Dagur - 27.02.1963, Page 8

Dagur - 27.02.1963, Page 8
8 Leikfélag Akureyrar frumsýnir Tehús ágústmánans á morgun, fimmtudag. Hér eru leikarar og J starfsinenn Leikfélags Akureyrar á æfingu. (Ljósm. Eðvarð Sigurgeirsson).} MERK STOFNUN 100 ÁR A FYRIR rúmri öld fundust nokkrir merkir munir úr sögu- aldarkumli hjá Baldursheimi í Mývatnssveit, og komust þeir í hendur Jóns Sigurðssonar al- þingismanns á Gautlöndum og Arngríms Gíslasonar málara. Munir þessir, sem fundust 1860 og 1861, urðu stofnmunir Forn- gripasafnsins, ásamt allmörgum fornum gripum séra Helga Sig- urðssonar, síðar prests á Melum í Melasveit. Fram að þeim tíma höfðu er- lendir ferðamenn látið greipar sópa um forna muni hér á landi og íslendingar höfðu engan ann an samastað fyrir þá en safn konungs í Kaupmannahöfn. Tal ið er, að úrslitum um íslenzkt fornminjasafn hafi ráðið sköru- leg grein Sigurðar Guðmunds- sonar málara, er birtist í Þjóð- ólfi 24. apríl 1862. En hinn 24. febrúar árið eftir var safnið formlega stofnað og það átti því 100 ára afmæli sl. sunnudag. Hefur þess verið minnzt í blöð- um og útvarpi. Fornminjasafnið, sem síðar hlaut nafnið Þjóðminjasafn ís- lands, er nú í mörgum deildum, telur tugþúsundir safnmuna og þjóðminja og nýtur virðingar, sem merk og þýðingarmikil stofnun. Alls hafa 7 menn veitt safn- inu forstöðu. Þeir eru: Jón Árnason, Sigurður Guðmunds- son, Sigurður Vigfússon, Pálmi Pálsson og Jón Jakobsson. Árið 1908 tók Matthías Þórðarson við safnvörzlu og hafði hana á hendi til 1947. Þá tók við Krist- ján Eldjárn og hefur gegnt því starfi síðan. Fyrst var safnið' til húsa á lofti dómkirkjunnar, þá í hegn- ingarhúsinu til ársins 1881 að það fluttist í nýja Alþingishús- ið. Árið 1899 fékk safnið inni í Landsbankahúsinu eldra, en síðan í Safnhúsinu við Hverfis- götu árið 1908. Nú er það í glæsilegum húsakynnum í næsta nágrenni Háskólans. Dr. Kristján Eldjárn þjóð- minjavörður ritaði ágæta bók um safnið í tilefni afmælisins, bókin er í endurprentun. Þótt ísland hafi skemur verið í byggð en nágrannalönd okkar, og sögulegar heimildir því ó- slitnar og sæmilega öruggar, eru hér næg verkefni fornleifa- rannsókna. En sjálft er þjóðminjasafnið hin gleggsta mynd af sögu þjóð- arinnar og lífsháttum hennar, sem til er á einum stað og al- menningur á aðgang að. Fjölmenni í Hlíðarfjalli SKÍÐARÁÐ Akureyrar hefur veitingasölu um helgar í Skíða- hótelinu í Hlíðarfjalli. Svo virð- ist, sem fólki líki þetta vel. En mörg hundruð manns hafa brugðið sér upp í Hlíðarfjall síð ustu sunnudaga og notið útivist ar. Mikið er enn ógert við hótel bygginguna. En þó er ekki of- Afli Akureyrar-fogaranna 1962 mælt, að þar séu húsakynni þeg ar hin glæsilegustu. í ráði er að leigja út svefnpokapláss í hótelinu um helgar og verða þá væntanlega kvöldvökur fyrir gesti. Sl. sunnudag, þann 24. febr. kl. 14.00 var haldið skíðamót í Hlíðarfjalli. Var það flokkasvig, og tóku fjórar sveitir þátt í því. Þrjár frá Akureyri og ein úr Menntaskólanum. Brautarlengd var 250 m, fallhæð 85 m og 35 hlið. Úthalds Afli Veiði- Afli pr. Samt. Veiðif Þai' af < ; Leikar fóru þannig að A-sveit dagar alls kg dagar veiðid. lýsi alls sigl. í ! Akureyringa sigraði á 354.8 sek. Kaldbakur 165 722.592 86 8.450 18.866 6 6 | ! samanlagt, en sveitin var skipuð Svalbakur 235 1.514.669 148 10.217 20.304 12 5 i ; þessum mönnum: Otto Thulini- Harðbakur 209 1.335.052 129 10.309 21.855 11 5 i ; us, Magnúsi Ingólfssyni, ívari Sléttbakur 245 1.479.448 150 9.830 37.470 13 6 i ! Sigmundssyni og Reyni Brynj- Hi'ímbakur 77 421.809 54 7.810 4.223 5 1 ; ! ólfssyni. f öðru sæti varð sveit Samtals 931 5.473.570 567 9.655 102.718 47 23 : ; Menntaskólans á 387.2 sek. sam- Ath. Þyngd afla er miðuð við slægðan fisk með haus, annan en ! > anlagt, en sú sveit var skipuð karfa, sem er óslægður, og saltfisk upp úr skipi, en þyngd hans er tvöfölduð. Ráðstöfun afla: Selt erlendis í 23 söluferðum 2.936.270 kg. Selt innanlands utan Akureyrar 43.065 kg. Losað á Akureyri: Selt nýtt úr skipunum 700 kg., umhlaðið til útflutnings 60100 kg., selt Krossanesi, úrgangsfiskur 52150 kg., til vinnslu hjá Ú. A. 2381285 kg„ samtals 2.494.235 kg. Alls 5.473.570 kg. Framleiðsla og útflutningur: Útflutt og selt: 26.721 kassi eða 676 smál. freðfiskur, 33 smál. skreið, 19 smál. óv. saltfiskur, 9 smál. v. saltfiskur, 88,343 smál. lýsi. Birgðir 31. des. ea. 2.379 kassar eða 53 smál. freðfiskur, 57 smál. skreið, 0 smál. óv. saltfiskur, 25 smál. v. saltfiskur, 14,375 smál. lýsL i — .!___________ eftirtöldum mönnum: Guð- mundi Tulinius, Eiríki Ragnars- syni, Birni R. Bjarnasyni og Theodór Blöndal. í þriðja sæti varð C-sveit Akureyringa á 401.6 sek. samanl., en B-sveit Akureyringa var dæmd úr leik. Skíðaráð Akureyrar sá um mótið. Ovenju margt áhoi'fenda var á mótinu, enda hið fegursta veður. □ Baguk kemur út laugardaginn, 2. marz. Nítján býli í Eyjafirði fá rafmagn Sölvadalur og Garðsárdalur ekki á framkv.skrá SAMKVÆMT upplýsingum Ing ólfs Árnasonar rafveitustjóra, munu 19 bændabýli í framan- verðum Eyjafirði fá rafmagn nú í vikunni .Verða þau tengd raf- magnsveitum ríkisins á orku- veitusvæði Laxárvirkjunar. Þá verður rafveituframkvæmdum lokið í Eyjafirði fram, því að ekki er áætlað að leiða rafmagn í Sölvadal eða Garðsárdal. Hér er um merkan áfanga að ræða, sem verður fagnað heilshugar þótt margir hefðu vænzt þess, að fyrr hefði verið. Bæir þeir, sem nú fá rafmagn eru þessir. Að austan: Æsustað- ir, sem þó verða ekki tengdir fyrr en síðar á árinu, Arnarstað ir, Arnarfell, Grænahlíð, Hólar, Hólakot, Vatnsendi og Tjarnir. . Vestan ár: Nes, Gilsá I, Gilsái.; II, Gullbrekka, Skáldsstaðir, Ár tún, Jórunnarstaðir, Leyningur, Villingadalur, Torfufell og Hóls gerði. Þá hefur rafmagn verið leitt í Hólakirkju. AÐRAR FRAMKVÆMDIR Ennfremur fékk blaðið þær upplýsingai' hjá Ingólfi Árna- syni, að raforkuráð hefði gert tillögur um þessar raforkufram- kvæmdir í nágrannabyggðum: í Hörgárdal frá Lönguhlíð að Flögu, en á því svæði eru 14 bæir. í Skíðadal frá Dæli að Klængshóli og kæmu þar 6 bæ- ir til viðbótar. í Fnjóskadal frá Hrísgerði að Melum, en þar er um að ræða 13 bæi. Og enn ger- ir raforkuráð að tillögu sinni, - að .lagtrverði rafmagn á Tjör- "nesi'frá Húsavík að Máná. □ Nýr skákmeistari Norðurlands - Freysteinn Þorbergsson frá Siglufirði Til vinstri: Freysteinn Þorbergsson og Jón Þór. (Ljósm. J. Stef.). SKÁKÞINGI Norðlendinga, sem hófst á Akureyri 10. febr., var slitið sl. laugardag, 23. febr., með viðhöfn á Hótel KEA. Á þinginu voru 28 keppend- ur, 11 í meistaraflokki, 7 í fyrsta flokki og 10 í öðrum flokki. Teflt var í Landsbankasaln- um. Skákstjórar voru Haraldur Bogason og Haraldur Ólafsson. Freysteinn Þorbergsson varð skákmeistari Norðurlands, hlaut 9 vinninga af 10 möguleg- um. Lárus Johnsen skákmeist- ari frá Reykjavík, er tefldi sem gestur, fékk sömu vinningatölu. Jón Þór fékk 7 vinninga, Ólafur Kristjónsson 614, Halldór Jóns- son 6 og Hjörleifur Halldórsson 5 vinninga. í fyrsta flokki sigraði Hauk- ur Jónsson með 5% vinning. Guðmundur Búason fékk 414 vinning og Snorri Sigfússon 314 vinning. Haukur flyzt nú upp í meistaraflokk. í öðrum flokki sigraði Tryggvi Pálsson, fékk 7 vinninga, næst- ur Þorgeir Steingrímsson með 614 vinning. 3.—4. sæti skipuðu Jóhann Sigurðsson og Ævar Ragnarsson með 6 vinninga. Tryggvi flyzt nú upp í fyrsta flokk. í hraðskákkeppninni voru 40 keppendur. Keppendum var fyrst skipt í 3 riðla og komust 14 í úrslit. Þar urðu úrslit þau, að í 1.—3. sæti urðu Lárus Johnsen, Halldór Jónsson og Helgi Jónsson með 9 vinninga hver. Fjórði varð Júlíus Boga- son með 8V2 vinning. Halldór og Helgi tefldu til úrslita og sigraði Halldór. Halldór Jóns- son er því hraðskákmeistari Norðurlands 1963. Mótið fór hið bezta fram. í II. flokki voru nokkrir ung- ir drengir, sem þóttu standa sig rneð prýði. En sennilega mun Jón Þór hafa komið skákmönn- um mest á óvart að þessu sinni. r V estur-Islendingar RÚMLEGA eitt hundrað íslend- ingar og afkomendur íslendinga í Vesturheimi hafa ákveðið að heimsækja ísland í sumar. Hóp- urinn er væntanlegur hingað um miðjan júní og mun dveljast hér þar til í byrjun júlímánaðar. . „Ströndin11, þjóðræknisdeild Islendinga í Vancouver, hefur , skipulagt ferðina. Mjög margir þátttakendur í hinni fyrirhuguðu íslandsferð hafa látið í ljós óskir um að hitta hér ættingja og vini. Q

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.