Dagur - 19.12.1962, Page 8

Dagur - 19.12.1962, Page 8
Úr fjárhagsáællun Akureyrarkaupslað- ar lyrir árið 1963 Aætlunin liækkar verulega vegna utanaðkom- andi álirifa, en verklegar framkvæindir litið EINS OG frá var sagt í síðasta blaði, hefur fjárhagsáætlun Ak ureyrarkaupstaðar verið samin og mun hafa verið tekin til fyrri umræðu á bæjarstjórnar- fundi í gær. Svo sem jafnan áð- ur, verður mönnum útsvarsupp hæðin til mestrar umhugsunar. Að þessu sinni hækka þau um nálega 20% og verða 33,8 millj. kr., ef breyting verður ekki á, í meðförum bæjarstjórnar. Eru þá aðstöðugjöld meðtalin. Niður stöðutölur áætlunarinnar tekju- megin eru að þessu sinni kr. 44.492.500.00. Auk útsvai’anna eru í tekjudálki fjárhagsáætl- unarinnar 6,4 millj. krónur fram lag úr jöfnunarsjóði, fasteigna- skattur og byggingaleyfisgjöld 2,3 millj. kr., ýmsar tekjur af fasteignum 1 millj. kr., ágóði af Krossanessvei'ksm. o. fl. 0,8 millj. kr. Gjaldamegin á áætluninni er stjórnai'- og skrifstofukostnaður áætlaður 1,2 millj. kr. tæpar, þegar frá er dreginn hlutur Rafveitu, Vatnsveitu, Laxár- virkjun og Hafnai'sjóður, sem gxeiða hluta þessa kostnaðar. Löggæzlan kostar 1,2 millj. ki\, eldvarnir 0,7 milljónir. Almannatryggingar, sjúkra- tryggingar og atvinnuleysis- tryggingar kosta samtals 6,5 millj. kr. og til fi-amfæi'slu eru áætlaðar 2,4 milljónir. Þar ei'u innifalin meðlög, sjúki'afi'am- færi vegna ríkisframfæi'slu, framfærslustyrkir, hluti bæjar- ins af hækkun elli- og örorku- lífeyris o. fl. Framlög til Eftirlaunasjóðs, byggingalánasjóðs, Bygginga- sjóðs veikamanna, Bjai'gráða- sjóðs og Menningarsjóðs kr. 1,8 millj. kr. Til menntamála er áætlað að verja samtals kr. 3,7 millj. kr., sem greinist í grófum dráttum þannig: Til Bai'naskólans 1,5 millj., Oddeyrai'skólans 0,6 millj., til Glerárskólans 0,2 millj., til Gagnfi'æðaskólans 0,9 millj. og til Iðnskólans 0,2 millj. Þá fær Tónlistarskólinn 150 þús. kr. í rekstui'sstyi'k og Hús- mæðraskólinn 50 þús. Til Amts- bókasafnsins 0,4 millj. tæpar og Náttúrugripasafninu eru ætlað- ar 50 þúsund krónur. Til íþróttamála ei'U ætlaðar 0,5 milljónir króna og álíka upp hæð til fegrunar, þar með taldir ski'úðgai'ðar. Til heilbx-igðis- mála eru 0,7 millj. ætlaðar, en undir þeim lið er sjúki’ahúsið með 0,5 millj. Til hreinlætismála á að verja Björii Björnsson heitir þessi ungi maður og sér hann um drcifingu blaðsins í Hrísey, en var á jólaferð til Akureyrar nýlega. 2,3 milljónum ki'óna, en þar ei'u hæstu liðirnir snjómokstur og sorphreinsun. Gatnagerð og skipulag er stór liður, áætlaðar 6,5 millj. kr. Mai’gs konar styi’kir til félaga o. fl. eru að upphæð 0,7 millj. tæpar. Til Framkvæmdasjóðs á að verja 4 millj. kr. Hækkanir á kostnaðarliðum. Hækkanir á einstökum kostn- aðarliðum hinnar nýju fjái'hags- áætlunar eru: Ski’ifstofu- og bæjai'stjói'nai'kostnaður 35 þús., löggæzla 100 þús., tryggingar 900 þús., fiamfæi'sla 130 þús., framlög til sjóða 720 þús., til menntamála 990 þús., heilbrigð- ismála 255 þús., hreinlætismála 350 þús., gatnagei'ð 1 millj., ný- bygginga 950 þús., vélakaupa 400 þús. kr. Hækkanir hinna ýmsu kostn- aðarliða fjái'hagsáætlunarinnar eru að mestu leyti utanaðkom- andi, eða af völdum vaxtahækk unar og hinnar miklu dýrtíðar í landinu á öllum sviðum. En því miður stafa þær ekki af stór- huga áætlun um framkvæmdir í bænum. □ - Hugmyndasamkeppni (Fx-amhald af blaðsíðu 1) ei’u meii'a og minna vai'anleg, svo að ekki verður hjá því kom izt að taka vei'ulegt tillit til þeiri-a. Hvað um höfnina? Búast má við, að Akureyri verði í framtíðinni þýðingarmik il umhleðsluhöfn. Gert er ráð fyrir að væntanlegir keppendur komi með tillögur af höfninni og tilheyrandi mannvirkjum við hana. Vænta má góðra hug- mynda um hagkvæma lausn hafnai’mála bæjai'ins. Ætla má, að Glerárgatan og framlenging hennar inn á Krókeyri vei'ði gex'ð að þjóðvegi, samkvæmt til lögu vegalagninganefndar. Þá er gert ráð fyrir, að Glerárgat- an frá Strandgötu og alla leið inn úr bænum byggist á upp- fyllingu við sjóinn. Gert er ráð fyrir, að gamla höfnin vei'ði að mestu niður lögð og hafnai'kviin jafnvel fyllt upþ. Þungavöruafgreiðsla og fiskihöfnin vex-ði við Togai'a- bryggjuna, en farþega og stykkjavöruafgreiðsla innan Oddeyi-ai'tanga, og jafnvel báta kví vei'ði þar. Hvernig á Glerárgata að liggja? Glerárgatan á, samkvæmt fx’amansögðu, að liggja suður hafnarbakkann, austan Prent- vei’ks Odds Björnssonar og á nýrri uppfyllingu allt suður á Höepfnersbryggju. Þaðan aust- an við núverandi byggð, suður úr bænum. Að síðustu? Ekki er hægt að búast við því, segja þeir nafnai'nir að síðustu, að væntanlegar skipulags tillög ur sem kunna að berast, verði á þann veg, að hægt sé að nota nokki-a einstaka að öllu leyti, og eins og segir í skilmálum samkeppninnar, eru þeir aðilar sem stofna til samkeppninnar, frjálsir að útfærslu í sambandi við lausn vei’kefnisins, en eiga óbundinn afnotarétt af verð- launuðum og innkeyptum til- lögum. Blaðið þakkar þessar gx-einai'- góðu upplýsingar. ALDAMOTAMENN Jónasar frá Hriflu Hinn kunni ritsnillingur Jónas Jónsson frá Hriflu hefur skrifað íslendingaþætti hina nýju, er hann nefnir Aldamóta- menn. Nú er nýlega komið út þriðja og síðasta bindi þessa ritverks, og eru þá í ritverkinu öllu stuttir ævisöguþættir um 60 merkra íslendinga. Lesið ritdóm séra Benjamíns Kristjánssonar um þessa nýju bók á blaðsíðu 5. Fiskveiðar jukusf um 8% SAMANLAGÐUR fiskafli í heiminum jókst um átta af hundraði frá 1960 til 1961, segir í riti Matvæla- og landbúnaðai'- stofnunar S. Þ. (FAO), „Year- book of Fishery Statistics11. Ár- ið 1961 veiddust 41,2 milljón smálestir, en árið áður 38 mill- jón smálestir. Japanir eru enn mesta fisk- veiðiþjóð heimsins með 6,7 mill- jón smálesta fiskafla. Næst kem ur Perú með 5,2 milljónir, þá kínvex'ska alþýðulýðveldið með 5 milljónir (þessi tala er áætl- uð) og síðan eftirtalin ríki: Sovétx'íkin 3,2 milljónir, Banda- ríkin 2,9 milljónir, Noregur 1,5 milljón, Kanada 1,02 milljón, Spánn 1,01 milljón, Suðui'-Af- ríka og Suðvestur-Afríka 1,01 milljón, Indland 0,96 milljón, Bretland 0,89 milljón, Danmöi'k ásamt Fæi'eyjum 0,75 milljón, Indónesía 0,73 milljón og fsland 0,70 milljón. Þær fisktegundir sem veidd- ust í mestu magni voru síld, sardínur og ki'yddsíli, eða alls um þi'iðjungur af öllum fiskafla heimsins: 12,6 milljón smálest- ir. Þar næst komu þoi'skur, kol- múli og ýsa, alls 5,1 milljón smá lestir og í þriðja sæti var vatna- fiskur, alls 4,4 milljón smálestir. Margir gestir hjá S.Þ. í nóvember voru liðin tíu ár síðan sameinuðu þjóðii'nar hófu að skipuleggja heimsóknir gesta til Aðalstöðvanna í New York. Á þessum tíu árum hafa 8,5 milljónir manna skoðað salar- kynni Aðalstöðvanna undir um sjá séi-staki-a leiðsögumanna. Fyrsta árið voru gestii'nir 603:710. Árið 1961 voru þeir alls 1.033.000 talsins. Leiðsögumenn- irnir eru frá 28 þjóðum og geta skýrt frá stai'fsháttum Samein- uðu þjóðanna á 26 tungumálum. Skákkeppni U.M.S.E. HINU árlega skákmóti Ung- mennasambands Eyjafjarðar er nýlokið. Sex fjögurra manna sveitir, frá fimm félögum tóku þátt í keppninni. Sigurvegarar urðu: A-sveit ungmennafélags Skriðuhi-epps með 15Ih v., nr. 2 B-sveit sama félags með IIV2 v., nr. 3 B-sveit ungmennafélags Saurbæjai'hrepps og Dalbúinn með 10 v., nr. 4 sveit Ungmenna félags Möðruvallasóknar með 91/2 v., nr. 5 sveit Ungmennafé- lags Öxndæla með 9 v., nr. 6 B-sveit Saui'bæjarhr. og Dalbú- inn með IV2 v,- Flesta vinninga á 1. borði hlaut Hjöi'leifur Halldórsson, á 2. borði Guðmundur Eiðsson, á 3. boi'ði Haukur Jónsson og á 4. borði Guðmundur Búason. A-sveit umf. Skriðuhrepps skipuðu Ármann Búason, Guð- mundur Eiðsson, Stui'la Eiðsson og Guðmundur Búason. □ Bankaútibú á Húsavík Húsavík, 18. des. Um næstu ára- mót opnar Landsbankinn útibú hér á Húsavík. Hann yfirtekur Sparisjóð Húsavíkur og mun taka til starfa í sömu húsakynn- um, Garðarsbraut 17. Og úti- bússtjórinn verður sá sami og nú er sparisjóðsstjóri, en það er það er Sigurður Pétur Björns- son. Nú er lítið farið á sjó. Völsungar undirbúa almenna skemmtun annan dag jóla, aðra fyrir unglinga á milli jóla og nýárs og brennu á gamalárs- kvöld. Hér eru menn alveg hættir að hugsa um rjúpu — og sleppa þá líka við að villast. Tveir Ólafsf jarðarbát- ar fengu sex tonn livor Olafsfirði 18. des. Bátarnir Anna og Guðbjörg fengu í gær 6 tonn hvor, og í síðustu viku var sæmilegur afli. Sennilega eru bátarnir nú að hætta róðr- um og fara þá til Akureyrar í trygga höfn. Borinn er farinn til Húsavík- ur, einnig bormennirnir. Skólafólkið er komið í frí, Litlu-jólin voru haldin á laug- ardaginn. Um sveitina er mjög þung- fært, því að rennt hefur í slóðir. Laufabrauð og hangikjöt Ófeigsstöðum 18. des. Allir veg- ir eru vel færir í héraðinu, nema Vaðlaheiði, sem í gær var þungfær stórum bílum og ófær litlum. Allir eru komnir í jólaskap, og breytni manna betri en í með allagi. Víðast mun búið að gera laufabrauðið. Margir nota tæki eitt, mjög haglega gert, smíðað af Ágúst Halblaub, fyrrum Lax árvirkjunarstjóra, sem bæði er dverghagur og gerði marga hluti öðrum til ánægju, en tæk- ið er eins konar laufaskurðar- járn. Af kjötmat mun mikið borðað af hangikjöti en lítið af rjúpu. Jólaskraut sýnist mér með mesta móti bæði á Akureyri og Húsavík. Það gleður augað og ber einnig vott um fegurðar- smekk. En áður var allt slíkt, öll tilbreytni, geymt til síðustu stundar. Nú er eins og jólin séu að nokkru leyti liðin, þegar hin eiginlega jólahátíð rennur upp.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.