Dagur - 08.01.1964, Blaðsíða 1
AUGLÝSIÐ í DEGI
- því allir lesa Dag
Símar 1166 og 1167
l-—- --- . . .--j
Nýir KAUPENDUR
r
Dags! Askriftarsím-
ar 1166 og 1167.
Drunur og högg eru í Brúarjökli
Jökullinn skríður fram - Jökulröndin 10 m. liá
BLAÐIÐ átti í gær símtal við
Hrafn Sveinbjamarson á Egils-
stöðum og spurði hann frétta af
ferðalagi því, er hann, ásamt
þeim Ingimar Þórðarsyni Egils-
stöðum og Sigurði Halldórssyni
á Brú, fói'u til Brúarjökuls á
vegum Jöklarannsóknarfélags-
ins.
Þeir lögðu upp á fimmtudags-
kvöldið 2. janúar, á vörubíl með
snjóbíl á palli. Er færi tók að
þyngjast á Jökuldal við Gilsá,
gripu þeir til snjóbílsins og
höfðu næturstað á Jökuldals-
heiði fyrstu nóttina. Þaðan óku
þeir „milli vatna“ upp á Múla
og inn Oldu milli Vesturdals og
Laugarvalladals, yfir Sauðá og
gistu á Sauðafellsöldu.
Daginn eftir var ekið suður í
Kringilsárrana. Stikur settum
við niður, samkvæmt fyrirmæl-
(Framhald á blaðsíðu 7).
Ný hljómsveit, bókargjöf, spilavist
SÓLFAXI KOM TIL
AKUREYRAR
HIN NÝJA 80 farþega Cloud-
master-flugvél F. í. kom til
Reykjavíkur sl. sunnudag og
samdægurs hingað til Akur-
eyrar. Hún ber einkennisstaf-
ina TF — FÍP. Flugstjóri hing-
að til Akureyrar var Bragi
Norðdalh. Er hann hér, ásamt
flugfreyjunni Ernu Nílsen,
staddur í Flugstöðinni.
Svarfaðardal, 5. jan. 1964. Nú
um jólin færði Magnús Gunn-
laugsson, verkamaður á Akur-
eyi-i, Húsabakkaskóla að gjöf
' llllllllllll III I ..HT—
DAUÐASLYS
á Ráðhústorgi
UM KLUKKAN 6 síðdegis á
mánudaginn, hinn 6. janúar,
varð dauðaslys á Ráðhústorgi
á Akureyri. Öldruð kona,
Guðný Sigurðardóttir, Glerár-
eyrum 14 varð fyrir bifreið og
lézt litlu síðar.
Slysið bar að með þeim
hætti, að Guðný var á ‘ leið
vestur yfir Geislagötu, frá
gamla Búnaðarbankaliúsinu,
en bifreiðin var að beygja til
vinstri úr Ráðhústorgi inn á
Geislagötu er slysið varð.
Án þess að leggja dóm liér á,
vill blaðið benda á, að á þess-
um stað er lýsing fremur léleg.
nHHnEHHBHBBIII
25 bindi bóka. Er þetta þriðja
bókagjöfin til skólans frá Magn-
úsi, og munu það alls orðin um
140 bindi.
Magnús er mikill bókamaður
og aðspurður segist hann ekki
komast yfir að lesa allar þær
bækur, sem hann eigi. En hann
hafi alltaf verið mikill aðdáandi
æskunnar og vilji heill hennar
og gengi í hvívetna. Svarfdæl-
ingar eru honum að vonum
þakklátir fyrir þessar höfðing-
legu gjafir.
í gærkvöldi efndi Framsókn-
arfélagið til skemmtikvölds í
þinghúsinu að Grund. Var þar
spiluð Framsóknarvist. Er þetta
fyrsta spilakvöldið af þremur
fyrirhuguðum. Þessi fagnaður
var mjög vel sóttur og var spil-
að á 22 borðum. Kvöldverðlaun
hlutu: Rögnvaldur Friðbjörns-
son er hafði 183 slagi og Elin-
björg Þorbjörnsdóttir, sem
hlaut 180 slagi.
Vistinni stjórnaði Björn Daní
elsson kennari. Þar á eftir var
drukkið kaffi og er borð voru
(Framhald á blaðsíðu 5.)
BETTY ALLEN
VÍÐKUNN bandarísk söngkona,
Betty Allen, syngur sennilega í
Borgarbíói á Akureyri n. k.
laugardag kl. 5, með undirleik
Árna Kristjánssonar.
Söngkonan skemmtir Reyk-
víkingum um þessar mundir,
m. a. mun hún syngja með Sin-
fóníuhljómsveit íslands. Hingað
kemur hún á vegum Tónlistar-
félags Akureyrar.
Hin mikla liækkun ríkisútgjalda,
skatta og þjónustu
r
Ur áliti 1. minnihluta fjárveitmganefndar
HÉR skal gerðui' samanburður
á niðurstöðutölum fjárlaga árið
1958 og síðar. Hliðstæður er
þessi samanburður, þar sem fjár
hæð sú, sem útflutningssjóður
varði til niðurgreiðslu á vöru-
verði 1958 og 1959, er lögð við
niðurstöðutölu fjárlaga þau ár.
Sjá töflu, sem prentuð er í
greinarlok á 6. síðu.
Yfirlit þetta sýnir, að fjárlög
hafa hækkað á þessu sex ára
tímabili um 1770 millj. kr., eða
um 200%, og hefur hækkun
þeirra á milli ára tvö síðustu ár-
in orðin svipuð og heildarfjár-
hæð fjárlaga var fyrir 10 árum.
Tekjur fjárlaga hafa þó reynzt
meiri en þetta yfirlit sýnir. Árið
1962 fóru þær um 300 millj. kf.
fram úr áætlun,- og á yfirstand-
andi ári má gera ráð fyrir því,
að þær fari 300—400 millj. kr.
fram úr áætlun. Gera verður
ráð fyrir, að tekjuáætlun fyrir
árið 1964 sé svipað uppbyggð
og verið hefur og tekjur ríkis-
sjóðs á því ári muni fara um
300 millj. kr. fram úr áætlun
fjárlagafrv., eins og það er nú
við 2. umræðu þess.
(Framhald á blaðsíðu 6).
íslcnzku ferðaniennirnir skoða hér íbúð á 10. hæð í fjölbýlishúsi. Frá v.: Magnús, Áskell og Gunnlaugur, ásanit breskuni konum,
sem þama eiga heima. Og svo sem sjá má em íslendingamir kærkomnir gestir. Sjá 8. síðu.
Erlendir söngvarar, sem ætla
má að söngelsku fólki þyki
nokkurs um vei't að sjá og
heyra, er sjaldséð á Norður-
landi, og þykii' gott ef þeii' tylla
fæti í Höfuðborginni. Þess
vegna mun því fagnað, að tekist
hefur að fá nefnda söngkonu
hingað norður. O
Fyrstu farþegar til Norður-
lands með þessari flugvél,
ganga niður landganginn.
(Ljósm. E. D.)