Dagur - 07.11.1962, Blaðsíða 1
Mái.gagn Framsóknarmanna
Ritstjóri: Erlingur Davíosson
Skrifstoi a í I-IafnarstR/ETi 90
Sími 1166. Sf.tningu og frkntun
ANNAST PrENTVKRK Ol)DS
Björnssonar H.F.. Akureyri
>____________________________/
Dagur
XLV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 7. nóvember 1962 — 57. tbl.
------------------------------N
Auglýsingastjóri Jón Sam-
ÚF.LSSON . ÁRGANGURINN KOSTAR
kr. 120.00. Gjai.ddagi f.r 1. júr.í
BlaöH) KEMUR ÚT Á MHnTKl DÖG-
U.M OG Á LAUGARDÖGUM,
ÞEGAR ÁST.KÐA ÞVKIR TIL
Hátíðaguðsjónusta í Lögmannshlíðarkirkju
Mikið síldarmagn fundið fyrir sunnan
En enn þá liggja skipin við landfestar - Gifurlegt og óliætanlegt tjón orðið af stöðvuninni
í KVÖLD munu verða haldnir fundir
víða um land og atkvæði greidd meðal
síldarsjómanna um miðlunartillögu sátta-
semjara, sem lögð var fram á sáttafundi
4. þessa mánaðar.
Samkvæmt miðlunai'tillögunni eru sjó-
mönnum boðin 1—2% betri kjör en síð-
ustu kröfur þeirra hljóðuðu upp á.
LIKUR EKKI TALDAR MIKLAR.
Samkvæmt gangi þessa máls að undan-
förnu, eru minni líkur taldar á, að fallist
verði á sáttatillöguna, þó ekkert skuli um
það fullyrt.
Hitt er aftur á móti staðreynd, að á
meðan hið þrotlausa stríð ríkir á vinnu-
markaðinum, meðal annars síldveiðideil-
an, finnast firna miklar síldartorfur, svo
að segja um allan sjó.
RíKISSTJÓRNIN ER RÁÐÞROTA.
Blöð ríkisstjórnarinnar eru hætt að
bera í bætifláka fyrir hið dæmalausa
upplausnarástand í verkalýðs- og kjara-
málum, sem hún að nokkru leyti ber
ábyrgð á.
STJ ÓRNARBLÖÐIN VITNA.
Vísir gefur út þann boðskap í fyrradag,
að síldarmarkaðir í V.-Þýzkalandi og
Rúmeníu séu „glataðir eða stórskemmdir".
Morgunblaðið birtir fréttir, stórar fréttir,
af síldinni í sjónum og ríkisstjórnin
hreyfir hvorki legg né lið, málinu til
lausnar, — þótt liún hafi þau ráð í hendi
sér og hafi haft undanfarinn mánuð, sem
nú er liðinn af vertíð. □
maður á lista Framsóknar-
manna í haustkosningunum
1959. Fimmti og sjötti maður,
Jakob Frímannsson og Björn
Stefánsson, óskuðu ekki að
taka sæti á Alþingi. □
vetrarins verður mánudaginn
12. nóvember kl. 9 síðdegis á
Hóíel KEA.
Rætt verður um „Daginn og
veginn“.
Frummælandi Hjörtur Eld-
járn. □
Fyrstu dvalargestirnir komu þangað á laugard
Á LAUGARDAGINN tók hið
nýja elliheimili á Akureyri á
móti fyrstu vistmönnunum, 8
að tölu. Eldhús stofnunarinnar
er ekki tilbúið ennþá og er ekki
aðstaða til að taka á móti fullri
tölu vistmanna, eða 30 manns,
fyrr en lítið eitt síðar.
Starfsstúlkur eru 4 talsins,
auk frú Ásthildar Þórhallsdótt-
ur, sem veitir heimilinu for-
stöðu. En þeim verður fjölgað í
samræmi við þarfir. Elliheimil-
isbyggingin, eins og hún er nú,
og ekki rúmar nema um 30 vist-
menn, er aðeins fyrsti áfangi
stofnunarinnar. En mikil þörf er
fyrir góðan dvalarstað aldraðs
fólks. □
r
Sijórnmála-
UM næstu helgi verður biskup-
inn yfir íslandi, herra Sigur-
björn Einarsson, hér á Akur-
eyri.
FYRSTI BÆNDA-
KLÚBBSFDNDUR
f tilefni af 100 ára afmæli
Lögmannshlíðarkirkju, verður
þar hátíðaguðsþjónusta á sunnu
daginn og biskup predikar.
Sama dag kl. 8,30 e. h. predik-
ar biskup í Akureyrarkirkju.
Sungnir verða sálmar eftir séra
Mathías Jochumsson, og að lok-
inni guðsþjónustu skoðar bisk-
up Matthíasarsafn, sem þá verð
ur opið í tilefni af afmælisdegi
þjóðskáldsins. Sjá nánar í til-
kynningum prestanna á öðrum
stað í blaðinu í dag. □
Fyrstu dvalargestimir á Elliheimilinu á Akureyri, sem þangað komu á laugardaginn, festa
vonandi yndi á hinu nýja heimili. (Ljósmynd: Gísli Ólafsson.)
Ellilieimilið á Akureyri opnað
r~-----------------------
HESTUR GRAFINN
ÚR FÖNN
í FYRRADAG var hestur frá
Akureyri grafinn úr fönn í Öng
ulsstaðahreppi. Hesturinn stóð í
vatnslitlum skurði og var ekki
máttfarinn er hann fannst eftir
5 sólarhringa.
NÝR BÁTUR SJÓSETTUR
FYRIR helgina var sjósettur
nýr 15 tonna bátur í Sandgerð-
isbót á Akureyri. Smiðir tveir í
bænum, Trausti Adamsson og
Gunnlaugur Traustason byggðu
hann að öllu því, er að trésmíða
vinnu lýtur og voru um það bil
eitt ár að ljúka því verki.
Teikninguna gerði Tryggvi
Gunnarsson skipasmíðameist-
ari.
Bátur þessi, sem sýnist vera
hinn vandaðasti að öllum frá-
gangi, er byggður úr eik og í
honum er 137 hestafla Volvo-
Penta-vél. í honum eru hin
venjulegu siglinga- og öryggis-
tæki.
Smiðirnir hafa selt bát þenn-
an, sem Faxi heitir, og eru eig-
endur þeir Steingrímur Aðal-
steinsson og Bjarni Þorvalds-
son, báðir búsettir hér í bæn-
um og munu gera hann út héð-
an fyrst um sinn.
Áður höfðu smiðirnir byggt
9 tonna bát. Þeir hafa nú kom-
ið sér upp bráðrbirgðaaðstöðu
í Sandgerðisbótinni, en óvíst er
ennþá hvort þeir halda báta-
smíðinni áfram, að því er þeir
tjáðu blaðinu á mánudaginn, er
smíði bátsins bar á góma. □
ÚTVEGAÐI VlN - HLAUT SEKT
í GÆR var einn af borgurum
Akureyrar sektaður um 1350
: krónur fyrir að útvega fólki
innan lögaldurs áfengi. Mun
hann þó ekki hafa gert það í
gróðaskyni. Áður var annar,,,
maður sektaður um 1500 krón- §
ur fyrir sams konar brot. 1
Er vel, að lögreglan og yfir- ;
menn hennar hafa að undan- :
förnu tekið fleiri slík mál til i
meðferðar. En af nógu er að \
taka, því tugir, ef ekki hundr- j
uð unglinga notar áfengi í bæ
og héraði um hverja einustu
helgi ársins, og á bak við ölvun
hvers unglings eru eitt eða
fleiri lögbrot fullorðinna.
námskeið
FRAMSÓKNAR-
MANNA
EINS og áður var frá sagt,
efna Framsóknarmenn í Norð-
urlandskjördæmi eystra, til
a. m k. tveggja stjórnmála-
námskeiða, á Húsavík og Ak-
ureyri.
Nánar verður sagt frá nám-
skeiðunum þegar búið er að
ákveða hvenær þau hefjast og
á hvern hátt þeim verður
hagað. Nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu Framsókn
arflokksins ó Akureyri. □
Vaifýr í Nesi iekur sæfi á Alþingi
VALTÝR Kristjánsson, oddviti
í Nesi í Fnjóskadal, fór í gær
til Reykjavíkur og mun taka
sæti á Alþingi í stað Ingvars
Gíslasonar, sem verður erlendis
næstu vikur.
Valtýr í Nesi var sjöundi