Dagur - 28.04.1962, Síða 7
7
- Landbúnaðurinn olnbogabarn ríkisstjórnarinnar
(Framhald af bls. 5.)
ið fram, að þetta frv. mun verða
lengi í minnum haft fyrir rang-
læti í garð bændastéttarinnar
og neytenda í l.andinu, enda er
þar farið út á varhugaverða
braut. Hæstv. ríkisstjórn h.efur
ekki séð aðra leið vænlegri en
að leggja á nýja skatta til fjár-
öflunar fyrir umrædda sjóði. Og
í stað þess að afla fjárins með
almennum skatti, þá hefur hún
gripið til þess ráðs að skatt-
leggja eina stétt landsmanna
sérstaklega og leggja auk þ.ess
álögur á almenning m.eð nýjum
skatti á brýnustu lífsnauðsynj-
ar. Þetta er að vísu ekki alveg
ný aðferð hjá hæstv. ríkisstjórn.
Þetta er í samræmi við stefnu
hennar í skattamálum almennt,
þar sem við það er miðað að
létta álögum af hinum efna-
meiri, en þyngja skattabyrðar
og álögur á þeim, sem efna-
minni éru. Þetta er ekkert ann-
að en fre'kari útfærsla á þeirri'
stefnu, sem hæstv. ríkisstjórn
tók í upphafi, þegar hún hvarf
frá beinu sköttunum og tók upp
margfalda söluskatta,sem aldrei
getur þýtt annað en versta
ranglæti í skattamálum og bitn-
ar á þeim efnaminnstu. Sérstak-
lega mun þessi skattheimta
koma hart niður á bændum og
mun þaö sannmæli, að hún eigi
sér enga hliðstæðu í annarri
gjaldheimtu hér á landi. Hitt
vegur þó meira, að bajndur eru
ekki aflögufærir, allra sízt nú,
eftir tveggja ára niðurdrep við-
reisnarinnar á efnahag og af-
komumöguleikum þeirra. Það
verður því ekki hjá því komizt
að breyta þessu ákvæði um
skattaálagið á bændur og hækk-
un á mikilvægum neyzluvörum
almennings eins og frv. gerir
ráð fyrir. Ef ekki eru önnur úr-
ræði, verður ríkissjóður að taka
á sig þessa byrði, a. m. k. er það
óhæfa að taka upp þá stefnu að
leggja sérskatta á þær starfs-
stéttir, sem búa við örðugastan
fjárhag og það af sömu mönn-
um, sem kalla það ranglæti og
jafnvel stjórnarskrárbrot að
leggja á stóreignaska.tt. í þessu
frv. er ekki gerð nein tilraun til
að bæta úr fjárskorti veðdeild-
ar Búnaðarbankans. Hefðu
menn þó getað vænzt þess, að
svo yrði eftir ailt tal hv.. Sjálf-
stæðismanna um nauðsyn þess
máls. Man ég ekki betur, en að
þ.eir hafi fyrir fáum árum stað-
ið að samþykkt þáltill., sem fór
í þá átt, að nauðsynlegt væri að
efla veðdeildina, og það hefur,
að ég hygg, oftast verið svar
þeirra við þeirri hugmynd
Framsóknarmanna að stofna
sérstaka bústofnslánadeild, að
veðdeildin ætti að sinna slíku
hlutverki.
Vilja ekkert raunhæft.
En hv. Sjálfstæðismenn sýna í
verki, að þeir vilja í rauninni
hvorugt. Þeir segjast vilja efla
veðdeildina, en þeir gera það
ekki, og þeir daufheyrast við
hugmyndinni um bústofnlána-
sjóð. Þeir koma ekki með neitt
nýtt í landbúnaðarmálum annað
en skattaálögur og aukinn
kostnað. Af þessu einkennist öll
stefna hæstv. ríkisstjórnar í
landbúnaðarmálum. Það dugir
ekki til, þó hæstv. landbúnaðar-
málaráðherra vilji vel, hann
virðist svo sáralitlu fá fram-
gengt og ef eitthvað er, þá með
slíkum erfiðismunum, a'S það
tekur hann marga mánuði eða
jafnvel ár, og er þó vitað, að
hann liggur ekki á liði sínu.
Þvert á móti. En svona er að
eiga undir högg að sækja hjá
öðrum. Það fær hæstv. ráðherra
að reyna í sinni háu stöðu og
vildi ég gjarnan óska honum
betra hlutskiptis.
Koma hart við landbúnaðinn.
Efnahagsaðgerðir hæstv. rík-
isstjórnar hafa komið hart við
flestar atvinnugreinar lands-
manna og haft gífurleg áhrif á
afkomu almennings. Þó væri á-
standið enn v.erra en það er, ef
það tvennt hefði ekki skeð, að
hæstv. ríkisstjórn hefur orðið
að slá af st.efnu sinni í veiga-
miklum atriðum og eins hitt, að
aflafengur hefur sjaldan verið
betri og aflaverðmæti óvenju-
mikið. En mér er til efs, að
nokkur atvinnugrein búi nú við
verri og óvissari kjör en land-
búnaðurinn, m. a. vegna þess,
hversu bústofnun er orðin dýr
og arðurinn seintekinn og
hversu ófýsilegt það er fyrir
unga menn ,að leggja fyrir sig
búskap af þeim sökum, þegar
svo hitt kemur líka til, að ill-
kleift er að fá lán og aðstoð til
nauðsynlegustu framkvæmda.
Þetta frv., sem hér liggur fyr-
ir, að svo miklu leyti sem það
er nýtt, er engin lausn á þeim
mikla vanda, sem steðjar að
landbúnaðinum. Þvert á móti
hefur frv. að geyma ýmis rang-
lát ákvæði, sem munu skaða
landbúnaðinn, eins og ég hef
sagt, og sú tekjuöflun, sem gert
er ráð fyrir í fjárfestingarsjóð-
ina, er hvergi nærri nægjanleg
til að treysta starfsemi þeirra út
af fyrir sig, hvað þá að full-
nægja annarri aðkallandi þörf
landbúnaðarins fyrir lánsfé.
Vandinn óleystur.
Jafnvel þó að svo reynist, að
þessi nýju ákvæði frv. stæðust
þau fyrirheit, sem höfundar
þeirra gefa, þá er enn óleystur
mikill vandi í lánamálum land-
búnaðarins og sem verður æ
meir aðkallandi því lengra sem
líður. Það vapter v|ð^to§/;yið
frumbýlinga ti! ' kaupa á véÍþ^;
og bústofiú, • þafS' skortii’ ■'íæisfé
til kaupa á ræktuðum og hýst-
um jörðum, sem eigendur
þeirra yfirgefa s?jkir elli eða
sjúkdóma. Hvað er brýnna en
að finna lausn á því vandamáli?
Það er sórt og veldur efnatjóni
fyrir jarðeigendur að horfa á
ævistaríið verða að engu, og það
er óhagkvæmt fyrir þjóðfélagið,
ef ræktuð og byggð ból fara í
eyði af því að enginn hefur efni
á að kaupa þau. Hæstv. ríkis-
stjórn getur því fráleitt lagzt til
hvíldar, þó að þetta frv. verði
að lögum. Það eru mörg verk-
e'fni óleyst eftir sem áður. Af-
rekaslcrá hæstv. ríkisstjórnar í
landbúnaðarmálum er eftir sem
áður sáralítill að vöxtum og
„HEKLU“-ofninn haíir verið fram-
leiddur í 25 ár o°' hlotið viður-
' V»ÍÍEÍ!iLU“-Gfninn heTir 'fu'ílkb.txíría
hitafrágjöf.
„HEKLU“-ofninn er framlelddur í
5 hæöum og 2 þvkktum, tekur lítið
veggrými og leysir því vandamálið
um staðsetningu betur en aðrir
ofnar.
„HEKLU“-ofninn er afgreiddur frá verksmiðjunni í
réttri stærð fyrir það herbergi, sem liann á að hita og
er því ódýr í upsetningu.
„HEKLU“-o£ninn er framleiddur úr bezta fáanlegu
stáli og vandaður að öllum frágangi.
Framleiðandi er
Ofnasmiðjan „MEKLA“, Akureyri
Söluumboð: KAUPFÉLAG EYFIRDINGA, Akureyri
KVENFÉLAGIÐ ÞINGEV hef-
ur félagsvist og dans aðBjargi
laugardaginn28. apríl, kl. 8.30.
— Félagskonur taki méð sér
gesti, og Þingeyingum er
heimill aðgangur meðao hús-
rúm leyfir. Aðgangseýrir kr.
40.00.
- Huiidrað ára afmæli
(Framhald af 1. síðu.)
hér iðnstefnur. Komið hefur
verið á fót neínd til að annast
sýninguna og skipa hana þessir
menn: Ríkharð Þórólfsson, Vig-
fús Þ. Jónsson og Hermann
Stefánsson. Vöntun er á nægi-
lega stóru húsrými, en sennilegt
er að iðnsýningunni verði val-
inn staður í Barnaskólanum.
Hver verður þáttur íþrótta-
hreyfingarinnar?
Endanlega er ekki frá því
gengið. Þó er þegar ákveðið, að
100 stúlkur sýni leikfimi undir
stjórn Þórhöllu Þorsteinsdóttur.
Ennfremur verða háðir kapp-
leikir og e. t. v. fleira í samráði
við íþróttabandalag Akureyrar.
Bókaútgáfa?
Steindór Steindórsson, hefúr
tekið að sér umsjón með útgáfu
myndabókar í tilefni afmælis-
ins. Hún fj.allar um það, hvern-
ig Akureyri er nú á þessu ári.
Myndirnar verða uppistaða, en
skýringartextar fylgja.
Þá er Eðvarð Sigurgeirsson
að vinna að gerð kvikmyodar
af ýmsum atburðum úr lífi og
starfi fólksios á Akureyri, eios
og það er oú. Verður þetta heim-
ildarmyod frá þessum tímamót-
um í sögu bæjarios.
En'ofremur má geta þess, að
hátíðamerki verða gefin út. —
Verða þau hin sömu og Tryggvi
Magnússon teiknaði fyrir Akur-
eyri í sambandi við Alþingishá-
tíðina 1930.
Koma erlendra gesta?
Hingað verður bpðið full-
trúum frá vinabæjum Akureyr-
ar á Norðurlöndum. Hingað
kemur líka 70 mánna finnskur
karlakór, einn
□ Rún.: 59824307
Kjörf.:
UMKVÖRTUN. — „Tveir dag-
drykkjumenn“, oft sjúklega
haldnir, senda blaðinu «m-
kvörtun yfir þeim „slettireku-
skap“ að mæla gegn brenni-
vínss.ölu í Hlíðarf jalli á lands-
móti skíð.amanna, og finnst
ekki gáfulegt, enda skilningi
•þeirra ofvaxið. — Umkvört-
unin er ek'ki prenthæf og
verður því ekki birt. En hér
er á hana minnzt til að benda
á, hve Bakkus er víða ágeng-
ur og menn þeir, sem eru á
valdi hans. Jafnvel í Hlíðar-
fjalli vill hann koma ár sinni
fyrir borð.
- Morðlenzkt stórmál
(Framhald af bls. 4)
fylkingu til sóknar. Framsókn-
arfélögin á Akureyri telja heppi
legt til áhrifa að bæjarráð Ak-
ureyrarkaupstaðar og bæjar-
stjórn beiti sér fyrir stórum sam
eiginlegum fundi, þar sem boð-
aðar yrðu allar hreppsnefndir
sýslunnar ásamt bæjarstjórn
Akureyrarkaupstáðar og þing-
mönnum kjördæmisins, til að
fclla vilja sinn í ályktunarform
í þessu stórmáli, og til þess með
því að veita þingmönnum kjör-
dæmisins þann stuðning, sem
samstilltur fundur getur veitt.
Þótt við bendum á þessa leið,
er hún okkur ekki kærkomnar'i
en aðrar, sem heppilegri þættu
og stefndu að sama marki.
Treystum við bæjarráði og hæj-
arstjórn til að ráða þessum mál-
um farsællega til lykta, ef hún
ljær þeim stuðning sinn á annað
borð.
Ef við lítum í eigin barm, sjá-
um við, að jafnvel hér í höfuð-
stað Norðurlands vantar tölu-
vert á hin síðustu árin, að orðið
hafi eðlileg fólksfjölgun, svo
sterkt er aðdráttaraflið að sunn
an. Og ef við lítum á heildar-
þróunina síðustu 20 árin, sjáum
við, að Reykjavík og allra næsta
nágrenni hennar hefur tvöfald-
að íbúatölu sína á þeim tíma.
Með sama áframhaldi verður
i ss^l>b|^fojfjv{mhj,, Reýkjavík 360 þ\Ts. manna borg
1 IT PK T Úá S TJ „ m —. — 1 1 W 1 J n WI /\ 4- -Í .2. — _ _
;Muntra>/miXsikahiér>;-Ifarin er
skipaður sænskumæjandi Finn-
um og verður í boði Fóstbræðra
staddur hér á landi um þetta
leyti og mun syngja hér hinn 30.
ágúst. Hátalarakerfi verður sett
upp í miðibænum, svo að menn
geti heyrt það s^m fram fer á
hátíðasvæðinu ' hvar sem er í
miðbænum. En hátíðahöldin
fara að mestu fram undir beru
lofti, ef veður leyfir.
Veizluhöld verða engin utan
þeirrar risnu, sem nauðsynleg
er vegna móttöku hinna erlendu
gesta og annarra þeirra, er
boðnir kunna að verða.
Blaðið þakkar bæjarstjóran-
um fyrir þessar upplýsingar.
úm UEestU aldamót og ýmsum
byggðum og þorpum á Norður-
og Norðausturlandi þá blætt út.
fbúar utan höfuðborgarinnar
yrðu þá aðeins 30 þúsund og
flestir þeirra sunnan fjalla.
í trausti þess að bæjarráð og
bæjarstjórn geti verið sammála
um nauðsyn nýrra atvinnulífs-
stöðva á Norðurlandi, og að all-
ir Norðlendingar vilji vinna
með þingmönnum okkar að
norðlenzkri virkjun, biðjum við
yður að taka málið á dagskrá,
koma á áhrifamiklum fundi um
það, gefa sjálfir yfirlýsingar um
það, eða vinna að því á þann
hátt annan, sem þér teljið væn-
legastan til árangurs."
í bæ og héi-aði, lítiö inn á skri£stofuna e£ þið eigið leið um.
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN.
ekkert, sem bendir til, að hún
hafi enn lagt gull í lófa framtíð-
arinnar að því er snertir þessi
mál. Flest bendir til, að varan-
legustu merki núv. hæstv, ríkis-
stjórnar á íslenzkan landbúnað
verði kyrrstaða og afturför.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 29. apríl. — Lítið inn
á skrifstofuna og atliugið hvort þið eruð á kjörskrá.
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN.