Dagur - 11.07.1962, Side 8
8
Verið að rannsaka jarð-
hitasvæði við Akureyri
Möl og sandur sf. við Glerá hefur mikinn og ört vaxandi rekstur.
(Ljósni. E. D.)
Fyrsii olíuborni vegurinn á Norðurlandi
Möl og Sandur h.f. gerir þessa tilraun bráðlega
FRÁ því var áður sagt, að fyrir-
tækið Möl og sandur sf. á Ak-
ureyri hefði í hyggju að gera
tilraun með það, að olíubera
vegarspotta í tilraunaskyni og
að sænskri fyrirmynd á þessu
sumri.
Blaðið hivti Hólmstein Egils-
son, forstöðurnann Malar og
sands sf., og spurði hann nánar
um þessa fyrirætlan. Hann sagði
svo frá:
Götuolía er rétt komin hing-
að og ef góð tíð verður og tími
verður til, verður tilraunin gerð
í næsta mánuði. Óákveðið er
ennþá, hvar tilraunin verður
gerð, en ráðgert að olíubera 500
metra vegarspotta I bænum eða
í nágrenni hans. — Líklegt má
telja, að bærinn eða vegamála-
stjórn kjósi að verða aðilar að
þessu, ef vel tekst til í byrjun-
inni. Komið hefur til tals, að
olíubera flugvöllinn. Einhver
þessara aðila mun eflaust sjá
sér hag' í félagsskap, ef vel tekst
til.
Hafið þið þau áhöld, sem með
þarf?
Við munum fá lánaðan tjöru-
pott hjá bænum til að hita olí-
una og steypan verður blönduð
á steypubílnum okkar hér hjá
fyrirtækinu.
Olían ásamt íblöndunarefnum
verður lögð ofan á malarveginn,
tv’ær umferðir, og síðan valtað.
Þessi blanda verður 6—8 sm. á
þykkt. Verkfræðingur fyrirtæk-
is okkar er Magnús Ágústsson
Ilólmsteinn Egilsson, framkvstj.
og sér hann um hina faglegu
hlið málsins.
Hvað líður strengjasteyp-
unni?
Möl og sandur sf. er að byggja
stórhýsi við Glerá úr strengja-
steypu, sem framleidd er á
staðnum, en í þessu húsi er
ætlunin að framleiða húshluti
úr strengjasteypu og hafa þá til
■ r
Síldarmóttakan eystra í stakasta ólestri
NÚ er fram komið hver gífurlegur skaði hefur orðið af því
ráðleysi ríkisstjórnarinnar, að hafna skynsamlegum tillög-
um írá stjórn Síldarverksmiðjum ríkisins, sem miðuðu að
því að aúðvelda síldarmóttöku á Austurlandi. Og nú blasir
það við í öðru lagi, hverjar afleiðingar það nefur í för með
sérj. hver dráttur varfí á lausn verkfalls járniðnaðarmanna.
Stjórn Síldarverksmiðjanna gerði um það tillögur, að kont-
íð yrði upp öflugum móttöku- og umhleðslustöðvum á Seyð-
isfirði og Eskifirði. Þessu hafnaði ríkisstjórnin, en ákvað í
þess stað að stækka síldarverksmiðjuna á Seyðisfirði og
byggja nýja síldarverksmiðju á Reyðarfirði. En þessar fram-
kvæmdir hófust allt of seint og auk þess tafði járniðnaðar-
vérkfailið fyrir. Aí þessum sökum þarf enn að bíða eftir að
Seyðisfjarðarverksmiðjan geti tekið á mójti síld, og í suinar
kemur Reyðarfjarðarverksmiðjan tæplega til nota.
Á Austurlandi ríkir því hið mesta áfremdarástand í þess-
um málum og tafir hafa orðið á losun skipanna, þótt ekki
hafi verið nein „krafísíid“ enn sem komið er.
sölu. Er þegar búið að panta
nokkur hús úr þessu efni og er
verið að steypa undir þau
grunnana. Strengjasteypa verð-
ur í veggjum og þaki þessara
húsa. Þetta lækkar bygginga-
kostnaðinn til mikilla muna. —
Strengjasteypan hf., sem er sér-
stakt hlutafélag undir sömu
stjórn og Möl og sandur, annast
þessa framleiðslu. Strengja-
steypan er notuð í geymsluhús
og stærri verkstæðispláss til að
byrja með.
Fleira í fréttum?
Auk þess er búið að stofna
(Framhald á bls. 7.)
í SÍÐUSTU VIKU kom til Ak-
ureyrar GuðmundUr Pálmason,
eðlisfræðingur, ásamt 5 aðstoð-
armönnum til að rannsaka jarð-
hitasvæði í nágrenni Akureyr-
ar. Svæðið milli Kristness og
Hjalteyrar verður rannsakað að
þessu sinni.
Rannsóknin byggist á sveiflu-
mælingu og eru gerðar töluvert
aflmiklar sprengingar og síðan
rannsakað, hvemig hljóðið
berst eftir berglögunum, en út
frá þessu eru dregnar ýmsar á-
lyktanir, er að gagni mega koma
við síðari leit að heitu vatni.
Ætlunin mun vera sú, að
fyrsta verkefni Norðurlands-
borsins á næsta ári verði hér
við Akureyri.
Nefnd rannsókn er á vegum
jarðhitadeildar raforkumála-
stjórnarinnar, og mun hún bæj-
Slasaðist um borð
SL. SUNNUD AGSKV ÖLD kom
til Akureyrar brezkur togari
með slasaðan sjómann. — Hafði
klippzt neðan af fætinum og var
um það búið og látið fylgja í
land í von um viðgræðslu. Hinn
slasaði maður var háseti og
dökkur mjög á hörund. Liggur
hann í Fjórðungssjúkrahúsinu.
arbúum fagnaðarefni og skiptir
miklu máli að það liggi sem ljós-
ast fyrir, hvort möguleikar eru
á hitaveitu fyrir Akureyrar-
kaupstað og að þeir verði not-
aðir hið fyrsta, ef til eru.
Hinar eðlisfræðilegu ránn-
sóknir er meginþáttur þeirra
rannsókna, sem gera þarf áður
en hafizt verður handa um bor-
un. □
AKUREYRINGAR! j
GERUM stórt átak í að fegra [
bæinn okkar fyrir afmælið. §
Það cru vinsamleg tilmæli, 1
að bæjarbúar bregðist vel \
við og taki almennt þátt í =
fyrirhugaðri snyrtiviku, sem =
ákveðin liefur verið frá 20. =
júlí til 1. ágúst. Er þá gert i
ráð fyrir, að menn hreinsi og \
fegri lóðir sínar og mun bær- =
inn aka ruslinu burt úr i
hverri götu í einu lagi. i
Atliygli skal vakin á því, i
að bærinn keyrir burt rusl \
ókeypis aðeins þennan tíma. i
Tilkynna ber formanni i
Fegrunarfélagsins eða heil- i
brigðisfulltrúa, þegar hreins- i
un liverrar götu er lokið. i
Fegrunarfél. Akureyrar. i
Hornsieinn laoður a8 sumarbúðunum
við Vestmannsvaln
Æskufólk frá Skotlandi vinnur að byggingunni
Á SUNNUDAGINN var fór
fram hátíðleg athöfn er horn-
steinn var lagður að sumarbúð-
um Þjóðkirkjunnar við Vest-
mannsvatn í Aðaldal. Sumar-
búðir þessar munu vera þær
fyrstu hér á landi, sem beinlínis
eru byggðar á vegum Þjóðkirkj-
unnar.
Níu Skotar og sex íslending-
ar vinna þarna kauplaust í
þágu hins góða málefnis, kosta
sjálfir ferðir sínar, en hafa frítt
uppihald á vinnustað. Hluta úr
deginum stunda þessi ungmenni
guðrækilegar iðkanir.
Þennan dag fór hátíðleg guðs-
þjónusta fram á Grenjaðarstað
að viðstöddum mörgum lcirkju-
gestum. í messulok flutti séra
Friðrik A. Friðriksson, prófast-
ur í Húsavík, ávarp, sem sér-
staklega snerti hið útlenda og
innlenda æskufólk. Fararstjóri
Skotanna, David Reid, þakkaði
og kvaðst fagna því, ásamt fé-
lögum sínum, að hefja vinnu
við byggingarframkvæmdir við
Vestmannsvatn. Drengir frá Ak-
ureyri léku á lúðra við kirkju-
dyr, er guðsþjónustu var lokið,
undir stjórn Jakobs Tryggva-
sonar.
Sumarbúðirnar eru þegar of-
urlítið á veg komnar, þótt horn-
steinninn væri ekki lagður fyrr.
En ráðgert er að þær taki um 40
ungmenni og áætlað að hægt
verði að taka þær í notkun á
næsta sumri. Þeim var valinn
staður á fögrum stað sunnan
Fagranesbæjar og blasa við af
þjóðveginum. Sr. Olafur Skúla-
son, fulltrúi Þjóðkirkjunnar,
dvelur á byggingarstað næstu
daga.
Sr. Pétur Sigurgeirsson lagði
hornsteininn og flutti við það
tækifæri ávarp, en sr. Sigurður
Guðmundsson drottinlega bless-
un.
Margir einstaklingar, stofnan-
ir og félög hafa lagt fram fé til
sumarbúðabyggingarinnar, og
lítur út fyrir að þær verði að
miklu leýti byggðar fyrir þessi
frjálsu framlög áhugafólks.
Foi-maður kvenfélagsins í Að-
aldal, Aðalbjörg Kristjánsdóttir,
færði sumarbúðunum að gjöf
fagran fána, sem síðan var dreg-
inn að liún og blakti þar við hlið
hins bláhvíta fána æskulýðsfé-
laganna. Skotarnir sungu 23.
sálm Davíðs.
Samkvæmt teikningum, sem
sumarbúðirnar í Aðaldal eru
byggðar eftir, verða bygging-
arnai- smekklegar, og sú von er
við þessa framkvæmd' bundin,
að hún hjálpi mörgum æsku-
manni til að þræða gæfuveg. □
Séra Pétur Sigurgcirsson leggur liornstein að sumarbúðunum.