Dagur - 05.01.1963, Page 8

Dagur - 05.01.1963, Page 8
8 Lénliarður fógeti á Dalvík! Sitthvað úr Reykjadal LEIKRITIÐ Lénharður fógeti hefur átt einna mestum vinsæld um að fagna af verkum Einars H. Kvaran,og jafnan hefur þótt ástæða til þess að fara á stúfana og skunda í leikhús, þótt um langan veg væri, ef frétzt hefur af fógetanum á sviði og svo er enn. Leikfélag Dalvíkur hefur nú sýnt fógetann fyrir fullu húsi nú um nokkurt skeið undir stjórn Steingríms Þorsteinsson- ar, sem um þetta leyti á þrjátíu ára leikafmæli. Þet'ta er í annað skipti, sem Steingrímur stjórnar Lénharði fógeta, enda er enginn viðvan- ingsbragur á uppsetningunni. Helzt mætti finna að staðsetning um í mannmörgum senum, sem þó verða að skrifast á reikning hins litla sviðs. Steingrímur leikur jafnframt eitt af aðalhlutverkunum, Lén- harð fógeta, erlendan yfirgangs- segg, sem í skjóli konungsvalds ins fer um byggðir landsins, rænandi og ruplandi. Steingrími tekst ágætlega að lýsa þessum slæga hermanni, sem svífst einskis, hvort sem hann fer með blíðmælgi eða beitir valdi. Leik- ur hans er heilsteyptur og ör- uggur, og alloft tekst honum að skapa eftirminnileg atriði af litlu tilefni. Einna bezt tekst honum upp í þriðja þætti, í að- förinni að Ingólfi bónda á Sel- fossi. Torfa Jónsson, sýslumann í Klofa leikur hinn gamalreyndi leikari, Hjálmar Júlíusson. Skil ar hann því hluverki nokkuð vel, en skortir dálítið festu og alvöru, þegar tekið er tillit til hversu mikið hvílir á hlutverk- inu. Hjálmari tekst vel að sýna höfðingjann í Torfa og er bezt- ur í viðtölum við Lénharð. Helgu, konu hans, leikur Kol- hrún Amgrímsdóttir. Fer hún vel méð hlutverkið að öðru leyti en því, að hún mætti gjarna sýna dálítið meiri hörku, sérstaklega í fimmta þætti. Vilhelm Þórarinsson leikur bóndann á Selfossi, Ingólf að nafni. Vilhelm er öruggur á sviði og á vel heima í gerfi þessa stolta íslenzka bónda. Beztum tökum á hlutverkinu nær hann þó í orðaskiptunum við þá Lénharð og Eystein í þriðja þætti. Svanhildur Björgvinsdóttir leikur Guðnýju, dóttur Ingólfs, föngulega gjafvaxta heimasætu. Svanhildur skilar sínu hlut- verki vel. Það sem á skortir í reisn vinnur hún upp með prýð isgóðum leik þegar mest á reyn- ir. Með hlutverk Magnúsar Ólafs sonar, fósturson biskupsins, fer Anton Angantýsson. Anton er beztur í byrjun leiksins en veldur hlutverkinu ekki til fullnustu þegar líður á. Til dæmis er hann ekki eðlilegur í uppgjörinu við Guðnýju og skortir einnig nokkuð á radd- styrk. Eystein Brandsson úr Mörk leikur Jóhann Daníelsson. Ey- steinn er ungur bóndasonur, fullhugi hinn mesti og fram- gjarn. Jóhann fellur vel inn í hlutverkið, og leikur það hressi lega en er þó nokkuð misjafn. Hann má gæta sín með fram- sögn. Heildarsvipur leiksins er yfir- leitt góður, jafn hraði og hvergi dauðir punktar. Þó finnst mér furðulítill hávaði, þegar hús- (Framhald á blaðsíðu 7). Ingólfur og Guðný. (Vilhelm og Svanhildur). Eysteinn úr Mörk, Guðný, Lénharður. (Jóhann, Svanhildur, Steingrímur). Laugum 31. des. 1962. Árferði mun mega teljast rétt í meðal- laði. Vetur fyrstu mánuði árs- ins var fremur snjóléttur, en gjafafrekur. Sjóalög voru mest um mánaðarmótin marz-apríl og fyrstu dagana í apríl. Voru þá helzt erfiðleikar með mjólk- urflutninga úr hreppnum á yfir- standandi ári. Vorveðrátta var fremur góð, þó gerði slæmt hret síðari hluta maímánaðar. Heyskapartíð var allgóð meiri hluta júlímánaðar, en ágúst- mánuður var nær samfelldur óþurrkakafli. Þurrkar komu fyrstu daga september, en ann- ars var sá mánuður rysjóttur, oft næturfrost óvenjuhörð og jafnvel hríðaráhlaup. Um og eftir miðjan október brá til óvenjulegra hlýinda. Komst þá hiti upp í 12—14 stig að stað- aldri fáeina daga. Síðustu mán- uði ársins hefur tíðarfarið ver- ið snjólétt og gott, og nú um jóladagana auð jörð að mestu og stillt veður. Bregður í því efni öðruvísi við en undanfarin ár. Við lýsingu tíðarfars skal því svo bætt, að kalskemmdir voru óvenjumiklar í túnum í hreppnum síðast liðið vor. Verð ur því helzt jafnað til harðinda- ársins 1949. Mjög misjafnar voru skemmdirnar eftir jörðum, sumstaðar nær engar, en skiptu hekturum á öðrum. Einstaka bændur létu vinna kalblettina upp og fengu af þeim einhvern heyfeng áður en sumri lauk. Ræktunarframkvæmdir munu hafa verið með minna móti í hreppnum, en sá, sem þetta rit ar hefur þó ekki handbærar tölur um þetta efni. Byggingai'framkvæmdir voru tölverðar, en að miklu leyti voru þær framkvæmdir bundn- ar við nágrenni Laugaskóla. Þar var byggt eitt íbúðarhús, sem' tekið var til íbúðar nú í haust, stækkað annað hús, svo að þar Slys í Bárðardal Stórutungu í Bárðardal, 4. jan. í gær varð það slys á Lundar- brekku að Hjördís Kristjáns- dóttir húsfreyja brenndist tölu- vert mikið. Hún hrasaði með sjóðandi fitupott og skvettist fitan á andlit henni, handlegg og brjóst. Þóroddur Jónasson gerði að sárunum til bráða- birgða en síðan var konan fhitt í sjúkrabíl til Akureyrar. • Á gamlárskvöld var hér einn ig sjúklingur á ferð og var flutt ur á Fjórðungssjúkrahúsið á Ak ureyri. Það var húsfreyja á Bólstað og eignaðist hún erf- ingja með nýjárskomunni. Mislingar bárust að Stóru- völlum. Veiktist kona, er kom frá Reykjavík. Þegar voru nauðsynlegar varúðarráðstafan- ir gerðar og hefur veikinnar ekki orðið vart annars staðar. Margt fólk, bæði eldra og yngra liggur undir mislingum í Bárðar dal. Af þessum sökum voru ekki mannfundir haldnir um jólin, svo sem annars hefði oi'ð- ið. Nýlega fóru menn héðan suð ur á fjöll í sauðaleit, allt suður á móts við Helgastaði. Bílfæri var gott, enda nær alveg snjó- laust. Engar fundust kindurnar, en 9 kindur vantar á Mýri og Bólstað og'hyggja menn að þær séu einhvers staðar lifandi, hversu sem gengur að finna þær. Tvær útigengnar kindur komu sjálfar heim í Sandhauga nú nýlega. □ Komu færantli hendi Húsavík, 4. jan. Allt fór hér friðsamlega fram um jól og ára- mót. Tvær brennur voru tendr- aðar á gamlárskvöld. Höfðu Völsungar aðra á Húsavíkur- túni, en hina drengir úr suður- bænum, á Stórhóli. Farin var blysför að brennu Völsunga og lúðrasveitin lék þar áður en kveikt var í. Mikill mann- fjöldi var þar saman kominn. Sá leiðindaatburður gerðist, þeg ar loga tók í brennunni, að villi- köttur hljóp þar út úr logunum. Lögreglan stytti kvalir hans. Dansleikir voru á tveim stöð- um. Tvær íþróttasýningar voru haldnar í íþróttahúsinu á milli jóla og nýjárs. □ Síðdegis í gær komu hingað gestir, færandi hendi í flugvél Björns Pálssonar. Þeir voru: Baldvin Jónsson, form. Lands- bankaráðs, Steingrímur Stein- þórsson, fyrrverandi ráðherra, bankaráðsmaður og Svanbjörn Frímannsson, aðalbankastjóri. Þeir verða viðstaddir opnun Landsbankaútibúsins hér á morgun og áttu í dag viðræður við ráðamenn Sparisjóðs Húsa- víkur. En Sparisjóðurinn renn- ur undir hið nýja útibú. Útibús- stjóri verður Sigurður Pétui' Björnsson. í tilefni opnunarinnar hefur Landsbankinn ákveðið að færa Áhaldasjóði Sjúkrahúss Húsa- víkur að gjöf 100 þúsund krón- ur. Útibúið verður opið kl. 11—12 og 12,45—15 hvern virkan dag, nema á laugardögum kl. 10—12. Ekið yfir Lágheiði Ólafsfirði, 4. jan. Veðrið hefur verið dásamlegt hér, eins og annars staðar á Norðurlandi um jólin og áramótin. Það er algert einsdæmi, að mikil bifreiðaumferð hefur ver- ið um Lágheiði að undanförnu. Þar var þó engum snjó rutt. Síðast í gær var þar ekið keðju lausum bílum. (Framhald á blaðsíðu 7). bættist við ein íbúð og fokhelt gert verzlunarhús fyrir útibú Kaupfélags Þingeyinga og barnaskóli að Litlu-Laugum. í viðbyggingu við aðalbyggingu Laugaskóla voru gerðir nýir stigar milli hæða. Var það veru leg enduibót á húsnæði skólans. Byrjað var á tveimur nýbýlum, á Fljótsbakka og Ingjaldsstöð- um. Á hinu fyrrnefnda var byggt íbúðarhús, viðbót við eldra hús á jörðinni, á hinu síð- arnefnda var reist hlaða. Kirkja á Einarsstöðum var máluð utan og innan og fleiri endurbætur gerðar á henni. Engar framkvæmdir voru í vegagerð innan hreppsins á ár- inu. íbúafjöldi í hreppnum samkv æmt þjóðskrá 1. desember 1962 (Framhald á blaðsíðu 2). Eggert Stefánsson látinn EGGERT hafði dvalizt á sjúkra- húsi í ítalíu í haust, en kom heim þaðan fyrir jólin. Mun hann hafa ætlað að koma til ís- lands á þessu ári, m. a. til að ganga frá útgáfu ritgerðasafns eftir sig. Eggert varð 72 ára. Hann varð bráðkvaddur að heimili sínu í borginni Schio á ítalíu um hádegisbilið s. 1. laugardag, 29. desember. □ FIMMTUGUR: SVAVAR HELGASON HINN 26. desember varð Svav- ar Helgason forstjóri Smjörlík- isgerðar KEA á Akureyri fmmtugur. Færir blaðið honum og heimili hans beztu heillaósk- ir í tilfni afmælsins. Svavar Helgason hefur frá 15 ára aldri unnið hjá fyrirtækjum eyfirzkra samvinnumanna. Fyrstu 10 árin starfaði hann við mjólkuriðnaðinn og var einn þeirra manna, sem settu niður fyrstu mjólkurvinnsluvél- arnar í nýstofnuðu Mjólkursam- lagi KEA er lengi síðan varð fyrirmynd í íslenzkum mjólkur iðnaði í landinu. Eftir 10 ára starf við mjólk- uriðnaðinn hóf Svavar starf við Smjörlíksgerð KEA og hef- ur unnið þar síðan, eða um ald- ai'fjórðungsskeið, síðustu 13 ár- in sem fox'stjóri þess fyrirtæk- is. □

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.