Dagur - 05.01.1962, Page 2
2
IJM JÓL OG ÁRAMÓT
(Framhald af bls. 1)
gerðarmálum, því að ráðgert er
að allir bátarnir rói úr heima-
höfn. Menn eru búnir að sœkja
báta sína til Akureyrar, en þar
voru þeir flestir, og Sœþór er
þar enn, en fer að verða tilbú-
inn til heimfarar. Bátarnir eru
þessir: Sæþór, Guðbjörg, Þor-
leifur Rögr.valdsson og Olafur
Bekkur, sem var í siglingum og
sennilega rær líka úr þeima-
höfn. Auk þessara báta róa svo
væntgnlega 6 bátar, sem eru
10—30 tonn á stærð.
í vetur hefur verið góður afli
þegar á sjó hefur gefið og eru
menn bjartsýnir í því efni, ef
tíð verið hagstæð.
Allt að 200 manns hafa árlega
farið héðan til Suðurlandshafna
eftir áramót. Nú fara aðeins
nokkrir menn.
Áramótabrenna var vestur
vi§ ósinn. Leikfélag staðarins
hefitr haft 4 eða 5 sýningar á
Kjarnorku og kvenhylli við
ágæta aðsókn. Hér fór allt fram
:með friði og spekt urn jól og
áramót. Snjór er fremur lítill.
Raufarhöfn.
Tíðin var rysjótt þar til á
gamlaársdag að gerði hláku og
bh'ðskaparveöur. Snjólaust má
heita, en ekki er þó bílfært til
Húsavíkur. Fært er til Kópa-
skers á bifreiðum. Flugvöllur-
inn hefur verið lokaður. Mikið
er nú um skipakomur. Síðasta
Rússlandssíldin er farin. Finn-
iandssíldin fer einhvern næsta
dag, það sem ófarið er af henni.
Hana taka Helgafell og Arnar-
feli. Katla tekur fullfermi af
síldarmjöli.
Þrjár brennur voru hér og
allmyndarlegar. Áramótadans-
leikur var haldinn og fór vel
fram. ,
Rétt fyrir jólin var farið í
nokkra róðra og var aflinn
ágætur, bæði þorskur og ýsa.
En svo hefur jafnan verið í vet-
ur, þegar á sjó hefur gefið.
Rpðrana stunduðu 4 dekkbátar
cg ein trilla.
Húsavík.
Brenna var á Stórhól og
önnur á Húsavíkurtúni, en
þangað fóru Völsungar í blysför
og lúðrasveit lék við bálið undir
stjórn Sigurðar Hallmarssonar.
Þar var margt manna saman
komið. Helgafell lá hér í höfn-
inni ljósum prýtt. Þaðan, og
víða í bænum, var flugeldum
skotið. Engar óspektir urðu.
Stefán Þór hefur verið leigð-
ur suður, Smári, form. Sigurður
Sigurðsson, og Pétur Jónsson,
form. Pálmi Héoinsson, verða
gei'ðir út á Suðurlandsvertíð.
Allir aðrir bátar, stærri og’
minni, verða gerðir út hér
heima. Þeir eru: Freyja, form.
Haukur Sigurjónsson, Hrönn,
form. Arngrímur Gíslason,
Hagbarður, form. Þórarinn Vig-
fússon, Andvari, form. Sigur-
björn Sörensson, Fanney, form.
Sigurbjöm Kristjánsson, Svan-
ur, form. Ingvar Hólmgeirsson,
Sæborg, form. Karl Aðalsteins-
son, og Grímur, form. Þor-
móður Kristjánsson.
Svo sem sjá má af þessu, er
heimaútgerðin á þessum árs-
tíma að aukast stórkostlega og
hefur það margar og vænlegar
breytingar í för með sér fyrir
kaupstaðinn. ,
Guiinarsstöðum.
Um kl. 7 að kveldi hins 29.
des. kviknað.i í húsi því er raf-
vélar á Þóishöfn voru í. Þpð er
einlyft stein-hús. Varðmaðurinn,
Daníel Jónsson, var staddur í
'herbergi inn af vélarhúsinu og
heyrði hvin framan úr salnum.
Er hann leit fram fyrir stóð þar
allt í björtu báli. Brauzt hann
þá út um glugga og sakaði ekki.
Slökkviliðið kom þegar á vett-
vang. En vélarnar tvær, er
þarna voru, eyðilögðust. Önnur
þeirra var 80—90 kw. og hin 40
—50.
Ea í skúi- rétt hjá var vara-
rafstöð. Hún var nú tengd
kerfinu og nægði til ljósa og til
að tengja upphitunarkerfi, er
rafmagni er háð. En þrjú dægur
var rafmagnslaust á Þórshöfn.
Rafmagnsveitur ríkisins, sem
þessa stöð áttu, áttu vélar á
Vopnafirði, sem nú komu í
góðar þarfir. Þær voru fluttar
til Þórshafnar og ganga nú og
framleiða rafmagn fullum
krafti.
Um og fyrir hátíðirnar gengu
í hjónaband: Sigríður Árnadótt
ir, Rauðuskriðu í S.-Þing., og
Kristinn Jóhannsson frá
Hvammi, nú verzlunarmaður á
Þórshöfn. Ennfremur María Jó-
hannsdóttir, Hvammi, og Vigfús
Guðbjörnsson, sama stað. Þá
voru gefin saman í hjónaband
Sign'ður Andrésdóttir, Þórs-
höfn, og Aðalbjörn Aðalbjörns-
son, Hvammi. Aðalbjörn er
verkstæðisformaður á Þórshöfn.
Við, hér eystra, heyrum mjög
illa í útvarpi, sérstaklega á milli
7 og 10 síðdegis. Á gamlaárs-
kvöld heyrðist nær ekkert fyrr
en eftir kl. 10.
Snjógrunnt er og vegir færir
innan héraðsins. . tV.V.Vi
/v(.' v 'j 3S
Ofeigsstöðum.
Flugfæri er bæði á jörðu og í
lofti neðan til í héx'aði og bíl-
fært er til Akureyrar, eftir góðri
slóð, er lögð var í gær. Helga-
fell liggur í Húsavíkurhöfn með
1000 tonn af hinum dýxmæta
Kjarna frá Guíunesi. Kjarni á
svo að biða hér næsta vors og
taka þStt í vexti gróðursins á
næsta sumri.
Nú er merkur tími land-
búnaðarins, er sauðfjárbúskap-
inn snertir, og í baksýn eru
gráar gærur á 70—80 krónur
kílóið. En það er svo með lit á
óorðnum gærum, að færri verða
gráar en mpnn gjarnan vildu.
En í hillingum blandast þær
sólskininu og e. t. v. pelsklædd-
um konum, sem eiga sinn þátt í
voninni um réttan lit og gott
verð á þessari framleiðslugrein.
Ilaganes.
Nú er gott veður. Snjór er
minni en oft er í Fljótum. Til
dæmis er bílfært í Stíflu, sem
er fremur sjaldgæft á þessum
tíma.
Hér er mjög rólegt. Margt
fólk kom heim um jólin, en er
nú að tínast burtu aftur.
Margir em í skóla og max'gt
fólk fer nú líka suður á vetrar-
vertíð. Búin eru of lítil til þess
að þar séu næg verkefni fyrir
alla ’heimamenn.
Hermann Jónsson á Móum
varð sjptugur 12. des. Þá var
mannmargt þar. Hermann er
hinn merkasti maður á marga
lund, drengur góður og höfð-
ingi.
Kaup kvenna hækkar
Eftir ósk Verkakvemxafélagsins
Einingar á Akurcvri hefur I.auna-
jafnað.arneínd, sanrkvæipt ákvæð-
unr laga nr. 00 1961, ákveöið
hækkun á kaupi kvenna, samkv.
cftirfarandi:
A. Almcnni samriingurinn
(dags. 4.-8. júní 19.61).
4. gr.
Tínrakaup kr. 19.89 ltækkar um
kr. 0.48 í kr. 20.37.
Timakaup kr. 18.21 lrækkar um
kr. 0.76 í kr. 18.97.
Tímakaup (ungl.stúlkur 14—16
ára) kr. 15.84 hækkar unr 0.40 í
kr. 16.24.
11. Samningnr fclngsins við Fjörð-
ungssjúkrahúsið dags. 22. agúst
1961.
1. gr.
Fyrstu 6 mán. kr. 3250, hækkar
uni kr. 205.23, í kr. 3455.23.
Næstu 6 mán. kr. 3750, hækkar
um kr. 121.90, 4 kr. 3871.90.
Næstu 12 mán. kr. 385.0, hækkar
um kr. 105.23, í kr. 3955.23.
Eftir 2 ár kr. 3850, hækkar um
kr. 142.58. í kr. 3992.58.
Eftir 4 ár kr. 3950, hækkar um
kr. 125.91 í kr. 4075.91.
A kaup þetta greiðist álag
vegna eftirvinnu, næturvinnu og
helgidagavinnu samkvæmt samn-
ingum.
Kauphækkun þessi kemur til
framkvæmda lrá og með 1. janú-
ar 1962.
Eftir ósk Iðju á Akureyri hcfur
Launajafnaðarnefnd, samkvæmt
ákvæðunt l.agá nr. 60 1961, ákveð-
ið hækkun á kaupi kvenna, sam-
.>.kvarn|it k jarasam,ningi .vijij SÍS og
'•hEA dag-s. 19. okt, 196Íbton hér
segir: þ r \ -
Konttr eldri cn 17 ára:
Fyrsta starfsár kr. 3168.00, liækk
ar ttm kr. 175.00, í kr. 3343.00.
Eflir 12 mán. kr. 3967.00, hækkar
um kr. 18.0.00, í kr. 4147-00.
Konur, cldri en 17 ára í sútun-
arverksm. og ullarþvottastöð:
Fyrsta starfsár kr. 3168.00, hækk
ar um kr. 204.50, í kr. 3372.50.
Eftir 12 mán. kr. 3967.00, hækk
ar um kr. 210.33 í kr, 4177.33.
Vefarar, eldri en 17 ára (kon-
ur):
Fyrsta starfsár kr. 339.0.00, liækk
ar um kr. 129.00, í kr. 3519.00.
Eltir 12 mán. kr. 4372.00, hækk
ar um kr. 156.33, í kr. 4528.38.
Konur eldri en 17 ára, í Mjólk-
ursamlagi KEA:
Éftir 12 mán. kr. 4214.00, hækk
ar um kr. 245.50, í kr. 4459.50.
Tímakaup kvcnna, kr. 19.84,
hækkar um kr. 0.90, í kr. 20.74.
Timakaup karla kr. 25.24.
A kaup þetta greiðjst álag
vegna eflirvinnu, nætiirtinnu og
helgidagavinnu samkvæmt sainn-
ingum.
Kauphækkun þessi kemur til
framkvæmda írá og með 1. jan.
1962.
íf
(Framhald af bls. 8)
meðan við vorum yngri.
Hvað takið þið fyrir kvöldið?
Fyrstu árin fengum við fjór-
um sinnum minna kaup en nú
er, en samt var það betri
boigun. ,
Hver er aðalmunur á dans-
leikjum fyrr og nú?
Til dæmis eru húsakynnin
miklu betri nú, en fólkið
skemmti sér samt betur áður, á
því er augljós munur, hvernig
sem á því stendur. Þá var oft
dansað lengi.
Og þá var stundum slegizt?
Það kom nokkuð oft fyrjr,
enda engin lögregla þá til að
skakka leikinn. Og dyraverð-
irnir höfðu oftast nóg annað að
gera.
Meira drukkið þá en nú?
Það var allt öðruvísi. Fyrstu
árin, sem við spiluðum saman,
sást ekki vín á nokkrum kven-
manni, og þannig varð það fram
um 1950. Síðan er drykkju-
skapur stúlkna meiri með ári
- Fréttabréf ...
(Framhald af bls. 8)
Fyrirtæki það, sem annaðist
lagnir innanhúss, heitir: Raf-
tækjavinnustofa Árna og
Gríms, Húsavík. Misi'itaðist
heiti þess einnig í fyrri frétt.
Fi'amkvæmdir í jarðrækt
vo.ru með minna móti, ef frá er
talið land það, sem brotið hefur
verið til korni-æktar á Einax-s-
stöðum.
Engar nýlagningar vega hafa
vex'ið í hreppnum á þessu ári,
en nokkru fé varið til viðhalds
sýsluvega, svo sem til ofaní-
bui'ðai'.
Félagslíf hefur verið með
minna móti í hreppnum þetta
ái'. Veldur þar sennilega
nokkru um mikið starf við und-
ii'búning Landsmóts UMFÍ að
Laugum. Landsmótið er að sjálf
sögðu höfuðviöburður ái'sins
hér í sveit, en verður ekki gert
að umræðuefni hér, svo mjög
sem fréttir hafa bifzt Íil^jví.
Ungmennafélag og kvenfélag
stöi'fuðu nokkuð, en leikstarf-
semi var engin. Skáksveit úr
hreppnum tók þátt í keppni
milli ungmennafélaga innan
Héraðssambands Þingeyinga.
Tvisvar mættu spilamenn úr
Reykjadal stallbræðrum sínum
úr Mývatnssveit til bridge-
keppni. Fóru hinir síðai'nefndu
með sigur af hólmi í bæði skipt-
in. Karlakór Reykdæla starfaði
um skeið seinni hluta vetrai'ins.
íbúatala hreppsins, sam-
kvæmt þjóðski'á 1. des. 1961,
liggur ekki fyrir, en endanleg
tala 1960 var 389. Tæplega
verður um fólksfjölgun að
ræða á yfii'standandi ári, þar
sem nokkuð hefur flutzt burtu
af fólki úr hreppnum.
Tveir menn, heimilisfastir í
hreppnum, létust ó árinu, Hall-
grimur Þorbergsson, bóndi,
Halldóx'sstöðum í Laxárdal, og
Tómas Sigurgeii'sson í Glaum-
bæ. □
hverju. Við spiluðum mikið í
Sólgarði og FTeyvangi, fyrst
eftir að hann tók til starfa, og
fylgdumst með þessu, enda ekki
hægt annað. En nú eru nokkur
ár frá því að hljómsveitii'nar
leystu okkur af við félags-
heimilin og vitum við ekki
hvernig það er síðan. En áður
var eldra fólk á samkomum yf-
irleitt, nú eru þetta flest börn
og unglingar.
Hvar hefur drykkja verið í
mestum algleymingi?
Því er ekki gott að svara. En
17. júní 1944 vorum við fengnir
til að spila í Vúglaskógi, og fór-
um við austur. En allt varð vit-
laust og var húsinu lokað eftir
klukkutíma. Við náðum til bæj-
ai-ins til að taka þátt í dansinum
á toi'ginu um kvöldið.
En hafið þið sjálfir sloppið við
hnjask?
Já, já. Það vei-sta sem við
lentum í var vestur í Miðfii'ði á
skemmtun. Og þar ux'ðum við
hræddastir um að lenda í átök-
unum. Ballið var alveg mis-
'heppnað og sýslumaður lokaði.
En fólkið heimtaði að við spil-
uðum meira. Það gátum við
ekki. Þá var okkur sýnt í tvo-
heimana, og þegar við fórum,.
dundi grjótið á bílnum, sem við
vorum í. Annars er margs
skemmtilegs að minnast og;
hvarvetna hefur okkur verið’
ágætlega tekið. Við erum fólk-
inu þakklátir fyrir marga
ánægjustund og fyrir að hafa
gei-t sér leik okkar að góðu.
Blaðið þakkar harmoniku-
leikurunum fyrir svörin.
Haukur og Kalli hafa leikið:
fyrir dansi um allt Norðurland
og ei'u vinsælir. Þeir eiga mjög'
góð hljóðfæri, ítalskar hnappa-
harmonikur með sænsku gripi.
Möi-gum mur.di þykja gaman.
að heyra þá í útvai'pi og er
þeii-ri ábendingu hér með:
komið á framfæri, um leið og 15'
ára starf í þágu skemmtanalífs-
ins er þakkað. Q
- Róleg áramót á Ak.
(Framhald af bls. 1)
unglingar drekki ekki vín á
skemmtistöðum, sem vínveit-
ingaleyfi hafa. Hér vii-'ðist vera
æði stór gloppa í löggjöfma og
lögreglusamþykktina. Á stöð-
um þeim, sem vínveitingaleyfi
hafa, eða fá hverju sinni, þarf
aldui'stakmark samkomugesta
að miöast við 21 áx-s aldur, alveg
skilyrðislaust. Eða treystir séi'
nokkur til þess í alvöru, að hafa
ó slíkum stöðum efthlit með því
hvei-jir kaupa og hverjir neyta?
Flér í bæ er aðeins ein fólks-
bifreiðastöð. Hún var ekki opin
þegar samkomugestir þurftu
heim til sín þessa nótt. En aldr-
ei þai'f. fólk eins mikið á bif-
reiðum að halda. Þetta er ekki
eins æskileg þjónusta og stöðin
getur veitt og þarf að veita.
Athyglisvei't er það, að aldrei
var aðstoðar slökkviliðs leitað
um jól og áramót. Og engin slys
munu hafa orðiið, svo að telj-
andi séu. □