í f jarlægð og nálægð standa. Frambrunans úfna ægisvið cr nú að hverfa sjónum, Öskjubarmarnir blasa við brattir og þakktir snjónum, svo opnast hún, þessi ógnar-skál með ís sinn og hraun og skriður, sem fornaldar gos og gígabál grcyptu í fjöllin niður. Gosker cru þar, ekki smá, sem auri og grjóti hrækja? gufubólstrar þeim berast frá, brennisteinsdaunn og svækja. Leirflaumur hefur litað hjarn og langt út í hraunið runnið.- — Eg svíf sem örlítið engilbarn umhverfis víti brunnið. Norðangolan er nepjusvöl, og nú er að koina rökkur, á Lindahraunið er fallið föl, á fjöllum er hríðarmökkur. Trukkurinn suður grjótin grá greiðlega og hiklaust brokkar, en hann er nú gömul hetja frá hermcnnskutímuin okkar. Um hraunið er ekið, óralangt, og einatt á tómu grjóti, ferðalagið er strítt og strangt því stundum er upp í móti. Eldveggur bráðum blasir mót, sem byltist um vikra slétta. Hér er að myndast meira grjót, — ja? mikið er grjótflóð þetta. Eimyrjuhrönnin ægivíð út yfir grjótin þokast, gatan, scm þrædd var hér um hríð, hefur að fullu lokast. f hraunvegginn bresta göt og gjár svo glittir í eldrautt stálið-- — hér vappa eg eins og ári smár umhverfis heljarbálið. Að eldstöðvum gerist aðsókn slík og umferðastraumur nógur, eins og þar væri Atlavík ellegar Vaglaskógur. En vá er þá herðir frost og fok, því fólkið ei tjáir letja, og við höfum ekkert öskjulok yfir voðann að setja. DVERGUR. Mótmæla kjarnorkuvopnum „FUNDUR Akyreyrardeildar MFÍK, haldinn 1. nóv. 1961, ítrekar fyrri ályktanir félagsins og mótmæli gegn framleiðslu og notkun kjarnorkuvopna, sem og allra annarra vopna. Fundurinn harmar það, að stórveldin í vestri og austri skuli enn á ný hafa tekið upp tilraunir með þessi skelfilegu eyðingarvopn. Það er skoðun fundarins, að friður verði aldrei tryggður með vopnavaldi, heldur því að- eins, að öll vopn verði lögð til hliðar, allri vopnaframleiðslu hætt og birgðir vopna eyði- lagðar. Fundurinn lítur svo á, að það eitt sé ekki nægilegt að stór- veldin semji um að hætta til- raunum með kjarnorkuvopn eða gefi hátíðleg loforð um að (Framhald á bls. 7) Hvort ntefur þú meira? HVORT METUR Sósíalista- flokkurinn meira (og þar með Alþýðubandalagið), að stuðla að og taka þátt í samstarfi vinstri manna í íslenzkuni stjórnmálum, eða að rcka áróð- ur fyrir Sovétríkin og leggja hcimsmálastcfnu þeirra lið á íslandi? Það er eðlilegt að slík spurn- ing komi fram nú. Formaður þingflokks Alþýðubandalags- ins hefur alveg nýlega í útvarps umræðum frá Alþingi farið fjálglegum orðum um nauðsyn þess, að allir vinstri menn taki höndum saman. Áreiðanlega hafa margir hug á því að leggja fram lið sitt í þessu skyni, og þá með það takmark fyrir augum, að frjáls- lynd vinstri stefna verði hér ráðandi. En til þess að þetta takist til frambúðar, þarf að fást skýrt og skilmerkilegt svar við þeirri spurningu, sem grein J)essi hefst á. Þjóðviljinn boðar að vísu oft vinstri stefnu í stjórnmálum innanlands, en af engu minni ákafa boðar hann aðra stefnu og ólíka, þ. e. valdastefnu Sov- ét-stórveldisins og boðskap þann, er þeirri stefnu hentar hverju sinni. Tæplega mun nokkur maður minnast þess, að Þjóðviljinn, sem að staðaldri ræðir um heimsmálin, hafi nokkrq sinni vikið að því, að stjórnmálamönnum Sovétríkj- anna kunni að hafa missýnzt í málum eða málefnum þjóðar sinnar. Þar er öllu hrósað og allt varið, nema, ef það kemur fyrir eftir ár eða áratugi að Sovétmönnum sjálfum snýst hugur um menn og málefni, sem nú eru ljós dæmi um. Þá snýst Þjóðviljanum einnig hug- ur. Þótt nú séu svo ný og átakan- leg dæmi um Jretta, og að þau hafi hitt hvern einasta komm- únista eins og hnefahögg, skulu ekki fleiri orð um það höfð að sinni, eða hvað olli. En sú máls- meðferð, sem hér á landi er við höfð til þeirra mála, er ekki til þess fallin að vekja almennt traust — og sízt vinstri sinnaðra manna. Hún örvar ekki almenn ing til samstöðu við þá leiðtoga, sem slíkum málflutningi stjórna. Tæplega er þeim sjálfrátt, nú á 20. öld, að þeir skuli ætla fólki að fylgja snúningum sínum eft- ir fyrirmælum frá Moskvu. Nú er það að vísu svo, að hætt er við, ef svo heldur fram sem horfir um málgagn Al- })ýðubandalagsins, að formæl- endur vinstra samstarfs í land- inu geta tæplega vænzt þaðan mikils stuðnings, sem þó er nauðsynlegur til þess að sú stefna geta notið sín þjóðinni til heilla. Alþýðubandalagsmönnum er nauðsynlegt að gera sér ljóst, að mestöll sú þjóð, sem þetta land byggir, telur sig, vegna hnattstöðu landsins og af fleiri ástæðum, til vestrænna þjóða, einnig 'þéir, sem af þjóðlegum ástæðum eru andvígir setu Bandaríkjahei's hér á landi. Enda þótt þeir séu að sjálfsögðu einnig mjög margir sem vilja vinsamlegt samstarf við þjóðir „austan tjalds“, kæra þeir sig yfirleitt ekki um, að þau sam- skipti hafi á sér neinn fjandskap arblæ í garð vestrænna þjóða — eða að meðferð mála sé á neinn hátt við það miðuð að einangra okkur frá þeim þjóð- um. Margir skilja, að Innganga í efnahagsbandalag vesturþjóða er varhugaverð. En óeðlilegt er að hreyfa hvorki hönd né fót til þess að reyna að koma í veg (Framhald á bls. 7) Elínrós Björnsdóllir níræð ELÍNRÓS B J ÖRN SDÓTTIR, Oddeyrargötu 34 á Akureyri, varð níræð 4. nóvember sl. — Hún dvelur nú á sjúkrahúsi sér til hressingar, en var þó heima hjá sér og tók á móti gestum á afmælinu. Elínrós er ættuð úr Önguls- staðahreppi, fædd á Ytra-Hóli í Kaupangssveit, dóttir Björns Guðmundssonar bónda þar og konu hans, Matthildar Þorfinns dóttur frá Ólafsfirði. Elínrós var í föðurhúsum til 17 ára aldurs, en fór þá í vinnumennsku, fyrst þar í sveit, og síðan á Akureyri hjá Snorra Jónssyni kaupmanni í 16 ár. En á því tímabili dvaldi hún þó um eins árs skeið í Noregi, en fýsti ekki að setjast þar að, hvarf heim og hefur átt heima á Akureyri síðan, að 14 árum undanskildum, er hún var ráðskona hjá Valdimar Halldórs syni á Kálfaströnd í Mývatns- sveit. Elínrós Björnsdóttir giftist ekki og eignaðist ekki afkom- endur. Hún var myndarkona og er það enn, níræð að aldri. — Dugnaði hennar var við brugð- ið. Lífsgleði sinni hefur hún haldið ótrúlega vel og enn lít- ur hún í bók gleraugnalaust, minnist fyrri daga með ánægju og hoi'fir kvíðalaust fram á veginn. □

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.