Dagur


Dagur - 04.04.1962, Qupperneq 5

Dagur - 04.04.1962, Qupperneq 5
4 ✓.......*........... 1 Daguk Fjaðrirnar fjúka RÍKISSTJÓRNIN gumar stundum aí góöum aflabrögðum og setur þau jafnvel í samband við hina „farsælu viðreisnar- stefnu“, og sjá allir hve fráleitt slikt er. En ríkisstjórnin barmar sér hins vegar yfir aflaleysi, þegar hún er að lýsa því að enginn f járhagsgrundvöllur sé til, eða hafi verið til, fyrir liina minnstu kaup- hækkun. Þessi tvísöngur cr orðinn land- lægur í herbúðum íhaldsins og hljómar falskt þegar staðreyndirnar eru látnar tala. Sjávarafli landsmanna hcfur aldrei verið eins mikill og síðasta ár. Munaði 23% á aflamagni tveggja síðustu ára, síð- ara árinu í vil. Og aflaverðmætið var 14% meira en áður. Þetta segir okkur tvennt, sem ekki ætti að þurfa að vera skiptar skoðanir uin: í fyrsta lagi er auk- ið verðmæti sjávarútvegsins sönnun þess að óþarft var og ósæmilegt fljótræði að breyta sltráðu gengi krónunnar í sumar. í öðru lagi á almenningur rétt á að njóta bættra lífskjara þegar þjóðarframleiðsl- an vex. En það hefur orðið í sjávarút- vegi, iðnaði og landbúnaði. En hver hef- ur fengið bætt kjör þrátt fyrir aukna framleiðslu? Hið sanna í launamálum er það, að í stað þess að bæta lífskjörin, eins og lof- að var, hefur kaupmáttur launa rýrnað um 16% tvö síðustu árin. Þannig er hlut- ur laimþega af hinum auknu þjóðartekj- mn. Laun eru að heita má óbreytt í krónutölu og þau voru í árslok 1958, en verð á nauðsynjavörum svo gífurlegt, að það er t.d. útilokað að ungt fólk geti eignazt þak yfir höfuðið. Verkamáður er tvö ár að vinna fyrir viðreisnarhækkun- inni, á einni íbúð, bóndinn þarf að kaupa vinnuvélar nær tvöföldu verði vegna „viðreisnarinnar“ og sjómönnum er boð- ið upp á afnám vökulaganna. Á meðan á kosningum í verkalýðs- félögunum stóð í vetur, hrópaði aðalblað ríkisstjórnarinnar um kjarabætur án kauphækkana, sagði beinlínis að um þær væri að velja í kosningunum innan verkalýðsfélaganna. Síðan er ekkert minnzt á kjarabætur, enda er svo konúð í þjóðfélagi okkar, að þótt ríkisstjórnm lofaði að blanda sér ekki í samninga verkamanna og atvinnurekenda, gerði hún það á þann hátt, að segja má að' frjálsir samningar séu þýðingarlitlir. Það reyndust haldlitlir samningar í sumar, þegar ríkisstjórnin rændi kjarabótunum með gengisfellingunni. Gengisfellingin gerði samninga að þýðingarlausum blað- sneplum, og það getur haft örlagaríkar afleiðingar. Stéttir og starfshópar færu e. t v. þá leið að setja sér kauptaxtana sjálfir eins og verkfræðingar hafa þegar gert, læknar eru á góðum vegi að gera, og eins og sumir iðnaðarmenn hafa gert. Allar skrautfjaðrir íhaldsins eru fokn- ar út í veður og vind. Kratar áttu enga. Ríkisstjórnin hefur misst traust fólksins af því hún sveik það í flestum atriðum, og þess mun hún gjalda í næstu kosning- um. Ekki er nóg um það, að kratar eigi engar skrautf jaðrir lengur, heldur liggja þeir hamflettir á matborði íhaldsins. Og í maga íhaldsins munu þeir bæði hafna og kafna, ef hinir óbreyttu kjósendur Ijá þeim teljandi atkvæði í bæjarstjórnar- kosningunum í vor. V—_____-________________________ Hiíðarf jall - liinir íslenzku Alpar Viðtal við Vilhjálm Einarsson íþróttakappa í TILEFNI af starfsfræðsludeg- inum hér á Akureyri komu ýmsir að til að kynna störf og stofnanir. Meðal þeirra var Vil- hjálmur Einarsson kennari við Samvinnuskólann á Bifröst. Sýndi hann skuggamyndir frá Bifröst með skýringum af seg- ulbandi. Myndir þessar voru hinar athyglisverðustu og lýstu betur en hægt hefði verið með orðum einum lífi og starfi í þessari ágætu stofnun. Sérlega athyglisverð er til- högun í Samvinnuskólanum á skipulagi frístunda. Segja má að þetta sé ef til vill eina mennta- stofnún landsins, sem hefur komið auga á hina miklu og vaxandi hættu er getur leitt af hinum auknu tómstundum manna, ef ekki er séð fyrir því að menn hafi jákvæð áhugamál til að fylla þessar stundir. Aðal- starf Vilhjálms felst í því að skipuleggja og hafa eftirlit með tómstundum nemenda, enda er í skólanum meira og ,'jölþætt- ara félagslíf en í nokkrum öðr- um skóla af svipaðri stærð. — Námsárangur er einnig mjög góður á Bifröst, svo sannarlega bendir hið öfluga tómstunda- starf ekki til þess að það hafi ill áhrif á hið bóklega nám. Ætti þetta að vera nokkurt athugun- arefni þeim, sem um fræðslu- kerfi þjóðax-innar fjalla, hvort ekki þurfi víðar að taka þessi mál svipuðum tökum og sinna tómstundakennslu svo sem vert væri. Mundi slík kennsla ekki vera vænlegasta úrræðið í því vandræða-öngþveiti, sem svo víða er rætt um að ríki meðal æskufólks? Þú ert hér á kunnum slóðum, Vilhjálmur? — Já, mér þótti vænt um að fá tækifæri til að kynna Sam- vinnuskólann hér á Akureyri, því einmitt hér á ég mjög skemmtilegra skólaára að baki að sjá. — Ég útskrifaðist úr M. A. 1954, eftir rúmlega þriggja vetra nám. Ég kom utanskóla seinni hluta vetrar í þriðja bekk og sá ég helzt eftir því síðar að hafa ekki komið fyrr. Gaman væri að heyra hvað þú hefðir að segja um íþróttamál almennt, eða ef til vill hér á Ak- ureyri eftir fjarveru þína héðan og kynni af öðrum stöðum? — Ég býst við að mér verði eins og fleirum hugsað til fjalls- ins og hins glæsilega Skíðahót- els, sem hér er verið að reka smiðshöggið á. Akureyri er að mínurn dómi fyrst og fremst kjörinn vetraríþróttastaður. Það er ekki þar með sagt að sumar- íþróttunum sé ekki vel sinnt. Þær er hægt að stunda alls stað- ar, þar sem vellir eru, og þeir eru einnig ágætir hér. Hitt er mikilvægara að geta boðið upp á svo glæsileg skilyrði til í- þróttaiðkana sem hér árið um kring. Ferð þú nokkurn tíma á skíði? — Nei, að vísu ekki nú í seinni tíð. Þegar um mjög sér- hæfa þjálfun undir vissa grein er að ræða vinnst lítill tími til annars. Þó er ég viss um, að ég hefði farið oft og haft gott af því, ef ég hefði haft svo góðar Vilhjálmur Einarsson. aðstæður til þess sem hér eru að skapast. Hinn frægi sænski þjálfari sagði mér eitt sinn, þeg- ar við ræddum þann hinn mikla ókost, sem því fylgdi að búa í löndum, þar sem svo mikill árs- tíðamismunur væri, að þetta væri misskilningur. Það verður bara að hafa tvær íþróttagrein- ar, sagði hann, aðal- og auka- grein, aðra á veturna hina á sumrin, aðra fyrst og fremst til skemmtunar og til að halda sér í æfingu, en hina þar sem keppt væri fyrst og fremst með keppni í huga. Hvað finnst þér um Akureyri, sem bæ vetraríþróttanna? — Tilkoma hins glæsilega fjallahótels finnst mér marka fyrsta sporið á þeirri braut sem í framtíðinni gæti gert Akur- eyri að lang-vinsælasta vetrar- íþróttastað landsins og jafnvel stað er dregið gæti að sér út- lendinga til iðkunar vetrar- íþrótta hér, þótt slíkt geti að sjálfsögðu verið dýr gróði. Það er auðvitað draumsýn, en mér finnst ekki ótrúlegt að í íram- tíðinni megi sjá Hlíðarfjall ið- andi af lífsglöðu skíðafólki, sem er flutt hátt upp eftir fjallshlíð- unum með góðum skíðalyftum, — sjá þetta fólk renna sér neim að skíðahótelinu og fá þar b:;ess- ingu og ýmsa fyrirgreiðslu, — sjá niðri í bænum unglinga á skautum á Pollinum eða þá í ísknattleik á vélfrystu svelli, sem verður að koma til að festa og samhengi geti orðið í skauta- iðkunum. Hótélin eru til staðar til að taka á móti mörgum gest- um, svo segja má að aðeins vanti endasprettinn. En hvað finnst þér um íþrótta- iðkunina almennt? — Frammistaða á kappmót- um í einstökum keppnisgrein- um er sjaldan hinn rétti mæli- kvarði. Slíkt gengur ávallt í bylgjum. Hitt virðist mér aug- ljóst, að iðkun íþrótta er smám saman að verða almennari og meiri skilningur á nytsemd þeirra. Það fara fleiri á skíði en skíðakappar og smákrakkar. Það er auðséð þegar dvalizt er á Akureyri í vetrardýrð eins og nú. Þetta mun þó vaxa enn meir í framtíðinni ef vel er búið að íþróttunum. Það á örugglega eftir að sannast í Hlíðarfjalli, og þess vegna finnst mér mögu- leikarnir hér vera tengdir skíða- iðkuninni fremur flestu öðru. Akureyri hefur alla landkosti til að endurheimta forystuhlut- verkið, sem unnið var hér á landi af Hermanni Stefánssyni við skíðakennslu og fram- kvæmd skíðamóta. Það er trúa mín, að þegar aðstaðan hér í fjallinu sé fullgerð líði ekki langar stundir þar til tíðinda er að vænta í þeim efnum. Hvað heldur þú uin væntanlegt skíðalandsmót hér? — Ég átti því láni að fagna að fara upp í fjall með Hermanni Sigtryggssyni og fjórum öðrum Akureyringum og sjá með eigin augum allt sem þar hefur gerzt og er að gerast. Maður á bágt með að trúa sínum eigin augum. Varla mun ofsagt að svo glæsi- lega hefur ekki vei'ið búið að neinu skíðamóti á íslandi ef það tekst, sem allt bendir til, að ljúka við mikinn hluta hins glæsilega stórhýsis. Ekki kæmi mér á óvart þótt þetta skíða- landsmót markaði upphafið að margfaldri sókn bæði Akureyr- inga og annarra í hinar fjöl- breytilegu brekkur og hóla Hlíðarfjalls og gerði það á (Framhald á bls. 7) Fermingarbörn í Ak- ureyrarkirkju 8. apríl D r e n g i r : Bernharð Sldngrímsson, Strandg. 5. Ellert Kárason, Þórunnarstræti 100. Guðm. ólafsson, Hrafnagilsstræti 30. Haukur S. Valdimarsson, /l’gisg. 19. Jón Hansson, Hafnarstræti 100. Jón Ragnarsson, Hafnarstræti 29. Kristján Gunnarsson, Hafnarstr. 88. Rögnv. S. Reynisson, Hvannav. 4. Sigmundur R. Einarsson, Eyrarv. 35. Sigurður Ringsted, Löngumýri 3. Sigurður lngi Skarphéðinsson, Glerárgötu 16. Stefán Ævar Ivarsson, Sólvöllum 5. Stefán Kárason, Hafnarstræti 86. Sturla Meldal, Hafnarstræti 49. Sveinbjörn óskar Sigurðsson, Eyrarlandsvegi 31. Viktor Már Geslsson, Rauðamýri 20. Vilhelm Valberg Steindórsson, Lækjargötu 3. 1‘orkell I. Rögnvaldsson, Vanab. 15. Þorvaldur R. Adamsson, Bjarkarst. 2. Örn Bjarnason, Hafnarstræti 2. S t ú 1 k u r : Ásdís G. Snorradóttir, Asabyggð 12. Edda Jóhannsdóttir, Engimýri 12. Elín B. Jóhannsdóttir, Ránargötu 9. Ennna S. Rafnsdóttir, Kringlum. 17. Guðrún Á. Eggertsdóttir, Hmst. 19. Þórunn D. Eggertsdóttir, Hmstr. 19. Herdís Ingvadóttir, Ránargötu 27. Hrafnhildur Helgadóltir, Rauðamýri 15. Rebekka Gústavsdóttir, Hríseyjarg. 2. Rósfríður María Káradóttir, Sólvöllum 1. Sigrún Lovísa Sigurjónsdóttir, Hamarsstíg 4. Sigtirrós Rannveig óskarsdóttir, Rauðumýri 6. Svala Stefánsdóttir, Kringlumýri 25. 5 Búnaðarsamb. Eyjafjarðar 30 ára FERÐ UM LANGANES (Framhald af bls. 8) Aðalfundur BSE 1962 lýsir á- nægju sinni yfir þeim endur- bótum, sem gerðar voru á sl. ári á búvélaverkstæði sam- bandsins. Fundurinn telur það mikið hagsmunamál bænda á búnaðai'sambandssvæðinu, að þessi þjónusta verði aukin og efld og felur stjórninni að leita eftir fjárframlögum annars staðar frá og heimilar lántöku í því skyni. Aðalfundur BSE 1962 felur stjórn sambandsins að beita sér fyrir því, við jarðvegsdeild At- vinnudeildar Háskólans, að haldið verði áfram skipulegum jarðvegsrannsóknum og þær auknar á sambandssvæðinu eft- ir því sem mögulegt er. Fund- urinn telur það mikið hags- munamál fyrir bændur lands- ins, að þessi starfsemi, jafn- framt annarrí rannsóknar- og tilraunastarfsemi verði aukin á næstu árum. Aðalfundur BSE 1962 sam- þykkir að fela stjórn sambands- ins að athuga nú þegar mögu- leika á því, að koma upp rann- sóknarstofu hér á Akureyri með það fyrir augum m. a. að koma á skipulegum rannsóknum á þurrheyi, votheyi og öðru fóðri. Til greina kemur að gera t. d. steinefna- og eggjahvíturann- sóknir á heyi o. fl. Fundurinn felur stjórninni ennfremur, að leita samstarfs við þá aðila, sem ætla mætti að gætu lagt þessu máli lið, til dæmis Kaup- félag Eyfirðinga og búnaðar- samböndin í nágrannasýslum. í sambandi við þessa sam- þykkt var tekin upp á fjárhags- áætlun upphæð þessu til stuðn- ings kr. 15.000.00, og jafnframt tilkynnti stjórnin, að hún hefði ákveðið að verja kr. 15.000.00 af vöxtum Minningarsjóðs pró- fastshjónanna á Hofi til þessara mála. Aðalfundur BSE 1962 felur stjórn sambandsins að leita eft- ir samvinnu við sveitar- og bæjarstjórnir á sambandssvæð- inu um þátttöku í baráttu þeirri, sem hafin er norðan- lands og austan fyrir því, að virkjun Jökulsár á Fjöllum verði fyrsta skrefið til þess að hagnýta fallvötn landsins með stóriðju fyrir augum. Aðalfundur BSE 1962 skorar á aðalfund Stéttarsambands bænda að beita áhrifum sínum hjá Alþingi og ríkisstjórn til stuðnings tillögu Búnaðarþings um breytingu á lögum um al- mannatryggingar, að landið verði eitt verðlagssvæði. Allar þessar tillögur voru samþykktar sam'hljóða. Aðalfundur BSE 1962 mót- mælir harðlega þeirri skatt- lagningu á bændastéttina og gjaldi á útsöluverði landbúnað- arvara, sem gert er ráð fyrir í 4. gr. frumvarps til laga um stofnlánasjóð landbúnaðarins o. fl. sem nú liggur fyrir Alþingi. Þessi tillaga var samþykkt með ellefu atkvæðum gegn einu. Kosningar. Eggert Davíðsson átti að ganga úr stjórninni en var end- urkjörinn. Varamaður í stjórn- ina var endurkjörinn, Jón Hjálmarsson. Fulltrúi á fund Ræktunarfélags Norðurlands var endurkjörinn Eggert Dav- íðsson. Þeir Ketill Guðjónsson og Árni Jónsson voru endur- kosnir endurskoðendur. Að lok- um var gengið frá kosningu búnaðarþingsfulltrúa fyrir næsta kjörtímabil. Aðeins einn listi kom fram og var hann þannig skipaður: Aðalfulltrú- ar: Ketill Guðjónsson, annar Helgi Símonarson. Varafulltrú- ar: Kristinn Sigmundssin og Jón Hjálmarsson. Var listi þessi studdur af meiri hluta fulltrú- anna. Voru þessir menn því úr- skurðaðir réttkjörnir Búnaðar- þingsfulltrúar fyrir næsta kjör- tímabil, 4 ár. Rétt er að geta þess, að fyrir hádegi síðari fundardaginn fóru fulltrúar aðalfundarins að Lundi og skoðuðu Búfjárrækt- arstöðina og sátu því næst há- degisverðarboð SNE á Hótel KEA. Góður starfsfræðslud. (Framhald af bls. 1) lenzk fræði og erlend mál 39. Um aðrar greinar spurðu færri. Áberandi var, hve minna var spurt um iðngreinar nú en áð- ur. Og er það ekki heppileg þró- un íiðnaðarbæ, Þá var fræðslusýning Sam- vinnuskólans undir stjórn Vil- hjálms Einarssonar mjög mikið sótt. Skoðuðu hana 250 ungling- ar. Voru sýndar litskuggamynd- ir úr starfi Samvinnuskólans í Bifröst með skýringum af segul- bandi. í sambandi við starfsfræðsl- una voru sýndar þrjár kvik- myndir. Um hjúkrunarnám, skipasmíðar og íslenzka litkvik- myndin „Sjósókn og sjávarafli*. Margir unglingar skoðuðu flugturninn nýja á Akureyrar- flugvelli. Af vinnustöðvum skoðuðu flestir ullarverksmiðj- una Gefjunni og skóverk-smiðj- una Iðunni. Þá bauð Akureyrarkaupstað- ur starfsmönnum dagsins til kaffidrykkju í Hótel KEA. Stef- án Ág. Kristjánsson framkvstj. þakkaði leiðbeinendum dagsins og stjórnaði umræðum. Sérstak- lega þakkaði hann aðkomu- mönnunum Ólafi Gunnarssyni, Vilhjálmi Einarssyni og Maríu Jónsdóttur flugfreyju komu þeirra hingað. Þessir tóku til máls: Ólafur Gunnarsson, Vil- hjálmur Einarsson og Bjöm Stefánsson, skólastjóri, fluttu stutt ávörp, og Jón Rögnvalds- son, garðyrkjuráðunautur, minnti á hve erfitt væri að fá vinnu handa unglingspiltum hér í bænum á sumrin. Lauk þar með starfsfræðslu- deginum, sem hafði verið í alla staði ánægjulegur og verksvið hans fjölbreyttara en áður. nú óðum að vinna á. Vonandi eiga Skálar eftir að rísa úr rúst um. Að vísu mun varla verða hér um nokkurn stórsoað að ræða, en aðstaða sýnist ekki öllu lakari hér en víða annars staðar til þess að hér mætti rísa upp nokkurt þorp, þar sem fyrst og fremst væri lifað af sjávarafla, en einnig stuðzt við landbúnað, því grösugt er hér í kring, og að því er virðist að- staða til nokkurs landbúskapar. Frá Skálum hélt ég sem leið liggur inn með sjónum. Skammt hér fyrir innan rís Skálabjarg, er það allhátt. Liggur vegurinn með brúninni, sums staðar ekki nema fáa metra frá henni. Fag- urt er útsýni af Skálabjargi, bæði norður með nesinu og aust ur yfir flóann, til Austfjarða- fjalla. Hér er allt gróið og ólíkt því, sem er að norðanverðu. Þegar suður yfir bjargið kem ur, taka við bakkar og gras- hvammar, en neðan undir mýra sund með smálækjum. Er hér skjóllegt mjög og ilmur úr grasi. Næsti bær sunnan við Skála er Kumlavík, stendur bærinn í breiðri kvos við sjóinn, en háar traðir til beggja handa. Býli þetta er nú í eyði, en íbúðarhús ið, sem er úr torfi og timbri, stendur enn. Hér virðist fremur hlýlegt og útsýni vítt og fagurt til hafsins og Austfjarðafjalla, svo sem af öllu Langanesi aust- anverðu. Næsti bær innan við Kumla- vík eru Hrollaugsstaðir, er þangað nokkuð löng bæjarleið og allmishæðótt. Einkum er bratt upp á hæðina næst sunn- an við víkina. „Kumlið‘‘, sem svo er kallað, og var það versta brekkan sem ég fékk á leiðinni. Erfitt hefur verið að fara þarna með klyfjahesta meðan þess þurfti við. Að Hrollaugsstöðum kom ég kl. rúmlega fjögur. Sá bær stendur norðaustan undir Heið arfjalli. Bærinn stóð áðu.’ á bakkanum niður við sjóinn, en eftir síðari heimsstyrjöldina varð þar svo mikið rek af sprengiduflum, að fólkið hélzt ekki við, og var stór mildi að ekki urðu slys að, var bærinn þá fluttur upp undir fjallið. Á Hrollaugsstöðum áði ég, og fékk ágætar viðtökur. Þar er búið allstói'u búi. Sauðféð geng ur að mestu sjálfala, enda rúmt um það, þar sem tvær næstu jarðir eru í eyði og góð uppbót að hafa túnin til afnota, enda hafði ég séð það á leið minni um daginn, að skepnurnar iiiinnu vel að meta það. Frá Hrollaugsstöðum lagði ég leið mína fram í Eiði. Var nú um tvær leiðir að velja, fara upp á Heiðarfjall eða fara svo- nefndar fjörur neðan undir fjall inu. Þar sem ég var búinn að koma upp á fjallið, valdi ég síð ari kostinn. Fylgdi mér piltur frá Hrollaugsstöðum, kom það sér vel, því ég mundi tæplega hafa farið þetta einsamall. Á Eiði fannst mér stórbýlis- legt um að litast. Þar er stórt íbúðarhús í stóru, sléttu túni, sem hallar niður að Eiðisvatni. Hér bjó upp úr síðustu aldamót um bóndi, sem Daníel hét, afi núverandi bónda. Var hann at- hafnamaður mikill, sléttaði t. d. um 20 dagsláttur í túni með gömlu þaksléttuaðferðinni. Þá var hann og upphafsmaður að því að súrsa þara til fóðurs, náði það að vísu ekki teljandi útbreiðslu. Einnig sléttaði tengdasonur hans, Gunnlaugur, faðir núverandi bónda, mikið með söniu aðferð. Hefur jörðin búið að þessu og lítið verið auk ið við ræktun hin síðari ár. Nú hefur verið byggt nýbýli, Ártún, hinum megin vatnsins, ÞRIÐJI IILUTI og er þar í uppsiglingu mikil túnrækt. Á Eiði borðaði ég kvöldmat, hélt ég síðan áfram göngu minni, því áætlunin var að ná í Hlíð um kvöldið. Lágur dalur, Eiðaskarð, ligg- ur þvert í gegnum nesið, milli Hlíðarfjalls og Heiðarfjalls. Skiptast þar á vötn og mýrar. Eru hólmar nokkrir í vötnunum og í þeim æðarvarp. Liggur veg urinn til Þórshafnar um skarð þetta. Er ég var kominn um það bil miðja vega inn i Hlíð, kemur á eftir mér jeppabill, var ekki í honum annað manna en öku- maðurinn. Hann stöðvar bilinn, og frétti mig á hvaða ferðalagi ég væri. Og er hann varð þess vísari, bauð hann mér að stíga upp í bílinn vestur að afleggj- aranum heim i Hlíð. Þekktist ég það, og er ekki að orðlengja það, nema hann ók mér alla letð heim á hlað í Hlíð. Var það vel af sér vikið af blíókunnugum manni. í Hlíð átti að fara að drekka kvöldkaffið, settist ég til borðs með fólkinu og var nú margt spjallað. Eg varð auðvitað að segja ferðasöguna, en það sagði mér aftur hvað gerzt hafði síð- an ég fór. Svo hagaði til þar sem ég svaf um nóttina, að gluggi vissi til norðurs. Hvergi var skýdrag á lofti og sólin flaut með sjónum. Hér sló ég tvær flugur í einu höggi, naut töfra miðnætursól- arinnar og las þáttinn um „Lolu skáld“ eftir Benedikt frá Hof- teigi, en þar er mannlýsing, rit (Framhald). Yið, sem vinnum eldliússtörfin Verkcfni Leikfélagsins aðeins 2 á þessu leikári ÞRIÐJUDAGINN 27. marz frumsýndi Leikfélag Akureyrar gamanleikinn „Við, sem vinn- um eldhússtörfin“, gerðan eftir samnefndri skáldsögu norsku skáldkonunnar Sigríð Boo. Leikritaskáldið danska og blaðamaðurinn Jens Locher samdi leikritið. Lárus Sigur- björnsson íslenzkaði það. Sjón- leikurinn var sýndur í Reykja- vík og Húsavík fyrir mörgum árum. Saga sú, sem leikritið er sam- ið upp úr, er skemmtileg af- lestrar en ekki stórbrotin. Leik- ritið ber að vísu einkenni sög- unnar en hefði þó þurft að fela í sér meiri kraft, fyrir leiksvið, í stað þeirra frásagnatöfra, sem dofna við það að færa sögu í leikritsform. Hinn alþjóðlegi leiklistardag- ur gaf tilefni til nokkurrar við- hafnar í Samkomuhúsinu, þar höfð og leiklistarhæfileikar mitt valinn sá dagur. En svo var ekki og er það miður fyrir leik- listina. Leikfélag Akureyrar hefur ekki starfað af slíkum þrótti í vetur og æskilegt hefði verið. Við, sem vinnum eldhússtörfin er aðeins annað verkefni félags- ins á þessu leikári og ekki útlit fyrir sýningar fleiri sjónleikja í vetur. Leikhúsið hér á Akureyri er mjög sómasamlegt eftir margs konar umbætur, bæði hvað snertir starfsskilyrði leikarar.na og leikhúsgesti. Og í níu þúsund manna bæ ætti leiklistarlíf að geta staðið með blóma. Dalvíkingar, Ólafsfirðingar, Húsvíkingar og jafnvel búendur í Hrafnagilshreppi geta boðið fólki mjög sæmilegar sýningar, bæði heima fyrir og einnig ann- ars staðar. Hér ætti leiklistin, samkvæmt aðstöðumun og fólksfjölda, að skara langt fram úr, en hún gerir það of naum- lega, þrátt fyrir nokkurn hóp mjög góðra leikara, sem bæði feyggja á reynslu og annarri menntun. Þar sem leiklist er í hávegum höfð og leiklistarhæfileikarar virtir að verðleikum, þykir ungu fólki fátt fýsilegra en að fá tækifæri til að reyna sig und- ir sviðsljósunum. Hér á Akur- eyri þarf að fara bónarveg að fólki þegar setja á sjónleik á svið, eins og um leiðindavinnu væri að ræða, samkvæmt því sem leikstjórar hafa tjáð. Hér þarf að verða breyting á og er auðveldara um að tala en úr að bæta. Þó hygg ég að þróttmikill leiklistarskóli myndi geta bætt' þar töluvert um. Og auðvitað geta skólar og félagasámtök einnig tekið virkari þátt í leik- listarlífinu en raun ber vitni. Gamanleikurinn „Við, sem vinnum eldhússtörfin“ var til- þrifalítill þar til fór að síga á seinni hlutann, gekk tæpast nógu hratt og vantaði þann létt- leika og leikgleði, sem gera verður kröfur til um auðskilda gamanleiki. Ber þá einnig að minnast þess, að nýliðarnir voru yfirgnæfandi, en það er þó ekki næg afsökun fyrir leikstjórann, Jóhann Ogmundsson, því bæði er hann vanur að setja sjónleiki á svið og töluverður kunnáttu- maður á mælikvarða okkar heimamanna. Honum átti því að vera leikur einn að hnoða deig- ið, sem hann að þessu sinni hafði milli handa sér, betur en hann gerði. Sigfríður Angantýsdóttir leik- ur stærsta hlutverkið í leiknum, Helgu hina ríku, ungu og fögru heimasætu, sem vegna duttl- unga fer að heiman og vinnur fyrir sér hjá misjöfnu fólki í heilt ár. Sigfríður er örugg og myndarleg á sviðinu, en einum of góð með sig öðru hverju, eft- ir að hún er komin að heiman og kynnist bæði ástinni og nýj- um lífsviðhorfum að öðru leyti. Þessi fyrsta ferð Sigfríðar á leiksvið Samkomuhússins er að vísu góð, en maður hefur á til- finningunni, að hún hefði getað orðið frægðarför með dálítið á- kveðnara taumhaldi leikstjór- ans. Sigríður P. Jónsdóttir leikur Lárensu ráðskonu. Gervið er á- gætt og margt vel um leik hennar. En varast verður hún að hlæja þegar hún á að vera reið. Árni Valur Viggósson leikur Óla vinnumann og er þar sýni- lega efni í góðan gamanleikara. Sigurveig Jónsdóttir og Kristján Kristjánsson leika „góðglöð“ hjónakorn og Vil- helmína Sigurðardóttir aðstoð- arstúlku, lítil hlutverk og vel af hendi leyst, einkum hlutverk Sigurveigar. Sigtryggur Stefánsson leikur rithöfund og kemur á sviðið eins og hvirfilvindur sem fyllir húsið. Hermann Ingimarsson leikur málara og Jón Ingimarsson óð- alsbónda mjög snoturlega. Inga Sigurðardóttir leikur Lottu óð- alsbóndadótturina, heimaríka, ósanngjarna og kalda. Jón Guðmundsson leikur bíl— stjdra og kærasta Helgu og Árni Tómasson leikur ríks manns son og flysjung, Jóhann- es Bjarnason sendil. Jóhann Ögmundsson leikur Breder forstjóra föður Helgu, af góðlátlegri en sviplítilli nær- færni. Tilkynning frá Tón- listarfélagi Akureyrar HINN nýi konsertflygill félags- ins verður vígður í Borgarbíói næstk. fimmtudag, með hljómt leikum 'hins gamalkunna píanó- leikara og Akureyrings Árna Kristjánssonar, en hann er, eins og bæjarbúum mun •mörgum kunnugt, upphafsmaður að stofnun Tónlistarfélagsins og stuðningsmaður þess ætíð síð- an. Það má teljast stórviðburð- ur í tónlistarlífi Akureyrar, að heppnazt hefur að fá hingað á- gætan konsertflygil, af stærstu gerð, og að búið er að koma hon um fyrir í Borgarbíói á sóma- samlegan hátt, sem styrktarfé- lögum félagsins mun nú gefinn kostur á að kynna sér á fimmtu dagskvöldið kl. 8.30, þ. 5. apríl. Eins og menn vita rúmar bíóið ekki nema 300 í sæti. Þeir sem hug hafa á að tryggja sér styrkt armeðlimaréttindi í Tónlistarfé laginu snúi ser sem allra fyrst til Haraldar Sigurðssonar bankagjaldkera, sem mun sinna afgreiðslustörfum fyrir félagið um afhendingu aðgöngumiða í Varðborg (skrifstofunni uppi) næstkomandi miðvikudags- kvöld kl. 8—9 e. h. og á fimmtu dagskvöld við innganginn til þeirra, sem þá eigi hafa fengið miða heimsenda.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.