Dagur - 23.12.1961, Page 8
8
Pillur lézl al voðaskoti
S;í hörmulégi atburður varð í
Skriðuhveríi í S.-I'ing. 20. þ. m„
að nítján ára piltur írá Akurcyri,
Pétur Leósson, varð íyrir voða-
skoti og lézt samstundis.
Pétur var sonur Lcós Guð-
mundssonar og Gyðu Jóhannes-
dóttur, Aðalstræti 14.
Daginn áður ók hann austur i
bíl sínum og er talið að hann hali
ætlað á rjúpnaveiðar í Skriðu-
hverfi, þar sem hann er kunnug-
ur.
En morgunin eftir fannst hann
örendur við veginn heirn að
Rauðuskriðu. Ekki er vitað um,
hvernig slys þetta bar að höndum
að öðru ieyti en því, að pilturinn
mun hafa látizt samstundis. Rifill
hans lá þar hjá, og var skefti hans
brotið. Hinn látni var einn á ferð
er slvsið bar að höndum.
Blaðið sendir ástvinum hins
látna innilegar samúðarkveður
vegna hins sorglega atburðar.
Hvar eru skipin um jólin?
ÞRJÚ Akureyrarskipin, Ólafur
Magnússon, Akraborg og Súlan
eru á síldveiðum fyrir sunnan.
Snæfell kom í gær frá Noregi,
en þangað fór það með saltsíld-
arfarm, 965 tunnur, og kom með
salt til Hríseyjar og Hauganess.
Sigurður Bjarnason siglir með
síld til Þýzkalands, fer héðan
annan jóladag. Dalvikurskipin
Biörgúlfur og Björgvin eru í
Akureyrarhöfn, en munu innan
tíðar fara á veiðar. Ólafsfjarðar-
og Dalvíkurbátarnir eru flestir
á Akureyri. Sæþór, sá er upp
rak í Ólafsfirði síðast í nóvem-
ber, er nú i slipp á Akureyri.
Þrír togarar Útgerðarfélagsins
eru á veiðum og koma ekki fyrir
jól. Þeir eru: Harðbakur, Kald-
bakur og Svalbakur. Sléttbakur
er í höfn og verður heima fram
yfir hátíð. Norðlendingur varð
fyrir ketilbilun á heimleið úr
isöluferð 'til Þýzkalands og er
óvíst að hann nái heim fyrir jól.
Unglingar yfirlieyrðir
MIKIÐ ÓNÆÐI er af sprengj-
um, sem unglingar nota óspart á
nótt sem degi. Tveir voru
dæmdir í 500 króna sekt fyrir
vítavert athæfi af þessu tagi í
miðbænum og margir hafa verið
yfirheyrðir. Sprengjur munu
hafa borizt með Gullfossi er
hann var hér síðast, að því er
lögreglan hefur upplýst, en ekki
álítur hún að verzlað sé með
óleyfilegar sprengjur í verzlun-
um bæjarins. Enn er minnt á, að
af ógætilegri meðferð slíkra
hluta hafa hlotizt alvarleg slys.
Skákmóti l
MÓTINU LAUK fyrir nokkru.
Fimm fjögurra manna sveitir
kepptu, og er það heldur minni
Jrátttaka en oft hefur verið.
Úrslit urðu:
-. Sveit UMF Skriðuhrepps 14
vinninga.
2. A-sveit UMF Saurbæjarhr.
og Dalbúans 8V2 v.
3. Sveit UMF Möðruvallasókn-
ar 8 v.
4. Sveit UMF Svarfdæla 6 v.
5. B-sveit UMF Saurbæjarhr.
og Dalbúans 3Vz v.
í sveit UMF Skriðuhrepps
voru: Guðmundur Eiðsson, Ari
Friðfinnsson, Ármann Búason
og Sturla Eiðsson.
Hraðskákmótið.
Það fór fram á Akureyri 15.
þ. m. Keppendur voru 22, skak-
stjóri Albert Sigurðsson.
- „TILVONANDI
MEISTARAVERK44
HALLDÓR SIGURÐSSON al-
þingismaður vék að því á Al-
þingi nýlega, að einhverjir sam-
herjar Gunnars Thoroddsen
myndu, þegar sparnaðarloforða
skráin var útgefin á sínum
tíma, hafa óskað honum til
'hamingju með „tilvonandi
meistaraverk“ í fjórmálum ís-
lands. En einmitt þannig komst
Steinn Steinarr að orði eitt sinn
um fyrirætlanir í bókmenntum.
Hins vegar taldi Halldór Sig-
urðsson flesta orðna úrkula
vonar um, að hið „tilvonandi
meistaraverk“ fjármálarácherra
yrði nokkru sinni meira en „til-
vonandi“. □
Úrslit:
1. Iijörleifur Halldórsson UMF
Öxndæla I8V2 v.
2. Guðmundur Eiðsson UMF
Skriðuhrepps 17x/2 v.
3. Jóhann Helgason UMF Ár-
roðinn I6V2 v.
Nú stendur til keppni milli
Hjörleifur Ilalldórsson
Akureyringa og Eyfirðinga í
skák, sennilega fyrir áramót. —
Gert er ráð fyrir að tefla á 50
borðum. Eru þetta einhverjar
fjölmennustu skákkeppnir sem
fram fara hér á landi. Á síðasta
ári unnu Akureyringar keppn-
ina með litlum mun. □
Kallað á slökkvilið
í FYRRAMORGUN var kallað
á Slökkvilið Akureyrar vegna
elds í Tunnuverksmiðjunni í
innbænum. En þar var aðeins
verið að brenna rusli, svo sem
þar er daglega gert, enda sá
maður verksmiðjunni óviðkom-
andi, sem á slökkviliðið kallaði.
Samanburður á Ijárlögum
Samdrátturinn í verklegum framkvæmdum er
einkenni núverandi stjórnarstefnu
FJÁRLÖG fyrir árið 1962 voru
afgreidd frá Alþingi sl. þríðju-
dag og þingi frestað, sennilega
til 1. febrúar. Þriðja umræða
um fjárlagafrumvarpið fór fram
á mánudaginn og stóð til klukk-
an að ganga eitt um nóttina, en
atkvæðagreiðsla um breytinga-
tillögur fór fram eftir hádegi á
þriðjudag, svo og endanleg at-
kvæðagreiðsla um frumvarpið
sjálft.
Þingmenn Framsóknarflokks-
íns fluttu við þessa umræðu all-
margar breytingartillögur, eink-
um um að hækka framlög til
verklegra framkvæmda víðs
vegar um land, jafnframt því,
sem þeir fluttu aðrar tillögur,
sem miðuðu að því, að jöfnuður
yrði milli tekna og gjalda. Allar
þessar tillögur voru felldar af
stjórnarliðinu.
Niðurstöðutölur hinna nýju
fjárlaga virðast vera um 163
millj. kr. hærri en í fjárlögum
ársins 1961, samkvæmt athugun,
sem gerð var rétt eftir að at-
kvæðagreiðslunni lauk.
Niðurstöðutölur fimm síðustu
fjárlaga eru sem hér segir:
Arið 1958 . .
Árið 1959 . .
Árið 1960 . .
Árið 1961 . .
Árið 1962 . .
882.5 millj. kr.
1146.0 millj. kr.
1501.8 millj. kr.
1588.7 millj. kr.
1752.0 millj. kr.
Þess skal getið, að niður-
greiðslur fjárlaganna 1958 og
1960 eru hér tilgreindar þannig,
DRÓGU I>Á TIL BAKA
I BYRJUN þings í haust lét
Sjálfstæðisflokkurinn þá Jónas
Rafnar og Magnús Jónsson
hætta störfum í fjárveitinga-
nefnd, en þar hafa þeir báðir átt
sæti undanfarin ár og Magnús
verið formaðurinn. Við for-
mennsku tók Kjartan Jóhanns-
son. Er þá eftir í nefndinni að-
eins einn þingmaður úr Norð-
urlandskjördæmi eystra, og er
það Ingvar Gislason, sem er
einn af þremur fulltrúum Fram
sóknarflokksins þar. □
að við upphæðirnar, eins og þær
voru afgreiddar í fjárlögum
þeirra ára, er bætt þeim upp-
hæðum, sem varið var úr út-
flutningssjóði þau ár, til niður-
greiðslu vöruverðs.
Niðurgreiðslur hafa síðan ver-
ið teknar inn í fjárlög, og er því
eðlilegt að tilgreina niðurstöð-
urnar 1958 og 1959 á bann hátt,
sem hér er gert. Verður það þá
ekki véfengt, að hér er um sam-
bærilegar niðurstöðutölur að
ræða.
Árleg hækkun fjárlaga, hefur,
samkvæmt framansögðu, verið
sem hér segir:
Árið 1958—59 263.5 millj. kr.
Árið 1959—60 356.0 millj. kr.
Árið 1960—61 86.0 millj. kr.
Árið 1961—62 163.0 millj. kr.
Mörgum mun koma í hug
hin mikla sparnaðarloforðaskrá
núverandi fjármálaráðherra og
meirihluta fjárveitinganefndar,
sem birt var á árunum 1960—
1961, samtals í 59 liðum, tölu-
settum. Skrá þessi var á sínum
tíma prentuð í ræðum ráðherr-
ans og nefndaráliti meirihluta
nefndarinnar.
Sparnaðaráætlanir þessar hafa
lítinn árangur borið, enda grun-
aði víst marga, að þar væri um
lýðskrum að ræða.
Jafnframt því, sem útborganir
ríkisins í heild, samkvæmt fjár-
lögum, hafa hækkað um nálega
100% síðan fjárlög ársins 1958
voru sett, hafa fjárveitingar til
verklegra framkvæmda lækkað
mjög hlutfallslega og er það að
verða mönnum mikið óhyggju-
efni víða um Iand.
Við þriðju umræðu fjárlag-
anna, sl. mánudag, skýrði Sigur-
vin Einarsson alþingismaður frá
athugun, sem hann hefur gert á
f járveitingum til nýbygginga,
vega- og brúaframlög af benzín
lögum 1958—1962, og eru þá
vega- og brúarframlög af benzín-
skatti meðtalin öll árin. Sigur-
vini Einarssyni telst til, að fjár-
veitingar þessar hafi, samkv.
fjárlögum 1958 numið 5.27% af
heildarupphæð fjárlaganna. Töl-
ur þær, sem hér fara á eftir og
teknar eru úr ræðu Sigurvins,
sýna þær upphæðir (taldar í
hundruðum þúsunda), sem veitt
ar voru til framkvæmda 1959—
1962 og til samanburðar þær
upphæðir, sem þurft hefði að
veita til þess að halda hlutfalli
ársins 1958, svo og þá upphæð,
sem á vantar hvert ár til þess
að 5.27% af niðurstöðuupphæð
fjárlaga, sé til þessara fram-
kvæmda veitt.
Fjárveiting 5.27% Vantar
millj. millj. millj. ’
1959 .. 51.7 60.4 8.7
1960 .. 61.5 79.2 17.7
1961 . . 62.0 83.7 21.8
1962 . . 62.4 92.3 29.4
t---------------------
Heilög jól
Hringja klukkur
í helgidómi
blessun mannheimi,
björtum rómi.
Hver vill ei liðsinni
ljá þeim til,
að viti reikendur
á vegi skil?
Blika snæstjörnur
í björtum ljósum,
sem leiítri neistar
aí lífsins rósum.
Hver viU ei sjá
þá vizku list
eilífs anda
í æðstu vist?
Þótt dagar komi
og dagar hverfi,
lýðir þeirra
ljóma erfi —
og beri hann
í brjósti þó
skuggar hrannist
um skapasjó.
Gjör hjarta þitt
að hörpu, maður!
og syngdu lofkvæði,
sæll og glaður!
Aldrei sortnar
þín ævisól,
ef hugann verma
ein heilög jól.
(s. d.)
V---------------------