Dagur - 26.01.1963, Blaðsíða 8
Litið inn lijá L axdælingum
Laxárdal í S.-Þing. 6. jan. Vet-
urinn frá áramótum til 14. apríl
var harður, þó snjór væri ekki
mjög mikill, þá mátti heita sam
felld innistaða væri á flestum
bæjum þann tíma. Snjór varð
mestur um mánaðamót marz—
ápríl. Frost voru oft hörð þenn-
an tíma, mest aðfaranótt 15.
marz 27. stig. Frost eru oft
meiri hér en á Grímsstöðum
Jörð spratt seint, og á nokkr-
um bæjum varð mikið kal í tún
um, þó ekki eins og sum verstu
ár áður. Sauðburður mátti heita
að gengi vel, og hey entust, með
nokkrum fóðurbætisgjöfum. —
Heyskapur byrjað ekki fyrr en
undir miðjan júlí, og heyskap-
artíð sæmileg þann mánuð. Þó
spillti stórrigning 28. og 29. júlí
mjög hér í dalnum. Ágúst var
kaldur og óvenju sólarlaus, 3ja
stiga frost var aðfararnótt 13.
ágúst, og fáir þuri'kdagar.
Nokkrir góðir þurrkdagar komu
í september, en einnig óvenju
hörð frost, mest 10 stig 25. sept.
og þrisvar snjóaði, og rigningar
voru oft kaldar. Heyskap lauk
ekki fyrr. en seint í sept. og
spretta varð að lokum góð, þar
sem jörð var ekki kalin. Hey-
fengur var meiri en í fyrra, en
misjafn að gæðum. Tilbúinn á-
burður var notaður með mesta
móti í vor, en á sumum túnum
notaðist hann illa. Fyrningar
voru engar í vor, það teljandi
var.
Fé á fóðrum er 1450, fækkaði
um 75 frá fyrra ári, nautgripir
48, sem er sama tala og f. á. og
hestar 17, sama og f. á. Dilkar
voru með lélegasta móti og ær
mjög magrar í haust. Ræktun-
arframkvæmdir voru ekki aðr-
ar en að sáð var í 3,3 ha. hjá
einum bónda og ekkert land
brotið til nýræktar. Lokið var
við byggingu íbúðarhúss í Ár-
hvammi og flutt í það, en engai'
nýbyggingar, og er þó bygg-
ingaþörfin mikil bæði á íbúðai'-
og útihúsum. Það miðast allt
við það hér að halda við, en ráð
ast ekki í nýjar framkvæmdir,
og er þess tæplega að vænta,
þar sem saman fer óhóflegt
verð á byggingarefni og óvið-
unandi láns- og vaxtakjör land-
búnaðarins, enda segja eyðijarð
irnar þá sögu frá landbúnaðin-
um, sem ekki verður rengd.
NAMSKEIÐI LOKIÐ
Á AKUREYRI er lokið minna-
mótornámskeiði Fiskifélags ís-
lands. En það hófst 1. okt. og
á því var 21 nemandi, sem allir
l.uku prófi, 8 með ág.einkunn, 9
með I. einkunn, 3 með aðra og
1 með þriðju einkunn. Forstöðu-
maður var Guðmundur Eiríks-
son og kennarar auk hans Bragi
Sigurjónsson, Grímur Sigurðs-
son og Guðmundur Þorsteins-
son. Prófdómarar voru þeir
Stefán Halldórsson og Jón Ein-
arsson. — Námskeiðið veitir
rétt til gæzlu véla, allt að 400
hestafla. Skortur er á véla-
mönnum á bátaflotanum. □
Engin fjárveiting var til ný-
byggingar á veginum hér í daln
um, en dálítið viðhaldsfé. Margt
fólk hér átti eftir að taka misl-
inga, því þeir hafa ekki gengið
hér síðan 1882, en ein og ein
manneskja fengið þá annars
staðar, og hefur þetta haft mik-
il óþægindi í för með sér á und
anförnum árum, þegar misling-
ar hafa gengið. í sumar voru
allir fullorðnir, sem áttu eftir að
fá mislinga, og þrjú börn spraut
aðir með mislingum, og er talið
að allir, að einum manni und-
anskildum, hafi hlotið fullt ó-
næmi gegn mislingum. Töluverð
veikindi fylgdu þessu á sum-
um, en engum alvarleg, og eft-
irköst engin og er þungu fargi
létt af sveitinni með þessum að-
gerðurn.
Söngkonan góðkunna Lizzy
Þórarinsson á Halldórsstöðum
lézt 20. marz, tæpra 87 ára að
aldri og var jarðsett í heimá-
grafreit 5. apríl. Margt fólk kom
að jarðarförinni, en þó ekki
nema hluti af því sem komið
hefði, ef verður og færi hefði
verið gott, en óveður var þenn-
an dag. Hennar verður saknað
og minnzt um langan aldur hér
í dalnum.
Heimilisfastir hér í dalnum
eru 62 og hafði fjölgað um einn
á árinu. Þetta skiptist þannig
eftir aldri: yfir 80 ára (87) 1, 70
—80 ára 7, frá 50 ára til 70 ára
16, börn innan 10 ára 14, Frá
10 ára til 50 ára 24.
Félagslíf er eðlilega lítið, þó
gekkst Kvenfélag Laxdæla fyr-
ir slægjufundi í nóvember, eins
og nokkur undanfarin ár. Var
boðið nokkru af utansveitar
fólki og skemmtu menn sér við
kaffidrykkju og ræðuhöld, söng,
upplestur og dans.
Við erum rafmagnslausii' í 6
—12 km fjarlægð frá Laxár-
virkjun, en heyrzt hefur að við
værum á áætlun með rafmagn
1964.
Það er nokkuf ótti í okkur
hér í dalnum við væntanlegar
virkjunarframkvæmdir við Lax
(Framhald á blaðsíðu 7).
Hún lieitir Krúna, er á fimmta vetur og eignaðist tvær sprækar,
hyítar gimbrar 18. þ. m. Eigandi er Kristín Sigurðardóttir á Ingj-
aldsstöðum í Reykdælahreppi. (Ljósmynd: E. V.)
Skíðaflug Flugfélagsins á Grænlandi
f BYRJUN marz-mánaðai’ mun
ein af flugvélum Flugfélags ís-
lands fljúga til Grænlands bú-
in skíðum og flytja farþega og
nauðsynjar til margra einangr-
aðra staða á austurströndinni.
Samningur milli Konunglegu
Grænlandsverzunarinnar og
Flugfélags íslands um skíða-
flugið var undirritaður í Kaup-
mannahöfn nýlega.
Fyrir nokkrum mánuðum
barst Flugfélagi íslands fyrir-
spurn frá hinni Konunglegu
Grænlandsverzlun um það,
hvort félagið gæti tekið að sér
flutninga til stöðva á austur-
strönd Grænlands með vistir,
póst og e. t. v. farþega. Þess var
getið að ekki mundi hægt að
lenda á þessum stöðum nema á
flugvél búinni skíðum.
Þar sem hér var um algjört
nýmæli að ræða í starfsemi fé-
lagsins fóru víðtækar athugan-
ir fram á væntanlegri fram-
kvæmd og leiddu þær í ljós, að
félagið gæti tekið þetta verk-
efni að séf. Samningur um
nokkrar tilraunaferðir var und-
irritaður 4. jan. sl. Ein af
Douglas DC-3 flugvélum félags-
ins, „Gljáfaxi”', verður nú búin
skíðum og hefur þegar verið
gengið frá aukaútbúnaði í flug-
vélinni, vökvadælu og leiðslum
til þess að hækka eða lækka
skíðin, en flugvélin getur eftir
að skíðin hafa verið sett undir,
lent á skíðum eða hjólum eftir
því sem hentar.
Skíðin sem sett verða undir
„Gljáfaxa“ eru bandarísk, keypt
frá Federal Ski and Engineer-
ing Co. í Minneapolis.
Þau eru úr málmblöndu, sér-
staklega húðuð og af beztu fá-
(Framhald á blaðsíðu 7).
Engin kind fannst
Ófeigsstöðum, 24. jan. Mislingar
eru á tveim bæjum hér í sveit
og búizt við að fólk á nokkrum
bæjum hafi þegar tekið misl-
inga. Á Laugum munu um 40
mánns hafa fengið mislingana
og á Húsavík eru þeir nokkuð
útbreiddir.
Það má til tíðinda teljast, að
í fyrradag var eftirleit gerð um
allar Náttfaravíkur, Göngu-
skarð og Finnsstaðadal. Engin
kind fannst.
í dag er jarðsungin frá Nesi
í Aðaldal, Hálfdanía Jóhannes-
dóttir, ekkja Ármann Þorgríms-
sonar, sem látinn er fyrir nokkr
um árum. Þau bjuggu lengi
mjög góðu búi á Hraunkoti og
eignuðust mannvænlega afkom-
endur. □
Hreppurinn kaupir
Þórshöfn, 24. jan. Nýlega keypti
Þórshafnarhreppur hluta úr
Syðra-Lónslandi, eða þann
hluta, sem þorpið stendur á og
allmikið svæði umhverfis kaup-
túnið að auki. Kaupverðið var
tæpar 3 milljónir króna.
Landeigendur voru Vilhjálm-
ui' Guðmundsson, Ingimar Bald-
vinsson, Brynhildur Halldórs-
dóttir og fleiri.
Kaup á þessu landi voru kaup
túninu mjö’g nauðsynleg.
Kvenfélag Þistilfjarðar sýndi
sjónleikinn Mann og konu á
Svalbarði við ágæta aðsókn og
undirtektir um jólin. Ráðgert er
að sýna leikinn á Þórshöfn um
næstu helgi.
Sauðfé hefur lítið verið gefið
af heyi enn sem komið er, en
nokkurt kjarnfóður.
Vélaverkstæðið á Þórshöfn
fékk forstöðumann frá Reykja-
vík, Elías Arnlaugsson, sem nú
sezt þar að með fjölskyldu sína.
Nýr ábúandi er kominn í Heið
arhöfn, Lúðvík Jóhannsson frá
Skálum.
Jón Jónsson bóndi á Ytra-
Lóni, 84 ára að aldri, flutti ný-
lega, ásamt konu sinni, Stef-
aníu Friðriksdóttur, ljósmóður,
til Hornáfjarðar. Þau fengu
Tryggva Helgason frá Akureyri
til að flytja sig suður og tók
flugferðin eina klukkustund.
Jón er fæddur og uppalinn á
Langanesi, og bjó fyrst á Fagra-
nesi, hóf búskap þar skömmu
eftir aldamótin, en fluttist að
Ytra-Lóni 1930. Hann byrjaði
fyrstur manna að bólusetja fé
gegn bráðapest, sem þá var mik
il plága í þeim sveitum, en lét
af að mestu þegar bólusetning
var upp tekin.
í sumar veiddust fyrstu lax-
arnir í Lónsá, skammt frá Eld-
járnsstöðum.
í vetur lagðist tófa á fé á
Langanesi. Þótt unnizt hafi
nokkrar tófur, er óvíst að söku
dólgurinn sé þeirra á meðal. □
Bílfært yfir Lágheiði
Ólafsfirði, 24. jan. Enn er fært
á bifreiðum yfir Lágheiði og
hefur svo verið síðan fyi'ir jól,
án þess að vegurinn væi'i nokk-
urn tíma hrejnsaður. Mun þetta
alveg einsdæmi og sýnir hve
snjólétt er hér um slóðir.
Fiskur hefur verið heldui'
dræmari núna, en gæftir hafa
verið með ágætum það sem af
er janúarmán. og mikill fiskur
hefur borizt á land og því mik-
il atvinna þótt frystihúsið hafi
ekki fengið nægilegt hráefni.
Stígandi fékk 9 tonn norður hjá
Kolbeinsey á mánudaginn.
Bændur hafa sparað mikil
hey með því að beita fénu, og
stundum hefur féð legið úti. □
Byrjað að bora á
Húsavík á morgun
Húsavík, 24 jan. í gær var fyrsti
minkurinn unninn á Tjörnesi.
Gunnar í Arnarholti varð var
við minkaspor við Máná, gerði
oddvita, Úlfi á Héðinshöfða, að-
vart, en hann kvaddi til verks,
Njál Friðbjarnarson á Sandi.
Var svo leit gerð. Minkahundur
Njáls vísaði veginn upp með
ánni og loks í urðarholu. Þar
var minkurinn „sprengdur út“
en hundurinn greip hann og
drap.
Búið er að setja upp Norður-
landsborinn og verður byrjað
að bora á morgun ef veður
breytist ekki. Miklar vonir eru
bundnar við jai'ðhitaleitina. En
það þykir sýnt, m. a. af fyrri
borunum, að jarðhiti sé veru-
legur, enda hefur gamli Húsa-
víkur-Jón sennilega gengið
þannig frá málum við þann, sem
ræður í neðri byggð, að ekki
skorti hitann ef nokkuð djúpt
er borað.
Afli er sæmilegur og mikil og
góð vinna hefur verið.
Ær drepast úr eitrun
Reynihlíð, 24. jan. Steingrímur
Kristjánsson bóndi á Litlu-
Strönd hefur misst um eða yf-
ir 20 ær eftir áramótin úr sút'-
heyseitrun. Hefur hann notað
hvers konar meðul og skammta
en ekkert dugað.
Fyrr í þessum mánuði var
farið suður í Herðubreiðarlind-
ir í fjárleit. Veður og færi var
hið bezta en engin kind fannst
í þessum leiðangri.
Bílum og dráttarvélum er ek-
ið yfir vatnið. En fyrrum voru
flestir á skautum og vatnið var
samkomustaður fólksins. Nú
eru skautarnir ryðgaðir eða
týndir. □