Dagur


Dagur - 26.01.1963, Qupperneq 8

Dagur - 26.01.1963, Qupperneq 8
Litið inn lijá L axdælingum Laxárdal í S.-Þing. 6. jan. Vet- urinn frá áramótum til 14. apríl var harður, þó snjór væri ekki mjög mikill, þá mátti heita sam felld innistaða væri á flestum bæjum þann tíma. Snjór varð mestur um mánaðamót marz— ápríl. Frost voru oft hörð þenn- an tíma, mest aðfaranótt 15. marz 27. stig. Frost eru oft meiri hér en á Grímsstöðum Jörð spratt seint, og á nokkr- um bæjum varð mikið kal í tún um, þó ekki eins og sum verstu ár áður. Sauðburður mátti heita að gengi vel, og hey entust, með nokkrum fóðurbætisgjöfum. — Heyskapur byrjað ekki fyrr en undir miðjan júlí, og heyskap- artíð sæmileg þann mánuð. Þó spillti stórrigning 28. og 29. júlí mjög hér í dalnum. Ágúst var kaldur og óvenju sólarlaus, 3ja stiga frost var aðfararnótt 13. ágúst, og fáir þuri'kdagar. Nokkrir góðir þurrkdagar komu í september, en einnig óvenju hörð frost, mest 10 stig 25. sept. og þrisvar snjóaði, og rigningar voru oft kaldar. Heyskap lauk ekki fyrr. en seint í sept. og spretta varð að lokum góð, þar sem jörð var ekki kalin. Hey- fengur var meiri en í fyrra, en misjafn að gæðum. Tilbúinn á- burður var notaður með mesta móti í vor, en á sumum túnum notaðist hann illa. Fyrningar voru engar í vor, það teljandi var. Fé á fóðrum er 1450, fækkaði um 75 frá fyrra ári, nautgripir 48, sem er sama tala og f. á. og hestar 17, sama og f. á. Dilkar voru með lélegasta móti og ær mjög magrar í haust. Ræktun- arframkvæmdir voru ekki aðr- ar en að sáð var í 3,3 ha. hjá einum bónda og ekkert land brotið til nýræktar. Lokið var við byggingu íbúðarhúss í Ár- hvammi og flutt í það, en engai' nýbyggingar, og er þó bygg- ingaþörfin mikil bæði á íbúðai'- og útihúsum. Það miðast allt við það hér að halda við, en ráð ast ekki í nýjar framkvæmdir, og er þess tæplega að vænta, þar sem saman fer óhóflegt verð á byggingarefni og óvið- unandi láns- og vaxtakjör land- búnaðarins, enda segja eyðijarð irnar þá sögu frá landbúnaðin- um, sem ekki verður rengd. NAMSKEIÐI LOKIÐ Á AKUREYRI er lokið minna- mótornámskeiði Fiskifélags ís- lands. En það hófst 1. okt. og á því var 21 nemandi, sem allir l.uku prófi, 8 með ág.einkunn, 9 með I. einkunn, 3 með aðra og 1 með þriðju einkunn. Forstöðu- maður var Guðmundur Eiríks- son og kennarar auk hans Bragi Sigurjónsson, Grímur Sigurðs- son og Guðmundur Þorsteins- son. Prófdómarar voru þeir Stefán Halldórsson og Jón Ein- arsson. — Námskeiðið veitir rétt til gæzlu véla, allt að 400 hestafla. Skortur er á véla- mönnum á bátaflotanum. □ Engin fjárveiting var til ný- byggingar á veginum hér í daln um, en dálítið viðhaldsfé. Margt fólk hér átti eftir að taka misl- inga, því þeir hafa ekki gengið hér síðan 1882, en ein og ein manneskja fengið þá annars staðar, og hefur þetta haft mik- il óþægindi í för með sér á und anförnum árum, þegar misling- ar hafa gengið. í sumar voru allir fullorðnir, sem áttu eftir að fá mislinga, og þrjú börn spraut aðir með mislingum, og er talið að allir, að einum manni und- anskildum, hafi hlotið fullt ó- næmi gegn mislingum. Töluverð veikindi fylgdu þessu á sum- um, en engum alvarleg, og eft- irköst engin og er þungu fargi létt af sveitinni með þessum að- gerðurn. Söngkonan góðkunna Lizzy Þórarinsson á Halldórsstöðum lézt 20. marz, tæpra 87 ára að aldri og var jarðsett í heimá- grafreit 5. apríl. Margt fólk kom að jarðarförinni, en þó ekki nema hluti af því sem komið hefði, ef verður og færi hefði verið gott, en óveður var þenn- an dag. Hennar verður saknað og minnzt um langan aldur hér í dalnum. Heimilisfastir hér í dalnum eru 62 og hafði fjölgað um einn á árinu. Þetta skiptist þannig eftir aldri: yfir 80 ára (87) 1, 70 —80 ára 7, frá 50 ára til 70 ára 16, börn innan 10 ára 14, Frá 10 ára til 50 ára 24. Félagslíf er eðlilega lítið, þó gekkst Kvenfélag Laxdæla fyr- ir slægjufundi í nóvember, eins og nokkur undanfarin ár. Var boðið nokkru af utansveitar fólki og skemmtu menn sér við kaffidrykkju og ræðuhöld, söng, upplestur og dans. Við erum rafmagnslausii' í 6 —12 km fjarlægð frá Laxár- virkjun, en heyrzt hefur að við værum á áætlun með rafmagn 1964. Það er nokkuf ótti í okkur hér í dalnum við væntanlegar virkjunarframkvæmdir við Lax (Framhald á blaðsíðu 7). Hún lieitir Krúna, er á fimmta vetur og eignaðist tvær sprækar, hyítar gimbrar 18. þ. m. Eigandi er Kristín Sigurðardóttir á Ingj- aldsstöðum í Reykdælahreppi. (Ljósmynd: E. V.) Skíðaflug Flugfélagsins á Grænlandi f BYRJUN marz-mánaðai’ mun ein af flugvélum Flugfélags ís- lands fljúga til Grænlands bú- in skíðum og flytja farþega og nauðsynjar til margra einangr- aðra staða á austurströndinni. Samningur milli Konunglegu Grænlandsverzunarinnar og Flugfélags íslands um skíða- flugið var undirritaður í Kaup- mannahöfn nýlega. Fyrir nokkrum mánuðum barst Flugfélagi íslands fyrir- spurn frá hinni Konunglegu Grænlandsverzlun um það, hvort félagið gæti tekið að sér flutninga til stöðva á austur- strönd Grænlands með vistir, póst og e. t. v. farþega. Þess var getið að ekki mundi hægt að lenda á þessum stöðum nema á flugvél búinni skíðum. Þar sem hér var um algjört nýmæli að ræða í starfsemi fé- lagsins fóru víðtækar athugan- ir fram á væntanlegri fram- kvæmd og leiddu þær í ljós, að félagið gæti tekið þetta verk- efni að séf. Samningur um nokkrar tilraunaferðir var und- irritaður 4. jan. sl. Ein af Douglas DC-3 flugvélum félags- ins, „Gljáfaxi”', verður nú búin skíðum og hefur þegar verið gengið frá aukaútbúnaði í flug- vélinni, vökvadælu og leiðslum til þess að hækka eða lækka skíðin, en flugvélin getur eftir að skíðin hafa verið sett undir, lent á skíðum eða hjólum eftir því sem hentar. Skíðin sem sett verða undir „Gljáfaxa“ eru bandarísk, keypt frá Federal Ski and Engineer- ing Co. í Minneapolis. Þau eru úr málmblöndu, sér- staklega húðuð og af beztu fá- (Framhald á blaðsíðu 7). Engin kind fannst Ófeigsstöðum, 24. jan. Mislingar eru á tveim bæjum hér í sveit og búizt við að fólk á nokkrum bæjum hafi þegar tekið misl- inga. Á Laugum munu um 40 mánns hafa fengið mislingana og á Húsavík eru þeir nokkuð útbreiddir. Það má til tíðinda teljast, að í fyrradag var eftirleit gerð um allar Náttfaravíkur, Göngu- skarð og Finnsstaðadal. Engin kind fannst. í dag er jarðsungin frá Nesi í Aðaldal, Hálfdanía Jóhannes- dóttir, ekkja Ármann Þorgríms- sonar, sem látinn er fyrir nokkr um árum. Þau bjuggu lengi mjög góðu búi á Hraunkoti og eignuðust mannvænlega afkom- endur. □ Hreppurinn kaupir Þórshöfn, 24. jan. Nýlega keypti Þórshafnarhreppur hluta úr Syðra-Lónslandi, eða þann hluta, sem þorpið stendur á og allmikið svæði umhverfis kaup- túnið að auki. Kaupverðið var tæpar 3 milljónir króna. Landeigendur voru Vilhjálm- ui' Guðmundsson, Ingimar Bald- vinsson, Brynhildur Halldórs- dóttir og fleiri. Kaup á þessu landi voru kaup túninu mjö’g nauðsynleg. Kvenfélag Þistilfjarðar sýndi sjónleikinn Mann og konu á Svalbarði við ágæta aðsókn og undirtektir um jólin. Ráðgert er að sýna leikinn á Þórshöfn um næstu helgi. Sauðfé hefur lítið verið gefið af heyi enn sem komið er, en nokkurt kjarnfóður. Vélaverkstæðið á Þórshöfn fékk forstöðumann frá Reykja- vík, Elías Arnlaugsson, sem nú sezt þar að með fjölskyldu sína. Nýr ábúandi er kominn í Heið arhöfn, Lúðvík Jóhannsson frá Skálum. Jón Jónsson bóndi á Ytra- Lóni, 84 ára að aldri, flutti ný- lega, ásamt konu sinni, Stef- aníu Friðriksdóttur, ljósmóður, til Hornáfjarðar. Þau fengu Tryggva Helgason frá Akureyri til að flytja sig suður og tók flugferðin eina klukkustund. Jón er fæddur og uppalinn á Langanesi, og bjó fyrst á Fagra- nesi, hóf búskap þar skömmu eftir aldamótin, en fluttist að Ytra-Lóni 1930. Hann byrjaði fyrstur manna að bólusetja fé gegn bráðapest, sem þá var mik il plága í þeim sveitum, en lét af að mestu þegar bólusetning var upp tekin. í sumar veiddust fyrstu lax- arnir í Lónsá, skammt frá Eld- járnsstöðum. í vetur lagðist tófa á fé á Langanesi. Þótt unnizt hafi nokkrar tófur, er óvíst að söku dólgurinn sé þeirra á meðal. □ Bílfært yfir Lágheiði Ólafsfirði, 24. jan. Enn er fært á bifreiðum yfir Lágheiði og hefur svo verið síðan fyi'ir jól, án þess að vegurinn væi'i nokk- urn tíma hrejnsaður. Mun þetta alveg einsdæmi og sýnir hve snjólétt er hér um slóðir. Fiskur hefur verið heldui' dræmari núna, en gæftir hafa verið með ágætum það sem af er janúarmán. og mikill fiskur hefur borizt á land og því mik- il atvinna þótt frystihúsið hafi ekki fengið nægilegt hráefni. Stígandi fékk 9 tonn norður hjá Kolbeinsey á mánudaginn. Bændur hafa sparað mikil hey með því að beita fénu, og stundum hefur féð legið úti. □ Byrjað að bora á Húsavík á morgun Húsavík, 24 jan. í gær var fyrsti minkurinn unninn á Tjörnesi. Gunnar í Arnarholti varð var við minkaspor við Máná, gerði oddvita, Úlfi á Héðinshöfða, að- vart, en hann kvaddi til verks, Njál Friðbjarnarson á Sandi. Var svo leit gerð. Minkahundur Njáls vísaði veginn upp með ánni og loks í urðarholu. Þar var minkurinn „sprengdur út“ en hundurinn greip hann og drap. Búið er að setja upp Norður- landsborinn og verður byrjað að bora á morgun ef veður breytist ekki. Miklar vonir eru bundnar við jai'ðhitaleitina. En það þykir sýnt, m. a. af fyrri borunum, að jarðhiti sé veru- legur, enda hefur gamli Húsa- víkur-Jón sennilega gengið þannig frá málum við þann, sem ræður í neðri byggð, að ekki skorti hitann ef nokkuð djúpt er borað. Afli er sæmilegur og mikil og góð vinna hefur verið. Ær drepast úr eitrun Reynihlíð, 24. jan. Steingrímur Kristjánsson bóndi á Litlu- Strönd hefur misst um eða yf- ir 20 ær eftir áramótin úr sút'- heyseitrun. Hefur hann notað hvers konar meðul og skammta en ekkert dugað. Fyrr í þessum mánuði var farið suður í Herðubreiðarlind- ir í fjárleit. Veður og færi var hið bezta en engin kind fannst í þessum leiðangri. Bílum og dráttarvélum er ek- ið yfir vatnið. En fyrrum voru flestir á skautum og vatnið var samkomustaður fólksins. Nú eru skautarnir ryðgaðir eða týndir. □

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.