Dagur - 16.12.1961, Síða 4
4
-------------------------------------—>■>
Sjónvarpið
í Keflavík
EINS OG FRÁ hefur verið sagt, gáfu ís-
lenzk stjórnarvöld bandaríska varnar-
Iiðinu í Keflavík Ieyfi til að endurbyggja
sjónvarpsstöð sína og ntargfalda orku
hermannasjónvarpsins. Nú þegar eru all
margir sjónvarpsnotendur í Reykjavík,
en með stækkun sjónvarpssöðvarinnar,
myndi hið erlenda sjónvarp ná til mikils
hluta þjóðarinnar, eins og búsetu manna
er háttað hér á landi.
Guðm. í. Guðmundsson ráðherra gaf
leyfið út, og hcfur það að vonum sætt
harðri gagnrýni almennings og úr öllum
stjórnmálaflokkum. Þótt sjónvarp sé
menningartæki í sjálfu sér og ekkert
kemislu- eða fréttatæki komist til jafns
við bað, er á það að líta, að aldrei hefur
verið fundið upp annað eins áróðurstæki.
Hermannasjónvarp og hvert annað er-
len sjónvarp hér á landi er hættulegl, svo
að ekki sé meira sagt, og alveg furðulcgt
að nokkur ráðherra skuli láta hafa sig til
þess að gera svo flausturslegar ákvarð-
anir og vanhugsaðar, sem leyfi til stækk-
unar á hermannasjónvarpi liér á landi
vissulega cr.
Engin þjóð á að una því, að erlendir
aðilar sjái um þann þátt uppeldis æsk-
unnar, sem felst í rekstri sjónvarps og
útvarps.
Sennnilegt er, að íslendingar verði
brátt færir um að eignast sína eigin sjón-
varpsstöð, eins og útvarpsstöð nú, og
verður bá á valdi þjóðarinnar sjáfrar,
hversu með er farið. Mætti þá ætla, að
önnur sjónarmið réðu rekstri slíkrar
stöðvar, en nú ríkja í sambandi við her-
mannaútvarpið í Keflavík. Með þessu er
engan veginn sagt, að Bandaríkjamenn
séu öðrum skaðlegri í þessu efni. En það
er til of míkils ætlast að þar ráði íslenzk
sjónarmið.
Framsóknarmenn hafa gert kröfu til
þess á Alþingi, að gera fullnægjandi ráð-
stafanir til að koma í veg fyrir stækkun
sjónvarpsstöðvarinnar. Að ríkt sé eftir
því gengið, ,að reglum frá 1954 um sjón-
varpsleyfi sé fullnægt. Ennfremur Icggja
Framsóknarmenn til, að athugaðir verði
möguleikar á að koma upp vönduðu, ís-
lenzku sjónvarpi, sem nái til allra lands-
hluta.
Það er alveg furðulegt hve vamarliðið
getur teymt hin íslenzku stjórnarvöld £
jafn þýðingarmiklum málum og hér um
ræðir. Það hefur aldrei verið nein þörf
fyrir íslenzk stjórnarvöld að veita nokk-
urt leyfi fyrir þráðlausu sjónvarpi, eins
og í Keflavík. Tæknin á þessu sviði gerir
ekki aðeins kleift, lieldur algengt í Banda
ríkjunum, að nota þráðbundið sjónvarp.
Sjónvarpsnotendur eru bá ekki aðrir en
þeir, sem tengdir eru kerfinu í bókstaf-
legum skilningi, áþekkt og allir þekkja í
sambandi við notkun vcnjulegs síma.
Fyrir örfáum dögum gat að Iíta þá
smáfrétt í erlendu blaði, að búið væri að
tengja 500 hús sjónvarpskerfi í Den Haag
í Hollandi. Þeta er nefnt sem dæmi þcss
hve ónauðsynlegt er að veita erlendu
setuliði Ieyfi til að reka þráðlausa og svo
sterka sjónvarpsstöð, að hehningur þjóð-
arinnar liggi undir áhrifasvæði henn-
ar. □
v._________________________________;
JÓLALJÓS
Höfum allt til skrautlýsingar fyrir jólin:
LITAÐAR PERUR
FATNINGAR - IvLÆR
SNÚRUTENGLA - FJÖLTENGLA
PLASTSNÚRU - GÚMMÍKAPAL
JÓLATRÉSSERÍUR - SERÍUPERUR
VASALUKTIR, margar gerðir
NIPPLA í fatningar o. fl.
Skrautlýst jól eru fegurri jól!
NÝKOMNAR:
HOILENZKAR KÁPUR, fallegar, ódýrar
Verð frá kr. 1725.00.
VERZLUN B. LÁXDAL
Yið liöfum að vei
Ú RYALI
DILKAKJÖT: Hryggur ht
Heil lær Kótelettur
Útbeinuð lær Frampartar
Heill hryggur alikAlf,
Kótelettur Krafísteik
Lærsneiðar Gullash
Súpukjöt Buff, barið
Hamborgarliryggur Fíle - Hak
Hamborgarlær Hamborgai
Saltkjöt, úrvalsgott
Svið — Hjörtu SVÍNAKJC
Nýru Lærsteik, b
Lærsteik m
UNGKÁLFAKJÖT: Bógsteik
Lær Kótelettur
Útbeinuð lær Hamborgai
ÚRVALS HANGIK
Tökum á móti pöntunum í jólai
ÍÍJÖRBÚÐ K
SVESKJUSULTA
APRICOSUSULTA
JARÐARBERJASULTA
BLÖNDUÐ ÁVAXTASULTA
NÝLENDUVÖRUDEILD OG ÚTIBÚIN
Hentugar og nytsamar vörur
til jólagjafa
HAGSTÆTT VERÐ - FJÖLBREYTT ÚRVAl
KAUPFÉLAG VERKAMANNA
Kjörbúð og Vefnaðarvörudeild
MARSIPAN
200 gr. pakkar
NÝLENDUVÖRUDEILD OG ÚTIBÚIN
20% LÆKKUN
á Ljósakrónum, Borðlömpum,
Vegglömpum og Gólflömpum
VÉLA- OG BÚSÁHALDADEILD
Nýtt til jólanna:
BLANDAÐAR HNETUR
í !/2 kg. grisjupokum - Kr. 22.00
NÝLENDUVÖRUDEILD OG ÚTIBÚIN
Bókasýningin
í Gildaskála KEA
er opin. í dag og á morgun (laugardag og sunnudas
kl. 4—6x>g 8—10 e. h. — Allar nýju bækurnar liggj
frarnmi til lesturs og athugunar. — Notið þetta síðast
tækifæri til að kyrina ykkur bækurnar áður en þi
kaupið.
Bókabúð lóhanns Valdemarssonar