Dagur - 31.08.1963, Blaðsíða 8

Dagur - 31.08.1963, Blaðsíða 8
8 LönduiirbiS á Raufarhöfn Mörg skip fengu góðan afla í fyrrinótt Speilvirki framin í Bægisárhyt? Þar liggur bleikjan dauð í hundraðatali SVO BAR TIL á laugardaginu, að fólkið á Bægisá i Hörgárdal sá hundruð dauðra silunga í svonefndum Bægisárhyl í Hörgá. En fáum dögum áður hafði . mikið af silungi, bleikju, gengið í ána og í nefndan hyl. Þar of- an við er hindrun, þegar Hörgá er vatnslítil svo sem nú er. En þegar svo stendur á, safnast oft mikið af silungi í Bægisárhyl- inn. Baldur Þorsteinsson bóndi á Bægisá, sagði blaðinu svo frá í fyrradag, að útlit væri fyrir, að hér hefðu spellvirkjar verið að verki og sprengt í hylnum, því hvergi var þar net að finna eða (Framhald á blaðsíðu 4). SUNDLAUGIN á Laugalandi á Þelamörk, sem sumir kalla Jónasarlaug er trú sínu hlut- verki. Hún er rammlegá girt og hitinn kemur úr iðrum jarð- ar. Þar skammt frá og fjær á myndinni er risin myndarleg bygging, heimavistarbarnaskóli, sem þrír hreppar standa að. Vonir standa til, að kennsla hefjist þar nú í haust, hvort sem skólinn verður settur á „réttum“ tíma eða eitthvað síð- . ar. Tveir menn hafa sótt um skólastjórastöðu hins nýja skóla, og eru það þeir Jóhannes Oli Sæmundsson og Sæmundur Bjamason. Yfirvöldin hafa ekki ennþá veitt starfið, en tæplega ætti það að dragast lengi úr þessu. Ekki hefur heldur verið skipaður eða settur nýr skóla- nefndarformaður hins nýja skólahverfis, sem nú nær yfir Óxnadals- Skriðu og Glæsibæj- arhrepp. Væntanlega verður nánar sagt frá Laugalandsskólanum nýja, um það leyti að kennsla hefst þar. Lengst til vinstri á myndinni er íþúðarhúsið á Laugalandi. Akureyrax-bær lét á sínum tíma bora eftir heitu vatni á þessum stað, og varð árangur góður fyrir eldri og yngri mann- virki staðarins. Q Raufarhöfn 30. ágúst. Við feng- um að sjá síldina aftur. í nótt komu 20 skip með um 12 þús. mál og í gær 25 skip með 15—18 þús. mál. Síldin veiðist um 60 mílur út af Raufarhöfn. Hún er smá og blönduð. Saltað var í nótt á öllum plönum, en fólk er fátt og mjög mikið gengur úr síldinni, svo söltunin er ekki mikil. Hér er komin löndunar- bið og eitthvað af skipum fer vestur til Siglufjarðar, Búið er að salta 73.787 tunnur og bræða 150 þús. mál. Söltunin er aðeins Ráðstefna um réttindi barna MEÐAL þeirra efna, sem rædd eru á svæðisbundinni ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Varsjá dagana 6. — 19. ágúst, eru hin skaðlegu áhrif sem ákveðnar glæpa- og hryllingsfrásagnir í myndablöðum, útvarpi, sjón- varpi og á kvikmyndum, hafa Byggrækfin í S.-Þingeyjarsýslu Akrarnir eru 60 ha að stærð og kornið nær góð- um þroska ef hlýtt verður í vcðri á næstunni BYGGRÆKTIN í Suður-Þing- eyjarsýslu, sem hófst í fyrra og er félagsræktun allmargra bgenda, gaf lítið í hönd þá. Sáð var í sömu akra í vor, samtals 60 ha. á tveim stöðum, Öxará og Einarsstöðum. skurðar- og þreskivél og enn fremur kornþurrkara. Ekki hefur þess verið getið, að gæsir hafi sótt í kornakr- ana. □ MÍKÍL HEY OG GÓÐ á börn. Efni ráðstefnunnar er „réttindi barnsins". Þátttakend- ur verða frá 25 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna eða sér- stofnana þeirra í Evrópu. Meðal þeirra eru háttsettir embættis- menn í félagsmálastarfi ein- stakra ríkja, prófessorar í lög- um, fulltrúar ákæruvaldsins og uppeldisfræðingar. Umræður ráðstefnunnar munu fara fram á grundveíli yfirlýsingarinnar um réttindi bamsins, sem samþykkt var af Allsherjarþinginu 20. nóvember 1959. í 10 liðum kveður yfirlýs- ingin á um rétt bamsins til þess m. a. að njóta sérstakrar vernd- ar, að fá tækifæri til að þrosk- ast á he'ilbrigðan og eðlilegan hátt við frjálsar og mannsæm- andi aðstæður og að alast upp „í anda skilnings, umburðar- lyndis, vináttu þjóða á milli, friðar og alþjóðlegs bræðra- lags“. Til að komast að niðurstöðu um, hvernig bezt verði stuðlað að framkvæmd þessara mark- miða, ræðir ráðstefnan m. a. vandamál eins og: vanrækslu eða grimmd, læknishjálp, leikir og dægradvalir, vangefin börn og loks skaðlegar skemmtanir. Skapa hryllingskvikmyndir afbrotmaenn? í skýrslu sem samin hefur verið fyrir ráðstefnuna af dr. John R. Rees, sem er forseti World Federation for Mental Health, segir að ekki hafi verið færðar sönnur á það, að afbrota menn verði til vegna slæmra kvikmynda og hryllingssagna. Það séu djúpstæðari þættir í sál barnsins sem fái útrás í árás (Framh. á bls. 2). minni en á sama tíma í fyrra og helmingi minni bræðslusíld en þá var. Hæstu söltunarstöðin er Ósk- arsstöð með 17.348 tunnur, þá Óðinn með 14.176 og þriðja í röðinni er Hafsilfui' með 12.871 tunnur. Þorskafli hefur verið tregur í allt sumar. Nú hefur brugðið til hlýrri veðráttu. Q li Dagui . KEMUR NÆST ÚT MID- j| :: VIKUDAGINN 4. SEPTEM-;; I<» BER. i| ELDUR ÁHipGANS Ófeigsstöðum 28. ágúst. Okkur líður vel í Kinn, en óþarflega finnst okkur kalt um nætur. Yfirleitt er kartöflugras gjör- fallið. Það verður létt haust- vinna við garðávextina að þessu sinni. Hér hafa ungir Framsóknar- menn stofnað félag og fundur var haldinn í félagi okkar, hinna eldri. Hér er eldur á hverjum fingri áhuga og sam- heldni í baráttunni fyrir vel- farnaði lands og þjóðar. Heyskapur er þokkalegur orð inn þó háarspretta væri víða lé- leg vegna kuldanna. Hér er ver- ið að ræða um vatnasvæði Skjálfandafljóts, með laxveiði fyrir augum. Q Kornið stendur vel og akrarn- ir eru fagrir yfir að líta. En enn þá vantar a. m. k. hálfsmánaðar hagkvæma veðráttu fyrir kornið. Á fimmtudagsnótt- ina gerði 3ja stiga frost og kann það að hafa skemmt kjarnana, þótt ekki sé það fram komið. Uppskeruvinna hefst þegar kornið, sem nær eingöngu er bygg, tví- og sexraða, er þrosk- að. Bændur eiga góða korn- Bíllimi endastakkst FÓLKSBIFREIÐ úr Eyjafirði, sem um stund stóð mannlaus við Gamla spítalann á Akur- eyri, rann allt í einu af stað niður brekkuna en endastakkst síðan í snarbröttum kanti eða brekku ofan við Hafnarstræti 29, en staðnæmdist þar. Q Svarfaðardal 29. ágúst. Heyskap er að Ijúka í Svarfaðardal. Hey eru mikil, því spretta var góð. Heyin hafa ekki hrakizt til skemmda, bæði vegna kuld- anna og þess að úrkomur hafa ekki verið miklar. Háarsprettan var víðast hvar fremur lítil. — Súgþurrkun er mjög víða og auðveldar að miklum mun hey- verkunina. Útlit er víðast slæmt hvað snertir kartöfluuppskeru. Kart- öflugrasið féll í mörgum görð- um í júlí og svo voru einnig næturfrost í ágúst. Slægjufagn- aðurinn er á næstu grösum og er aðeins fyrir innansveitar- fólk. Minkar hafa gert vart við sig í sumar. Lítið veiðist í Svarfað- ardalsá og fuglalíf fer þverr- andi. □ Þessi mynd var í sumar tekin í Glerárhverfi á Akureyri, suður yfir Gefjunar-hverfið og hæðir þær, sem bærinn hefur teygt byggð sína á. Milli hinni lágu og löngu verksmiðjuliúsa og hæðanna, renn- ur Glerá og er orka hennar enn þá ekki nýtt að nokkru ráði, þótt hún renni um kaupstaðinn og búi yfir mikilli orku til rafmagnsframleiðslu. — Norðan Glerár er land sérlega fagurt og tilbreytingu landslagsins lítil takmörk sett. Þar eru nú byggðir að þéttast og íbúðahverfi að rísa. En klettaborg- imar mörgu, sem þar eru, munu reyna á hugkvæmni og skipulagsgáfu þeirra, sem nýbyggingum ráða þar á komandi árum. (Ljósmynd: E. D.)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.