Dagur - 25.11.1961, Blaðsíða 4
4
.... .......
Daguk
LODDARAR
OFT HEFUR það komiö fyrir á Alþingi
þegar Frainsóknarflokkurinn hefur bar-
izt fyrir málefnum bænda og annarra
dreifbýlismanna, að bændaþingmenn úr
flokki íhaldsins hafa stutt þá í umræðum
og blaðaskrifum. En við úrslit mála, þ. e.
við atkvæðagreiðslur, hefur íhaldið hins
vegar gætt þess vandlega að láta HÆFI-
LEGA marga menn sína greiða atkvæði
MEÐ — en ekki fleiri en svo, að málið
félli samt scm áður. Heima í héraði hafa
svo þingmennirnir gortað af frammistöðu
sinni. Þetta er síendurtekinn loddaraleik
ur og vitna mörg dæmi um hann.
íhaldið iðkar enn þennan leik og er
eftirfarandi dæmi góð sönnun þess: Þeg-
ar frumvarp ríkisstjómarinnar um lækk-
un aðflutningsgjalda á nokkrum vöru-
tegundum var til fyrstu umræðu á Al-
þingi nú fyrir skömmu, vakti Bjartmar
frá Sandi máls á því að nauðsynlegt væri
að létta einnig aðflutningsgjöldum af
landbúnaðaravélum, einkum dráttarvél-
um. En þær eru, sem kunnugt er, orðnar
svo dýrar að íslenzkir bændur hafa á síð-
ustu og verstu tímum orðið að gera sér
að góðu að kaupa frá útlöndum gamlar
vélar, er bændur þar óskuðu ekki að nota
lengur.
Þetta var gott hjá þingmanninum, sem
er bóndi að atvinnu og ætti að vera því
nokkuð kunnugur, að meðal bænda
KREPPIR SKÓRINN einna mest af völd
um „viðreisnarinnar“. Kannski hefur
einhver hugsað sem svo, að nú loksins
ætlaði að rætast úr uppbótarþingmann-
inum og- að hann myndi nú hrinda af sér
slyðruorðinu, sem við hann hefur þótt
Ioða. Nú hristi hann a. m. k. hlekkina.
Við aðra umræðu þessa máls komu
fram ákveðnar tillögur frá öðrmn aðilum
á þingi, um að fella niður aðflutnings-
gjald af dráttarvélum, á líkan hátt og
frumvarp ríkisstjómarinnar gerði ráð
fyrir að niður yrðu felld á öðrum vöru-
flokkum.
Breytingartillagan kom svo til at-
kvæða. Þá stóð svo á, að ekki voru fullar
heimtur hjá stjómarliðinu í deildinni.
Hið gullna tækifæri fyrir hinn þingeyska
bónda og alþingismann var runnið upp.
Með atkvæðum flutningsinanna og hans,
sýndist málinu bjargað áleiðis. En hvað
gerðist þá? Bjartmar á Sandi sat hjá við
atkvæðagreiðsluna. Hann gleymdi í svip-
inn ræðmmi sinni og í öðru lagi nauðsyn
bænda á því að fá dráttarvélar með
skaplegu verði. Hann notaði ekki hið ein
staka tækifæri, þegar það valt á hans at-
kvæði einu, hversu úrslitin yrðu við
þessa atkvæðagreiðslu. Tækifæri Bjart-
mars var liðið. Tillagan féll með jöfnum
atkvæðum. Flokkshlekkimir héldu.
En hvaða lærdóm má nú af þessu
draga? Annað hvort verður að líta svo á,
að Bjartmar sé svo algerlega fjötraður í
flokksbönd ihaldsins, að hann sé ekki
gerðum sínum ráðandi, eða að þingmað-
urinn hafi verið að gera sig góðan í aug-
um bændastéttarinnar er hann mælti
með niðurfellingu aðflutningsgjalda af
dráttarvélum við fyrstu umræðu, en
hugur hafi ekki fylgt máli. Ef hið síðara
er það sarrna, hefur það enn einu sinni
endurtekið sig á Alþingi, að bændavin-
irnir í íhaldsflokknum eru loddarar í
raun og sannleika.
V________________________________>
«iiiiiiiiuiiiiiinii
1111111111 m ii 11 ■ i n 111111111 iii 111111 ■ 11111 ii 1111111111 iii 111111111
mmmimiiiiiiiimmiiiiiniiiiii
immmmmmmmmmiiimmmmmmmmmmmi
immmmmmmmmmmmmiiiift
Efnahagsbandalag Evrópu - Ísland og EfnahagsbandalagiS
VIÐ skulum byrja á því að líta
aðeins á viðskiptalega hlið máls
ins án tillits til annarra réttinda
og kvaða, sem Rómarsamningur
inn leggur aðildarríkjum sínum
á herðar. Eg hef ekki farið dult
með þá skoðun, að við íslend-
ingar hljótum að stefna að því
að verða iðnaðarþjóð, sem flytji
út langtum fjölbreyttari vörur,
en við nú gerum. Hitt er jafn
víst, að það tekur langan tíma
að gera þá breytingu á íslenzk-
um atvinnuháttum, og það verð
ur að gera ráð fyrir því, að enn
um langt skeið verði sjávaraf-
urðir megin uppistaða í ís-
lenzkum utanríkisviðskiptum.
Viðhorf okkar í alþjóðlegum
viðskiptum hljóta því að mótast
af fiskinum.
Fiskurinn.
Af þeim sex löndum, sem nú
eru í efnahagsbandalaginu, eru
fimm, sem flytja meira inn af
sjávarafurðum, en þau flytja út.
Eitt þeirra, Holland, flytur all-
miklu meira út en inn. Netto
innflutningur þessara sex landa
nemur árlega um fimm þúsund
millj. króna og gera má ráð
fyrir, að England bætist við
með annað eins. En um leið bæt
ast einnig við Danmörk, Noreg-
ur og Portúgal, sem flytja ár-
lega út fiskafurðir fyrir nær tíu
þúsund milljónir króna, og
þannig má gera ráð fyrir ,að
efnahagsbandalagið myndi vera
sjálfu sér nógt um fiskafurðir.
Markaðurinn og kjör okkar.
Af því myndi leiða að mark-
aðir þessara landa myndu að
mestu glatast. t>eir myndu aS
vísu ekki lokast, en við mynd-
um fá lakara verð, en keppi-
nautar okkar, sem svarar ytri
tollunum, sem á helztu útflutn-
ingsvörum okkar nema 18-20%,
og er augljóst að það myndi
hafa áhrif á tekjur okkar og
lífskjör, sem hlytu að verða lak
ari, en í samkeppnislöndum
okkar. Það væri mjög alvarlegt
áfall fyrir okkur, ef við misst-
um þessa markaði, eða kjör
okkar á þeim versnuðu mjög,
því að á þeim höfum við alltaf
selt verulegan hluta af fram-
leiðslu okkar. Á árinu 1960
fluttum við til þessara landa
helminginn af útflutningi okkar
og þessir markaðir eru vaxandi
og þeir henta okkur sérstaklega
vel og eg vil telja þá okkar
beztu markaði.
Það er því varla vafi á því, að
ef viðskiptatengsl okkar við
Vestur-Evrópu rofnuðu eða
rýrðust, yrði það mikið áfall
fyrir sjávarútveginn og þar með
efnahag okkar allan.
Fleiri atvinnuvegir.
En við höfum fleiri atvinnu-
greinar að hugsa um en sjávar-
útveginn einan og því verður
varla neitað, að aðild að við-
skiptabandalagi í Vestur-Ev-
rópu yrði öðrum atvinnuvegum
okkar tæplega eins hagstæð og
sjávarútveginum. Þó þarf í því
sambandi að taka tillit til ýmsra
atriða,, bæði jákvæðra og nei-
kvæðra, sem hér er ekki rúm til
að rekja. Ennfremur ber þess að
geta, að því fer fjarri að vanda-
mál atvinnuveganna, með til-
liti til markaðsbandalags séu
enn nægilega athuguð. En það
er spá mín, að niðurstaða slíkra
athugana, þegar þær liggja Ijóst
fyrir, yrði á þann veg, að at-
vinnuvegir okkar myndu yfir-
leitt hagnast á fríverzlun, þó að
undanþágur og fyrirvarar séu
að sjálfsögðu nauðsynlegir til
verndar einstökum greinum
Helgi Bergs.
auk hæfilegs aðlögunartímabils.
Það, sem er atvinnuvegunum
hagstætt, er einnig hagstætt
þjóðinni í heild, ekki sízt í þessu
tilfelli, þar sem fríverzlun er
jafnan fyrst og fremst hags-
munamál hinum almennu neyt-
anda, því að hún tryggir hon-
um, að hann á jafnan kost á
þeirri vöru, sem er ódýrust og
bezt.
Allt með gát.
Eg hef nú bollalagt um að-
stöðu okkar til fríverzlunar og
tollabandalags og niðurstöður
SÍÐARI GREIN
mínar hafa verið á þann veg, að
menn kunna að halda að eg vilji
flana beint inn í Efnahagsbanda
lagið. Svo er þó ekki. Efnahags-
bandalagið byggir á Rómar-
sáttmálanum, sem áður er lýst,
og felur í sér margt fleira en
tollabandalag og fríverzlun.
Fyrir mér ræður það úrslitum,
að samningurinn felur í sér
ákvæði eins og þau, að algert
frelsi skuli ríkja til flutninga
vinnuaafls og fjármagns milli
aðildarríkjanna, algert frelsi
þegna aðildarríkjanna til at-
vinnureksturs í löndum og land
helgi hinna og að aðildarríkin
skuli afsala veigamiklum þátt-
um löggjafarvalds, fram-
kvæmdavalds og dómsvalds í
hendur sameiginlegra stofnana.
Það liggur í hlutarins eðli, að
slíkan samning getur fámenn
þjóð í lítið numdu landi ekki
gert við fjölmennar og fjár-
sterkar þjóðir, sem skortir bæði
jarðnæði og ónumdar náttúru-
auðlindir.
Til eru leiðir.
En er þá engin von til þess, að
við getum notið góðs af þeirri
viðskiptasamvinnu, sem stofnað
er til án þess að takast á hendur
þessar skuldbindingar?
Sem betur fer virðast slíkar
leiðir vera til, þó að enn sé ekki
að fullu ljóst, hvaða form þær
kunni að fá. Á það ber í fyrsta
lagi að benda, að vitað er, að
Englendingar, og þó sérstak-
lega Danir og Norðmenn, eiga
erfitt með að sætta sig við mörg
ákvæði Rómarsáttmálans og
munu leitast við að fá á honum
breytingar eða undanþágur í
veigamiklum atriðum. Norski
þjóðbankastjórinn, sem hér var
í haust, sagði í fyrirlestri, er
hann flutti í Háskólanum, að
það gæti ráðið úrslitum um að-
ild Noregs að bandalaginu,
hvort noi-sk yfirvöld gætu hald-
ið áfram að hafa óskoruð umráð
• f
yfir erlendri fjárfestingu í land-
inu.
Danir óttast . . .
Vitað er að Dönum stendur
mikill stuggur af ákvæðum um
frjálsa fjármagnsflutninga, sem
þeir óttast að leiði til þess, að
Þjóðverjar kaupi upp lönd á
Jótlandi í stórum stíl. Þannig
kann það að fara að skuldbind-
ingar Rómarsáttmálans liti öðru
vísi út, þegar þessar þjóðir hafa
samið, en hvort það nægir til
þess, að gera sáttmálann að-
gengilegan fyrir okkur, er svo
annað mál.
Tengsl án skuldbindingar.
Þá ber einnig að minna á
ákvæði Rómarsáttmálans um
aukaaðild eða tengsl, sem ein-
mitt gera ráð fyrir því, að
bandalagið geri sérsamninga
við þau lönd í Evrópu, sem vilja
tengja viðskipti sín bandalag-
inu án þess að treystast til að
takast á hendur þær skuld-
bindingar, sem aðild að Rómar-
sáttmálanum hefur í för með
sér. Slíkir samningar geta m. a.
verið um tollabandalag og frí-
verzlun og um fjárfestingárað-
stoð og raunar hvað sem er.
Einn samningur af því tagi hef-
ur þegar verið gerður. Það er
við Griikkland. í honum fá
Grikkir á hagstæðan hátt aðild
að - friverzluninni. Einnig fá
þeir verulega fjárfestingarað-
stóð.og.t'ryggingar fyrir sölu á
ýmsum þýðingarmiklum út-
flutningsafurðum sínum í
bandalagsríkjunum. Þeir eiga
enga aðaild að stofnunum
bandalaésins. Hins vegar hefur
gríski samningurinn einnig .að
geyma ákvæði, sem við íslend-
ingar getum ekki sætt okkur
við, og er þá fyrst og fremst að
geta þess, að bandalagsþjóðirh-
ar fá atvinnuréttindi í Grikk-
landi eftir 12 ár. Þannig getur
gríski samningurinn ekki orðið
fyrirmynd fyrir bkkur íslend-
inga í einu og öllu, en hann er
hins vegar gott dæmi þess, að
bandalagið hefur nokkuð frjáls-
ar hendur til þess að mæta
þörfum hinna einstöku ríkja.
Að öllu þessu athuguðu tel eg
mjög ósennilegt, að okkur þurfi
að mistakast að ná þeim samn-
ingum, sem komið gætu í veg
fyrir það ólán, að við yrðum
utangarðs í viðskiptasamvinnu
Vestur-Evrópulandanna, ef rétt
er á málum haldið.
BERNHARÐ STEFÁNSSON:
ENDURMINNINGAR
Iivöldvö k u ú tgdfa n 1961.
Prent'verk Odds Bjdrnssonar h.f.
ÞEGAR ég var ungur, var bezta
. skemmtun mín að lá að iara út
á sand og reika urn fjörurnar.
Hvítar öldur, sem risu og hnigu
úr' bl.áu djúpi, báru margan góð-
an grip að landi, sem gaman var
að iittna og eiga.
Langt. er nú síðan, að ég hefi
gengið á ævintýraslóðir rekans.
En stundum reika ég að gluggum
bókabúðanna, og þeir minna mig
furffuiiiikið á fjöruna mína
göihluy einkum í skammdeginu.
HUGDETTA Á HOLAFJALLI.
SÁ SEM HEFUR augun opin
fyrir þeim myndum sem birtast,
er hann í góðu veðri stendur á
fjallstindi, sem skapar víðan
sjóndeildarhring, verður að við
urkenna að þær taka fram öll-
um þeim flatlendismyndum sem
áður hafa þrengt sér inn í hug-
ann.
Útsýni af fjallstindi getur
verið hrífandi og lyft einstakl-
ingnum upp úr hversdagsleik-
anum, og gefið honum yfirlit
um hvers guð og menn eru
megnugir, þegar samvinnan er
eins og bezt verður á kosið og
menn vinna að því að fegra og
bæta umhverfið án þess að
raska því sérkennilega.
Eitthvað þessu líkt kom mér
til hugar, er eg var staddur á
Hólafjalli síðdegisstund á liðnu
sumri og leit yfir sveitina. —
Margir telja Eyjafjörð fegurstu
og beztu sveit landsins, og þó
um það megi lengi deila, þá
mun vakna ósjálfrátt sú spurn-
ing hjá þeim sem þarna er
staddur á sólríkum sumardegi:
Hef eg séð þá mynd sem tekur
þessari fram? Hver og einn
verður að svara þessu sjálfur.
Vegur sá, sem nú er unnið að
frá Þormóðsstöðum upp fjallið,
er nokkuð brattur, en þó
hvergi brattari en leyft er á
þjóðvegum landsins, fyrr en
kemur að efstu brekkunni, og
þó má vera að hægt sé að lag-
færa hana, svo að hún vaxi
mönnum ekki í augum, og frá-
leitt að nókkur telji það eftir
sér að ganga þennan síðasta
spöl til þess að;;geta.. notið; úfaío
sýpisins,- -þó • :að. hinrr sami- ef ftilm
viU efist.um.getu.sína og þílsins y
sameiginlgga.........
Það hafa nú fleiri-en Satáh
farið upp á -hátt.fjalþ er ságt að.
karl .efnnJrafi tautað .undir stól-
ræðu. Það verður einnig að
viðurkennast, að það eru fleiri
fjöll en Hólafjall, sem eru eins
og sköpuð til að nota sem sjón-
arhól, en því minnist eg á það,
að þar er unnið að vegagerð í
sumar inn á hálendið, fyrst og
fremst að Laugarfelli, þar sem
ferðamannaskáli Ferðafélags
Akureyrar stendur.
Þegar að Laugarfelli kemur
eru opnar leiðir tU fleiri átta
jafnvel upp að jöklum, svo að
skíðagarpar gætu stundað þar
íþrótt sína yfir hásumarið án
mikillar fyrirhafnar, og einnig
hin gamla Sprengisandsleið,
sem sennlega verður mest farna
hálendisleið íslands f .framtíð-
inni, þegar .búið er að brúa
Köldukvísl og Tungnaá, eða þá
ef þær eru sniögengnar. og farið
vestur yfir Þjórsá, sem vel gæti
komið til mála, eins og farið var
á hestum fyrr á tímum, en
sennilega er ekki búið að
rannsaka til.fulls hvor leiðin er
heppilegri..... .
Nú er mikið talað um áð gera
fsland að ferðamannalandi og fá
þannig hinn dýrmæta gjaldeyri,
sem stöðugt verður eftirsóttari
eftir því sem okkar .verður
ómerkilegri.
En hvað á að gera til þess að
ferðamaðurinn, sem kom í
s-umar, komi' aftur næsta sumar,
•ogvþá ekki einn; heldur kunn-
■ ingjar háns ;með- hónum? Þess-
ari spurhlhgú haf a margir
-svaráð 'ó'g bérit á ýmsar leiðir,
-þar á' meðal að sýná beri ferða-
manninum- skógá og gróðursæl-
ustu bletti landsins, og er það
sjálfsagt, en eg segi: Gefið hon-
um líka kost á að ferðast um
öræfin, ganga á jöklana, sjá
jökulfljótin og annað það, sem
ósnortin náttúran hefur að
bjóða, og það er ekki nauðsyn-
legt að gististaðurinn sé fínt
fjallahótel heldur hreinn og vel
um genginn ferðamannaskáli,
og jafnvel gott tjald, sé ferða-
lagið allt af fyrirhyggju gert.
Það mun vera svo að meiri hluti
allra sumarferðamanna er ekki
að leita að hliðstæðu við sitt
vanalega umhverfi heldur and-
stæðu, einhverju nýju, jafnvel
erfiðleikum til að sigrast á, og
þar hefur fslárid óteljandi
möguleika upp á að bjóða.
Þetta og margt fleira dettur
mér-í hug þeása síðsumardags-
stund er eg- stend á Hólafjalli
og sé að hafizt er handa um að
gera akfæra leið yfir hálendið
milli Norður- og Suðurlands.
Þó að'eftir sé að sígrast á ýms-
um erfiðleikum í sambandi við
þessa leið, þá er það efalaust
hægt, og þá um leið hefur enn
eitt tækifæri skapazt til þess að
ferðamaðurinn, hver sem hann
er, geti fengið enn betri heild-
armynd af íslandi.
Þ. H.
KALKI BRAUÐIÐ
5
•iiiiiiiiiiiiiiiiiii
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinii
i ii ii ■■i■■1111 ■ i
1111 ■ ■ ■ 11 ■ 11111
FRÁ FRÉTTASTOFU NTB
(Norsku fréttastofunni) berst
sú fregn að talið sé, að kalk í
brauð-mjölið muni stuðla að
því að minnka áhrif Strontíum
90. Kalk var notað í brauð í
Noregi á ófriðarárunum til að
auka kalkmagn líffæranna, og
eru til birgðir af því frá stríðs-
árunum.
Með því að blanda kalíum í
gróðurmoldina minnkar magnið
af geislavirkum efnum, sem
borizt hafa í jarðveginn. Er
hugsað um þessi mál hér? □
PÁLL ZÓPHÓNIASSON
varð 75 ára þ. 18. þ. m. Af nú-
lifandi leiðbeinendum í landbún
aðarmálum er víst enginn
kunnari öllum landslýð en
hann. Veldur því bæði löng
starfsævi, meira en 50 ár, fjöl-
þætt viðfangsefni og síðast en
ekki sízt sérstæðir hæfileikar.
Eg kynntist Páli fyrst fyrir 46
árum, þegar eg kom á bænda-
skólann á Hvanneyri tvítugur
að aldri. Þá var Páll ennþá
ungur maður, ekki þrítugur, en
Flóðalda jólabókanna l/er þessa
dagana margt að landi. Misjafnt
er það, Margt sprekið er leyskið,
margt kellið kvistótt og mörg skel
in sprungin. En kjörviðir koma
líka aff landi, og einn þeirra rak
'á fjöruna mfna í gær: Endurminn
ingar Bernharðs Stefdnssonar. Eg
.lás þ'air 'í 'einuni áfahga, svo gam-
an þótti niér að þeiin.
Bernhmð Stefánsson á heldur
ekki að skorta söguefni. Hann er
alinn upp á ættarslóðum lista-
skáldsins góða, þar sem háir hólar
og himingnæíandi drangar endur-
varpa enn bergmáli liðinna alda
í hug hrifnæmrar æsku. Stórbrot-
in tign og dreymandi friður þessa
djúpa dals lilýtur næstum því að
skapa góða Islendinga, sem unna
sögu landsins og tungu þjóðarinn-
ar.
Það er vissulega engin tilviljun,
að þarna starfaði ungmennafélag-
ið, sem þegar 1907 stóð eitt slíkra
félaga í islenzkum sveitum að
stolnun Santbands íslenzkra ung-
mennafélaga, ásamt íélögunum i
Reykjavík og á Akureyri. Mætti
þó ætla, að víða hefði íslenzk
æska átt auðveldara um þróttmik-1
il samtök en í strjálbýlinu í Öxna-
og Hörgárdal.
Bernharð hóf ungur að starfa
að félags- og þjóðmálum, og lík-
Iega eiga mjög fáir íslendingar
fleiri spor á þeim slóðum en
liann. Það fer því að vonum, að
hann hefir frá mörgu og mörgum
að segja. Persónulega þekkir hann
flesta, ef ekki alla, þá, er nokkurs
liefir gætt í opinberum málum
hér á landi síðustu ljóra áratug-
ina.
Eg neita því ekki, að mér lék
hugur á að vita, hve langt liann
mundi hætta sér út á Jjær hálu
slóðir, sem persónulýsingar sam-
tíðarmanna hljóta alltaf að vera.
Víst hefði ég kosið þær fleiri og
meiri, en þó liygg ég, að fáir ís-
lenzkir stjórnmálamenn hat'i enn
farið þar lengra í minningum sín-
um. Ég þekki ekki nema fáa þess-
ara manna að nokkru ráði og er
því ekki dómbær um umsögn höf-
undar um Jrá. Hitt er víst, að hún
er hófsöm og virðuleg. Samherjar
hans eru ekki óskeikul ofurmenni
og andstæðingarnir ckki var-
menni og flón. Kostir og lestir
eru ekki sýndir í kastljósi stundar-
áhrifa, en koma fram í dagsbirtu
látlausrar frásagnar.
Einmitt þetta er aðall bókar-
innar. Hún er látlaus og lumar
ekki á drýgindum eða yfirlæti.
Hún er rituð á góðu, íslenzku al-
Jiýðumáli og engar tilraunir gerð-
ar til skáldskapar — eða stíl-
bragða. Höfundur kemur til dyr-
anna eins og hann er klæddur, í
heimaunnum, eyfirzkum bænda-
búningi, — og sá búningur fer
honum vel. Skemmtilegur glettn-
isglömpum bregður fyrir, en aldr-
ei eru þeir meinfýsiiir, og engan
liygg ég [reir geti sært. Langur
tími mun Hða áður en leiftur-
myndin úr sölum Alþingis, Jring-
rofsdaginn fræga 1931, máist og
gleymist.
Bókin er prýdd mörgum mynd-
um og útgáfan smekkleg og til
hennar vandað af hálfu útgefanda
og prentsmiðju.
Höfundur segir í formála, að
ekki hafi hann fengizt við rit-
störf fyrr, og ekki sé mikils að
vænta, ef á Jrcim sé byrjað á átt-
ræðisaldri. Ekki veit ég, hvernig
Bernharð liefði skrifað fyrir Jrrjá-
tíu árum, en nú Jrykir mér liann
skrifa vel.
Bókin nær til lýðveldisstofnun-
arinnar 1914, og nú vinnur höf-
undur að f'ramhaldi minning-
anna. Ég hlakka til Jiess, því að
auðvitað á Jrað að koma út lyrir
önnur jól, að höfundi heilum og
hrcssum, en ekki fyrst eftir Jrrjá-
tíu ár, eins og hann segir i loka-
orðum.
Brynjólfur Sveinsson.
JENNA og
HREIÐAR STEFÁNSSON:
VASKIR VINIR
Bókaforlag Odds Bjönrssonar.
SUMIR halda, að Jjað sé vandalít-
ið að skrifa bækur fyrir börn, og
hinir vísu forsjármenn allra lista
telja jtá iðju varla verðlauna
verða — nema svo sem til liálfs
á við hin árlegu framleiðslustörf
rithöfundanna ágætu, sem skrifa
fyrir okkur, hina fullorðnu og
trénuðu. Ríkisútvarpið greiðir t.
d. lægra verð fyrir það, sem gert
er fyrir börnin en hina fullorðnu,
og er það nokkur vísbending.
En það er enginri vandi að
skrifa leiðinlegar og listsnauðar
bækur handa börnum. Þetta hef-
ur ýriísum tekizt, og liefur þó
hvorki skort í þeim prédikanir
um gott siðferði né glöggar leið-
beiningar urn veginn, sem fara
skal um hina syridum spilltu ver-
öld. En börnin finna hvort að
þeim snýr lófi eða handarbak.
Þeim leiðist. „pípið". Þau vilja
lesa eðlilegar og íjörlegar frásagn
ir, lausar við væmni og prédikan-
ir. Því er bókum Jennu og Hreið-
ars tckið tveim höndum. Þær eru
bókstaflega lesnar upp til agna,
ef svo má að orði kveða.
Jenna og Hreiðar eru rnikil-
virkustu höfundar barnabóka hér
(Framhald á bls. 7)
þó búinn að vera kennari við
skólann í sex ár. Eg hef síðan
haft kynni af Páli í ýmsum öðr-
um stöðum og .við ýmis önnur
störf, en eg held mér verði
minningin um Pál sem kennara
alltaf Ijúfust. Páll hafði sér-
staka hæfileika til þess að sam-
lagast nemendum sínum, hann
gat jöfnum höndum tekið þátt í
raunum þeirra og gleði, starfi
og leik, og hæfileikar hans til
þess að gera nemendum ljóst
námsefnið og gera þeirn það
minnisstætt voru óbrigðulir.
Þess vegna kunnu allir það vel,
sem Páll kenndi og tóku gott
próf hjá Páli Zóph., ef þeir
annars gátu nokkuð lært. Allir
kennarar mínir á Hvanneyri
voru ágætis menn, en það gat
þó brugðið nokkuð til beggja
átta, hvernig nemendum féll við
þó, nema Pál Zóphoníasson. Oll
um þótti vænt um hann og gilti
Jjað jafnt um þá yngri og hrif-
næmari og hina, sem voru sum-
ir snöggtum eldri en kennarinn
og því sæmilega veraldarvanir.
Síðan Póll var kennari á
Hvanneyri hefur hann gegnt
mörgum störfum í þágu íslenzks
landbúnaðar, verið skólastjóri á
Hólum í átta ár, ráðunautur Bf.
ísl. í nautgriparækt og síðar
einnig í sauðfjárrækt um langt
skeið og loks búnaðarmálastjóri
í forföllum Steingríms Stein-
þórssonar meðan hann var for-
sætisráðherra.
í þessum margháttuðu við-
fangsefnum Páls, hef eg ekki
haft eins náin kynni af honum,
eins og þegar hann var kennari
minn, en þó næg til þess að eg
veit það, sem alþjóð reyndar
veit, að Páll hefur rækt öll þessi
störf af framúrskarandi sam-
vizkusemi, áhuga og lagni. Hef-
ur hann þar notið í ríkum mæli
þess sérstæða hæfileika síns að
geta jafnan sett sig inn í aðstæð
ur og hugsunarhátt þeirra, sem
hann í hvert skipti átti sam-
skipti við, geta orðið sem einn
af þeim og geta látið mönnum
þykja vænt um sig.
Einkum mun þessi hæfileiki
Páls hafa notið sín vel í sam-
starfi við bændur, meðan hann
starfaði sem ráðunautur í tveim
ur megingreinum búfjárrækt-
arinnar. Þessar starfsgreinar
mótaði hann að verulegu leyti,
náði í starfi sínu miklum ár-
angri og var ekki örgrannt um,
að honum væru eignaðir yfir-
náttúrlegir hæfileikar við að
sjá út kynbótagripi. Ætla eg, að
■bændur um allt land kunni
margar sögur um slíkt. Mun þar
hafa farið saman glöggt auga og
góð þekking á erfðum og ætt-
um og ef til vill líka innsýn,
sem öllum er ekki gefin. Hver
veit.
Auk hinna mörgu þýðingar-
miklu starfa, sem Páll hefur
unnið í þágu landbúnaðarins,
hefur hann einnig unnið mikið
starf á alþjóðar vettvangi. Setið
á Alþ. frá 1934 og fram til síð-
ustu kosninga, er harin dró sig
í hlé, starfað í mörgum nefnd-
um og stjórnum, t. d. í ríkis-
skattanefnd, Jjar sem hann
starfar enn.
Um störf hans á þeim vett-
vangi veit eg ekki mikið, en það
veit eg þó, að hann hefur alls
staðar unnið af sama kappi og
áhuga, aldrei verið neinn veifi-
skati, heldur jafnan sjálfstæður
í hugsun og athöfn og vinsæll af
öllum, sem starfað hafa með
honum.
Enn er ótalið eitt af megin
viðfangsefnum Páls í lífinu, og
ef til vill það, sem lýsir honum
bezt, en það er hjálpsemi hans
og óþrotlegur vilji til að greiða
götu og leysa vandræði sam-
ferðamanna sinna. Ef sá listi
væri skráður mundi hann verða
ótrúlega langur og það, sem
meira er, fyrirgreiðslan tókst
oftast nær með ágætum. Kjós-
endur Páls á Austurlandi munu
þekkja þetta bezt, bæði flokks-
menn og andstæðingar.
Af framanskráðu má vera
ljóst, að Páll hefur verið
óvenjulega góðum hæfileikum
gæddur. Fjörið mikið, skjót og
skörp hugsun og minnið óvenju
lega gott. Auk þess er hann
gæddur sérstæðum, dulrænum
hæfileikmn og hefur tileinkað
sér fast mótaða og mjög per-
sónulega lífsskoðun. Út í þá
sálma skal þó ekki farið lengra
hér, en allt ber þetta vott um
óvenjulegan persónuleika og
heilbrigða, þroskaleitandi sál.
Páll er giftur Guðrúnu Hann-
esdóttur frá Deildartungu, mik-
ilhæfri konu og ágætustu hús-
móður. Þau eiga sex uppkomin,
mannvænleg og prýðilega
mennt börn. Gestrisni þeirra
hjóna, Páls og Guðrúnar, er
viðbrugðið af öllum er til
þekkja. Má eg þar vel um
dæma, sem í nær hálfa öld hef
gengið þar út og inn á heimili
þeirra sem heimamaður væri.
Eg óska Páli hjartanlega til
hamingju með þessi tímamót í
lífi hans, og eg óska þeim hjón-
um og börnum þeirra allrar
blessunar í framtíðinni og
þakka langa og ágæta viðkynn-
ingu og einlæga vináttu.
Ólafur Jónsson.
ASKJA
Nú á sporði norðurhvels
nötrar storðar liringur.
Skyrpir fro'ðu eims og elds
Askja Norðlendingur.
Haraldur Zóphoníasson.