Dagur - 04.04.1962, Page 8

Dagur - 04.04.1962, Page 8
8 Fimm Akureyrartogararnir bundnir í heimahöfn vegna sjómannaverkfallsins. LANDHELGIN EKKI OPNUÐ EINS OG alþjóð veit, töldu ýms ir æðstu valdamenn íhaldsins einfaldast að leysa vandamál togaranna með því að hleypa þeim inn í landhelgina. Þetta mætti harðri andspyrnu um land allt og á Alþingi. Má segja mörgum sjómönnum og útgerð armönnum innan Sjálfstæðis- flokksins það til hróss, að þei'r mótmæltu slíkri fásinnu kröft- uglega. Hvarvetna vitnar fisk- gengdin, sem stöðugt vex, um árangur friðunarinnar og aukna möguleika bátanna á grunnmið unum. Nú hefur íhaldið hopað frá landhelgisspjöllum í bráð, og þótt því sé svo sem ekki þakk- andi, ber þó að fagna því að andstaðan reyndist nægilega traust til að forða óhappaverki. Eins og nú standa sakir, veiða hinir íslenzku togarar hvorki utan né innan við landhelgis- línu, því þeir liggja allir bundn ir í höfn, og verða það eflaust fyrst um sinn. En nú er svo komið, að flest- ir horfa á slíkt þurrum augum og skilja, að togararnir eru ekki lengur sá máttarstólpi útvegs- ins, sem þeir áður voru. í sífellt liarðnandi samkeppni stórra og vel búinna úthafs- veiðiskipa, er þess engin von, að íslendingar geti sýnt neina yfirburði. Til þess skortir bceði fjármagn og ódýrt vinnuafl. En íslendingar hafa annan vettvang, sem engum öðrum þýðir að keppa á, og það eru grunnmiðin og fiskveiðar á fiskibátum. Þar er básði réttur óumdeildur og aðstaða öll ein- stæð. Þeim réttindum má ekki glata með flausturslegum samn ingum við Efnahagsbandalagið, eða á neinn annan hátt. íslenzki togaraflotinn þykir nú úreltur mjög, enda margir togarar gamlir. Skuttogarar voru nokkur ár framtíðardraum ur margra útgerðarfélaga. Þeir virðast þegar hafa runnið sitt blómaskeið. Togaraútgerð ís- lendinga hefur líka runnið sitt blómaskeið og nauðsynlegt er að menn átti sig á því og hætti að starblína á togara, sem eilíft hjálpræði í sögu fiskiveiðanna. iiiiiiuiiiiitiiiiiiiiiiiitiiiiuríjjinii 111111111 iiuiiiiiiiM ii* SÆLUVIKA Skagfirðinga hófst á sunnudaginn með guðsþjón- ustu í Sauðárkrókskirkju. Þann dag var revían Glaum- bær frumsýnd í Alþýðuhúsinu. Revía þessi ,er eftir frú Guð- rúnu Gísladóttur og var henni ágætlega tekið. Á sama tima var kvikmyndin Dunar í trjálundi sýnd í Bifröst. Þá var sjónleikui'inn Júnó og páfuglinn sýndur undir leik- stjórn Eyþórs Stefánssonar. — Þótti leikurinn bera leikurun- um og leikstjóranum hið bezta vitni. Leikur þessi fjallar um vandamál írskrar fjölskyldu og gerist 1922. Fátækt og and- streymi stafa af óreglusemi hús- bóndans, en bakgrunnurinn er frelsisbarátta íra. Á mánudaginn annaðist kirkjukórinn barnaskemmtanir. Þessi skemmtiatriði verða svo endurtekin alla vikuna og dans- að öll kvöld. Einhvern næsta dag hefur verkakvennafélagið skemmtun. Og ýmislegt fleira en hér er tal- ið verður á dagskrá. Þrjár vinnusfundir fyrir Bjarna EINSTAKLINGAR, félög, þjóðir og samfélög þjóða berjast fyrir almennum manni'éttindum og mannsæmandi lífi fólks. Þótt orðin séu teygjanleg felast í þeim fyrirheit um mál- frelsi, ritfrelsi, kosningarétt og eignarétt, ennfremur nægi- lega fæðu, fatnað og sæmilega viðunandi húsnæði. En allt byggist þetta á arðbærri vinnu. Með hjálp vísinda, vélaafls, skipulagningar og félagslegra framfara hefur tekizt að stytta vinnutímann til muna, jafnhliða því að hækka launin svo mjög, að fólk getur notið menntunar, heilbrigðs lífs, skemmt ana og jafnframt unnið að sérstökum hugðarefnum í tóm- stundum, ásamt því að vinna fyi'ir daglegu brauði. Á okkar landi var 8 stunda vinnudagur lagður til grund- vallar í samningum um kaup og kjör fyrir mörgum árum. Átta stunda vinnudagur nægði fólki til álíka lífskjara hér á landi og í nágrannalöndunum þegar lífskjörin voru bezt, frá 1956—1959. Bjarni Benediktsson gladdi landslýð með því um áramótin, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði fegins hendi gripið þá tillögu Alþýðulbandalagsins að gera 8 stunda vinnu á dag nægilega til mannsæmandi lífs á íslandi. Ihaldið greip tillöguna ekki aðeins fegins hendi, heldur líka „bróðurhendi" frá stjórnar- andstöðunni. Svona var Bjarni góður um áramótin. Og svona getur hann talað göfugmannlega þegar hann vandar sig. En ef við lítum á verkin hans Bjarna og félaga hans (Al- þýðuflokkurinn auðvitað meðtalinn, bæði í orðum og gjörð- um) hverfa áramótagæði Bjarna og göfugmennskan dvín. Það er Bjarni Benediktsson og flokksbræður hans, sem hafa í raun og sannleika afnumið 8 stunda vinnudag á ís- landi, rænt fólkið þeim miklu mannréttindum og sæmilegu lífskjörum, sem fólst í 8 stunda vinnudeginum. Enginn getur lifað af 8 stunda vinnu á dag síðan „viðreisnin" tók að ve\'ka. Lítum nánar á þetta og látum Hagstofu íslands tala. Hún segir: Meðalfjölskyldan þarf, samkv. vísitölu framfærslukostn- aðai', í janúar 1962 kr. 76.521.74 árslaun til að mæta nauð- synlegustu útgjöldum, auk fjölskyldubóta. En verkamanns- launin eru á ári um 54.500.00 krónur, miðað við 8 stunda vinnu alla virka daga. Verkamanninn vantar því um 22 þús- und krónur á ári. Það lætur nærri, að verkamaðurinn þurfi að vinna 3 klukkustundir og 12 mínútum betur dag hvern, umfram sína venjulegu 8 tíma, til að bæta sér upp lífskjaraskerðinguna af völdum „viðreisnarinnar", miðað við sama kaup fyrir hverja vinnustund. Þannig launar Bjarni Ben. og íhaldið fólkinu fyrir atkvæð- in í síðustu kosningum. Og á þennan hátt gjalda menn fyrir þá yfirsjón í kjörklefanum, að of margir settu sakleysislegan kosningakross við íhaldið út á fölsk loforð — út á loforð, sem voru svikin svo herfilega, að lægst launaða fólkið þarf að vinna þrjár klukkustundir og 12 mínútur á hverjum virkum degi allt árið til að bæta sér upp skaðann af lífs- kjaraskerðingu íhaldsins. í stjórn B.S.E.: Björn, Eggert og Ármann. AÐALFUNDUR Búnaðarsam- bands Eyjafjarðar var haldinn að Hótel KEA dagana 28. og 29. marz sl. Að kveldi fyrra fundardags efndi sambandið til kvöldvöku og minntist þá 30 ára starfs. — Sambandið var stofnað 16. jan. 1932. Áður var Ræktunarfélag Norðurlands búnaðarsamband fyrir Norðlendingafjórðung. En upp úr 1930 voru stofnuð sér- stök búnaðarsambönd í hinum ýmsu héruðum. Á stofnfundi Búnaðarsamb. Eyjafjarðar 1932 mættu 8 full- trúai' frá hreppabúnaðarfél. og hið 9. tilkynnti þátttöku sína. Flest voru félögin 17 innan Sambandsins en eru nú 16 og félagatala samtals 611. Á þess- um nýafstaðna fundi voru mættir fulltrúar frá 15 félögum. Fyrsta stjórnin var þannig skipuð: Olafur Jónsson form., Jakob Karlsson og Sigurður E. Hlíðar. Núverandi stjórn skipa: Ármann Dalmannsson formað- ur, Björn Jóhannsson og Egg- ert Davíðsson. Fyrsti starfsmaður sambands- ins var Björn Símonarson, síðan kennari við Bændaskólann á Hólum. Aðrir starfsmenn sam- bandsins hafa verið þessir: Jón- as Pétursson, alþingismaður, Eyvindur Jónsson forstjóri bú- reikningaskrifstofunnar, Eð- varð B. Malmquist, garðyrkju- maður, Olafur Jónsson, ráðu- • nautur, Eirik Eylands og núver- andi ráðunautar, Ingi Garðar Sigurðsson og Stefán Þórðar- son. Búnaðarsamband Eyjafjarðar varð fyrst búnaðarsambanda til að ráða sérstakan ráðunaut vegna jarðræktarvéla og var það Eii'ik Eylands. Vélaráðu- nautur sambandsins nú er Stef- án Þórðarson. Fyrstu starfsárin önnuðust ráðunautar sambandsins einnig leiðbeiningarstörf fyrir Naut- griparæktarsamband Eyj afj arð- ar. En nú hefur það sérstakan ráðunaut, Olaf Jónsson. . ' En Samband nautgriparækt- arfélaga í Eyjafirði annast veigamikinn þátt búnaðarmál- anna í héraðinu og starfar alveg sjálfstætt að sínum málum með styrk frá Búnaðarsambandinu. Milli þessara félagssamtaka hefur ávallt vei'ið hin bezta samvinna. Niðurstöðutölur fyrstu fjár- hagsáætlunar Búnaðarsam- bandsins voru 6650.00 krónur, en eru nú kr. 465000.00. Á þetta minnti Ármann Dalmannsson, formaour sambandsins í upp- hafi kvöldvökunnar í stuttri ræðu. ■Á kvöldvöku Búnaðarsam- bandsins, þar sem Ólafur Jóns- son sýndi litskuggamyndir og Eðvarð Sigurgeirsson kvik- myndir af Öskjugosinu og landsmóti ungmennafélaganna að Laugum sl. sumar, var all- margt gesta, auk fréttamanna, er boðið hafði verið. Sambandið veitti gestum sínum kaffi og undu menn vel við samræður milli þátta. Samþykktir. Af samþykktum aðalfundar Búnaðarsambands Eyjafjarðar má nefna: (Framhald á bls. 4) Lizzie á Halldórsst. ÞEGAR ég heyrði lát Lizziar á Halldórsstöðum, varð mér þessi staka af munni: Æ þig geyma ísland skal inni í faðmi sínum. Líður yfir Laxárdal ljómi af söngvum þínum. Halldór Jónsson, Gili.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.