Dagur - 30.10.1963, Síða 4

Dagur - 30.10.1963, Síða 4
4 3 SVO FÓR UM SJÓ- FERÐ ÞÁ EITT af því, sem Gunnar Thorodd- sen gerðist fjölorðastur um, þegar liann kom í fjármálaráðuneytið fyrir fjórum árum, var nefndakostnaður ríkisins. Ráðherrann var ekkert myrkur í máli um það, að hann myndi án tafar leggja til atlögu við „nefndafarganið" og hvergi af sér draga, enda myndi þess j)á skammt að bíða, að sú barátta bæri árangur, sem um munaði. Nú alveg nýlega var ríkisreikn- I ijignum fyrir árið 1963 útbýtt á Al- þingi. Þar kemur í ljós, að í „óviss- um útgjöldum“ er fram talinn á því ári kostnaður við 17 nefndir nafn- greindar, en þær eru þessar: At- vinnumálanefnd, Beitunefnd, Bún- aðarfræðslunefnd, Jafnlaunanefnd, Kauplagsnef nd, Lyf jaskrámefnd, ' Matsnefnd veitingahúsa, Nefnd sam- kvæmt 25. gr. launalaga, Nefnd til að úrskurða eftirgjöf aðflutnings- flutningsgjalda af bifreiðum, Nefnd samkv. lögum nr. 48, 1958, Samn- inganefnd um kjaramál, Samstarfs- nefnd ríkissj. og S. B. R. B. um launa og kjaramál, Stóriðjunefnd, Vega- laganefnd, Vinnumálanefnd Kefla- víkurflugvallar, Vinnutímanefnd og Orlofsnefnd. En það er meira blóð í kúnni. I sömu sundurliðun óvissra útgjalda, er þarna talinn kostnaður við 9 „athuganir“, sem svo eru nefnd ar. Það er nokkurn veginn víst, að níu nefndir hafa verið þar að verki, en það er eins og íáðherrann hafi veigrað sér við að geta þess. Þetta eru sem sé felunefndir, en sjást þó, ef að er gáð. En felunefndirnar eru fleiri í þess um kafla ríkisreikningsins. Á einum stað er tilgreindur kostnaður (nálega 1 millj. kr.) við „lagafrumvörp og reglugerðir". Þama þykjast kunnug- ir sjá glitta í nefndir og ekki fáar, sem ríkisstjómin hefur skipað til að vinna fyrír sig að undirbúningi stjómarfrumvarpa og við að semja reglugerðir um framkvæmd ýmissa laga. Til þessa eru yfirleitt ráðnir þingmenn úr stjórnarflokkunum og stundum embættismenn þeim til að- stoðar. Það er sennilega ekki of í lagt, að áætla samkvæmt þessu, að felunefnd- irnar séu álíka margar og hinar, sem nafngreindar eru í þessum kafla ríkisreikningsins. Og þó er liér að- eins um þær nefndir að ræða, sem færðar eru á þá grein ríkisreikn- ingsins, sem nefnist „óviss útgjöld". í öðmm greinum reikningsins er til- greindur kostnaður við fjölda fasta- nefnda, sem starfa samkvæmt ýmsum lögum og ekki verða taldar hér. Dagur hefur ekki aðstöðu til að dæma um það, hver nauðsyn hafi borið til að skipa svo margar nefnd- ir, eða hve gagnleg störf þær hafi unnið. Og víst eru vel skipaðar nefnd ir nokkur trygging fyrir því, að vel sé að undirbúningi mála unnið. En hitt er augljóst, að skrafi fjármála- ráðherra um „nefndafargan“ hefur lítil alvara fylgt á sínum tíma. Þar var um ómengað lýðskrum að ræða. Síðasti bóndinn á Rangalóni Rætt við Sigurð Haraldsson sjötugan SIGURÐUR HARALDSSON, Hafnarsti'æti 90 á Akureyri varð sjötugur hinn 25. október sl. Hann er nágranni Dags, býr uppi á loftinu í gamla Kaupfé- lagshúsinu, og er góður ná- granni; hinn prúðasti maður í allri umgengni og drengur hinn bezti. Sigurður er fæddur á Merki á Jökuldal og' var þar til 5 ára aldurs. En faðir hans, Haraldur Sigurðsson og Aðalbjörg Hall- grímsdóttir kona hans bjuggu á ýmsum heiðabýlum austur þar, svo sem á Rangalóni, Veturh.ús- um og Háreksstöðum og á þeim bæjum ólst Sigurður upp. En árið 1912 gerðist hann kaupa- maður Stefáns Einarssonar í Möðrudal, en stundaði nám við Gagnfræðaskólann á Akureyri STOKUR GUNNAR. S. Hafdal kvað eitt nýliðið kvöld þessa vísu: Sífrjór meiður lindar lifir, lauf þótt deyði haustið svalt. Nóttin breiðir blæju yfir brúna heiði, fölið kalt. Eitt sinn kom Karl Kristjáns- son heim til Gunnars skálds í Sörlatungu, og gerði vísu þessa er hann kom upp á bæjarhól- inn: Fjöll með linda-fiðlum sungu fossar tóku undir það. En svo var skáld í Sörlatungu, sem að miklu hærra kvað. Hafdal svaraði og sagði: Ljóðasmið er létt um vöku, landsmálanna jarli. Þakka eg þekka stöku þingmanninum Karli. Til Jóns í Pálmholti NÝLEGA barst mér blað af Degi með vísu til mín frá Jóni í Pálmholti, sem ég skil ekki fyllilega. Það skal fúslega játað, að ég verðskulda skammavísu frá Jóni, en ég vil helzt geta skilið hana. Atomskáldin óljóst kveða. Almenningur leitar frétta: Er það prentvillupúkinn eða Pálmholts-Jón, sem yrkir þetta? Steingrimur í Nesi. Enn hafa menn sitthvað að segja um Grundarmálið: T. J. sendir þessa vísu: Hæstiréttur hérna var heiðri Grundar bjarga. Sigur einn úr býtum bar, barðist þó við marga. Og S. sendir þessa: Snæbjörn brjálar sjálfan sig, sundrung mála skapar. Fram á hálan fetar stig, flytur mál og tapar. S. á vetrum og útskrifaðist þaðan árið 1915. Þá gerðist hann far- kennari tvo vetur á Jökuldal og Hólsfjöllum, giftist 1917 Hróð- nýju Stefánsdóttur frá Möðru- dal og hóf búskap í Möðrudal og bjó þar til ársins 1922 að hann flutti í Rangalón. Þar bjó hann í tvö ár. Þaðan fluttist Sigurður að Stuðlafossi í Jök- uldal og bjó þar til 1928. Á Norðfirði dvaldi Sigurður um skeið og stundaði þá barna- kennslu og var umboðsmaður Brunabótafélags íslands þar á staðnum. Hingað til Akureyrar lá leiðin 1930. Hér hefur Sigurð ur lagt gjörva hönd á margt, starfaði t. d. 14 ár við Nýja Bíó," lengi við bókband, sjö sumur við brúarsmíði með Jónasi Snæ- björnssyni og á Skattstofunni á Akureyri um fjölda ára. Ég hitti Sigurð Haraldsson að máli litla stund á mánudaginn og átti við hann eftirfarandi við tal: Hvað manstu eftir mörgum byggðiun bæjum á Jökuldals- heiði, Sigurður? Fyrir og um aldamótin voru 17 býli á Jökuldalsheiði, sem mér eru í minni og margt fólk á ýmsum þeirra. Nú eru þau öll komin í eyði. Hið siðasta þeirra fór úr ábúð 1946, Heiðasel, sem var syðsta byggð á heiðinni. Það er mikil breyting og reynd- ar ömurlegt til þess að hugsa að þetta mikla og að sumu leyti ágæta land, skuli nú vera með öllu yfirgefið og engin byggð þar lengur. Jökuldalsheiðin ól þó upp marga vaska menn og konur, að vísu í nokkuð hörð- um skóla. En sannleikurinn var sá, að á meðan búin voru lítil eins og þá var títt, og allir reyndu að komast af með sem minnst, voru heiðabýlin nota- drjúg. Þar voru kindur mjög vænar, og á meðan fært var frá, áttu heiðabúar löngum góðan vetrarforða af afbragðsfæðu. Þá munu ferðalög hafa verið erfið? Já, miðað við það, sem nú er. Þá var farið á hestum hvert sem farið var. Og þá kom þrek og þol hestanna í góðar þarfir, ennfremur ratvísi þeirra. Haust ið 1909 gerði svo mikinn snjó í sláturtíðinni, að bændur voru á þriðju viku í ferðinni með slát- urfénaðinn, til Vopnafjarðar og heim aftur. Það tók 8 daga að reka féð. Bændur á Jökuldal fóru þá út allan Jökuldal og Jök ulsárhlíð, út á Hellisheiði og þaðan til Vopnafjarðar. Þetta var engin smáræðisleið. Dæmi um svipaðar ferðir eru margar. Ungir menn trúa þessu varla nú. Er þér nokkur sérstök stórhríð minnisstæð? Ég man einna gleggst eftir stórhríð um páskaleytið 1917. Það var ofsaveður. Til allrar hamingju var fé allt á húsi þá, annars hefði illa farið. Fjárskað ar urðu heldur ekki hjá ná- grönnunum í það skipti, svo ég muni. En oft misstum við fé. Það fennti þó sjaldan, en hrakti stundum í ár og læki í snöggum áhlaupum. Það var tæplega hægt að koma í veg .fyrjr nokkra fjárskaða, eins og bú- skap var þá háttað, og er enn, á slíkum stöðum. Féð lifði mest á útigangi, var t. d. tæplega nokkur tíma tekið í hús fyrir áramót. Hvað félikstu þunga dilka á liaustin? Fyrstu búskaparár mín voru fráfærur og þá var ekki um dilka að ræða heldur fjalla- lömb. Þessi lömb voru yfirleitt sett á. Þá var útflutningur sauða. En sauðasalan og fráfær- urnar hættu jafnsnemma. Ég held, að sauðir hafi ekki verið á Jökuldal, eða ekki að neinu ráði, eftir 1910. Hins vegar hélzt gamli siðurinn lengur á Fjöll- um. Þegai- lömbin fengu að ganga undir ánum, voru dilk- arnir vænir, allt upp i 20 kg. kroppar. Svo var landgæðunum fyrir að þakka. Fullorðið fé var þó að sínu leyti vænna. Frá- færuær mjólkuðu líka svo um munaði í búið, á meðan fráfær- ur hétu og voru. Þær fullorðnu 3 pela fyrst eftir fráfærur og mjólkin var mjög feit og kosta- mikil. En vetrarferðir á hestum? Lengstu vetrarferðirnar voru kaupstaðarferðirnar á þorran- um. Þá var farið með hesta og sleða og voru jafnan margir saman. Sjaldan fengum við gott veður alla ferðina, en hrepptum stundum hörkuveður. Þessar ferðir voru sjálfsagðir þættir í lífi fólksins, eins og öll önnur ferðalög, t. d. við féð. Og alltaf var hesturinn ómissandi. Án hans var þetta allt fyrirfram dauðadæmt. Það er sagt, að silungur sé í hverju vatni á Jökuldalsheiði? Já, það er rétt. Vötnin á heið inni eru óteljandi og silungur er í þeim flejtum eða öllum og einnig í síkjum og tjörnum. Þetta er bleikja. Við stunduð- um silungsveiðina allt árið. Sil- ungurinn var hið ágætasta ný- meti og mikil búbót. Hann var alltaf veiddur í lagnet ert ekki dregið fyrir eða veitt á stöng. Bleikjurnar voru þetta tvö pund. Við lögðum netin undir ís á vetrum. Þetta var ákaflega dýrmætt. Veiðin var talin mest í Ánavatni. En það merkilega hefur skeð, að á síðari árum veiðist miklu stærri silungur í þessum vötnum, allt að 5—8 punda bleikjur. Þetta þekktist ekki áður. Sumir álíta, að vik- urfall hafi skemmt gróður vatn anna um langan tíma, en nú sé orðin meiri grózka í vötnunum. Jökuldalsheiðin er öll gróin að heita má og þar er kjarnaland. Víðáttan er mikil og þar er sum arfagurt svo af ber. Sigurður Haraldsson. Það er fagurt ó Rangalóni? Já, segir Sigurður, þar er dá- samlegt útsýni á fögrum sum- ardögum, þegar loft er tært. Þá blasir Snæfell við, fyrir enda Sænautavatns, séð frá Ranga- lóni, auðvitað langt í burtu, en svipmikið. Gróðurinn er bæði- fagur og kjai'nmikill. Heiðin angar í gróandanum, og hún býr yfir töfrum. En þar mun hafa verið erfiður heyskapur? Já, þegar ég bjó á Rangalóni, þurfti ég að sækja heyskapinn langan veg og binda heyið vota- band. Við fórum svona þrjár ferðir á dag. Þetta þætti sein- legt nú. En sú var bót í máli, að lítið þurfti að gefa fénu, og það var látið bjarga sér, svo sem það framast gat. Syo flutlir þú að Stuðlafossi? Ég flutti þangað eftir tveggja ára búskap á Rangalóni. Sum- arið 1923 fór að snjóa á Ranga- lóni 18 vikur af sumri og al- gerlega jarðlaust viku fyrir vet- ur. Þá ákvað ég að flytja mig næsta vor og gerði það. Stuðlafoss er nærri lneindýra- slóðuni? Stuðlafoss á Fljótsdalsheiði er rétt við heimkynni hreindýr- anna á Vesturöræfum. Ég sá þau oft, stundum í stórum hóp- um. Þau eru falleg og kvik á fæti. Þau komu næst byggð á vorin. En aldrei skaut ég þau, þótt ég færi nokkuð með byssu. Atvikin höguðu því svo, að mér fannst lífvænlegra fyrir mig og mína, að skipta um at- vinnu. Árin á milli 1920—1930 voru erfið ár til búskapar. Verð fall á afurðunum og síðar pest- ir í sauðfénu ýttu undir atvinnu skipti mín. Þó hefur ekkert starf veitt mér eins mikið yndi og fjármennskan, segir Sigurð- ur að lokum og þakka ég við- talið. Rangalón og Stuðlafoss, þessi gömlu heiðabýli, þar sem hinn sjötugi maður á Akureyri, Sig- urður Haraldssqn, bjó á sínurn tíma, eru bæði í.eyði, en graenir blettir og veggjabrot segja veg farendum sögubrot. Þar, og á fjölda heiðabýla, var staðinn vörður meðan stætt var og í þeim hópi var Sigui'ður Haralds son, barn heiðarinnar og fóstur- sonur. E.D. LEIKFÉLAG AKUREYRAR: Þretfándakvöld LEIKFÉLAG Akureyrar hristi af sér slenið og réðist í það stór virki að velja til meðferðaí Shakespeare-leikritið Þrettánda kvöld, sem fyrsta verkefni leik- ársins. En 400 ára afmælis lár- viðai-skáldsins verður víða minnzt á þessum vetri. Og LA varð fyrst til þess, utan höfuð borgarinnar, að setja Shake> speare á svið. Þrettándakvöld hefur verið sýnt í fjölda leikhúsa víða um lönd, en fyrst varð Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn til að kynna þetta verk meðal næstu nógrannaþjóða okkar, Eln það sýndi leikinn fyrir meira en öld. í Reykjavík tóku menntaskólanemar leik þennan til meðferðar árið 1959. En Leik félag Reykjavíkur sýndi Þrctt ándakvöld 1925—1926 í þýð ingu Indriða Einarssonar. Þýð ingu þá, sem nú er notuð, gerði . Helgi Hálfdánarson lyfsali frá Húsavík, sem getið hefur sér frægðar fyrir þýðingar. Það er raunar furðulegt, að sjónleikur, sem orðinn er nokk- urra alda gamall, skuli eiga er- indi til okkar, sem nú sækjum leikhús. En þótt ýmislegt fari að sjálfsögðu fyrir ofan garð og neðan hjá íslenzkum leikhús- gestum af því, sem hinn aldni andans jöfur skrifaði fyrir hart nær fjórum öldum, er ástin sí- ung, eins og sorgin og gleðin, auður og fátækt, völd og um- komuleysh • Og' þessum trúföstu fylgikonum er hægt að lyfta í æðra veldi með orðsins list. Það gerði William Skakespeare á þann hátt í þessum gamanleik, að nægði til slíks langlífis. Samkomuhúsið var þéttsetið er frumsýningin fór fram, sl. sunnudag. Leikhúsgestir sáu hina ensku og skrautlegu búninga, sem Eðvarð Sigurgeirsson tók þessa mynd af leikfólki og starfsmönnuin Leikfélags Akurcyrar á síðustu æfingu Þrettándakvölds. leikarar bæjarins báru með sóma, margvísleg og vel gerð leiktjöld Aðalsteins Vestmanns, góð sviðsljós og „fundu“ hina öruggu leikstjórn frá upphafi leiksins til enda. Ágúst Kvaran leikstjóri, sem fyrr á árum var einn af fjölhæf ustu leikurum þessa lands og síðar kunnur leikstjóri, tók að sér leikstjórnina hjá LA að þessu sinni. Með þeirri ákvörð- un var þungum áhyggjum velt á hans breiða bak og í vitund bæjarbúa var leiknum tryggður mikill framgangur með ráðn- ingu hans. Leikstjórn Þrettándakvölds var með ágætum. Stjórnsemi og smekkvísi leikstjórans brást hvergi. Jafnvel nýliðarnir voru öruggir, líkt og þar færu sviðs- vanir menn. Það, sem að mátti finna, var það helzt, að mörg snilliyrði og meitlaðar og stuðl- aðar setningar heyrðust ekki nægilega vel. Vera má, að úr því megi bæta. Leikstjóranum var fagnað ákaflega í leikslok- in. Ungfrú Þórhalla Þorsteins- YFIRLYSING frá Búnaðarsambandi Suður-Þingeyinga STJÓRN Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga lýsir óánægju sinni yfir nýföllnum úrskurði yf irdóms á verðlagningu landbún- aðarvara, fyrir verðlagsárið 1963—1964, sem getur enganveg inn tryggt bændum fullt fram- leiðslukostnaðarverð búvara, sem lög ákveða, þrátt fyrir þá viðurkenningu, sem nú hefur fengizt á því, að laun bænda hafi verið skert á undanförnum árum með rangri vei'ðskrán- ingu. Sérstaklega telur stjórnin úrskurð yfirnefndar um tak- mörkun á verðtilfærslu kjöts og mjólkur, gegn einróma tillögum baenda, algjörlega óviðunandi. Hinsvegar lýsir stjórn B.S.S. Þ. stuðningi við stefnu stjórnar Stéttarsambandsins í verðlags- málum landbúnaðarins, en vill leggja'áherzlu á hvoi't ekki sé hægt að krefjast opinberrar réttarrannsóknar á því hvort úr skmður yfirdóms brjóti ekki í bág við þau ákvæði Framleiðslu ráðslaganna, er tryggja átti bændum sambærileg laun við aðrar Stéttir í landinu, þar sem augljóst er að nokkrir kostnað- arliðir, við búreksturinn, hafa verið áætlaðir óeðlilega lágir. Fari sú rannsókn fram og í Ijós komi að kjör bænda hafi verið skert með gerðardómi, verði þess krafizt af ríkinu að það bæti bændastéttinni að fullu sannanlegt tjón. Árnesi 15. okt. 1963. Stjóm Búnaðarsambands Suð- ur-Þingeyinga. — (Fréttatilk.). AFLIER IIELÐUR AÐ GLÆÐAST Ólafsfirði 29. okt Nú er sumar- auki og hin mesta veðurblíða. Afli er heldur að glæðast síð- ustu dagana. Leikfélagið æfir sjónleik af kappi, sem verður frumsýndur innan skamms. dóttir lék hina auðugu greif- ynju Oliviu og gæddi hana reisn og öryggi. Frú Björg Baldvinsdóttir lék tvíþætt hlutverk, bæði konu og pilt af miklum þokka. Ungfrú Brynhildur Stein- grúnsdóttir fór með hlutverk hinnar hrekkjóttu stallsystur Oliviu af léttleika. Guðmundur Gunnarsson lék sjálfan Orsino hertoga á þann veg, að báðum var sómi að. Sigtryggur Stefánson lék Tobi- as Búlki, svallara í hermanna- stétt, á einkar skemmtilegan hátt. Haraldur Sigurðsson fór með hlutverk Andrésar, svallbróður Tobiasar, og gerði því hlutverki eftirminnileg skil. Jón Kristinsson lék bryta Oli- viu Ef hægt er að tala um leik- sigur einhvers að þessu sinni, féll hann Jóni í skaut. Jóhaim Ögmundsson og Páll Halldórsson léku fíflið og Fa- bian og koma báðir töluvert við sögu, einkum sá fyrrnefndi og gerði hami hlutverki sínu góð skil, svo sem vænta mátti. Ólafur Axelson lék ungan að- alsmann, Sebastian. Stefán Halldórsson lék Anto- nioí gamlan skipstjóra. Einar Haraldsson og Sveinn H. Jónsson léku hirðmenn her- togans. Jón Ingimarsson fór með hlufc verk skipstjóra og Sæmundur Andersen lék prest. Leiksviðsstjórn annaðist Odd ur Kristjánsson, ljósameistari var Ingvi Hjörleifsson, hár- greiðslu annaðist Ásta Kröyer og Aðalsteinn Vestmann málaði Jciktjöldin, eins og fyrr segir. Hljóðfæraleik önnuðust Nanna Jakobsdóttir, Guðm. Kr. Jó- hannsson og Reynir Jónsson. Q FIMM NYJAR FROÐABÆKUR BLAÐINU hafa borizt 5 nýjar bækur frá Bókaútgáfunni Fróða í Reykjavík. Tveggja heima sýn er önnur bók Olafs Tryggvasonar á Ak- ureyri. Hina gaf Kvöldvökuút- gáfan út í fyrra og nefndist hún Huglækningar, og vakti bókin mikla athygli og umræður. Bók in Tveggja heima sýn er á þriðja hundrað blaðsíður og skiptist í 20 kafla. Bókin fjall- ar um dulræn efni, trú og víá- índi og flytur fagran boðskap um sambýli heimanna tveggja. Brúin á Drinu eftir Ivo An- drie í þýðingu séra Sveins Vík- ings er stórbrotin bók, þjóðlífs- lýsing, sem færði höfundi sín- um bókmenntaverðlaun Nobels. Brúin á Drinu er magnþrung in skáldsaga frá Jugoslaviu, þar sem gömul og traust brú á Drinu er eins konar miðdepill. Saga þessi er nær 350 bls. í stóru broti, prentuð á góðan pappír, svo sem hæfir merkri bók. Við ókum suður er sérkenni- leg bók, eins konar ferðasaga í léttum tón eftir kunnan blaða- mann og bókmenntagagnrýn- anda, danskan, Jens Kruuse að nafni. Höfundurinn hefur kímni gáfu í ríkum mæli og gerir ó- spart grín að samferðafólkinu og einnig sér og konu sinni. Bók þessi kom nýlega út á dönsku undir nafninu „Min kone sidder paa kassen" og hlaut góðar við- tökur. Andrés Kristjánsson rit- stjóri þýddi bókina. Hinn fullkonmi eiginmaður er eftir Willy Breinholzt og í svip- uðum dúr skrifuð og Vandinn að vcra pabbi, sem út kom í fyrra. Höfundur biður lesendur að minnast þess, að hjónaband- ið sé samskotabaukur. í hann leggi konan dyggð sína, ást og kökuuppskriftir, en maðurinn frelsi sitt, sem sé að vísu meira virði en allt hitt. Palli og Pési er eftir Kára Tryggvason, kunnan, þingeysk- an barnabókahöfund, sem send ir nú frá sér 16. bók sína, litla bók fyrir yngstu lesendurna. Þótt bók þessi sé ekki mikil fyrirferðar, mun hún veita mörgu ungmenni ósvikna gleði. DÝRAVERNDARINN NÝÚTKOMIÐ hefti Dýravernd ai'ans, hins gamla og vinsæla tímarits, hið fjórða þessa árs, hefur verið sent skólum lands- ins. Tilgangurinn er sá, að hafa áhrif á að fræðsla um dýravernd sé aukin, og er þetta því $ins konar skólablað. Heftið hefst með ávarpi til námsstjóra, skólastjóra og kenn ara, undirritað af mörgum mæt- um mönnum í stjórn SDÍ. Þá er þar grein um sinubrennur, sem oft hafa verið til umræðu hér á landi. En grein þessi er m. a. byggð á erlendum rannsóknum á þessu efni. Höfundur er Þor- steinn Einarsson íþróttafulltrúi. Þá er í ritinu myndskreytt grein sem heitir: Til glöggvunar handa uppalendum ,og fjallai? um dýr og dýravernd, ennfrem- ur eru íslenzk lög og reglugerð- ir, sem varða dýrin. Þá má nefna kvæðið Smali eftir Þor- mund Erlingsson, Skin og skugg ar, sem ætlað er yngstu lesend- unum, enska ævintýrið . Lati- Jón, þýtt kvæði o. fl. Skólahefti Dýraverndarans ei’ efnisgott. Ritstjóri er Guðmund ur Gíslason Hagalín. íslenzkar ljósmæður II. BINDI KOMID er út hjá Kvöldvökuút- gáfunni á Akureyri II. bindi a£ íslenzkar ljósmæður, sem séra Sveinn Víkingur bjó til prent- unar, eins og hið fyrra bindi, sem út kom í fyrra og var vel tekið. í bók þeirri, er nú er út kom- in, eru þættir af 29 ljósmæðr- um, auk formálsorða höfundar. íslenzkar ljósmæður hafa margar dáðir drýgt og er vel að þeirra sé minnzt. Þættir þeir, sem hér koma fyr ir almenningssjónir, eru ýmist ritaðir af ljósmæðrunum sjálf- um eða öðrum. Eru þeir því margir, sem hönd hafa lagt að þessari nýju bók. Q

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.